Morgunblaðið - 12.08.2022, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.08.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022 Scholl vörurnar fást í apótekum, Hagkaup, Fjarðarkaup, Stoð og á Heimkaup.is Sléttar og fallegar fætur fyrir sumarið með fótaraspstækinu frá Scholl Veronika Steinunn Magnúsdóttir Guðrún Sigríður Arnalds Til eru foreldrar sem sjá fram á að taka launalaust leyfi til þess að sinna börnunum sínum, þar sem þau hafa ekki fengið leikskólavist sem þeim var lofað. Á meðal þeirra er fjöl- skylda Sævars Helga Bragasonar. „Við fluttum úr Garðabæ til Reykja- víkur. Okkur var sagt að við fengjum leikskólapláss í september og það var í lagi út frá fæðingarorlofi og slíku. Síðan kemur í ljós að því er frestað um þrjá mánuði og hann fær ekki pláss fyrr en í lok nóvember lík- lega,“ segir Sævar en drengurinn hans er nítján mánaða. „Annað okk- ar þarf bara hreinlega að taka sér launalaust leyfi úr vinnu í um það bil tvo til þrjá mánuði eða nýta orlofið sitt að hluta til. Það gæti valdið okk- ur vandræðum á næsta ári,“ segir Sævar. Um 50 mótmæltu í Ráðhúsinu Fjölskyldan sé því nokkuð ráða- laus og voru Sævar og sonur hans því á meðal þeirra fimmtíu sem komu saman í Ráðhúsi Reykjavíkur til þess að mótmæla úrræðaleysi í málum fjölskyldna ungra barna. „Við getum varla bæði verið tekju- laus. Þetta kannski rétt sleppur ef annað okkar er tekjulaust og hugsar um drenginn á meðan en síðan fer ég í verkefni í október sem ég get ekki sleppt. Það er skandall að það sé ver- ið að setja foreldra í þessa stöðu. Þetta á bara að vera í lagi,“ segir Sævar og bætir við að hann sé ekki eina foreldrið sem standi frammi fyrir þessum vanda. Barnið tilbúið að fara á leikskóla Sævar hefur þó mestar áhyggjur af félagsþroska barnsins síns. „Maður sér hversu tilbúið barnið er til þess að fara á leikskóla og vera innan um aðra krakka. Mér finnst eins og það sé verið að fresta ákveðnum þroska hjá krökkunum með því að fresta þessu sí og æ,“ seg- ir hann. Börn eigi að fá að leika sér og vera innan um aðra á þessum aldri. „Mig langar að sjá hann vera í leikskóla. Rútínan að vakna, borða og fara út á róló verður þreytt fyrir alla, ekki bara krakka,“ segir hann. „Fólk vill skýr svör“ Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir í samtali við Morgunblaðið að borgin hafi lengi haft í forgangi að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskólavistar. „Við fengum að heyra á borgar- ráðsfundi í morgun [gærmorgun] að fólk vill skýr svör varðandi sitt barn og vonandi ættu þau að nálgast í þeim tilvikum sem þau hafa ekki ver- ið veitt, eftir vinnu skóla- og frí- stundasviðs,“ segir hann. Hún standi yfir þessa dagana. „Það eru mörg pláss að koma inn,“ segir Dagur og nefnir í því samhengi að börn hafi fengið vist á Mánagarði á Eggerts- götu, sem síðan flytja yfir á leikskól- ann Vingerði í Nauthólsvík. „Þá opn- ast fleiri pláss á Eggertsgötunni,“ segir hann. Mótmælin gefi þó til kynna að foreldrar hafi væntingar til borgarinnar. Vonbrigði að áætlanir gengu ekki eftir „Á síðasta kjörtímabili voru gerð- ar metnaðarfullar áætlanir um að taka inn tólf mánaða börn í septem- ber. Það eru mikil vonbrigði að þær áætlanir hafi ekki gengið upp,“ segir Einar Þorsteinsson formaður borg- arráðs. Tólf mánaða börnum var lof- að leikskólaplássi áður en Framsókn steig inn í meirihlutasamstarfið. Einar segist hafa óskað eftir skýr- ingum frá skóla- og frístundasviði á því að áætlanir hafi ekki gengið upp þegar honum fóru að berast tölvu- póstar frá ósáttum foreldrum. Sviðsstjóri skóla- og frístunda- sviðs gaf borgarráði í gær munnlega skýrslu um stöðu innritana barna inn á leikskóla og hvers vegna þær áætl- anir hafi ekki staðist. „Gögnin liggja að einhverju leyti fyrir hér hjá borginni. Svo er verið að móta tillögur um það hvað er hægt að gera til þess að bregðast við þessum bráðavanda sem foreldrar þessara barna standa frammi fyrir núna,“ segir Einar. Á fundi borgar- ráðs hafi hann lagt áherslu á að horft yrði út fyrir rammann og lausnir fundnar hratt og örugglega. „Ég vonast til þess að fá tillögur á þessum málum inn á næsta fund borgarráðs í næstu viku. En að sjálf- sögðu væri gott að fá þær fyrr ef mögulegt er,“ segir Einar í lokin. Morgunblaðið/Eggert Mótmælt Foreldrar mættu með börnin í Ráðhúsið, rétt áður en fundur borgarráðs hófst í gær. Sumum voru boðin pláss sem ekki eru enn til. Morgunblaðið/Eggert Láta í sér heyra Sævar (t.h.) segir það hafa komið fjölskyldu sinni illa að fá ekki leikskólavist líkt og lofað var. Foreldrar taka á sig launalækkun - Um 50 manns mótmæltu í Ráðhúsinu vegna leikskólavandans - Frestanir koma foreldrum illa Veronika Steinunn Magnúsdóttir veronika@mbl.is Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir borgina bjóða börnum leik- skólavist þegar sæmilegur fyrir- sjáanleiki sé fyrir hendi en almenna reglan sé að bjóða pláss ekki án þess að þau fyrirfinnist. Dagur segir borgarráð bíða eftir yfirliti yfir stöðu mála hvað varðar innritun barna í leikskóla í haust. Hún muni liggja fyrir í næstu viku. „Ég held að það að foreldrar láti heyra í sér þýði að væntingar eru um að þetta muni ganga. Fólk vill auðvitað skóla í sínu hverfi og ná- lægt sínu heimili. Það er það sem við erum að tryggja í okkar áætlunum,“ segir hann. Engin tilboð hafi borist í útboði á nýjum miðborgarleikskóla, sem hafi sett strik í reikninginn. Þá seinkaði einnig opnun leikskóla í Nauthólsvík en á móti hafa ný pláss boðist. Börnum hefur verið boðin leik- skólavist án þess að leikskólar séu tilbúnir. Er þetta tengt því að fram- kvæmdum hafi seinkað? „Það er ekki almenna reglan. Al- menna reglan er að bjóða pláss þeg- ar það er sæmilegur fyrirsjáanleiki. Stundum er það gert með ákveðnum fyrirvörum sem fólk veit þá af,“ seg- ir Dagur og heldur áfram: „Auðvitað vill maður að þetta liggi eins skýrt fyrir og hægt er vegna þess að for- eldrar þurfa eins og aðrir að gera sínar áætlanir. Það er ekki gott fyrir foreldra eða aðstæður þeirra ef þessar áætlanir raskast af ein- hverjum ástæðum sem eru utan þess sem foreldrar geta sjálfir haft áhrif á. Það skilur maður auðvitað,“ segir hann. Dagur vonast til þess að borgin geti gefið foreldrum skýrari svör í næstu viku. Morgunblaðið/Eggert Leikskólar Dagur ræðir við mót- mælendur í gærmorgun. „Væntingar“ hjá foreldrum - Fá brátt yfirlit yfir leikskólamálin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.