Morgunblaðið - 05.09.2022, Síða 21

Morgunblaðið - 05.09.2022, Síða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2022 ✝ Margrét Krist- ín Sigurðar- dóttir fæddist 27. mars 1931 í Reykja- vík. Hún lést á Landspítalanum 21. ágúst 2022. Foreldrar Mar- grétar voru Sigurð- ur Jónas Þorsteins- son, f. 10.5. 1901, d. 16.4. 1946, stór- kaupmaður og iðn- rekandi í Reykjavík, og Kristín Hannesdóttir, f. 12.7. 1899, d. 17.5. 1992, húsmóðir. Bræður Margrétar voru Hannes Þorsteinn, f. 3.7. 1929, d. 17.4. 2014, og Axel, f. 29.8. 1933, d. 3.7. 2017. Margrét giftist Ragnari Stef- áni Halldórssyni 11. september 1953, f. 1.9. 1929, d. 7.8. 2019, verkfræðingur og forstjóri og formaður stjórnar Íslenska ál- félagsins. Foreldrar Ragnars voru hjónin Halldór Stefánsson, f. 26.5. 1877, d. 1.4. 1971, alþing- ismaður, og forstjóri Slysatrygg- inga ríkisins og Brunabótafélags Íslands, og Halldóra Sigfúsdóttir, f. 26.6. 1909, d. 16.4. 2002, hús- móðir. Börn Margrétar og Ragnars tölvunarfræðingur, f. 1974, mað- ur hennar er Hjálmar Gíslason, raðfumkvöðull og framkvæmda- stjóri, f. 1976, þau eiga soninn Ómar Huga, f. 2011. Margrét ólst upp í Reykjavík og gekk í Austurbæjarskóla. Hún lauk prófi frá Verzlunarskóla Ís- lands 1949 og einkaritaraprófi frá St. Godrich’s Secretarial Col- lege í London 1950. Eftir að ala upp eldri börnin hóf hún nám aft- ur. Margrét lauk leiðsögumanna- prófi 1970, síðan stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1983 og prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1991, árið sem hún varð sextug. Margrét var ritari hjá Ríkis- spítölunum með hléum frá 1949- 1966. Hún var leiðsögumaður hjá Kynnisferðum ferðaskrifstof- anna, Ferðaskrifstofu Zoega og Ferðaskrifstofu ríkisins 1970- 1978. Margrét var deildarstjóri launadeildar Ríkisspítalanna 1991-1995, deildarstjóri fjár- reiðudeildar 1995-2000 og deild- arstjóri fjárhagseftirlits Land- spítala-háskólasjúkrahúss 2000-2002. Margrét var virk í félagsstarfi, m.a. í Sjálfstæðisflokknum, Fé- lagi háskólakvenna og Inner Wheel. Hún sat í sóknarnefnd Ás- kirkju 2004-2015 og var fjár- málastjóri Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur 2004-2016. Útför Margrétar fer fram frá Áskirkju, í dag 5. september 2022, klukkan 11. eru: 1) Kristín Vala, f. 1954, prófessor, hún á börnin, Tóm- as Ragnar, f. 1984, og Katrínu Mar- gréti, f. 1986, auk þess á Kristín Vala tvö stjúpbörn frá fyrri eiginmanni Bernard J. Wood og sex með þeim seinni, Harald U. Sverdrup. Stjúp- barnabörnin eru fjögur. 2) Hall- dór Páll, f. 28.5. 1955, verkfræðingur, kvæntur Jó- hönnu Huldu Jónsdóttur efna- verkfræðingi og viðskiptafræð- ingi og eiga þau synina Matthías Ragnar, f. 1989, og Stefán Jón f. 1991. 3) Sigurður Ragnar, f. 10.6. 1965, verkfræðingur, kona hans er Þórdís Kjartansdóttir lýta- læknir og eiga þau saman dótt- urina Þórdísi Láru, f. 2013. Sig- urður á tvö börn með fyrrver- andi eiginkonu, Kristínu Magn- úsdóttur rekstrarhagfræðingi, Bjarka Má, f. 1996, og Margréti Evu, f. 1999. Stjúpbörn Sigurðar eru tvö Hjalti, f. 1991, og Kjart- an, f. 1996, stjúpbarnabarn er eitt, Marínó. 4) Margrét Dóra, f. 8.4. 1974, BA í sálfræði og Mamma, 1950, ævintýragjörn með bestu vinkonu sinni í ritara- skóla í London eftirstríðsáranna. Mamma, 1967, með þrjú börn í litlu fjallaþorpi í Austurríki þar sem hún þekkti engan og talaði varla tungumálið. Pabbi stöðugt á ferð og flugi en hún dreif alla í skíðaskóla og naut þess að búa í Ölpunum þrátt fyrir að hafa hvorki útvarp né síma. Mamma, alltaf skvísa með lagt hárið. Þegar tískan vildi hærra hár var bætt við hártoppum. Líka á skíðum. Mamma og kjólasafnið hennar sem spannar 40 ár af hátísku. Kjól- ar sem hún leyfði mörgum konum að njóta, enda alveg sama hvaða tískubylgja gengur yfir, alltaf má finna þar glæsilegan síðkjól. Marga þeirra saumaði hún sjálf. Mamma, klofvega á þaki kofans hans Sigga, kasólétt. Kofa sem hann hafði af metnaði byggt úr af- gangstimbri á borgarlandi og átti að fjarlægja í nafni snyrtilegrar borgar. Enginn borgarstarfsmað- ur var tilbúinn að rífa hann undan henni og kofinn stóð. Mamma, glaðlynd með sinn smitandi hlátur og leiftrandi húm- or. Mamma með stóra hjartað þar sem fjölskyldan og stór vinahópur fengu óspart að njóta alúðar og umhyggju. Ávallt viðbúin með góð ráð og hjálparhönd ef á þurfti að halda. Vei þeim sem hallaði á hennar fólk ef hún frétti af því. Mamma að taka slátur, sjóða sultu, hakka kæfu, gera rækjusal- at. Passa að enginn færi frá henni svangur. Mamma, sem snaraði fram stórum matarboðum með stuttum fyrirvara og 50 manna jólaboði á annan í jólum þar sem allt var heimagert. Mamma sem braust út úr gam- aldags viðhorfum til stöðu kvenna og stóð upp og krafðist jafns réttar. Mamma komin aftur á skóla- bekk um fimmtugt, með ríflega af nesti, nákvæmar glósur og safnar ekki bara einingum heldur líka mörgum vinum. Mamma viðskiptafræðingur frá HÍ 1991 með þrjú tilboð um störf við hæfi þrátt fyrir að ráðninga- fyrirtækin segðu henni að kona á hennar aldri fengi ekki vinnu. Mamma, að skrifa greinar í Moggann til að skamma forystu Sjálfstæðisflokksins fyrir að ganga fram hjá konum. Mamma, að teikna og láta byggja sinn draumabústað, Þúfu, með litlum áhuga pabba. Bauð svo pabba að koma með sér í bústað- inn sem hann naut mjög eftir allt saman. Oft veltir lítil Þúfa þungu hlassi. Mamma 70 ára og alls ekki tilbúin að hætta að vinna að hella sér í sjálfboðavinnu fyrir hin ýmsu félög. Nýtti sér fjármálavitið fé- lögunum til framdráttar. Ekkert feimin við að nýta sambönd sem hún hafði í gegnum pabba til að tryggja fjárhag Mæðrastyrks- nefndar Reykjavíkur. Mamma, búin að skipuleggja síðasta spölinn með því að kaupa íbúð og þjónustu í Sóltúni með það að markmiði að komast á hjúkr- unarheimilið Sóltún. Sem gekk eftir. Mamma, sem að eigin sögn var lögð inn á hjartadeild Landspítal- ans með alvarlegt tilfelli af athygl- issýki tveim dögum áður en hún kvaddi. Fyrir allt þetta og svo miklu meira erum við mömmu innilega þakklát. Fyrir áræðnina. Fyrir umhyggjuna og ástúðina. Fyrir dugnaðinn. Fyrir húmorinn. Fyrir að ryðja brautina. Fyrir bakstur- inn, eldamennskuna og gestrisn- ina. Fyrir þrautseigjuna. Fyrir já- kvætt hugarfar. Fyrir að vera okkur fyrirmynd. Fyrir samfylgd- ina. Kristín Vala, Halldór Páll, Sigurður Ragnar og Margrét (Magga Dóra). Ég kveð mína kæru vinkonu í dag með sorg í hjarta og öll orð verða fábrotin þegar skrifa á um eins stórbrotna manneskju og Kiddý var. Við kynntumst fyrir 38 árum þegar ég fór að venja komur mínar á heimili fjölskyldunnar á Laugarásveginum og hef ég verið svo lánsöm og rík að hafa hana sem hluta af mínu lífi síðan. Hlut- verkin breyttust á þessum tíma en þau vinabönd og gagnkvæma væntumþykja sem á milli okkar myndaðist lifði til æviloka. Fljótlega eftir okkar fyrstu kynni urðum við skólasystur þar sem við vorum báðar í námi í við- skiptafræði á sama tíma. Með öll- um sínum krafti og dugnaði út- skrifaðist Kiddý vorið 1990 en samhliða náminu voru þau mörg verkefnin og skyldur sem hvíldu á hennar herðum. Eftir útskrift hóf hún störf á skrifstofu Landspítal- ans og þaggaði þá niður í mörgum sem töldu konu á hennar aldri ekki eiga mikla möguleika á vinnumarkaðinum. Þar vann hún út starfsævina og lét að sér kveða eins og henni einni var lagið. Hún sinnti einnig óeigingjörnu starfi hjá Mæðrastyrksnefnd, hélt þar utan um fjármálin og kom þeim á réttan kjöl þegar illa stefndi og þótti mér vænt um að geta þar lagt henni lið við bókhald og önnur tengd verkefni. Betri ömmu hefði ég ekki getað valið fyrir börnin mín. Amma Kiddý var alltaf boðin og búin að koma þegar á þurfti að halda til að taka á móti krökkunum eftir skóla eða aðstoða í veikindum og fríum og var þakklát fyrir að fá að taka þátt og leggja sitt af mörkum. Þegar þau urðu eldri studdi hún þau af alhug í námi og starfi og hvatti þau áfram. Kiddý var margt til lista lagt en í eldhúsinu var hún á heimavelli enda húsmæðraskólagengin frá Danmörku. Rifsberjahlaupið hef ég gert árlega að hennar forskrift og danska eplakakan hennar með heimagerðu rabarbarasultunni varð að hefðbundnum eftirrétti á jólunum á mínu heimili og var það mikil viðurkenning þegar Ragnar laumaði því að mér ein jólin að mín væri nú jafnvel betri þetta árið. Hann Bjarki minn vissi ekkert betra en að fara í mat til ömmu og fá þar eitthvað almennilegt að borða, kjötsúpu, slátur eða annan hefðbundinn íslenskan mat sem hún töfraði fram og það var fastur punktur að fara í sunnudagsmat- inn til ömmu og afa á Laugarás- veginum. Þær voru ófáar ferðirnar á Þúfu þar sem Kiddý byggði sér sitt sæluríki af miklum myndarskap og yndislegt að fá að koma þangað til hennar og Ragnars í sveitina þar sem alltaf var tekið vel á móti okk- ur. Þar veiddu krakkarnir m.a.með ömmu sinni en hún var mikil aflakló en oftast stóð hún yfir pott- unum til að vera nú alveg viss um að við fengjum nóg að borða og færum ekki svöng heim. Kiddý var frábær fyrirmynd, sjálfstæð og sterk kona og stóð fast á sínu en einnig svo glaðlynd og hlý. Hún vildi framgang okkar kvennanna sem mestan og mikið var hún stolt í júní sl. þegar nafna hennar, sem fetaði í fótspor föður og afa, útskrifaðist með BS-próf í verkfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Kæra fjölskylda, ykkur sendi ég mínar innilegustu samúðar- kveðjur, minningin um einstaka konu mun lifa. Kristín Magnúsdóttir. Það eru forréttindi að hafa fengið að kynnast Margréti tengdamömmu. Hún var mér og svo mörgum öðrum, sérstaklega konum, frábær fyrirmynd á svo margan hátt. Margrét var gríðar- lega jákvæð að eðlisfari og sá glas- ið alltaf hálffullt. Þar að auki var hún mikill húmoristi, örlát, um- hyggjusöm, áhugasöm um alla í kringum sig og barmaði sér aldrei og heldur ekki þótt heilsan væri farin að bresta undir það síðasta. Það var alltaf „allt gott að frétta“. Hún tók af miklum myndarskap á móti allri stórfjölskyldunni í mat og mörg boðin sem koma upp í hugann. Síðustu árin hans Ragn- ars tengdapabba var aðdáunar- verð umönnun hennar sem oft á tíðum reyndist erfið þar sem heilsu hans hafði farið hrakandi. Hún fylgdist alltaf vel með mál- efnum líðandi stundar og sköpuð- ust oft líflegar umræður við mat- arborðið. Margrét stóð fast á sínum skoðunum, rökstuddi þær af sannfæringu og veigraði sér ekki við að rökræða við ungu kyn- slóðina á heimilinu. Þegar hún flutti í Sóltún í byrjun sumars valdi hún örfáar myndir til að hengja upp á vegg. Beint á móti hægindastólnum hennar hékk mynd með þessari áletrun: „Það er erfitt að vera kona, maður þarf að hugsa eins og karlmaður, haga sér eins og dama, líta út eins og ung stúlka og vinna eins og hest- ur.“ Öllu gríni fylgir einhver al- vara en ég tel að Margrét hafi uppfyllt fullkomlega þessa áskor- un á sinni farsælu ævi. Takk elsku Margrét fyrir allt, hvíldu í friði. Þórdís Kjartansdóttir. Ég er ekki viss um að henni hafi litist sérstaklega vel á slánalega drenginn í leðurjakkanum sem kom með dóttur hennar á skrif- stofuna á Rauðarárstígnum fyrir rúmum aldarfjórðungi. Erindið var heldur ekki reisnarlegt: Bíll- inn bensínlaus við Hlemm og gott ef ekki við auralaus líka og því leit- uðum við til hennar eftir aðstoð. Samband okkar var þó allt upp á við þaðan og okkur varð fljótt vel til vina, þó svo því færi fjarri að þetta væri í eina skiptið sem hún hljóp undir bagga með okkur. Margrét var nefnilega kona sem hugsaði um sitt fólk og gekk fram í því að aðstoða, hjálpa og hlúa að hvar sem hún sá tækifæri til. Hjálpsöm og greiðvikin. Henni þótti líka óskaplega gam- an að elda og bera fram góðan mat og ég var enn á þeim aldri þar sem drengir taka hraustlega til matar síns. Þarna náðum við því líka vel saman. Samband sem við ræktuð- um velflesta sunnudaga sem færi var á meðan við þekktumst. „Töggur“ er samt það orð sem ég held að lýsi tengdamömmu best. Ef einhver á það skilið að um hana sé sagt að það hafi verið töggur í henni er það Margrét. Hún ruddi brautir sem húsmæður af hennar kynslóð höfðu fæstar áður kynnst, ruddi úr vegi því sem kunnu að virðast óyfirstíganlegar hindranir í félags- og velgjörðar- starfi sem hún tók þátt í og ruddi fjölskyldunni í gegnum ýmsa þunga skafla án þess að láta mikið á því bera. Margrét Kristín Sigurðardóttir var einstök kona sem ég er þakk- látur fyrir að hafa fengið að þekkja. Minningin um góðhjart- aða, röggsama og ósérhlífna konu lifir í okkur öllum sem kynntumst henni. Takk fyrir allt mín kæra. Hjálmar Gíslason. Núna þegar Kiddý hefur kvatt þennan heim er ákveðnum kafla lokið. Kiddý – Hamelý, Hamelý – Kiddý, það var alveg sama, þær voru vinkonur, samrýndar, fylgd- ust alltaf að. Ungar glaðar, fjör- ugar á böllum í gamla daga. Kiddý giftist Ragnari og Ha- melý giftist Kojis, tveir flottir sem ná vel saman. Þegar Ragnar keyrði rútuna til Keflavíkur þá ferðaðist Kojis með rútunni vegna vinnu sinnar og komst rútan fljótt til Keflavíkur, kannski of hröð keyrsla en samt afrek hjá Ragnari og sem kunni sitt fag. Þær eignuðust báðar fjögur börn á sjötta og sjöunda áratug og eignuðust svo báðar hvor sitt barnið á áttunda áratug, báðar komnar yfir fertugt. Ég man þegar heimilissímarnir áttu sinn stað á hverju heimili. Þegar tími gafst til að tala saman sat Hamelý við símaborðið með kaffibolla í annarri hönd og símtól- ið í hinni að tala við Kiddý. Þær höfðu alltaf nóg að tala um, sáttar og glaðar. Allt sem hún Kiddý tók sér fyr- ir hendur gerði hún með glæsi- brag, hvort sem það voru ferðalög eða flutningur til útlanda vegna starfs Ragnars erlendis, eða í störfum hennar sem deildarstjóri. Allar veislurnar á gamlárskvöld eða jólum ár eftir ár, uppeldi á börnum sínum eða bara setja í poka handa þeim sem minna mega sín hjá Mæðrastyrksnefnd. Það var alveg sama hvað hún tók sér fyrir hendur, það var allt gert með löngun, gleði, dugnaði og áhuga. Föður sinn missti hún ungan og móðir hennar, Kristín Hannes- dóttir, var mjög guðrækin kona, góð, dugleg og hjálpsöm, og gaf frá sér hlýju og blessun Jesú Krists, og Kiddý minntist oft á hana með umhyggju og stolti. Megi almáttugur Guð varðveita minningu Margrétar Kristínar, Kiddýjar, vinkonu hennar mömmu minnar. Helena Dóra Kojic. Elsku Margrét mín. Þú ert farin og tilfinning mín er sú að Reykja- vík sé tóm. Svo stór varstu og ert í huga allra sem kynntust þér. Við tvær unnum mikið saman og var sú vinna heilladrjúg. Alls staðar unnum við að framgangi og velferð kvenna, hvort sem var á sviði menntunar eða að bæta hag þeirra bæði félagslega og fjár- hagslega. Ég man eftir alþjóðaráðstefnu háskólakvenna sem við sóttum saman í Graz í Austurríki. Þú skartaðir íslenska búningnum og allir löðuðust að þér. Þú munt halda áfram að gæta barna þínna ef ég þekki þig rétt. Vinátta þín fylgir mér. Geirlaug Þorvaldsdóttir. Margrét Kristín Sigurðardóttir var stór manneskja. Hún stýrði stóru heimili, sem ávallt var gaman að koma inn á. Heimili sem innihélt kynslóðir með breitt aldursbil, þar sem amma litla vermdi efsta sætið í virðingarstiganum. Takk Margrét fyrir að vera stór manneskja, sem hafði mikil áhrif á allt og alla og mig. Ég þakka þér fyrir allt. Við Alda vottum öllu þínu fólki okkar dýpstu samúð. Megi guð vaka yfir ykkur og blessa. Ómar Kaldal Ágústsson og fjölskylda. Esjan og Akrafjallið ásamt Snæfellsjökli í fjarska sjást sjald- an hrein, en þannig var það sunnu- daginn 21. ágúst þegar mér bárust fréttir af góðri vinkonu. Stórbrotin kona hefur kvatt þennan heim. Við sem þekktum hana dáðumst að hugrekki hennar og dugnaði. Ég kynntist henni í gegnum störf eiginmanna okkar, Hrafn- kels Ásgeirssonar og Ragnars Halldórssonar, sem báðir eru látn- ir. Við ferðuðumst saman á fundi til Sviss. Þar sá ég strax hve sterk þessi kona var. Eftir að hafa eign- ast fjögur börn og komið þeim til manns lét hún drauminn rætast og dreif sig í Menntaskólann í Hamrahlíð, varð stúdent og síðan útskrifast hún viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Síðar lágu leiðir okkar saman í gegnum félagsstörf Bandalags kvenna í Reykjavík. Hún tók þátt í ýmsum nefndum þar eins og jafn- réttisnefnd, orlofsnefnd og nefnd Húsmæðraskóla Reykjavíkur, auk þess að vera í stjórn Banda- lags kvenna í Reykjavík. Hún var mjög virk og áhugasöm. Sterk réttlætiskennd einkenndi hana og alltaf var stutt í hláturinn eða brandara. Málefnum sem skiptu máli vann hún að með krafti enda skörp og snögg upp á lagið. Hún var einstök kona, vinmörg og vinsæl í starfi jafnt sem í leik. Mikilla manna minning lifir, gleymist góð kona. Einn býr ógleyminn ofar stjörnum sá karla skóp og konur. (Bjarni Thoroddsen) Ég votta börnum hennar og barnabörnum mína dýpstu samúð. Megi góðar vættir fylgja þeim og vernda. Oddný M. Ragnarsdóttir. fv. formaður Bandalags kvenna í Reykjavík. Með Margréti Sigurðardóttur er mikil sómakona gengin af jarð- lífssviði. Ég var svo lánsöm að sitja á móti henni sem önnur amma lít- illar stelpu – naut vináttu hennar – og dáðist að lífsferli hennar: Þú studdir eiginmann þinn í ábyrgðarmiklu starfi, kæra Mar- grét. Skilaðir börnum þínum út í lífið með glæsibrag – og barna- börnin hafa notið þess að eiga um- vefjandi og hjálpsama ömmu. Líf- ið gaf þér frábæra eiginleika, hlýhug og vináttu, vildir styðja náungann á lífsins vegi. Þetta hefur þú gefið mér frá fyrstu stundu. Þú opnaðir heimili þitt, þegar ég stóð með búslóð mína í reiðileysi. Bauðst mér að eyða mörgum gefandi stundum með þér í sumarhúsinu við Apa- vatn: Marga unaðsstund þúfa geymir. Sú sem þeirra naut aldrei gleymir. Eftir að börnin voru gengin út í lífið – settist þú sjálf á lærdóms- bekk og stóðst upp með skírteini viðskiptafræðings í hönd. Dugn- aður þinn og áræðni gaf þér að- gang inn í margar félagsstjórnir. Þú varst hátt skrifuð í félagsstjórn Áskirkju, þar sat ég veislur í þínu boði. Ógleymanlegt var líka að sjá þig sæmda heiðursfélagatign hjá Félagi háskólakvenna. Þú hvattir mig til að sækja um í Múlabæ – og þar hef ég notið nærveru þinnar. Ég sakna þín, en skynja að þú varst tilbúin að kveðja jarðlífið. Erfitt að standa undir miklum veikindum, þótt þú barmaðir þér aldrei. Innilegar þakkir, kæra Mar- grét, fyrir allt sem þú hefur gefið mér. Þú varst mér sannkölluð fyr- irmynd. Þín vinkona, Oddný Sv. Björgvins. Með fráfalli Margrétar Sigurð- ardóttur er mikil heiðurskona af þessum heimi gengin. Margrét var kjarninn í sinni fjölskyldu, heilsteypt, heiðarleg, traust og hreinskilin. Hún stýrði stóru heimili en fann þó tíma til að taka mikinn þátt í félagsstörfum. Það er mikilvægt að minnast húsmóðurinnar á heimilinu, þó að hún sé allt í öllu og geri alla hluti mögulega er eins og lof og þakk- læti lendi annars staðar. Störf hennar eru talin sjálfsögð og fólk tekur oft ekki eftir þeim. Engum gat þó dulist hver áhrifa- valdurinn var í hennar fjölskyldu. Krafturinn og dugnaðurinn fór ekki fram hjá neinum. Hún var einnig mikill gestgjafi. Margrét sagði sína meiningu hreint út og meinti það sem hún sagði en húmorinn var aldrei langt undan og var hún jafnan kát, glað- lyndi og sló á létta strengi. Okkar fjölskyldur áttu mikil samskipti í hálfa öld og teljum við okkur lánsöm að geta talið Mar- gréti og hennar fólk til vina okkar. Fyrir það erum við ævinlega þakklát. Guðrún og Jóhann J. Ólafsson. Margrét Kristín Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.