Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022 Bláu húsin v/Faxafen • Sími 553 7355 Þægilegur aðhaldsfatnaður með góðum stuðningi sem klæðist vel undir allar flíkur, flatir saumar og engar sjáanlegar línur. Vefverslun selena.is Ný sending af aðhalds- undirfatnaði Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Aníta Ýr og Svandís Dagmar hafa verið vinkonur í mörg ár en þær ákváðu á dögunum að fylgja draumi sem þær höfðu lengi átt og byrja með eigið hlaðvarp. Fyrsti þátturinn af Er þetta fyrsta barn? var gerður opinber um síðustu helgi en hann hefur sannarlega sprungið út í vikunni en hann flaug í fyrsta sæti á ís- lenska hlaðvarpslistanum á Apple Podcast. Aníta Ýr er 26 ára lögfræðinemi og flugfreyja sem býr í Mosfellsbæ ásamt manni sínum og tveimur sonum, þeim Byrnjari Leó og Óliver Degi, en Svandís Dagmar er 24 ára hárgreiðslukona sem býr með sínum manni og 15 mánaða dóttur, Kamillu Rut, í Kópavogi. Þær eru sammála um að fjölskyldur þeirra séu orðnar eins og ein stór fjölskylda, svo miklum tíma eyða þær saman, en vin- konurnar viðurkenna að þær tali meira hvor við aðra en við mennina sína. Þær segjast orðlausar yfir viðtökunum sem fyrsti þátturinn af Er þetta fyrsta barn? hefur fengið. „Við vorum aðallega að gera þetta sem hobbí og ef það væri einhver hlustun þá væri það bara plús. En þetta sprakk algjörlega út og við erum eiginlega bara í sjokki,“ segja vinkonurnar við Morgunblaðið en þær segjast ákaflega þakklátar og spenntar fyrir komandi tímum. Í fyrsta þættinum fer Svandís yfir endurtekinn fóst- urmissi sem hún og maðurinn hennar upplifði og hafði mikil áhrif á líf þeirra. „Hún hefur lent í fósturmissi fimm sinnum, sem er vægast sagt átakanlegt, en [ég er] virkilega stolt af henni að segja sína sögu og tel mikilvægt að fjalla einnig um þá hlið,“ sagði Aníta. „Okkur langaði til þess að deila okkar sögum þar sem þær eru mjög ólíkar en allar merkilegar á sinn hátt,“ segja þær Svandís og Aníta en þær segja að hlaðvarps- hugmyndin hafi kviknað yfir kampavínsglasi í heita pott- inum. Næsta dag ákváðu þær að láta til skarar skríða. Þær segja að markmið hlaðvarpsins sé að leyfa for- eldrum að heyra margar ólíkar sögur í tengslum við for- eldrahlutverkið. „Við erum engir sálfræðingar heldur bara að deila okkar reynslu,“ segja þær einlægar. Þær stefna á að deila nýjum þætti á helstu streymis- veitur vikulega, á miðvikudögum, en nýjasti þáttur hlað- varpsins kom inn í gær. Í honum fer Aníta yfir það hvernig hennar upplifun var af því að komast að því að hún ætti von á sér. K100 fékk vinkonurnar að vana til að gefa meðmæli með fimm öðrum áhugaverðum hlaðvörpum en þau má sjá hér: Crime junkie „Erlent glæpahlaðvarp þar sem farið er yfir morðmál, mannshvörf og fleira í þeim dúr.“ Morðcastið „Skemmtilegt hlaðvarp sem systurnar Unnur og Bylgja halda úti. Hlaðvarpið fjallar um íslensk og erlend sakamál auk þess sem þær deila skemmtilegum sögum úr sínu lífi.“ Fantasíusvítan „Hlaðvarp um Bachelor-þætti sem eru í gangi hverju sinni og annað raunveruleikasjónvarp þess á milli.“ Hver er Hugó? „Hlaðvarp þar sem Ingó og Eyþór reyna að komast að því hver sé á bak við tónlistarmanninn Hugó.“ Betri helmingurinn með Ása „Ási fær til sín fólk og ræðir við það á léttu nót- unum um sinn betri helming.“ Áhugaverð hlaðvörp: Er þetta fyrsta barn? Átakanlegt að missa fóstur fimm sinnum Vinkonurnar Aníta og Svandís eru orð- lausar yfir vinsældum nýs hlaðvarps sem þær byrjuðu með um liðna helgi, hlaðvarpsins Er þetta fyrsta barn? en fyrsti þáttur, þar sem Svandís lýsir upplifun sinni af fósturmissi, flaug beint í fyrsta sæti á Apple Podcast. Mæður Þær Aníta og Svandís segja móð- urhlutverkið bæði ótrúlega dásamlegt og mjög krefjandi. Rósa Margrét Tryggvadóttir rosa@mbl.is Unglingar sem finna sig ekki í dag- legu lífi og skóla fá tækifæri til að „finna neistann“ í gegnum verkefni sem þúsundþjalasmiðurinn og jaðaríþróttamaðurinn Alexander Kárason, eða Lexi eins og hann er kallaður, byrjaði með fyrir nokkr- um árum. Finndu neistann er unnið í sam- starfi við Mosfellsbæ en um er að ræða áhugagrein fyrir ungmenni, á aldrinum 15-18 ára, sem fer fram í gegnum mótorsport og aðrar jaðar- íþróttir. Ungmennin fá að finna sitt hlutverk í liði og velja sér verkefni eftir sínu áhugasviði. Til dæmis í gegnum vélaviðgerðir, akstur og beina þátttöku, skipulagningu eða myndatöku. Ungmennin hafa að- gang að alls konar búnaði í 150 fer- metra skúr þar sem þau geta próf- að sig áfram í ýmiss konar iðn og fá einingar í skólann fyrir það sem þau taka sér fyrir hendur. Reyna að kveikja áhugann „Þetta er skemmtilegt verkefni þar sem ég er með fullt af krökkum sem koma vikulega í skúrinn,“ sagði Lexi í viðtali í Ísland vaknar í vikunni þar sem hann ræddi við þau Kristínu Sif og Jón Axel. „Markmiðið er að reyna að kveikja áhugann á einhverju,“ sagði hann en annað mikilvægt markmið starfsins er að hjálpa krökkunum, sem eru flestir á grunnskólaaldri, að finna framhaldsnám sem hentar áhugasviði þeirra. „Velvirkir“ krakkar „Ég vil ná til flestra sem hafa áhuga. Líka sem hafa áhuga og eru á kantinum. Ég er dálítið að ein- blína á þessa krakka sem eru of- virkir – eða „velvirkir“ eins og ég kalla það. Hafa kraftinn en eru líka týnd í kerfinu af því að þau eru á kantinum. Þau passa ekki inn bók- lega, í lestri og menntalega,“ sagði Lexi en sjálfur segist hann hafa verið í þessum hópi sem barn og unglingur og skilji því upplifun þeirra vel. Hann fann sig þó á end- anum en hann er í dag margfaldur Íslandsmeistari í alls konar mót- orsporti og jaðaríþróttum. Öflugustu hóparnir okkar „Þessir krakkar á þessum kanti eru öflugustu hóparnir okkar. Þetta eru sprotastofnendur og framtíðar- framkvæmdarstjórar, sem vantar oft „touchið“ í byrjun,“ sagði Lexi en verkefnið hefur verið gífarlega vinsælt meðal ungmenna á svæð- inu. „Þegar við byrjuðum á þessu af viti fyrir tveimur árum voru fimm krakkar sem komu. Þetta var í sam- ráði við skólann í Mosfellsbæ. Þau fengu einingar fyrir að mæta og þetta var bara tvisvar í viku. Þau mættu á þriðjudögum og fimmtu- dögum og þetta átti að vera frá þrjú til sex,“ sagði Lexi og bætti við hlæjandi að oftast hefðu krakkarnir þó verið svo áhugasamir að þeir voru að alveg til ellefu á kvöldin. „Það var bara eldað ofan í krakk- ana. Fyrsta verkefnið var að fjar- lægja mótorinn úr bíl. Bara rífa bíl í sundur. Það byrjaði bara þannig,“ sagði hann en hann leggur áherslu á að ungmennin fái aðstoð og svig- rúm til að gera mistök í öruggu um- hverfi en fjórir aðrir öflugir aðilar vinna með honum í verkefninu. „Svo varð, eins og ég vildi, vin- skapur úr þessu. Við vorum að rífa bílana í sundur en við vorum líka að fara á fjórhjól í Þorlákshöfn, sleða á Ólafsfirði og kappakstur í Hafnar- firði,“ sagði Lexi. „Þetta snýst líka um að hlusta á krakkana og finna hvað það er sem þau hafa áhuga á,“ sagði hann. Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni á K100.is. Ástríða Ungmenni fá að grúska að vild og prófa sig áfram í skúrnum hjá Lexa þar sem þau fá tækifæri til að finna sitt áhugasvið og gera mistök. Hjálpar ungmennum að finna neistann Alexander „Lexi“ Kárason er einn þeirra sem standa fyrir verkefninu Finndu neistann en hann hefur ástríðu fyrir því að hjálpa ungmennum, sem ekki finna sig í hefðbundnu námsumhverfi, að finna sín áhugasvið og tilgang í lífinu. Hann ræddi um verkefnið í Ísland vaknar á K100 í vikunni. „Velvirkur“ Lexi hefur mikla ástríðu fyrir krökkum sem eru „velvirkir“ eins og hann sjálfur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.