Morgunblaðið - 05.09.2022, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2022
ÞÚ FÆRÐ BOSCH
BÍLAVARAHLUTI HJÁ KEMI
Kemi | Tunguhálsi 10 | Sími 415 4000 | www.kemi.is
40 ÁRA Nana ólst upp á Akranesi og í
miðbæ Reykjavíkur en býr í Mos-
fellsbæ. Hún er viðskiptafræðingur frá
HR og kvikmyndagerðarkona frá Kvik-
myndaskóla Íslands. Nana er í Vest-
urporti og framleiddi m.a. Verbúðina.
Áhugamál hennar eru tónlist, tennis og
ferðalög.
FJÖLSKYLDA Nana er í sambúð með
Guðlaugu Birnu Aradóttur, f. 1977,
íþróttafræðingi, en hún á og rekur fisk-
vinnsluna Ice Fish í Sandgerði. Börn
þeirra eru Ragna Lára, f. 2013,
Krumma Liv, f. 2014, og Ari Wolfgang,
f. 2022. Foreldrar Nönu eru Lára Árna-
dóttir, f. 1955, skrifstofustjóri, búsett í
Kópavogi, og Alfred-Wolfgang Sveins-
son, f. 1953, gullsmiður, búsettur í
Kaupmannahöfn.
Guðrún Lára Alfredsdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Þeim mun meira sem þú seilist eftir
heiminum öllum, þeim mun hamingjusamari
verður þú. Það eru oft einföldustu hlutirnir
sem veita manni mesta gleði.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þú ert með tiltekna hugmynd á heil-
anum sem varðar stjórnmál eða trúmál í
dag. Safnaðu upplýsingum í stað þess að
hugsa og spyrðu fólk álits.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Það er ekki allt gull sem glóir og
margt fyrirheitið fer fyrir lítið þegar til kast-
anna kemur. Vertu jákvæður og brostu fram-
an í heiminn sem mun þá brosa til þín.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Þessi dagur er frábær til þess að
blanda geði við náungann. Visst verkefni er
öðruvísi en þú ímyndaðir þér það, en það er
einstakt og því betra.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Þér er efst í huga að grípa til óhefð-
bundinna úrræða til að leysa ákveðin vanda-
mál. Vertu þakklátur og mundu að sönn vin-
átta snýst um það að gefa og þiggja.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Láttu ekki umkvartanir annarra tefja
þig eða breyta starfsáætlun þinni heldur
haltu þínu striki. Leyfðu einstöku skopskyni
þínu að njóta sín.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Þú hefur mikla frelsisþörf í dag og neit-
ar að láta aðra ráða því hvernig þú lifir þínu
lífi. Vertu heiðarlegur.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Þér finnst þú valdaminni en þú
ert ef þú berð þig saman við aðra. Haltu ró
þinni og reyndu að vinna skipulega því þann-
ig nýtist tíminn best.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Það sem þú aðhefst núna hefur
áhrif á það sem þú átt ógert. Lausnir margra
mála liggja nær þér en þú sérð í fljótu bragði
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú verður að ná stjórn á hlut-
unum, bæði heima fyrir og á vinnustað.
Láttu það eftir þér að skemmta þér og borða
góðan mat í góðra vina hópi.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Það hefur ekkert upp á sig að
stytta sér leið til lausnar mála. Fé-
lagasamtök, vinir þínir og fjölskylda virðast
bara ekki geta fengið nóg af þér.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Lykillinn að velgengni þinni er heið-
arleikinn sem þú hefur í hávegum. Gefðu þér
tíma til að sinna andlegu og mjúku hliðunum
á sjálfum þér.
Áhugamál Þorbjargar eru marg-
vísleg. „Ég elska að lesa bækur sem
er í raun það eina sem hvílir mig frá
mikilli vinnu. Ég vildi hafa meiri
tíma til að lesa, en ég sofna oft á
fyrstu blaðsíðunni. Ég les því eigin-
lega bara í fríum. Ég hef gaman af
ráðgjafar, markþjálfar og hvað eina.
Fyrirtækin eru mjög spennt fyrir
þessu og mikið álag á okkur á núna,
en það hefur aldrei verið skemmti-
legra í vinnunni.“ Þorbjörg situr nú í
stjórn Þjóðleikhússins og í Vísinda-
og tækniráði.
Þ
orbjörg Helga Vigfús-
dóttir er fædd 5. sept-
ember 1972 í Reykjavík,
ólst fyrst upp í Breið-
holti og Hlíðunum en
síðan í Smáíbúðahverfinu í Heiðar-
gerði. Þorbjörg hefur einnig búið í
Kaliforníu, Seattle, Fontainebleau í
Frakklandi, Barcelona og Kaup-
mannahöfn. Hún var lengi í fimleik-
um og í Tónmenntaskóla Reykjavík-
ur. „Ég æfði með Ármanni og spilaði
á klarinett og píanó, en hætti á ung-
lingsárunum. “
Þorbjörg gekk í Hvassaleitisskóla
og svo Verzlunarskóla Íslands. Hún
lauk námi 1999 við Háskóla Íslands í
blandaðri BA-gráðu í uppeldis- og
menntunarfræði og sálfræði með
skiptinemaári í Seattle. Hún lauk
meistaragráðu í námssálfræði við
University of Washington í Seattle
1999.
Þorbjörg vann hjá Háskólanum í
Reykjavík sem kennari og verkefna-
stjóri Auðar í krafti kvenna 2000-
2003. Hún var aðstoðarmaður Þor-
gerðar Katrínar í menntamálaráðu-
neytinu 2003-2006 og svo vara-
borgarfulltrúi í fjögur ár og borgar-
fulltrúi í átta ár, frá 2006-2014, fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Hún sat í stjórn
Strætó, Orkuveitu Reykjavíkur,
Faxaflóahafna og Sorpu auk fjöl-
margra ráða og nefnda. „Ég skrifaði
fjölmargar greinar og skýrslur og
setti mikla áherslu á skólamál annars
vegar og menningarmál hins vegar.“
Þorbjörg stofnaði Tröppu 2014 þar
sem starfa talmeinafræðingar og
sinna þjálfun barna í fjarheilbrigð-
isþjónustu. Hún var formaður stjórn-
ar Iceland Naturally og formaður
fulltrúaráðs Verzlunarskóla Íslands.
Árið 2015 stofnaði Þorbjörg síðan
sprotafyrirtækið Köru Connect sem
er öruggur hugbúnaður sem tengir
saman sérfræðinga við skjólstæðinga
sína.
„Þessa dagana erum við að þjón-
usta framsýn fyrirtæki og stofnanir
sem byggja með okkur velferðartorg
að þjónustu ólíkra sérfræðinga fyrir
starfsmenn. Það er erfitt að nálgast
sérfræðinga og við stefnum að auknu
aðgengi og öruggu umhverfi. Þetta
geta verið sálfræðingar, næringar-
útivist og ferðalögum og Frakkland
er í miklu uppáhaldi. Mér finnst frá-
bært að fara í göngur og ómissandi
er árleg ganga á Vestfjörðum með
gönguhópnum Gönguhópnum. Ég
nýt þess að hlusta á klassíska tónlist,
án þess að vita heiti á verkunum eða
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, framkvæmdastjóri Köru Connect – 50 ára
Fjölskyldan Þorbjörg, Hallbjörn og börn fyrir utan Skálakot hótel undir Eyjafjöllum í fyrrasumar
Aldrei verið jafn gaman í vinnunni
Afmælisbarnið Þorbjörg á sólríkum degi og Þingvellir í baksýn. Mæðgurnar Þorbjörg og Ólöf.
Til hamingju með daginn
Mosfellsbær Ari Wolfgang
Guðrúnarson fæddist 17.
janúar 2022 kl. 20.30 á
Akranesi. Hann vó 4.444 g
og var 55 cm langur. For-
eldrar hans eru Guðrún
Lára Alfredsdóttir og Guð-
laug Birna Aradóttir.
Nýr borgari