Morgunblaðið - 05.09.2022, Page 1
M Á N U D A G U R 5. S E P T E M B E R 2 0 2 2
.Stofnað 1913 . 207. tölublað . 110. árgangur .
KYNNIR AÐ-
GERÐIR GEGN
ORKUVERÐI
ALDREI VERIÐ
JAFNGAMAN Í
VINNUNNI
STÓRVELDIN
JÖFN Í MARKA-
SÚPU Á SKAGA
ÞORBJÖRG FIMMTUG 24 BESTA DEILDIN 26DÝRTÍÐ OG KREPPA 14
Morgunblaðið/Eggert
Margir vilja leigja ríkinu skrifstofur og bár-
ust ábendingar um tífaldan fermetrafjölda.
_ Eigendur fasteigna eru áhuga-
samir um að leigja ríkinu skrif-
stofuhúsnæði og bárust tilboð í
rúmlega tífaldan þann fermetra-
fjölda sem könnun var gerð um.
Í júní auglýsti Framkvæmdasýsl-
an – Ríkiseignir markaðskönnun
sína sem tók til 8 til 20 þúsund fer-
metra húsnæðis með það fyrir aug-
um að setja upp skrifstofugarða
með framtíðaraðstöðu, leigutími 15
til 25 ár. Í kjölfarið skiluðu 12 bjóð-
endur inn 25 tillögum að húsnæði
og nam samanlagður fermetrafjöldi
alls um 240 þúsund fermetrum. »10
Ríflegur vilji til að
leigja ríkinu skrif-
stofuhúsnæði
Karlotta Líf Sumarliðadóttir
Logi Sigurðarson
„Mér finnst mikilvægt á þessari stundu að fara
yfir stöðuna til að koma í veg fyrir að þetta ger-
ist aftur. Sú skoðun leiðir kannski í ljós hvar
við erum stödd, hver aldur þessara innviða er,
hvar kominn er tími á viðhald og hvort því hafi
hreinlega verið sinnt,“ segir Hildur Björns-
dóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, um
vatnslekann sem átti sér stað í Hvassaleiti í
Reykjavík á föstudag. „Við sjáum að innviðir
eru að springa og skemmast víða um borgina,
þannig að þetta er ákveðin birtingarmynd
stærra vandamáls.“
Hildur telur þörf á að kanna ástand á lögn-
um í borginni og hvar séu líkur á að þær geti
farið í sundur til þess að hægt sé að fyrirbyggja
að svona atvik endurtaki sig.
Jón Trausti Kárason, forstöðumaður vatns-
veitna og fráveitna hjá Veitum, segir í samtali
við Morgunblaðið að nýtingartími vatnslagna,
á borð við þá sem rofnaði á föstudag, geti verið
allt að hundrað ár. Spurningar hafa vaknað um
ástand lagnarinnar en hún var tekin í notkun
árið 1962.
Mögulega leyndir efnisgallar
Vatnsleki kom upp í sömu lögn fyrir fimm
árum og segir Jón Trausti að við hefðbundna
athugun á lagnaefninu hafi ekki séð á því.
„Við erum með fleiri kílómetra af þessum
lögnum og það er ómögulegt að segja nákvæm-
lega hvernig staðan er á hverjum metra. Það
geta verið efnisgallar sem við sjáum ekki og
vitum ekki af. Án þess að við vitum á þessum
tímapunkti hvað nákvæmlega gerðist þarna þá
er ekkert ósennilegt að þarna hafi verið efn-
isgalli,“ segir Jón Trausti.
Spurður hvort lögnin hafi verið í viðhalds-
flokki fyrir lekann á föstudag svarar Jón
Trausti því neitandi. Lögnin verður skoðuð í
dag og rannsakað hvað olli lekanum.
Fjárfestingar aldrei meiri
„Við ætlum ekki að setja á hana vatn aftur
fyrr en við erum orðin örugg um að hún sé í
lagi. Það eru ýmsar vangaveltur uppi hvort við
getum dregið nýja, grennri lögn í þessa gömlu.
En við setjum hana ekki rekstur fyrr en við er-
um búin að ganga úr skugga um öryggi hennar
á þessum kafla.“
Jón Trausti segist aðspurður ekki vita hve
margar lagnir séu í hæsta forgangsflokki en
tekur fram að Veitur hafi aldrei fjárfest
meira í viðhaldsverkefnum en um þessar
mundir.
Birtingarmynd stærra vandamáls
- Hildur Björnsdóttir telur brýnt að kanna ástand innviða - Vatnsleki í sömu lögn fyrir fimm árum
- Forstöðumaður Veitna segir ómögulegt að kortlegga hvern metra - Nýtingartími allt að hundrað ár
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Leki Enn er verið að meta umfang tjónsins og
óljóst er hversu margir hafa tilkynnt um tjón. MVíða hafi viðhaldi ekki verið sinnt »6
„Ég hef aldrei séð jafnmikla skelfingu og á þessu
fólki,“ segir Óskar Hallgrímsson, ljósmyndari
sem búsettur er í Kænugarði, en hann fór á dög-
unum til vígstöðvanna í Soledar og fékk þar að
kynnast aðstæðum.
Sá Óskar hvernig fólkið, sem flýr átakasvæð-
in, kemst við illan leik til annarra borga Úkraínu
eins og Kramatosk í Donetsk-héraði eða Sapor-
isjía, þar sem það þarf að dvelja í miðstöð fyrir
flóttafólk áður en það kemst í rútu, sem flytur
það lengra í vesturátt.
Konurnar tvær á myndinni hér að ofan hlupu
sem fætur toguðu í bílinn sem sést, enda hefur
Soledar þurft að þola harða bardaga síðustu
daga og vikur. Segir Óskar borgina vera einn
þann versta stað sem nú sé hægt að vera á, en
fregnir bárust í gær um að Úkraínuher væri að
reka Rússa þaðan á brott.
Sjá má nokkrar af myndum Óskars af að-
stæðum flóttafólks í Úkraínu í Morgunblaðinu í
dag. »13
Ljósmynd/Óskar Hallgrímsson
Aldrei séð
meiri skelfingu
_ Dæmi eru um
að háir tollar
valdi því að
vörur hér á landi
séu allt að tvö- til
þrefalt dýrari
hér á landi held-
ur en í nágranna-
löndunum. Gæti
niðurfelling eða
breyting á þeim
slegið á verðbólguna, að mati Ólafs
Stephensen, formanns félags at-
vinnurekenda, sem segir að hinn al-
menni neytandi hér á landi borgi
oft margfalt hærra verð fyrir vöru
sem í öðrum löndum þykir sjálfsögð
en lúxus hér á landi. Þeir staðir sem
eigi í hlut séu varla teljandi á fingr-
um beggja handa. »12
Verndartollar byrði
á neytendum
Ólafur Stephensen