Morgunblaðið - 25.08.2022, Qupperneq 18
URBAN SNOWBOARDER
14.995 kr. / St. 36-40
VATNSHELDIR SKÓR FYRIR SKÓLANN
SP.1 LITE
11.995 kr. / St. 19-26
SP.1 LITE
11.995 kr. / St. 19-26
URBAN SNOWBOARDER
14.995 kr. / St. 36-40
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
18 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Verkið er tekið í áföngum og sam-
kvæmt því sem fjárveitingar
hverju sinni duga til,“ segir Björn
Svavarsson, smiður hjá Ýri á Sauð-
árkróki. Hann er umsjónarmaður
með þeirri endurbyggingu Silfra-
staðakirkju í Blönduhlíð í Skaga-
firði sem nú stendur yfir.
Kirkjan góða var í október á síð-
asta ári tekin af grunni og flutt á
Sauðárkrók. Þar stendur bygg-
ingin nú á baklóð verkstæðis Ýrar
við Aðalgötu í norðurbænum á
Króknum. Skjólhýsi hefur verið
slegið utan um kirkjuna í því
skyni að auðvelda verkið, sem
flokkur smiða, sem hafa góða
reynslu af endurbótarverkefnum
sem þessu, hafa með höndum.
Silfrastaðakirkja var byggð árið
1896 og hefur sett sterkan svip á
umhverfi sitt, undir háum fjöllum.
Hefur hvílt á grjótpúða á jörðinni
og var fótstykkið orðið mjög sigið
þegar kirkjan var hífð burt í fyrra.
Áður hafði turnspíra kirkjunnar
verið flutt á brott, enda fúin og að
falli kominn.
Kostnaður við endurbætur þess-
ar er nú áætlaður 50 milljónir
króna, segir í frétt á kirkjan.is. Í
sjóðum Silfrastaðakirkju voru til
peningar í endurbæturnar, sem þó
duga hvergi nærri til að ljúka
verkefninu. Því koma húsa-
friðunarsjóður og jöfnunarsjóðir
sókna myndarlega að málum.
Björn Svavarsson segir að næst
sé á dagskrá í endurbótum þessum
að endurnýja fótstykki og glugga
kirkjunnar. Einnig þurfi að huga
að burðarvirkinu, sem sé í mis-
jöfnu ástandi. Sumir hlutar séu
gegnheilir en aðrir viðir fúnir í
gegn.
Ekki meira en fimm ár
Að grunnformi er Silfrastaða-
kirkja áttstrend, 6,5 m að þvermáli
en hliðar 2,70 m að lengd. Þakið er
krossreist upp af hliðarveggjum og
tengt stöpli. Kirkjan er klædd
sléttu járni. Á sex hliðum eru
bogadregnir steypujárnsgluggar.
„Ég vona að kirkjan verði ekki
meira en svona fimm ár hér á lóð-
inni hjá mér. Við tökum þetta
verkefni annars bara eftir því hvað
kemur inn á reikningana og tími
vinnst til,“ segir Björn Svavars-
son. Með sínum mönnum hefur
hann að undanförnu unnið að end-
urbótum á kirkjunni á Hofi á
Höfðaströnd í Skagafirði. Því
verkefni lýkur senn. Hofskirkja er
í eigu Lilju Pálmadóttur athafna-
konu og fjárfestis.
Áttstrendingurinn endurbyggður
- Svipsterk Silfrastaðakirkja stendur nú á Sauðárkróki - Endurbygging er í fullum gangi - Smiðir
við störf - Fjárveitingar ráða framvindu - Ýmsir sjóðir styrkja verkefnið sem taka mun nokkur ár
Ljósmynd/Hreinn S. Hákonarson
Guðshús Silfrastaðakirkja var reist undir lok 19. aldar og byggingarlag hennar vekur óneitanlega eftirtekt allra sem sjá
og fara um. Nú er kirkjan í viðgerð, umkringd skjólhýsi þar sem hún stendur á baklóð í norðurbænum á Sauðárkróki.
Endurbætur Burðarvirki kirkjunnar er fúið, eins og kom í ljós þegar
klæðning var tekin af. Mikið verk er fyrir höndum hjá smiðunum.
Tónleikarnir Rut og vinir hennar sunnu-
daginn 28. ágúst kl. 15 eru lokaviðburður
sumardagskrár í Hlöðunni á Kvoslæk í
Fljótshlíð í Rangárþingi eystra.
Undir samheitinu Gleðistund hafa tveir
fyrirlestrar og einir tónleikar verið á
Kvoslæk í sumar.
Á tónleikunum verða flutt þekkt verk
eftir Brahms og Schubert, meðal annars
Silungakvintettinn.
Fyrir utan Rut Ingólfsdóttur fiðluleikara
á Kvoslæk koma fram: Einar Jóhannesson
klarínettuleikari, Svava Bernharðsdóttir
víóluleikari, Sigurður Halldórsson selló-
leikari, Richard Korn bassaleikari, Rich-
ard Simm píanóleikari, Aðalheiður Mar-
grét Gunnarsdóttir mezzósópran og Þóra
Sigurborg Guðmannsdóttir sópran.
Hljóðfæraleikararnir hafa starfað með
Rut í höfuðborginni, einkum í Kammer-
sveit Reykjavíkur. Söngkonurnar eru bú-
settar í Fljótshlíð og hafa áður tekið þátt í
tónleikum með Rut í kirkjum í Rangár-
þingi.
Eftir tónleikana er boðið upp á kaffi á
Kvoslæk.
Silungakvintettinn
á Kvoslæk á sunnudag
Á Kvoslæk Tónlistarfólkið sem kemur fram í Hlöðunni á sunnudag.