Morgunblaðið - 05.09.2022, Síða 32

Morgunblaðið - 05.09.2022, Síða 32
STILLANLEG HJÓNARÚM MEÐ BODYPRINT DÝNU WWW.SVEFNOGHEILSA.IS Svefn heilsa& PANDORA STILLANLEGUR HÆGINDASTÓLL VANDAÐAR SÆNGUROG KODDAR Í ÚRVALI EITT MESTA ÚRVAL AF HEILSUDÝNUM Á LANDINU ÚRVALAF VÖNDUÐUM HEILSURÚMUM GERIÐ GÆÐA- OG VERÐSAMANBURÐ „Hvítu mávar“ er yfir- skrift sýningar sem myndlistarmaðurinn Arth- ur Ragnarsson hefur opn- að í SÍM-salnum að Hafn- arstræti 16. Arthur lauk námi frá Myndlista- og handíðaskólanum árið 1981. Þetta er önnur sýn- ing hans í Reykjavík og á henni eru verk unnin í grafít og akrýl á striga. Í tilkynningu segir að Arthur nái í myndefni sitt „handan reynslu og þekkingar“ og láti „stjórnast af músíkalskri næmni og tilviljana- kenndri leikni. Verkin eru unnin með aðferð þar sem einlægni línuteikningarinnar fær að anda og njóta sín. Þessa aðferð hefur listamaðurinn nálgast til þess að gera sér kleift að yfirfæra tilfinningar og ómeðvituð skilaboð í beinu flæði.“ Sýningin er opin virka daga kl. 11 og 16. Sýning Arthurs Ragnarssonar, „Hvítu mávar“, í SÍM-salnum MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 248. DAGUR ÁRSINS 2022 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 776 kr. Áskrift 8.383 kr. Helgaráskrift 5.230 kr. PDF á mbl.is 7.430 kr. iPad-áskrift 7.430 kr. Manchester United varð í gær fyrsta liðið til þess að leggja Arsenal að velli í ensku úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu þegar liðin mættust í stórleik helgarinnar á Old Trafford í Manchester í 6. umferð deildarinnar en leikn- um lauk með 3:1-sigri United í frábærum leik. »27 United hafði betur gegn Arsenal ÍÞRÓTTIR MENNING Ari Páll Karlsson ari@mbl.is Blúshátíðin Blús milli fjalls og fjöru – þar sem blúsinn lifir, var haldin á Patreksfirði um helgina. Hafa á þriðja tug hljómsveita stigið á stokk síðan hún var haldin fyrst árið 2012. Þema hátíðarinnar í ár var kvenfólk í tónlist og þótti heppnast vel, að sögn gesta. Fram komu fjórar sveitir á tveim- ur kvöldum hátíðarinnar. Föstu- dagskvöldið hófst á hljómsveit skip- aðri nemendum úr tónlistarskóla FÍH og Menntaskóla í tónlist (MÍT) þar sem hin unga Anya Hrund Shad- dock söng og leiddi. Lék þar heima- maðurinn Ríkharður Ingi Steinars- son á píanó. Kristina Bærentsen, söngkona frá Færeyjum, steig því næst á svið ásamt sveit og Bödda Reynis, söngvara Dalton. Á laugar- deginum byrjaði kvennasveitin Sist- ers of the Moon kvöldið áður en bandaríska söngkonan og skemmti- krafturinn Karen Lovely slaufaði hátíðinni. Er þetta í fyrsta skipti sem skemmtikraftur er fluttur inn til Patreksfjarðar. „Þetta var alveg rosalega gaman. Hátíðin heppnaðist alveg stórkost- lega vel. Það var vel pakkað á laug- ardeginum þegar bandaríska stór- stjarnan steig á svið,“ segir Þollý Rósmundsdóttir, blússöngkona og forsprakki Blússveitar Þollýjar. Hefur hún hjálpað til og verið viðloð- andi hátíðina frá upphafi. „Rúsínan í pylsuendanum var síðan þegar Palli Hauks, hvatamaður að blúshátíð- inni, var dreginn upp á svið og látinn syngja Braggablúsinn.“ Lovely hafi tekið fyrsta erindið, lagt það á minn- ið þrátt fyrir að tala ekki stakt orð í íslensku. Segir Þollý að þrátt fyrir að fjölmennara hafi verið á laug- ardeginum hafi mikil ánægja ríkt með föstudaginn, enda mikið dans- að. „Nú er hátíðin búin að festa sig í sessi sem árlegur viðburður í lok sumars,“ segir Þollý og ljóst er að blúsinn lifir góðu lífi á Patreksfirði. -Hvað heillaði þig við blúsinn? „Þetta er svo djúp tilfinningatján- ing. Það er svo auðvelt að tengja við blúsinn. Fólk finnur oft að hann höfðar til svo djúpra mannlegra til- finninga.“ Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Systur Má hér sjá kvennasveitina Sisters of the moon sem léku á laugardagskvöldið. Sérstakt kvennaþema var í ár. Blúsinn lifir góðu lífi vestur á Patreksfirði - Blús milli fjalls og fjöru haldin í ellefta skipti um helgina Morgunblaðið/Guðlaugur Albertsson Stjarna Hin bandaríska Karen Lovely tók Braggablúsinn á íslensku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.