Morgunblaðið - 25.08.2022, Síða 34
34 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 2022
Innifalið í langtímaleigu:
B
irt
m
e
ð
fy
rirv
a
ra
u
m
m
y
n
d
-
o
g
te
x
ta
b
re
n
g
l.
*M
ið
a
ð
v
ið
3
6
m
á
n
a
ð
a
le
ig
u
.
Komdu við í sýningarsalinn okkar að Krókhálsi 9 eða skoðaðu úrvalið og kynntu þér kosti langtímaleigu á sixtlangtimaleiga.is.
Einnig getur þú haft samband við viðskiptastjóra Sixt í síma 540 2222 eða á vidskiptastjori@sixt.is
Sparaðu
bensínið
á Hybrid bíl!
PHEV
Ein föst greiðsla á mánuði, lægri eldsneytiskostnaður,
engin óvænt gjöld...
...og allir kátir!
Jeep Compass S - Hybrid
Tilboðsverð: 135.600 kr. á mánuði*
Verð: 149.600 kr. á mánuði*
Toyota C-HR - Hybrid
Verð: 109.600 kr. á mánuði*
Dekkjaskipti
Hefðbundið viðhald
Tryggingar
Vetrardekk
Bifreiðagjöld
Þjónustuskoðanir
Efling birti nýverið
grein í tímaritinu Kjara-
fréttir. Þar eru færð rök
fyrir því að í komandi
kjarasamningum eigi
laun að miðast við þróun
í hagkerfinu og er þar
átt við hagvöxt umfram
fólksfjölgun á þessu ári.
Ofan á þetta eigi einnig
að bæta launþegum
verðlagshækkanir ársins 2022.
Efling leggur því til að við undir-
ritun kjarasamninga í haust hækki
laun sem nemur 7,5% verðbólgu sam-
kvæmt spá Hagstofu auk spár um 2%
framleiðniaukningu, samtals að með-
altali 9,5% með flatri hækkun upp á kr.
66.000 fyrir alla tekjuhópa. Fullyrt er
að svigrúm sé til þessa. Jafnframt er
því haldið fram að þessar launahækk-
anir muni ekki hafa áhrif á verðlag.
Við skulum skoða þessar fullyrð-
ingar hvora í sínu lagi, en byrjum á
svigrúmi til launahækkana og beitum
aðferðafræði Eflingar.
Stundum er neikvæður
hagvöxtur
Nálgun Eflingar á viðfangsefnið er
góðra gjalda verð. Það er sjálfsagt að
launþegar fái sinn skerf af vexti hag-
kerfisins. Aftur á móti skiptast á skin
og skúrir í efnahagslífi þjóðarinnar og
stundum er enginn hagvöxtur eða
hann jafnvel neikvæður, líkt og á árinu
2020 þegar áhrifa kórónuveirufarald-
ursins gætti. Þegar svo ber undir
minnkar það sem er til skiptanna og
taka þarf tillit til þess þegar svigrúm
til launahækkana er metið.
Að sama skapi er óútskýrt hvers
vegna launagreiðendur ættu einir að
taka á sig verðlagshækkanir með því
að tryggja launþega gegn þeim að
fullu, enda takmarkar það möguleika
þeirra fyrrnefndu til að halda rekstr-
inum réttum megin við núllið. Laun
eru gjarnan einn stærsti útgjaldaliður
launagreiðenda. Þeir eru auk þess í
mjög misjafnri stöðu hvað varðar
rekstrarumhverfi og fjárhag. Þannig
gætu sumir tekið á sig launahækkanir
og aðrir ekki, en kjarasamningar gilda
jafnt um þá, óháð afkomu. Miklar
launahækkanir geta gert rekstur fyr-
irtækja ósjálfbæran.
Hvað er þá til bragðs að taka?
Kemur þá einkum tvennt annað til
skoðunar, annars vegar uppsagnir
(aukið atvinnuleysi) eða hins vegar
verðhækkanir (aukinn verðbólgu-
þrýstingur). Þriðji valmöguleikinn er
aukin skuldsetning. Það er skamm-
góður vermir að taka lán til að fjár-
magna rekstur sem er ekki lengur
sjálfbær.
Þá er til þess að líta, líkt og kemur
fram í Kjarafréttum, að verðlags-
hækkanir skýrast meðal annars af
áhrifum stríðsátaka í Úkraínu og
hækkunum á olíu- og matvælaverði.
Íslenskir launagreiðendur stjórna
hvorki né bera ábyrgð á þeim þáttum.
Nálgun Eflingar á viðfangsefnið
tekur ekki tillit til neins af þessu. Hún
miðar auk þess einungis við árið 2022.
Skoðum þetta því í víðara samhengi,
þ.e. frá byrjun 2019 og til loka þessa
árs. Kjarasamningar voru síðast und-
irritaðir vorið 2019.
Leggur ekkert inn, tekur bara út
Árið 1986 flutti söngflokkurinn ICY
lagið Gleðibankann fyrir hönd Íslands
í söngvakeppni evrópskra sjónvarps-
stöðva. Það var í fyrsta sinn sem Ís-
lendingar tóku þátt í keppninni. Í lag-
inu er fjallað um óútleystan tékka þess
sem leggur ekkert inn, heldur tekur
bara út. Textabúturinn er áminning
um að lífið er ekki alltaf dans á rósum;
það er ekki bara hægt að taka út, held-
ur þarf líka að leggja inn. Meira að
segja í Gleðibankanum.
Í samhengi við tillögur Eflingar,
þannig að launþegar ættu að taka út
sem nemur verðbólgu og auk þess alla
framleiðniaukningu hagkerfisins, þarf
því líka að skoða innstæðuna. Hún er
svona: Kjarasamningar voru síðast
undirritaðir í apríl 2019. Frá ársbyrjun
2019 og til loka ársins 2022 má vænta
samtals 22% verðbólgu, 2,7% hag-
vaxtar og 8,1% fólksfjölgunar miðað
við nýjustu spár. Framleiðni hagkerf-
isins samkvæmt skilgreiningu Efl-
ingar mun því fyrirsjáanlega dragast
saman um 5,4%.
Svigrúm til launahækkana yfir
þetta tímabil er því 16,6%, miðað við
aðferðafræði Eflingar. Laun hafa aft-
ur á móti þegar hækkað um 24,9% frá
undirritun síðustu kjarasamninga,
langt umfram þróun verðlags og fram-
leiðni.
Svigrúm til launahækkana við gerð
næstu kjarasamninga ætti því að vera
neikvætt um 8,3% miðað við að-
ferðafræði Eflingar. Fullyrðing um að
tilefni sé til 9,5% launahækkana í
kjarasamningum nú, með vísan til þró-
unar verðlags, hagvaxtar og fólksfjölg-
unar, heldur engu vatni. Ef miða á
laun við þróun þessara þátta ættu þau
að lækka við gerð næstu kjarasamn-
inga. Ætlar Efling að halda sig við
þessa aðferðafræði áfram?
Hefur verð
ekki áhrif á kostnað?
Eins og fyrr segir eru laun gjarnan
stærsti útgjaldaliður launagreiðenda.
Eftir sem áður fullyrðir Efling að
launahækkanir sem elta verðlag hafi
ekki áhrif til verðlagshækkana, eða
eins og segir í Kjarafréttum:
„Þannig elta launahækkanir verð-
lagið en reka það ekki áfram, enda er
verðbólgan nú af öðrum sökum en
launahækkunum.“
En hvernig fær þetta staðist? Sam-
band launa og verðbólgu er marg-
slungið. Það er þó í öllu falli fyrir
hendi. Í það minnsta er augljóst að ef
fyrirtæki stendur skyndilega frammi
fyrir miklum kostnaðarhækkunum,
hvort sem það er vegna launa eða ann-
ars, þarf að bregðast við því.
Hérlendis hafa launagreiðendur
gjarnan gripið til verðhækkana, frekar
en uppsagna eða lántöku. Það vill enda
enginn aukið atvinnuleysi. Þetta er
þekkt söguleg staðreynd en eftir sem
áður er hinu gagnstæða nú haldið
fram; að hækkun launa hafi engin
áhrif á verðlag. Skoðum hvernig
launahækkun hittir fyrir meðalstóran
atvinnurekanda í dæmaskyni.
Til þess að koma rekstrinum í samt
horf hefur Guðrún tvo valkosti; að
segja upp einum starfsmanni eða
hækka verð um 4%. Hún getur einnig
tekið lán en það bætir ekki reksturinn.
Vitanlega geta verðhækkanir eða
uppsagnir leitt til þess að tekjur fyrir-
tækisins minnka, til dæmis ef við-
skiptavinir kjósa þá heldur að kaupa
þjónustu af öðrum eða ef fram-
leiðslugetan dregst saman.
Í öllu falli blasir við að launahækk-
anir hafa áhrif á kostnað launagreið-
enda og þar af leiðandi einnig á verð.
Fullyrðing Eflingar um að 9,5% launa-
hækkun hafi ekki áhrif á verðlag
stenst ekki skoðun.
Þetta er í þriðja sinn á skömmum
tíma sem Viðskiptaráð leiðréttir rang-
færslur úr Kjarafréttum Eflingar.
Viðskiptaráð minnir á að eintak Efl-
ingar af bókinni Raunvitund eftir
Hans Rosling bíður þess að verða vitj-
að á skrifstofu ráðsins.
Vill Efling lækka laun?
Eftir Elísu Örnu
Hilmarsdóttur
og Jóhannes
Stefánsson
Elísa er hagfræðingur Viðskiptaráðs
Íslands og Jóhannes er lögfræðingur
Viðskiptaráðs Íslands.
Elísa Arna
Hilmarsdóttir
Efling leggur til 9,5% launahækkun aðmeðal-
talimeð vísan til hagspár fyrir árið 2022
9,5%
Tillaga Eflingar að
launahækkunum
Verðbólga
2,0%
7,5%
Framleiðniaukning
Heimildir: Hagstofa Íslands.
Seðlabanki Íslands. Efling.
Svigrúm til launahækkana nú,miðað við þróun
verðlags, framleiðni og veittar launahækkanir
‐8,3%
Þegar veittar
launahækkanir**
Svigrúm til
launahækkana nú
22,0%
Framleiðniaukning*
‐5,4%
Verðbólga*
‐24,9%
*Rauntölur verðbólgu
og framleiðni frá byrjun
2019 til ársloka 2021 og
spár til ársloka 2022.
**Rauntölur launa-
þróunar frá undirritun
kjarasamninga 2019 til 3.
ársfjórðungs 2022.
Heimildir: Hagstofa
Íslands. Seðlabanki
Íslands. Efling.
Jóhannes
Stefánsson
Hærri kostnaður breytir hagnaði í tap
Ef hún hækkar verð um 4%
kemst reksturinn í fyrra horf
Hækka verð
Lántaka
Hún getur tekið lán en það er
ósjálfbært til lengri tíma litið
Fækka starfsmönnum
Með því að fækka
starfsmönnum um einn kemst
reksturinn í fyrra horf
Laun hjá fyrirtækinu hækka
um 10% við undirritun
kjarasamninga
Guðrún rekur meðalstórt
þjónustufyrirtæki
Hjá fyrirtækinu starfa tíu
starfsmenn sem fá greidd laun
eftir kjarasamningi, samtals 126
Heildartekjur eru 366 milljónir
króna á ári
Kostnaður fyrirtækisins er 226
milljónir en þar af fara 126
milljónir í laun
m. kr. á ári.
Rekstraráætlun fyrirtækisins fyrir launahækkanir Eftir launahækkanir
ef Anna aðhefst ekkert
366
10
126
200
30 -13 -3