Morgunblaðið - 12.08.2022, Page 2
2 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Gísli Freyr Valdórsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Winkel Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Umtalsvert færri beiðnir um endur-
greiðslu á virðisaukaskatti vegna
vinnu hafa borist í ár en í fyrra. Um
1,8 milljarðar hafa verið endur-
greiddir það sem af er ári en tæp-
lega 11 milljarðar voru greiddir út í
fyrra.
Sem kunnugt er var eitt af úrræð-
um ríkisstjórnarinnar til að bregðast
við efnahagssamdrætti af völdum
kórónuveirunnar að hækka endur-
greiðsluhlutfall virðisaukaskatts
tímabundið úr 60% í 100%. Margir
nýttu sér þetta úrræði í fyrra og var
það framlengt í breyttri mynd um
áramótin. Úrræðið, sem gjarnan
gengur undir nafninu Allir vinna,
rennur út um næstu mánaðamót.
Það sem af er ári hefur skatt-
urinn afgreitt 10.679 umsóknir um
endurgreiðslur. Þetta er umtalsverð
fækkun frá því í fyrra þegar af-
greiddar umsóknir voru alls 58.128
talsins. Hafa ber þó í huga að úr-
ræðið var í gildi allt árið í fyrra og
þá var hægt að fá endurgreitt
vegna bílaviðgerða. Svo er ekki nú.
Hins vegar kunna enn að vera um-
sóknir sem bíða afgreiðslu auk þess
sem fleiri umsóknir munu eflaust
bætast við áður en úrræðið rennur
út 31. ágúst.
Í svari skattsins við fyrirspurn
Morgunblaðsins kemur fram að
langflestar endurgreiðslubeiðnir
koma frá einstaklingum vegna íbúð-
arhúsnæðis. Nú hefur verið af-
greidd 10.631 slík en allt árið í
fyrra voru þær 40.846 talsins. Þessi
fækkun nemur tæpum 74% en hafa
ber í huga áðurnefnda fyrirvara að
ekki eru öll kurl komin til grafar.
Enn meiri fækkun hefur orðið í
umsóknum frá sveitarfélögum og
almannaheillafélögum. Í ár hafa 46
umsóknir verið afgreiddar frá sveit-
arfélögum en voru allt árið í fyrra
1.431. Greiðslur til sveitarfélaga
nema tæpum níu milljónum króna.
Aðeins tvær umsóknir hafa verið
afgreiddar frá almannaheilla-
félögum en voru 244 í fyrra.
Greiðslur í ár nema tæpum 44 þús-
und krónum.
Einstaklingar hafa fengið tæp-
lega 1,8 milljarða króna í endur-
greiðslur vegna íbúðarhúsnæðis það
sem af er ári. Greiðslur til ein-
staklinga námu tæpum níu millj-
örðum króna allt árið í fyrra.
Mikil fækkun umsókna um endurgreiðslur
Morgunblaðið/Eggert
Vinna Margir sinna viðhaldi á sumrin. Færri sækja um í Allir vinna-átakinu.
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
„Ja, þeir voru hérna í gær [fyrradag]
uppi í hlíð, menn sem segjast vera
frá Swiss National Broadcasting
Corporation,“ segir Kristján Lofts-
son, framkvæmdastjóri Hvals hf., í
samtali við Morgunblaðið um mál
sem lyktaði með því að starfsmenn
Hvals lögðu hald á dróna Svisslend-
inganna sem þeir neita alfarið að
skila þrátt fyrir fjölda símtala frá
lögreglunni á Akranesi.
Ekki ríkisútvarpið
Hefur Kristján kært drónaflugið
til lögreglu en hópurinn sem stýrði
téðum dróna er þó ekki svissneska
ríkisútvarpið, sem heitir Swiss
Broadcasting Corporation, heldur
einkarekin svissnesk vefsíða sem
kallast Swiss National Broadcasting
Corporation. „Í gær [fyrradag] kom
hvalbátur inn með hval og menn eru
að vinna þarna á planinu,“ segir
Kristján frá, „þá verða þeir varir við
dróna sem flýgur
þarna yfir í um 20
metra hæð. Sam-
kvæmt lögum er
það allt of nálægt,
drónar eiga að
vera í 150 metra
fjarlægð frá at-
hafnasvæðum
nema leyfi liggi
fyrir til að fara
inn á svæðið,“
heldur hann áfram.
„Fyrir þessum mönnum fer ein-
hver Philippe Blanc sem sendi mér
tölvupóst 2. ágúst og bað mig um
heilmikið viðtal um hvalveiðarnar,“
segir Kristján og les allan tölvupóst-
inn fyrir blaðamann þar sem farið er
fram á ítarlegt viðtal, heimsókn á
starfsstöðvar og jafnvel fjölskyldu-
sögu Kristjáns.
Með hljóðnema á stöng
„Þeir segjast svo koma hérna 6.
ágúst og ég svaraði honum tveimur
dögum síðar og sagðist ekki geta hitt
hann á þessum tíma,“ segir Kristján.
„Ef einhver sendir þér skeyti 2.
ágúst, á þriðjudegi, og vill hitta þig á
laugardegi er bara ekkert á vísan að
róa með það og ég sagði honum það
bara,“ segir Kristján sem þurfti að
hverfa til Noregs 5. ágúst.
Kveður hann þá Blanc svo hafa
skipst á nokkrum tölvupóstum en
ekki náð saman um fund. „Svo gerist
það þarna í gær [fyrradag] að þessi
dróni er að fljúga þarna yfir, ég var
ekki þarna en sá myndskeið af
þessu. Og uppi í hlíðinni er heilt
gengi með meðal annars míkrófón á
stöng, þetta var bara eins og eitt-
hvert Hollywood-gengi,“ segir
Kristján.
Urðu alveg brjálaðir
Starfsfólk hans hafi þá farið upp í
hlíðina til að ræða við Blanc og hans
fólk og þá verið í aðstöðu til að
leggja hald á drónann. „Þeir voru
eitthvað að tala við þá strákarnir
sem vinna hjá mér og þá sér einn
hvar dróninn liggur þarna ofan á
tösku. Hann fer með hann og setur
hann inn í bíl og þeir urðu alveg
brjálaðir,“ segir Kristján.
Téður Blanc hafi haft sig mest í
frammi af hálfu Svisslendinga og þá
hafi símtöl tekið að streyma inn frá
lögreglunni á Akranesi. „Þeir
hringja fjórum eða fimm sinnum og
biðja okkur að afhenda lögreglunni
drónann. Við sögðum bara nei, við
þyrftum að hafa einhver sönnunar-
gögn,“ segir Kristján sem nú hefur
kært drónaflugið til lögreglu og hef-
ur Morgunblaðið kæruna undir
höndum.
Margir sauðaþjófar á Íslandi
„En hvort þeir kæri okkur fyrir að
hafa stolið drónanum það veit ég
ekki. Ég var skíthræddur við að lög-
reglan afhenti þeim bara drónann
aftur og segði svo bara „case clos-
ed“. Þeir voru alltaf að hræða okkur
með því að hægt væri að kæra okkur
fyrir þjófnað og þá sagði ég nú bara
„já já, það eru nú margir sauðaþjóf-
ar á Íslandi, alls konar fólk úr Ís-
lendingasögunum sem eru nú bara
hetjur í dag“,“ segir Kristján og
hlær.
„Ég kann ekkert á dróna en þeir
eru að senda þetta eitthvað, brjóta
allar reglur loftferðalaga og ég veit
ekki hvað. Þessir gæjar kunna enga
mannasiði get ég sagt þér,“ heldur
framkvæmdastjórinn áfram.
Bíður eftir kæru
Hann viti ekki hvað næst gerist í
málinu. „Ég bíð bara eftir að þeir
kæri, Svisslendingarnir, ég var
nokkuð viss um að þeir væru bara
komnir hingað til að ná í efni til að
sjónvarpa í Sviss. Ég er nú búinn að
vera í þessu lengi og ég þekki það vel
að það þarf alltaf sjónvarpsefni,
textinn einn segir ekki mikið á þess-
um vettvangi og þessir menn voru
bara hér á höttunum eftir slíku efni.
Við afhendum þennan dróna ekki
fyrr en við getum treyst því að lög-
reglan rannsaki málið ofan í kjöl-
inn,“ segir Kristján Loftsson að lok-
um.
Tóku svissneskan dróna traustataki
- Flugið kært til lögreglu - „Eins og eitthvert Hollywood-gengi“ uppi í hlíð - Bíður eftir kæru frá
Svisslendingum - Afhendi ekki drónann fyrr en ljóst sé að lögregla rannsaki málið ofan í kjölinn
Kristján
Loftsson
Morgunblaðið/Kristvin Guðmundsson
Sund- og sjóbaðsfélag Reykjavíkur stóð fyrir Fossvogs-
sundi í gærkvöldi þar sem synt er frá Nauthólsvík yfir í
Kópavog, um 1.100 metra leið.
Þátttakendum var gert að mæta vel hvíldir, vel
nærðir og með skærlita sundhettu, öryggisins vegna.
Þá syntu allir þátttakendur með baujur sem félaginu
voru gefnar nýlega. Bátafylgd var á staðnum og synti
vant sjósundsfólk með sundfólkinu, sem var boðið í
heitan pott að sundi loknu til að ná í sig hita. Sundið er
undanfari þess að fá að synda út í Viðey með félaginu.
Fossvogssundið þreytt
Blaðamennirnir fjórir sem notið
hafa réttarstöðu sakbornings vegna
meintra brota á friðhelgi einkalífs
hafa verið boðaðir til skýrslutöku að
nýju af lögreglunni á Norðurlandi
eystra.
Tveir búnir í skýrslutöku
Blaðamennirnir sem um ræðir
eru þau Aðalsteinn Kjartansson á
Stundinni, Þóra Arnórsdóttir á Rík-
isútvarpinu og Þórður Snær Júlíus-
son og Arnar Þór Ingólfsson á
Kjarnanum. Þegar er búið að taka
skýrslu af Þórði Snæ og Arnari Þór,
en þær skýrslutökur fóru fram í
gær.
Kæra vegna stuldar á síma Páls
Blaðamennirnir hlutu réttarstöðu
sakbornings vegna umfjöllunar um
svokallaða „skæruliðadeild“ Sam-
herja, nokkra starfsmenn fyrir-
tækisins sem þótti það ekki ganga
nógu hart fram í vörn sinni vegna
frétta af umsvifum þess í Namibíu.
Þar á meðal er Páll Steingrímsson,
skipstjóri hjá Samherja, en hann
hefur lagt fram kæru til lögreglu
vegna stuldar á síma og notkunar á
gögnum úr honum. Eftir að tilkynnt
var að blaðamennirnir hefðu stöðu
sakbornings lét Aðalsteinn reyna á
lögmæti aðgerðanna fyrir dómstól-
um, en máli hans var vísað frá
Hæstarétti.
Blaðamennirnir til
skýrslutöku á ný
- Þórður Snær og Arnar Þór fóru í gær
Þórður Snær
Júlíusson
Þóra
Arnórsdóttir
Aðalsteinn
Kjartansson
Arnar Þór
Ingólfsson