Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIR
Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022
1. október 2022
Gjaldmiðill Gengi
Dollari 144.29
Sterlingspund 156.5
Kanadadalur 105.36
Dönsk króna 18.84
Norsk króna 13.402
Sænsk króna 12.785
Svissn. franki 146.85
Japanskt jen 0.9972
SDR 184.12
Evra 140.1
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 172.0439
STUTT
BAKSVIÐ
Þóroddur Bjarnason
tobj@mbl.is
Reykjavíkurborg hefur sagt upp
samningi sínum við Orku náttúr-
unnar, ON, um götulýsingarþjón-
ustu. Tekjur ON vegna samnings-
ins námu 320 milljónum króna á
síðasta ári. Heildartekjur götulýs-
ingarþjónustunnar námu um 600
milljónum króna árið 2021 eins og
fram kom í frétt Morgunblaðsins á
dögunum um fyrirhugaða sölu
þjónustunnar.
Eins og fram kom í fréttinni
nema tekjur ON af götulýsingar-
þjónustu 2,61% af heildartekjum
fyrirtækisins. Reykjavíkurborg er
langstærsti viðskiptavinurinn.
Einnig hafa Vegagerðin og Akra-
nesbær sagt upp samningum sínum
um þjónustuna.
Aðrir viðskiptavinir eru Mosfells-
bær, Seltjarnarnes og Faxaflóa-
hafnir m.a.
Höfðu samband við alla
Í skriflegu svari frá ON segir að
áður en Orka náttúrunnar birti
auglýsingu um opið söluferli á götu-
lýsingarþjónustu sinni fyrr í mán-
uðinum hafi verið haft samband við
alla þá aðila sem ON þjónustar og
þeim greint frá áformunum. „Eftir
að söluferlið hófst bárust okkur
formlegar uppsagnir á þjónustu-
samningum frá bæði Reykjavíkur-
borg og Vegagerðinni. Ástæður
voru ekkert sérstaklega tilteknar í
þeim uppsögnum með öðrum hætti
en að það væri mat þessara aðila að
það væri þeim fyrir bestu að segja
upp samningunum. Uppsögn á
samningi Akraness hefur legið fyrir
frá því í vor en hvenær þjónustu
okkar við sveitarfélagið lýkur form-
lega liggur ekki fyrir.“
Uppsagnir Reykjavíkurborgar og
Vegagerðarinnar eru með 12 mán-
aða uppsagnarfresti.
„Við undirbúning á sölu götulýs-
ingarþjónustunnar var gert ráð fyr-
ir að þessi staða gæti komið upp,
þ.e.a.s. að uppsagnir á samningum
gætu borist,“ segir í svarinu.
Heimildir Morgunblaðsins herma
að hvorki Vegagerðinni né Reykja-
víkurborg hafi hugnast að fram-
selja ætti þjónustuna til þriðja að-
ila.
Nokkrir hafa sýnt áhuga
ON var líka spurt um hvort
margir hafi lýst yfir áhuga á að
kaupa þjónustuna. Í svarinu kemur
fram að nokkrir hafi sýnt henni
áhuga.
Í einblöðungi með upplýsingum
sem ætlaður er þeim sem hafa
áhuga á einingunni kemur fram að
rekstrareiningin beri ábyrgð á
rekstri, viðhaldi og hvers kyns ný-
framkvæmdum og viðgerðum á um
37 þúsund ljósastaurum. Þar að
auki veiti starfsfólk einingarinnar
faglega ráðgjöf um nýjustu tækni í
ljósabúnaði og fylgist með þróun til
að auka gæði lýsingar og lágmarka
ljósmengun í götulýsingu.
Þrettán sérfræðingar
Götulýsingarteymið er sam-
kvæmt einblöðungnum skipað 13
sérfræðingum sem einungis sinna
götulýsingu.
Frestur til að skila inn óskuld-
bindandi tilboðum í þjónustuna er
til klukkan 16.00 hinn 21. október
2022.
Reykjavíkurborg segir upp
samningi um götulýsingu
Morgunblaðið/Hari
Staur Einn af þrettán sérfræðingum götulýsingarþjónustunnar að viðhaldsstörfum.
Götulýsing
» Rekstrareiningin ber ábyrgð
á rekstri, viðhaldi og hvers
kyns nýframkvæmdum og við-
gerðum.
» Veitir einnig ráðgjöf.
» 37 þúsund ljósastaurar.
» Heildartekjur 600 mkr.
» Reykjavíkurborg greiddi 320
milljónir króna.
» Tólf mánaða uppsagn-
arfrestur.
- Langstærsti viðskiptavinur ON - Vegagerðin og Akranes einnig á útleið
« Hlutabréf í Kauphöllinni hækkuðu
nokkuð hressilega í gærdag, ef horft er
til þess hversu mikið þau hafa lækkað
síðustu tvær vikurnar.
Síminn leiddi hækkanir dagsins eftir
að tilkynnt var að sala félagsins á
dótturfélaginu Mílu, til franska fjárfest-
ingasjóðsins Ardian, væri frágengin og
að Síminn hefði í kjölfar sölunnar í
hyggju að greiða hluthöfum sínum 31,5
milljarða króna með lækkun hlutafjár.
Síminn hækkaði um 4,2% í viðskiptum
dagsins í gær, sem námu um 580 millj-
ónum króna, og hefur hækkað um 7,6%
á einum mánuði. Þó má hafa í huga að
gengi félagsins stendur í stað frá því að
tilkynnt var um að samningar um söl-
una á Mílu hefðu náðst um miðjan sept-
ember. Þá hefur gengi bréfa í félaginu
lækkað um 5,8% það sem af er ári.
Sjóvá og VÍS hækkuðu einnig í gær,
bæði um 3,9%. Viðmælendur Morgun-
blaðsins af hlutabréfamarkaði rekja það
helst til hækkunar á hlutabréfum í öðr-
um félögum í gær. Veltan með bréf í
félaginu var ekki mikil í Sjóvá, um 212
milljónir króna, en kom að mestu seinni
hluta dags í gær. Velta með bréf í VÍS
nam 380 milljónum en gengi bréfa í fé-
laginu hækkaði jafnframt undir lok
dags. Gengi bréfa í Sjóvá lækkaði þó
um 11,2% í september og hefur lækkað
um 16,3% það sem af er ári. Gengi
bréfa í Vís lækkaði um 11,7% í sept-
ember og hefur lækkað um 14,7% það
sem af er ári.
Ölgerðin á lygnum sjó frá skráningu
Ölgerðin hækkaði í gær um 2,8% en
velta með bréf í félaginu nam aðeins
um 80 milljónum króna. Gengi bréfa í
félaginu siglir nokkuð lygnan sjó miðað
við flest önnur félög í Kauphöllinni,
félagið hækkaði um 6,8% í september
og hefur hækkað um rúm 24% frá því
að það var skráð á markað í byrjun júní.
Mesta veltan með bréf í Arion í gær
Mesta veltan í gær var með bréf í Ar-
ion, um 760 milljónir króna, og félagið
hækkaði um 2,2%. Gengi bréfa í Arion
lækkaði þó um 8,9% í september og
hefur lækkað um 16,3% það sem af er
ári. Þá nam velta með bréf í Kviku um
630 milljónum króna og félagið
hækkaði um 2,1%. Gengi bréfa í Kviku
lækkaði um 9,7% í septemer og hefur
lækkað um 32% það sem af er ári.
Það var öllu minni velta með bréf í
Íslandsbanka í gær, um 140 milljónir
króna, en félagið hækkaði um 2,7%.
Gengi bréfa í bankanum lækkaði um 7%
í september en hefur þó aðeins lækkað
um 3,5% það sem af er ári. Gengi bréf-
anna hefur þó sveiflast nokkuð, er nú á
tæpar 122 kr. á hlut, fór lægst í 117 kr. á
hlut í lok maí en hæst í 135 kr. á hlut
undir miðjan september og tók svo
dýfu niður á við eins og önnur félög.
Morgunblaðið/Golli
Orri Hauksson, forstjóri Símans, hafði
ástæðu til að brosa í gær þegar félagið
fékk greitt fyrir Mílu.
Síminn leiddi hækkanir
á síðasta degi mánaðar
duka.is
Kringlan &
Smáralind
FRANDSEN Ball
Single borðlampi
Verð 19.900,-
ELTAK sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum