Morgunblaðið - 12.08.2022, Page 12
12 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022
Sími 587 1717
www.sulatravel.is
Stangarhyl 1 , 110 Reykjavík
KARÍBAHAF 17.-29. nóvember
Verð frá kr.
495.000
á mann í 2ja manna
inniklefa með
PREMIUM ALLT
INNIFALIÐ
ORLANDO - COZUMEL - COSTA MAYA - ROATÁN - HARVEST CAYE
ALLT INNIFALIÐ Í ÖLLUM SIGLINGUM
EKKI BORGA MEIRA EN ÞÚ ÞARFT
8 sæti
laus
Free at Sea
12. ágúst 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 136.27
Sterlingspund 165.11
Kanadadalur 105.78
Dönsk króna 18.778
Norsk króna 14.094
Sænsk króna 13.462
Svissn. franki 143.83
Japanskt jen 1.0111
SDR 180.16
Evra 139.7
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 173.191
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Töluvert hefur verið rætt um framtíð
Sýnar að undanförnu, eftir að Gavia
Invest, nýstofnað fjárfestingafélag,
eignaðist fyrir
stuttu um 20%
hlut í Sýn. Sýn á
Stöð 2 og Voda-
fone. Raddir um
að það eigi að
skipta upp fyrir-
tækinu, leggja
niður fréttastofu
fyrirtækisins og
að það sé búið að
ráða nýjan for-
stjóra, hafa berg-
málað í fundarherbergjum undanfar-
ið, samkvæmt heimildum blaðsins.
Reynir Finndal Grétarsson, stofn-
andi Creditinfo og meirihlutaeigandi í
Gavia Invest, segir í samtali við
Morgunblaðið að fólk geti andað létt-
ar. Ekki sé búið að taka neinar
ákvarðanir um framtíð Sýnar.
Ætla ekki að skemma verðmæti
„Fólk er hrætt um að við ætlum að
taka völdin og slíta þetta í sundur með
illu. Þetta er ekkert svoleiðis, við ætl-
um okkur ekki að skemma verðmæti
sem eru til staðar,“ segir hann.
„Þetta er ekki óvinveitt yfirtaka
eða nein læti að fara í gang. Þetta er
flott og spennandi fyrirtæki. Við vild-
um taka góðan hlut og koma inn í
þetta. Auðvitað ætlum við að hafa
áhrif og við teljum að við getum kom-
ið með eitthvað að borðinu.“
Reynir og Jón Skaftason hafa boðið
sig fram í stjórnarkjör Sýnar sem fer
fram á hluthafafundi félagsins í lok
mánaðar.
„Jón er okkar fyrsti maður, svo
verð ég bara kosinn ef hluthafarnir
vilja það en annars ekki. Það fer sem
fer. Við erum alveg slakir með þetta.
Ef ég fer ekki inn, þá fer ég kannski
inn á næsta aðalfundi og það er bara
allt í lagi. Það er eiginlega mikilvæg-
ara að það verði fundinn góður for-
stjóri, því það er ekkert smá skarð að
fylla. Það er mikilvægara en það
hvernig stjórnin er skipuð.“
Ætti að kosta meira
Spurður hvort Gavia hafi ákveðinn
forstjóra í huga svarar Reynir því
neitandi. Ný stjórn muni fjalla um
málið eftir næsta hlutahafafund.
Reynir talaði um rétt gengi félagsins í
viðtali við Viðskiptablaðið í síðustu
viku. Spurður hvert sé rétt gengi fé-
lagsins og hvað Gavia hyggist gera ef
markaðsverð Sýnar hækkar ekki á
næstunni svarar Reynir því að erfitt
sé fyrir hann að segja til um virði
fyrirtækisins. Að hans mati ætti fyrir-
tækið þó að vera mun meira virði en
hlutabréfaverðið gefur til kynna í dag.
„Hugsunin er sú að tala meira um
það þegar okkar fulltrúi er kominn í
stjórn og við kynnumst fyrirtækinu
og skiljum það betur. Þá sjáum við
möguleikana og hvað tækifærin eru
stór. En ef markaðurinn hefur enga
trú á því að þessi fyrirtæki eigi að
vera saman, þá hlýtur það á endanum
að koma til skoðunar að það verði
greint þarna á milli. Hvort sem það
verður svo eitt eignarhaldsfélag sem
á bæði fyrirtækin þar undir eða þeim
verið skipt upp í tvö mismunandi fé-
lög og hluthafar fái bréf í báðum.
Þetta snýst um þessa grunnhugsun,
þetta eru svo miklar eignir að það
ætti að vera verðmætara,“ segir
Reynir.
Uppgjöf að leysa félagið upp
„Það var markmiðið með samrun-
anum og það hlýtur að vera okkar
markmið fyrst og fremst að fyrir-
tækið sé verðmætara saman en upp-
lausnarverðið. Það væri ákveðin upp-
gjöf ef menn leystu fyrirtækið upp.“
Nú hafa aðrir viðskiptamenn byrj-
að að sópa til sín bréfum Sýnar. Reyn-
ir segir að þeir tengist Gavia ekki á
neinn hátt en ánægjulegt sé að aðrir
sjái tækifæri í fyrirtækinu, líkt og
þeir sjálfir. „Mér var sagt að það væri
mikill fjöldi af nýjum hluthöfum, þá
sérstaklega litlum. Fólk sem er að
kaupa fyrir nokkur hundruð þúsund
og hugsar með sér; hérna er eitthvað
sniðugt að fara í gang.“
Hvert er stefnan sett?
„Ég held að þetta fyrirtæki sé van-
metið. Þetta er ofsalega öflugt fyrir-
tæki og mikill auður í starfsmönnum.
Besta fólk á landinu á sínu sviði er
þarna. Ég held að leiðin liggi bara upp
á við. Það voru erfiðleikar tengdir
yfirtökunni á 365, sem eru nú að baki.
Svo ég held að það sé bara bjart fram
undan hjá þessu fyrirtæki.“
„Þetta er ekki óvinveitt yfirtaka“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Kaflaskipti Ný stjórn Sýnar verður kosin í lok mánaðar og þá verður tekin ákvörðun um eftirmann Heiðars.
- Gavia Invest fer með um 20% hlut- Upplausn kæmi til skoðunar ef gengið hreyfist ekki næstu ár
- Fyrirtækið vanmetið - Jón og Reynir bjóða sig fram í stjórnarkjöri - Fjöldi nýrra hluthafa
Reynir Finndal
Grétarsson
Hluthafi Milljónir hluta Hlutur %
Gildi lífeyrissjóður 35,4 13,21%
Gavia Invest ehf. 29,3 10,92%
Arion banki hf. 25,4 9,46%
Kvika banki hf. 25,4 9,45%
Lífeyrissjóður
verslunarmanna 24,8 9,25%
Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins, A-deild 21,9 8,15%
Birta lífeyrissjóður 13,7 5,11%
Sjóvá-Almennar
tryggingar hf. 10,2 3,8%
Akta Stokkur hs. 8,6 3,21%
Festa lífeyrissjóður 7,4 2,74%
Hluthafi Milljónir hluta Hlutur %
Lífeyrissjóður starfs-
manna ríkisins, B-deild 5,1 1,91%
Halldór Kristmannsson 4,2 1,57%
Tækifæri ehf. 4,1 1,53%
Acadian Frontier
Markets Equity 3,7 1,39%
Akta HL1 3,5 1,32%
Landsbankinn hf. 3,2 1,18%
Akta HS1 3,1 1,17%
Íslandsbanki hf. 3,0 1,14%
Stefnir – Innlend
hlutabréf hs. 3,0 1,11%
Almenni lífeyrissjóðurinn 2,8 1,04%
20 stærstu hluthafar í Sýn 8. ágúst 2022*
Heimild: Sýn *Ekki er tekið tillit til framvirkra samninga
Meðalverð á eldsneyti fór í gær,
fimmtudag, undir fjóra bandaríkja-
dali á gallonið í fyrsta skipti síðan í
byrjun mars (eitt gallon er 3,8 l).
Hæst fór verðið í 5,2 dali á gallon í
júní, en hækkandi eldsneytisverð
hefur iðulega mikil áhrif á bæði þjóð-
málaumræðu vestanhafs, sem og á
ferðalög Bandaríkjamanna. Til
marks um það var sala á eldsneyti í
júlí minni í ár en hún var í júlí 2020,
þegar kórónuveirufaraldurinn var í
hámarki og ferðalög takmörkuð.
Bandarísk stjórnvöld hafa legið
undir ámæli á liðnum misserum fyrir
hækkandi eldsneytisverð – samhliða
umræðu um hærri verðbólgu. Nú
hafa stjórnvöld brugðið á það ráð að
auka við framboð eldsneytis með því
að setja um 180 milljón tunnur af
hráolíu, sem áður voru hluti af vara-
birgðum stjórnvalda, í umferð.
Verð á Brent-hráolíu hefur farið
nokkuð hratt lækkandi frá því að
verðið náði hámarki um miðjan júní.
Þá náði verðið um 128 dölum á tunnu
en fór í lok síðustu viku niður í 94 dali
á tunnu. Verð á Brent-olíu var í gær
um 100 dalir en markaðsaðilar
vestanhafs telja ólíklegt að olíuverð
hækki mikið frekar. Það mun þó
ráðast af framboði af olíu, sem hefur
aukist á liðnum vikum.
AFP
Eldsneyti Gallonið lækkar lítillega.
Eldsneytisverð
lækkar vestanhafs
- Eldsneytisverð
hefur mikil áhrif á
ferðalög og umræðu