Morgunblaðið - 12.08.2022, Page 26

Morgunblaðið - 12.08.2022, Page 26
EVRÓPUKEPPNI Gunnar Egill Daníelsson gunnaregill@mbl.is Víkingur úr Reykjavík og Breiðablik féllu bæði úr leik þegar þau léku síðari leiki sína ytra í 3. umferð Sambands- deildar UEFA í knattspyrnu karla í gærkvöldi. Niðurstaðan var sérlega grátleg fyrir ríkjandi Íslands- og bikarmeist- ara Víkings sem sýndu af sér hetju- lega baráttu gegn ríkjandi Póllands- meisturum Lech Poznan og náðu til að mynda að knýja fram framlengingu en urðu að lokum að sætta sig við 1:4-tap og samanlagt 2:4-tap eftir að hafa unn- ið fyrri leikinn á Víkingsvelli í síðustu viku, 1:0. Víkingur hóf leikinn í Poznan í gær- kvöldi af feiknakrafti og fékk frábær tækifæri til þess að ná forystunni áður en stundarfjórðungur var liðinn af leiknum en þeim Ara Sigurpálssyni, Helga Guðjónssyni og Erlingi Agnars- syni brást öllum naumlega bogalistin. Lech fékk einnig sín færi og náði forystunni eftir rúmlega hálftíma leik þegar Mikael Ishak fyrirliði liðsins skoraði með laglegu skoti eftir sof- andahátt í vörn Víkings. Skömmu fyrir leikhlé tvöfaldaði Kristoffer Velde for- ystu heimamanna með skoti af stuttu færi eftir sofandahátt hjá Loga Tóm- assyni og staðan því 2:0 í leikhléi og 2:1 samanlagt. Í síðari hálfleik fékk Lech ógrynni dauðafæra, sér í lagi undir lok venju- legs leiktíma þegar Víkingur færði lið sitt framar til þess að freista þess að minnka muninn og jafna þar með ein- vígið í 2:2. Öll þessi færi heimamanna fóru þó forgörðum og þar átti Ingvar Jónsson í marki Víkings stærstan hlut að máli enda átti hann sannkallaðan stórleik. Hádramatískt mark Danijels Þegar öll nótt virtist úti fyrir Víking minnkaði liðið muninn í 2:1 á síðustu mínútu uppbótartíma venjulegs leik- tíma, þeirri fimmtu, og knúði þannig fram framlengingu á hádramatískan hátt. Ari gaf þá laglega sendingu inn fyrir á Erling sem var með pláss hægra megin í vítateignum, renndi boltanum glæsilega þvert fyrir markið og varamaðurinn Danijel Dejan Djuric stýrði boltanum upp í þaknetið af markteig, hans fyrsta mark fyrir Vík- ing. Þetta reyndist síðasta spyrna venjulegs leiktíma. Í framlengingunni tókst varamann- inum Filip Marchwinski að koma Lech í 3:1-forystu á 96. mínútu með föstu skoti, rétt utan D-bogans, sem Ingvar varði upp í markhornið. Fráleitt rautt spjald Júlíusar Víkingur var með fína stjórn á leikn- um eftir markið en á 110. mínútu fékk Júlíus Magnússon sitt annað gula spjald og þar með rautt. Eftir það þyngdist róðurinn umtalsvert. Rauða spjaldið var sérlega súrt þar sem Júlíus fékk bæði gulu spjöldin fyr- ir tvær fullkomlega löglegar og ein- faldlega frábærar tæklingar þar sem hann náði til boltans en austurrískur dómari leiksins, Julian Weinberger, sá tæklingar fyrirliðans með allt öðrum augum af einhverjum ástæðum. Á 116. mínútu fékk Lech dæmda vítaspyrnu þegar Davíð Örn Atlason handlék boltann innan vítateigs. Afonso Sousa steig á vítapunktinn en vítabaninn Ingvar sá við honum og varði frábærlega. Skömmu síðar tókst Sousa þó að skora fjórða mark Lech þegar Marchwinski stakk boltanum inn fyrir, Sousa lék á Ingvar og renndi boltanum í netið. Þrátt fyrir að vera úr leik geta Vík- ingar gengið afar stoltir frá borði enda frammistaða þeirra í Evrópukeppni frábær í ár. Tyrkirnir of sterkir fyrir Blika Breiðablik átti enn erfiðara verkefni fyrir höndum gegn tyrkneska liðinu Istanbúl Basaksehir eftir að hafa tap- að fyrri leiknum á Kópavogsvelli, 1:3, í síðustu viku. Hafði Basaksehir að lok- um 3:0-sigur og vann einvígið því sam- anlagt 6:1. Í leiknum í Istanbúl í gærkvöldi tókst Blikum að halda Basaksehir vel í skefjum nánast allan fyrri hálfleikinn. Heimamenn voru þó sterkari aðilinn og fengu nokkur hættuleg færi. Ítalski sóknarmaðurinn Stefano Okaka braut loks ísinn með skoti af stuttu færi skömmu fyrir leikhlé og staðan því 1:0 í hálfleik. Síðari hálfleikurinn þróaðist á svip- aðan hátt þar sem Basaksehir stjórn- aði ferðinni en Blikar vörðust. Á 74. mínútu tvöfaldaði Ahmed Touba for- ystuna er hann fylgdi eftir skoti liðs- félaga síns. Danijel Aleksic, sem skor- aði tvívegis í fyrri leiknum í síðustu viku, rak svo smiðshöggið með þriðja markinu á 84. mínútu sem kom eftir gott skot hans frá vítateigslínu. Blikar gerðu sitt besta til þess að halda í við Tyrkina í einvíginu en þeir reyndust einfaldlega of sterkir. Víkingur og Breiðablik úr leik Ljósmynd/Istanbúl Basaksehir Erfitt Omar Sowe í leik Breiðabliks gegn Istanbúl Basaksehir í gærkvöldi. Blikar léku vel í Evrópukeppni í ár en Basaksehir reyndist of sterkt lið. - Víkingar knúðu fram framlengingu í Póllandi með dramatísku marki Danijels - Stórleikur Ingvars dugði ekki til - Blikar mættu ofjörlum sínum í Tyrklandi Ljósmynd/Lech Poznan Rautt Júlíus Magnússon fyrirliði Víkings í skallabaráttu í leik liðsins gegn Lech Poznan í gærkvöldi. Júlíus fékk skrítið rautt spjald í leiknum. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST 2022 Mjólkurbikar karla 8-liða úrslit: Kórdrengir – FH...................................... 2:4 Lengjudeild kvenna Grindavík – Fjölnir .................................. 2:0 HK – Haukar ............................................ 4:1 Staðan: FH 13 10 3 0 39:7 33 HK 14 10 2 2 28:12 32 Tindastóll 13 8 4 1 23:7 28 Víkingur R. 13 8 2 3 24:15 26 Fjarð/Hött/Leik. 13 7 3 3 28:17 24 Grindavík 14 4 2 8 10:24 14 Fylkir 13 2 6 5 10:17 12 Augnablik 13 4 0 9 17:26 12 Fjölnir 14 1 1 12 6:31 4 Haukar 14 1 1 12 10:39 4 3. deild karla Vængir Júpíters – Augnablik.................. 1:2 Staðan: KFG 15 9 4 2 33:19 31 Dalvík/Reynir 15 10 1 4 35:23 31 Sindri 15 8 4 3 33:21 28 Víðir 15 7 5 3 29:18 26 Augnablik 16 6 5 5 22:24 23 KFS 15 7 2 6 30:33 23 Elliði 15 6 3 6 28:29 21 Kormákur/Hvöt 15 6 2 7 28:26 20 Kári 15 6 2 7 26:28 20 Vængir Júpiters 16 4 1 11 27:42 13 KH 15 3 2 10 17:32 11 ÍH 15 3 1 11 27:40 10 Evrópudeild karla 3. umferð, seinni leikir: Slovan Bratislava – Olympiacos ............ 2:2 - Ögmundur Kristinsson var ekki í leik- mannahópnum hjá Olympiacos. _ Olympiacos áfram, eftir vítakeppni. HJK – Maribor ......................................... 1:0 _ HJK áfram, 3:0 samanlagt. Slovacko – Fenerbahce............................ 1:1 _ Fenerbahce áfram, 4:1 samanlagt. Zürich – Linfield....................................... 3:0 _ Zürich áfram, 5:0 samanlagt. Dudelange – Malmö ................................. 2:2 _ Malmö áfram, 5:2 samanlagt. Partizan – AEK ........................................ 2:2 _ AEK áfram, 4:3 samanlagt. Sambandsdeild karla 3. umferð, seinni leikir: Istanbul Basaksehir – Breiðablik ........... 3:0 _ Basaksehir áfram, 6:1 samanlagt. Lech Poznan – Víkingur R...............(frl.) 4:1 _ Lech Poznan áfram, 4:2 samanlagt. Antwerp – Lilleström ............................. 2:0 - Hólmbert Aron Friðjónsson lék fyrstu 65 mínúturnar hjá Lilleström. _ Antwerp áfram, 5:1 samanlagt. Panathinaikos – Slavia Prag.................. 1:1 - Hörður Björgvin Magnússon lék allan leikinn hjá Panathinaikos. _ Slavia Prag áfram, 3:1 samanlagt. Sligo Rovers – Viking ............................. 1:0 - Patrik Sigurður Gunnarsson og Samúel Kári Friðjónsson léku allan leikinn hjá Vik- ing. _ Viking áfram, 5:2 samanlagt. Kisvarda – Molde..................................... 2:1 - Björn Bergmann Sigurðarson lék ekki með Molde vegna meiðsla. _ Molde áfram, 4:2 samanlagt. Önnur helstu úrslit: Basel – Bröndby ....................................... 2:1 _ Basel áfram, eftir vítakeppni. Djurgården – Sepsi .................................. 3:1 _ Djurgården áfram, 6:2 samanlagt. Anderlecht – Paide................................... 3:0 _ Anderlecht áfram, 5:0 samanlagt. Shkendija – AIK....................................... 1:1 _ AIK áfram, eftir vítakeppni. KÍ Klaksvík – Ballkani............................. 2:1 _ Ballkani áfram eftir vítakeppni. Katar Al-Arabi – Al Rayyan.............................. 2:1 - Aron Einar Gunnarsson lék allan leikinn hjá Al-Arabi. >;(//24)3;( EM U16 karla B-deild í Búlgaríu, B-riðill: Lúxemborg – Ísland............................. 49:90 >73G,&:=/D Knattspyrna Mjólkurbikar kvenna, undanúrslit: Garðabær: Stjarnan – Valur.................19.45 Lengjudeild karla, 1. deild: KR-völlur: KV – Fjölnir Seltjarnarnes: Grótta – Afturelding Lengjudeild kvenna, 1. deild: Kaplakriki: FH – Augnablik 2. deild karla: Ólafsfjörður: KF – Völsungur Laugardalur: Þróttur R. – Magni 3. deild karla: Akraneshöllin: Kári – Elliði Garður: Víðir – KH Skessan: ÍH – KFG 2. deild kvenna: ÍR-völlur: ÍR – ÍH Hveragerði: Hamar – Fram Álftanes: Álftanes – KH Í KVÖLD! Elvar Már Friðriksson, landsliðsmaður í körfubolta, gekk í gær í raðir Rytas Vilnius, meistaraliðs Litháens. Hann kemur til félagsins frá Tortona á Ítal- íu. Elvar þekkir vel til körfuboltans í Litháen en hann lék afar vel með Si- auliai tímabilið 2020/2021. Skoraði hann 15 stig og gaf átta stoðsendingar að meðaltali í leik í efstu deild Lithá- ens. Rytas vann 26 leiki af 30 í deildinni á síðustu leiktíð og varð svo meistari eft- ir 4:1-sigur á Lietkabelis í úrslitum um meistaratitilinn. Liðið leikur í Meist- aradeild Evrópu á komandi leiktíð. Elvar í meist- aralið Litháens Ljósmynd/FIBA Litháen Elvar Már Friðriksson samdi við meistaraliðið í Litháen. Kvennalandslið Íslands í áhaldafim- leikum tók í gær þátt í Evrópu- mótinu í fimleikum í München í Þýskalandi en féll úr leik þrátt fyr- ir góða frammistöðu. Í þremur af fjórum áhöldum fékk Thelma Aðalsteinsdóttir flest stig íslensku keppendanna; í stökki, á tvíslá og á jafnvægisslá. Alls hlaut hún 47.432 stig í fjölþrautinni, þ.e. öllum fjórum áhöldunum, sem Hild- ur Maja Guðmundsdóttir og Agnes Suto tóku einnig þátt í. Í gólfæfing- um fékk Margrét Lea Kristinsdóttir flest stig Íslendinganna. Ljósmynd/Auður Sigbergsdóttir EM Thelma Aðalsteinsdóttir fékk alls 47.432 stig í fjölþrautinni. Thelma stiga- hæst hjá Íslandi Víkingur R. - Lech Poznan 4:1 1:0 Mikael Ishak 32. 2:0 Kristoffer Velde 44. 2:1 Danijel Dejan Djuric 90. 3:1 Filip Marchwinski 96. 4:1 Afonso Sousa 119. Rautt spjald: Júlíus Magnússon (Vík- ingi) 110. Dómari: Julian Weinberger, Austurríki Áhorfendur: Um 12.000 Víkingur R.: (5-4-1) Mark: Ingvar Jóns- son. Vörn: Karl F. Gunnarsson, Viktor Ö. Andrason (Birnir S. Ingason 74), Oli- ver Ekroth, Kyle McLagan, Logi Tóm- asson (Davíð Ö. Atlason 46). Miðja: Er- lingur Agnarsson, Júlíus Magnússon, Pablo Punyed, Ari Sigurpálsson (Arnór B. Guðjohnsen 114). Sókn: Helgi Guð- jónsson (Danijel D. Djuric 46). Basaksehir - Breiðablik 3:0 1:0 Stefano Okaka Chuka 44. 2:0 Ahmed Touba 74. 3:0 Danijel Aleksic 84. Dómari: Tamás Bognár, Ungverjalandi Áhorfendur: Um 5.000 Breiðablik: (4-3-3) Mark: Anton Ari Einarsson. Vörn: Höskuldur Gunn- laugsson (Viktor Elmar Gautason 85), Damir Muminovic, Mikkel Qvist, Dagur Dan Þórhallsson. Miðja: Viktor Karl Einarsson (Elfar Freyr Helgason 85), Andri Rafn Yeoman (Anton Logi Lúð- víksson 75), Gísli Eyjólfsson. Sókn: Jas- on Daði Svanþórsson (Sölvi Snær Guð- bjargarson 85), Kristinn Steindórsson, Omar Sowe (Davíð Ingvarsson 46).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.