Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 25.08.2022, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN 35 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022 Íslenska forvarn- armódelið hefur skil- að góðum árangri í baráttunni gegn áfengis- og tóbaks- notkun og nú er kom- inn tími á að ráðast í næsta átak. Í vor birti Alþjóðaheil- brigðisstofnunin (WHO) athyglisverða skýrslu þar sem fram kom að 60% Evr- ópubúa glíma við eða eru á mörk- um þess að glíma við offitu. Þá eru um 33% ellefu ára barna í Evrópu á sama stað og fjölgar þeim hratt. Vegna skorts á hreyfingu og óheilbrigðs lífsstíls vara sérfræð- ingar við vaxandi álagi á heilbrigð- iskerfið. Helgast það af því að versnandi heilsufar leiðir til þess að fleira fólk muni þjást meira af lífsstílstengdum sjúkdómum í Evr- ópu en nokkru sinni fyrr. Í skýrsl- unni kemur einnig fram að kostn- aður aðildarríkja Evrópusambandsins vegna hjarta- og æðasjúkdóma er nú talinn nema 210 milljörðum evra á ári eða 29 billjónum íslenskra króna. Þessi þróun hefur skert lífsgæði fólks og er óvíst hvort þau muni aukast nema með samstilltu átaki. Þá er augljóst að óheilbrigður lífs- stíll skapar verulegt álag á heil- brigðiskerfið og mun gera um ófyrirsjáanlega framtíð bæði hér á landi og víðar – ef ekki verður gripið í taumana. Lífsstíllinn veldur byrði á samfélaginu Niðurstöður skýrslu WHO hafa leitt til aukinnar umræðu um efni hennar á meginlandi Evrópu. Þró- un mála hér á landi stefnir því miður á svipaðar slóðir og lýst er í skýrslunni, og því full ástæða til að bregðast við. Í framhaldi af út- gáfu hennar hélt Evrópuþingið í Brussel utan um ráðstefnu, sem nefndist „European Action for HealthyLifestyle4All“ og var hún haldin í júnímánuði síðastliðnum, en þangað voru boðaðir fulltrúar aðila sem tengjast lýðheilsu í Evr- ópu. Í erindi sem Jaap Seidell, há- skólaprófessor frá Hollandi, hélt um stöðu mála dró hann upp dökka mynd. Að hans mati stend- ur heilbrigðiskerfi nútímans frammi fyrir heljargjá þar sem um 80% greindra sjúkdóma tengist lífsstíl fólks. Taldi hann að stjórn- völd í Evrópu yrðu að líta til or- saka þess hvernig mál hefðu þróast á þennan veg og til að ná árangri þyrfti að virkja sveit- arfélög til að standa fyrir aðgerð- um í nærumhverfinu. Áhugaverðar um- ræður spunnust um málið, einkum út frá því að þrátt fyrir að staðreyndir liggi flest- ar fyrir virðast sam- félagsleg meðvitund og undirtektir al- mennt ekki nógu góð- ar. Ástæðuna fyrir því að skollaeyrum væri skellt við stöðunni taldi Jaap þá að stjórnvöld væru treg til að setja nauðsyn- legar reglur sem knúið gætu fram æskilega niðurstöðu. Auk þess væru miklir viðskiptahagsmunir undir og hagsmunaaðilar beittu sér markvisst gegn nauðsynlegum breytingum. Hvað er til ráða? Í pallborðsumræðum á ráð- stefnunni voru ýmsar hugmyndir ræddar um viðbrögð við meginnið- urstöðu skýrslunnar. Þar kom m.a. fram að kenna yrði þegar í barn- æsku grunnatriði góðrar nær- ingar. Æskilegt væri að virkja skólakerfið og tryggja aðkomu þess að verkefninu. Leggja þyrfti áherslu á heilbrigðara mataræði og næringarríkar skólamáltíðir auk þess sem finna þyrfti leiðir til að fá nemendur til að hreyfa sig meira á skólatíma en nú er gert, s.s. með aukinni útikennslu og skipulögðum leikjum. Hver er sjálfum sér næstur Niðurstaða fundarins var sú að fólk væri að vakna til vitundar um að bregðast yrði við óheilbrigðum lífsstíl og marka þyrfti leiðir til þess. Í því efni þyrfti að biðla til allra ætti árangur að nást: sam- félagsins og stofnana þess en ekki síst til einstaklinganna sjálfra. Kjarninn væri í raun sá að við yrð- um að sannfæra hvern og einn um nauðsyn þess að axla ábyrgð á eig- in lífi. Íslenska forvarnarmódelið Fullyrða má að nálgunin sem rædd var af áhyggjufullum for- kólfum lýðheilsumála í Brussel virðist í raun býsna lík þeirri að- ferðafræði sem við Íslendingar þekkjum vel af því forvarnarstarfi sem unnið hefur verið hér á landi á síðastliðnum þrjátíu árum. Þar er lögð áhersla á að vinna með staðbundin gögn sem Rannsóknir og greining hafa tekið saman yfir árabil til samanburðar. Með slíkan grunn er unnt að taka ákvarðanir um lausnir sem byggjast á faglegri nálgun. Betri lýðheilsa Sameiginlegt átak í forvarn- armálum hefur skilað því að tekist hefur að gerbreyta íþrótta- og tómstundastarfi barna hér á landi með faglegra starfi og aukinni þátttöku. Það er nú stór hluti af forvörnum í vímuvarnamálum þjóðarinnar. Stjórnvöld og íþrótta- hreyfingin verða nú að taka næstu skref og útvíkka samstarfið, fylgj- ast vel og markvisst með heilsu þjóðarinnar og stuðla að fleiri kostum í hreyfingu og heilbrigðum neysluháttum en nú standa fólki til boða. Við ættum að geta nýtt ís- lenska forvarnarmódelið, sem vak- ið hefur eftirtekt víða um lönd, til að ná árangri í betri lýðheilsu. Með gögn að vopni og samhent átak stjórnvalda, sveitarfélaga, íþróttahreyfingarinnar og ein- staklinga getum við snúið vörn í sókn í lýðheilsumálum og dregið úr ónauðsynlegu álagi á heilbrigðis- kerfið með forvörnum. Það dregur úr kostnaði og, það sem mest er um vert; eykur lífsgæði okkar sjálfra. Við getum aukið lífsgæði okkar. Tökum skrefið og gerum það sam- an með skemmtilegu og skipulögðu landsátaki – koma svo! Forvarnarmódel í lýðheilsu Eftir Jóhann Stein- ar Ingimundarson Jóhann Steinar Ingimundarson » Íslenska forvarn- armódelið hefur skilað góðum árangri í baráttunni gegn áfeng- is- og tóbaksnotkun og nú er kominn tími á að ráðast í næsta átak. Höfundur er formaður UMFÍ. johann@umfi.is DAGAR ALLARTELWIN VÖRURÁTILBOÐI SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is vfs.is www.gilbert.is FRISLAND CLASSIC TÍMALAUS HÖNNUN VIÐ KYNNUM SERGEANTS 19.995 kr./ St. 39-47,5 KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS GÓÐIR FYRIR HAUSTIÐ SKECHERS SMÁRALIND - KRINGL
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.