Morgunblaðið - 25.08.2022, Síða 26

Morgunblaðið - 25.08.2022, Síða 26
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022 SÉRFRÆÐINGAR Í GÓÐGERLUM Fæst í apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. ELTAK sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Vígsla minningarreits á grunni gömlu fiskimjölsverksmiðjunnar í Neskaupstað fer fram klukkan þrjú síðdegis í dag, en Síldarvinnslan lét reisa reitinn sem helgaður er þeim sem látist hafa við störf hjá fyrir- tækinu. Eins og fyrr segir er reiturinn á grunni gömlu fiskimjölsverksmiðj- unnar sem eyðilagðist í snjóflóði 20. desember 1974, en þá fórust sjö. Á þessum stað hefur verið gamall gufuketill sem gegnir hlutverki í mótun reitsins. Séra Benjamín Hrafn Böðvarsson og séra Bryndís Böðvarsdóttir munu blessa reitinn en Gunnþór B. Ingva- son forstjóri Síldarvinnslunnar setur athöfnina. Þá er gert ráð fyrir að Þorsteinn Már Baldvinsson stjórn- arformaður Síldarvinnslunnar til- kynni styrkveitingu til Heilbrigðis- stofnunar Austurlands. Árið 2018 var efnt til samkeppni um útfærslu á reitnum og voru þátt- takendur beðnir að „taka tillit til þess að reiturinn ætti að vera frið- sæll og hlýlegur staður og þar ætti að vera aðstaða fyrir fólk til að setj- ast niður og njóta kyrrðar“. Átta tillögur bárust og voru þær metnar af dómnefnd. Tillaga Krist- jáns Breiðfjörð Svavarssonar varð fyrir valinu auk hluta úr tillögu Ólaf- íu Zoëga. gso@mbl.is Ljósmynd/Hlynur Sveinsson Vígsla Minningarreiturinn í Nes- kaupstað verður vígður í dag. Minning- arreitur vígður „Þar sem fiskgengd á veiðisvæð- unum fjórum er mjög misjöfn á tíma- bilinu maí-ágúst bitnar aðferðafræð- in harðast á svæði C. Þar er hálfgerð ördeyða í maí og júní, en í júlí og ágúst er genginn fiskur á miðin úti fyrir NA- og Austurlandi. Róðrar á fyrri hluta tímabilsins gefa því lítið í aðra hönd en litlu minna en önnur svæði uppskera í maí og júní á síðari hluta tímabilsins,“ sagði meðal annars í bréfinu sem er dagsett 18. júní. Töldu formennirnir ljóst að tryggja þyrfti 48 strandveiðidaga til allra báta út tímabilið til að tryggja jafnræði milli veiðisvæða. „Á öllum svæðunum eru brothættar byggðir. Þær eiga það sameiginlegt að vera háðar strandveiðum, treysta á þær og mega ekki við skerðingu á sókn rúmlega 650 báta sem veiðarnar Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Halldór Stefánsson, formaður Fonts – félags smábátaeigenda á Norðaust- urlandi, Andri Viðar Víglundsson, formaður Kletts – félags smábáta- eigenda á Norðurlandi eystra, og Guðlaugur Birgisson, formaður Fé- lags smábátaeigenda á Austurlandi, telja að lítil þekking á framkvæmd uppboða hafi leitt til þess að ekki fengust meiri heimildir í þorski fyrir strandveiðar fyrir uppsjávarheimild- ir sem ríkið bauð á skiptamarkaði. Þetta var ályktun sem þeir drógu í kjölfar fundar þeirra og Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um framkvæmd strandveiða ársins. Þetta er meðal þess er fram kemur í færslu um fundinn á vef Landssam- bands smábátaeigenda (LS). Á fundinum voru rædd uppboð Fiskistofu og lýstu formennirnir vonbrigðum með að ekki hefðu feng- ist meiri heimildir en raun ber vitni. Þeir vöktu athygli á að óeðlilegt væri að 57 þúsund tonn af verðmætum uppsjávartegundum hefðu ekki skil- að meiru en 3.765 tonn af þorski – jafngildi ígildastuðuls upp á 0,065. Brýnt er að koma í veg fyrir að brestir í uppboði af þessum toga end- urtaki sig, að mati formannanna. Þeir telja jafnframt mikilvægt að Fiskistofa hafi starfsmann á sínum snærum með sérþekkingu á uppboð- um. Aukið jafnræði Tilefni fundarins var bréf sem for- mennirnir sendu ráðherra í júní þar sem vakin var athygli á því hve ójafnt væri skipt milli veiðisvæða þegar strandveiðibátum væri ekki öllum tryggðir 48 veiðidagar. Síðustu þrjú ár hefur þurft að stöðva veiðar fyrir lok tímabils þar sem heimildir, sem til veiðanna er ráðstafað, klárast. stunda. Meðan strandveiðar eru ekki tryggðar í 48 daga sjá menn sig í auknum mæli knúna til þess að færa báta sína frá sinni heimabyggð yfir á svæði A til þess að hafa í sig og á.“ Fram kemur í færslunni á vef LS að upplifun formannanna hafi verið sú að ráðherra hefði á fundinum sýnt mikinn skilning á þeim vanda sem upp hefur komið á strandveiðum undanfarin ár. Engan afslátt Milli þess að bréfið barst ráðherra og fundurinn með formönnum félag- anna þriggja átti sér stað kynnti Svandís tillögu sína um að taka upp svæðisskiptingu strandveiða á ný í þeim tilgangi að auka jafnræði milli veiðisvæða. Smábátafélög á Norður- og Aust- urlandi hafa verið jákvæð gagnvart breytingunni og jafnvel sent út til- kynningu um stuðning við tillögu Svandísar. Sá stuðningur hefur þó ekki þýtt að strandveiðisjómenn á þessum svæðum gefi afslátt af kröf- unni um 48 veiðidaga. Fátt bendir þó til að matvæla- ráðherra hafi svigrúm til þess að tryggja 48 daga án þess að hafa til þess nægar aflaheimildir. Í takti við samdrátt í heildaraflamarki hefur 5,3% hlutur sem ætlaður er atvinnu- og byggðakvóta minnkað. Þrátt fyrir þá þróun tókst ráðherra að ráðstafa til veiðanna meiri heimildum í þorski en nokkru sinni fyrr. Það dugði þó skammt og voru strandveiðar stöðv- aðar eftir 21. júlí. Nú stendur fyrir dyrum nýtt fisk- veiðiár, en ráðgjöf Hafrannsókna- stofnunar gerir ráð fyrir enn frekari skerðingum á þorskkvótanum. Smábátasjómenn segja Fiskistofu skorta þekkingu á uppboðum - Fengu 3.765 tonn af þorski í skiptum fyrir 57 þúsund tonn af uppsjávarfiski Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Landað Strandveiðisjómenn á Norður- og Austurlandi vilja breytingar á strandveiðikerfinu. Afurðaverð á markaði 24. ágúst,meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 563,81 Þorskur, slægður 479,85 Ýsa, óslægð 428,90 Ýsa, slægð 417,26 Ufsi, óslægður 242,82 Ufsi, slægður 284,51 Gullkarfi 244,13 Blálanga, slægð 262,24 Langa, óslægð 282,10 Langa, slægð 317,21 Keila, óslægð 179,60 Keila, slægð 195,70 Steinbítur, óslægður 207,52 Steinbítur, slægður 321,04 Skötuselur, slægður 704,42 Grálúða, slægð 455,00 Skarkoli, slægður 479,71 Þykkvalúra, slægð 465,98 Langlúra, óslægð 279,00 Sandkoli, óslægður 136,29 Sandkoli, slægður 93,00 Skrápflúra, óslægð 11,00 Gellur 1.703,63 Hlýri, óslægður 334,64 Hlýri, slægður 361,27 Kinnfiskur/þorskur 1.285,00 Lúða, slægð 544,74 Lýsa, óslægð 101,47 Lýsa, slægð 96,56 Skata, óslægð 15,00 Stórkjafta, óslægð 100,00 Stórkjafta, slægð 72,12 Undirmálsýsa óslægð 176,91 Undirmálsþorskur óslægður 288,59 Undirmálsþorskur slægður 324,67

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.