Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022
Bergþór Ólason vakti á Alþingi
athygli á nýrri skýrslu Sam-
taka iðnaðarins og þeim tillögum
sem í henni eru og snúa að því að
meta nánar íþyngjandi áhrif
nýrra lagaákvæða,
að fylgja hags-
munum Íslands eft-
ir gagnvart Evr-
ópureglum og að
þær verði inn-
leiddar án íþyngj-
andi viðbótar-
kvaða.
- - -
Bergþór benti á að vantað
hefði upp á að framkvæmt
væri viðhlítandi mat á þeim
íþyngjandi ákvörðunum sem
reglusetningu fylgja: „Kostnaður-
inn af þessu lendir auðvitað á
endanum hvergi nema hjá fyr-
irtækjum landsins og heimilum.
Þetta er eitthvað sem við þing-
menn verðum að taka til okkar.
- - -
Atriðið sem snýr að því að
greina hagsmuni markvisst
og tímanlega við þróun Evr-
ópureglna og fylgja mikilsverðum
hagsmunum eftir af festu kristall-
ast til dæmis í þeirri dellu sem
viðhöfð hefur verið hér árum
saman um að allir atvinnubíl-
stjórar þurfi að fara á fimm daga
námskeið á nokkurra ára fresti
til að hafa réttindi til að keyra
yfir landamæri. Þetta er einhver
vitleysa sem hefði átt að stoppa á
fyrri stigum en við klúðruðum
því. Við þurfum að finna leiðir til
að vinda ofan af þessu.
- - -
Og innleiðing Evrópureglna án
íþyngjandi viðbótarkrafa –
þetta er það sem ráðherrar,
sennilega embættismenn í ráðu-
neytum, hafa gert árum saman.
Það er skotið inn áhugamálum
ráðuneytisins eða ráðherrans
með innleiðingarregluverki án
þess að mikið beri á. Við verðum
að færa þetta til betri vegar.“
Bergþór Ólason
Ofvaxna
regluverkið
STAKSTEINAR
Mygla hefur komið í ljós á kennslusvæðum í Voga-
skóla á annarri hæð í nýbyggingu skólans sem og
á skrifstofum á jarðhæð. Þetta mun hafa áhrif á
skólastarfið en búið er að óska eftir alhliða úttekt á
öllu skólahúsnæðinu og loftræstikerfi hússins í
kjölfar þessara fregna.
Þetta kemur fram í tölvupósti frá skólastjóra
Vogaskóla til foreldra nemenda. Þa segir að í lok
ágúst hafi verið farið fram á að ákveðinn hluti af
húsnæði skólans yrði skoðaður sérstaklega með
tilliti til gæða innivistar. Í vikunni hafi borist
frumskýrsla með niðurstöðum þar sem m.a. kem-
ur fram að mygla hafi fundist á kennslusvæðum
nemenda í 4. og 5. bekk.
„Virkjaður hefur verið nýr verkferill Reykja-
víkurborgar um rakaskemmdir og myglu. Ég hef
fundað með aðilum frá Reykjavíkurborg og verk-
fræðistofunum Eflu og Verksýn. Verið er að vinna
verkáætlun sem miðar að því að rýma þessi svæði
og ráðast í viðgerðir. Einnig er verið að leita eftir
húsnæði sem hægt er að nýta fyrir skólastarfið á
meðan á viðgerðum stendur,“ segir í póstinum frá
Snædísi Valsdóttur skólastjóra.
Mygla í nýbyggingu Vogaskóla
- Áhrif á skólastarf
- Gera á alhliða úttekt
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vogaskóli Við skoðun á húsnæðinu fannst mygla
á kennslusvæðum nemenda í 4. og 5. bekk.
Efstaleiti 12 103 Reykjavík
Fjölbýli
Mjög falleg 138,6 fm íbúð á 2. hæð í lyftuhúsi ásamt góðu stæði í lokaðri
bílageymslu. Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni m.a. sjávar- og fjallasýn.
Stórar flísalagðar suðursvalir og stórar glæsilegar stofur með aukinni
lofthæð. Sér geymsla fylgir í kjallara. Húsvörður er í húsinu.
138,6 fm 4ra herb.
Grensásvegi 11 108 Reykjavík | Sími 588-9090 | eignamidlun.is
Sverrir Kristinsson
Löggiltur fasteignasali
sverrir@eignamidlun.is
861 8511
104.000.000
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Í tilefni átaksins Bleiku slaufunnar
hafa Blómaval og Húsasmiðjan haf-
ið sölu á bleikri októberstjörnu.
Árni Reynir Alfreðsson, for-
stöðumaður markaðsmála frá
Krabbameinsfélagi Íslands, tók
formlega við fyrsta blóminu fyrr í
vikunni.
„Við hvetjum fólk til að lífga upp
á bæði heimili og vinnustaði með
þessu fallega, skærbleika blómi og
styrkja um leið mikilvægt átak sem
snertir okkur öll,“ er haft eftir
Diönu Allansdóttur, deildarstjóra
hjá Blómavali í tilkynningu.
Hún segir söluna hafi aukist ár
frá ári og að þau reikni með að
selja á bilinu eitt til tvö þúsund
októberstjörnur á meðan birgðir
endast í október.
„Við vonum að hægt verði að
skapa hefð fyrir októberstjörnunni
svo við getum boðið hana á hverju
ári og smám saman aukið magnið
því þetta er virkilega falleg planta
og kaupin styðja auk þess við gott
málefni. Svo er auðvitað hægt að
nálgast Bleiku slaufuna í verslunum
okkar, sem er sérlega falleg í ár.“
Októberstjarnan hefur verið seld
til styrktar Bleiku slaufunni í tvö
ár.
Hið fagurbleika afbrigði er rækt-
að sérstaklega með stuðning við
Bleiku slaufuna í huga. Birgir
Birgisson hjá Garðyrkjustöðinni
Ficus í Hveragerði hóf ræktun á
þessari einstöku stjörnu. Yrkið er
náskylt jólastjörnunum og heitir
„J‘Adore Pink“ eða ég elska
bleikt.
Átakinu Bleiku slaufunni var
formlega fagnað í Háskólabíói í
fyrradag en í ár er slaufan hönnuð
af Orrafinn.
Fagurbleikar október-
stjörnur fyrir gott málefni
Bleik Magnús Magnússon, Diana Allansdóttir, Birgir Birgisson og Árni
Reynir Alfreðsson með stjörnuna sem seld er til styrktar Bleiku slaufunni.
- Til stuðnings
Bleiku slaufunni
Allt um sjávarútveg