Morgunblaðið - 25.08.2022, Side 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
Íslenska forvarn-
armódelið hefur skil-
að góðum árangri í
baráttunni gegn
áfengis- og tóbaks-
notkun og nú er kom-
inn tími á að ráðast í
næsta átak. Í vor
birti Alþjóðaheil-
brigðisstofnunin
(WHO) athyglisverða
skýrslu þar sem fram
kom að 60% Evr-
ópubúa glíma við eða eru á mörk-
um þess að glíma við offitu. Þá eru
um 33% ellefu ára barna í Evrópu
á sama stað og fjölgar þeim hratt.
Vegna skorts á hreyfingu og
óheilbrigðs lífsstíls vara sérfræð-
ingar við vaxandi álagi á heilbrigð-
iskerfið. Helgast það af því að
versnandi heilsufar leiðir til þess
að fleira fólk muni þjást meira af
lífsstílstengdum sjúkdómum í Evr-
ópu en nokkru sinni fyrr. Í skýrsl-
unni kemur einnig fram að kostn-
aður aðildarríkja
Evrópusambandsins vegna hjarta-
og æðasjúkdóma er nú talinn
nema 210 milljörðum evra á ári
eða 29 billjónum íslenskra króna.
Þessi þróun hefur skert lífsgæði
fólks og er óvíst hvort þau muni
aukast nema með samstilltu átaki.
Þá er augljóst að óheilbrigður lífs-
stíll skapar verulegt álag á heil-
brigðiskerfið og mun gera um
ófyrirsjáanlega framtíð bæði hér á
landi og víðar – ef ekki verður
gripið í taumana.
Lífsstíllinn veldur byrði
á samfélaginu
Niðurstöður skýrslu WHO hafa
leitt til aukinnar umræðu um efni
hennar á meginlandi Evrópu. Þró-
un mála hér á landi stefnir því
miður á svipaðar slóðir og lýst er í
skýrslunni, og því full ástæða til
að bregðast við. Í framhaldi af út-
gáfu hennar hélt Evrópuþingið í
Brussel utan um ráðstefnu, sem
nefndist „European Action for
HealthyLifestyle4All“ og var hún
haldin í júnímánuði síðastliðnum,
en þangað voru boðaðir fulltrúar
aðila sem tengjast lýðheilsu í Evr-
ópu.
Í erindi sem Jaap Seidell, há-
skólaprófessor frá Hollandi, hélt
um stöðu mála dró hann upp
dökka mynd. Að hans mati stend-
ur heilbrigðiskerfi nútímans
frammi fyrir heljargjá þar sem um
80% greindra sjúkdóma tengist
lífsstíl fólks. Taldi hann að stjórn-
völd í Evrópu yrðu að líta til or-
saka þess hvernig mál hefðu
þróast á þennan veg og til að ná
árangri þyrfti að virkja sveit-
arfélög til að standa fyrir aðgerð-
um í nærumhverfinu.
Áhugaverðar um-
ræður spunnust um
málið, einkum út frá
því að þrátt fyrir að
staðreyndir liggi flest-
ar fyrir virðast sam-
félagsleg meðvitund
og undirtektir al-
mennt ekki nógu góð-
ar. Ástæðuna fyrir því
að skollaeyrum væri
skellt við stöðunni
taldi Jaap þá að
stjórnvöld væru treg
til að setja nauðsyn-
legar reglur sem knúið gætu fram
æskilega niðurstöðu. Auk þess
væru miklir viðskiptahagsmunir
undir og hagsmunaaðilar beittu
sér markvisst gegn nauðsynlegum
breytingum.
Hvað er til ráða?
Í pallborðsumræðum á ráð-
stefnunni voru ýmsar hugmyndir
ræddar um viðbrögð við meginnið-
urstöðu skýrslunnar. Þar kom m.a.
fram að kenna yrði þegar í barn-
æsku grunnatriði góðrar nær-
ingar. Æskilegt væri að virkja
skólakerfið og tryggja aðkomu
þess að verkefninu. Leggja þyrfti
áherslu á heilbrigðara mataræði
og næringarríkar skólamáltíðir
auk þess sem finna þyrfti leiðir til
að fá nemendur til að hreyfa sig
meira á skólatíma en nú er gert,
s.s. með aukinni útikennslu og
skipulögðum leikjum.
Hver er sjálfum sér næstur
Niðurstaða fundarins var sú að
fólk væri að vakna til vitundar um
að bregðast yrði við óheilbrigðum
lífsstíl og marka þyrfti leiðir til
þess. Í því efni þyrfti að biðla til
allra ætti árangur að nást: sam-
félagsins og stofnana þess en ekki
síst til einstaklinganna sjálfra.
Kjarninn væri í raun sá að við yrð-
um að sannfæra hvern og einn um
nauðsyn þess að axla ábyrgð á eig-
in lífi.
Íslenska forvarnarmódelið
Fullyrða má að nálgunin sem
rædd var af áhyggjufullum for-
kólfum lýðheilsumála í Brussel
virðist í raun býsna lík þeirri að-
ferðafræði sem við Íslendingar
þekkjum vel af því forvarnarstarfi
sem unnið hefur verið hér á landi
á síðastliðnum þrjátíu árum. Þar
er lögð áhersla á að vinna með
staðbundin gögn sem Rannsóknir
og greining hafa tekið saman yfir
árabil til samanburðar. Með slíkan
grunn er unnt að taka ákvarðanir
um lausnir sem byggjast á faglegri
nálgun.
Betri lýðheilsa
Sameiginlegt átak í forvarn-
armálum hefur skilað því að tekist
hefur að gerbreyta íþrótta- og
tómstundastarfi barna hér á landi
með faglegra starfi og aukinni
þátttöku. Það er nú stór hluti af
forvörnum í vímuvarnamálum
þjóðarinnar. Stjórnvöld og íþrótta-
hreyfingin verða nú að taka næstu
skref og útvíkka samstarfið, fylgj-
ast vel og markvisst með heilsu
þjóðarinnar og stuðla að fleiri
kostum í hreyfingu og heilbrigðum
neysluháttum en nú standa fólki
til boða. Við ættum að geta nýtt ís-
lenska forvarnarmódelið, sem vak-
ið hefur eftirtekt víða um lönd, til
að ná árangri í betri lýðheilsu.
Með gögn að vopni og samhent
átak stjórnvalda, sveitarfélaga,
íþróttahreyfingarinnar og ein-
staklinga getum við snúið vörn í
sókn í lýðheilsumálum og dregið úr
ónauðsynlegu álagi á heilbrigðis-
kerfið með forvörnum. Það dregur
úr kostnaði og, það sem mest er
um vert; eykur lífsgæði okkar
sjálfra.
Við getum aukið lífsgæði okkar.
Tökum skrefið og gerum það sam-
an með skemmtilegu og skipulögðu
landsátaki – koma svo!
Forvarnarmódel í lýðheilsu
Eftir Jóhann Stein-
ar Ingimundarson
Jóhann Steinar
Ingimundarson
» Íslenska forvarn-
armódelið hefur
skilað góðum árangri í
baráttunni gegn áfeng-
is- og tóbaksnotkun og
nú er kominn tími á að
ráðast í næsta átak.
Höfundur er formaður UMFÍ.
johann@umfi.is
DAGAR
ALLARTELWIN
VÖRURÁTILBOÐI
SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • TRYGGVABRAUT 24, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
vfs.is
www.gilbert.is
FRISLAND CLASSIC
TÍMALAUS HÖNNUN
VIÐ KYNNUM
SERGEANTS
19.995 kr./ St. 39-47,5
KRINGLAN - SMÁRALIND - SKÓR.IS
GÓÐIR FYRIR HAUSTIÐ
SKECHERS
SMÁRALIND - KRINGL