Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 34
34 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl , Hrútur Fólk hugsar ekki alltaf áður en það talar og þó að það geri það er óvíst að það hafi rétt fyrir sér. Leggðu þig fram um að bæta samskiptin því maður er manns gam- an. 20. apríl - 20. maí + Naut Það er eitthvað sem stendur í veg- inum fyrir því að þú náir þeim árangri sem þú stefnir að. Ekki sniðganga þarfir annarra. 21. maí - 20. júní 6 Tvíburar Þú verður að skipuleggja starf þitt betur ef þú átt að koma einhverju í verk. Undirbúðu þig því vandlega áður en þú segir hug þinn í erfiðu máli. 21. júní - 22. júlí 4 Krabbi Þig langar til þess að upplýsa ein- hvern um eitthvað sem er þér mikilvægt. Njóttu þess að sjá raunveruleikann í gegn- um móðuna. 23. júlí - 22. ágúst Z Ljón Eyddu deginum í að leita að einhverju nýju í eigin fari sem þú getur dáðst að. Ekki mála skrattann á vegginn þótt þér finnist fólk afundið í viðmóti. 23. ágúst - 22. sept. l Meyja Það er engin ástæða til þess að láta stundarerfiðleika draga úr sér allan mátt. Farðu eftir eigin sannfæringu og óttastu ekki því heilladísirnar vaka yfir þér. 23. sept. - 22. okt. k Vog Þótt freistandi sé skaltu ekki ganga lengra í því máli sem hæst ber í huga þínum. Farðu þér hægt því þá muntu ekki lenda í neinum vandræðum síðar meir. 23. okt. - 21. nóv. j Sporðdreki Vertu ekki styggur þótt eitt- hvað tefji verkefni þitt því þú hefur í svo margt annað að grípa á meðan. Farðu hæg- ar í sakirnar. 22. nóv. - 21. des. h Bogmaður Þú þarft að gefa tilfinningunum smáfrí og velta hlutunum fyrir þér af kaldri skynsemi. Ef þú hins vegar ert reikull í ráði þá fer margt úrskeiðis. 22. des. - 19. janúar @ Steingeit Oft var þörf en nú er nauðsyn á að þú gerir eitthvað fyrir sjálfan þig til að lyfta þér upp andlega sem líkamlega. Gakktu bara ekki of hart fram. 20. jan. - 18. febr. ? Vatnsberi Umburðarlyndi og þolinmæði er nokkuð sem stundum er af skornum skammti hjá þér og það á við þessa dagana. 19. feb. - 20. mars = Fiskar Láttu ekki ýta þér út í einhverjar að- gerðir í peningamálum nema þú hafir kynnt þér málin vandlega fyrir fram. forstöðumaður. „Á þessum tíma höf- um við fjölskyldan einnig fengið ann- að tækifæri til þess að búa erlendis, en haustið 2016 bjuggum við í Or- ange County í Kaliforníu þar sem ég var í rannsóknarleyfi. Þá fengu syn- irnir tækifæri til þess að prófa bandaríska skóla og lærðu á brim- bretti og við hjónin unnum og þróuð- um lifnaðarháttinn „slow living“ í lærdómsríkur tími og Svíþjóð verður alltaf okkar annað land.“ Fjölskyldan flutti svo heim í árs- byrjun 2008 eftir að Arna hafði lokið doktorsprófinu. Þá starfaði hún sem ráðgjafi Þorgerðar Katrínar, þáver- andi menntamálaráðherra, og hóf síðan störf hjá Miðstöð í lýðheilsuvís- indum árið 2010, þar sem hún hefur starfað síðan, nú sem prófessor og A rna Hauksdóttir fæddist 1. október 1972 í Reykjavík og átti fyrst heima á Rauðalæk en annars ólst hún upp í Smáíbúðahverfinu. „Þetta var róleg- heitahverfi og helst man ég eftir mér í ýmsu bralli utanhúss, snúsnú, teygjó, alls konar uppátækjum – ég held samt að ég hafi verið mjög þægt barn! Í tómstundum lærði ég einnig á píanó og æfði dans. Á unglingsárum flutti ég svo í Vesturbæinn og hef haldið mig þar síðan, fyrir utan þegar ég bjó erlendis á fullorðinsárum.“ Arna gekk í Breiðagerðisskóla og Réttarholtsskóla og varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð vor- ið 1992. „Þá vandaðist valið hjá mér, því ég var að velta fyrir mér alls kon- ar hlutum varðandi framtíðina og hvað ætti að læra – grafíska hönnun, félagsfræði, frönsku eða sálfræði. Sálfræðin varð á endanum fyrir val- inu og ég hef aldrei séð eftir því. Háskólaárin voru gríðarlega skemmtileg, sem kom mér aðeins á óvart, því fyrir fram hafði ég ímynd- að mér að það væri bara „gamalt“ fólk í háskólanum sem keyrði um með barnavagna og væri búið að gleyma hvernig væri að hafa gaman. En það var öðru nær.“ Arna dróst inn í stúdentapólitíkina og sat í Stúd- entaráði og var varaformaður Vöku. „Sú reynsla var ómetanleg og í kringum það starf kynntist ég vinum og vinkonum sem ég bý enn að í dag. Á þessum tíma fórum við Einar að draga okkur saman (þótt hann væri í Röskvu!) og þá varð ekki aftur snúið. Eftir háskólann vann ég m.a. hjá Rannsóknastofnun uppeldis- og menntamála og Gallup. Árið 2003 höfðu tveir elstu synir okkar, Hlynur og Haukur, bæst í hópinn og saman fluttum við fjögur til Stokkhólms þar sem ég hóf doktorsnám við Karol- inska Institutet. Árin þar urðu fimm og við urðum líka fimm, því Kolbeinn, yngsti sonur okkar, fæddist þar. Þetta var gríðarlega annasamur tími hjá okkur með námi, starfi og þrem- ur litlum, fínum og hressum drengj- um og ég hristi stundum hausinn yfir þessu tímabili þegar ég hugsa til baka. En fyrst og fremst frábær og sólinni. Þá var aðeins önnur stemn- ing en á árunum í Svíþjóð!“ Við HÍ kennir Arna og leiðbeinir í meistara- og doktorsnámi í lýð- heilsuvísindum. Hún sinnir einnig rannsóknum í talsverðum mæli og þá aðallega á áhrifum áfalla á heilsu. Doktorsverkefnið hennar sneri að áhrifum makamissis, og einnig hefur hún rannsakað áhrif ýmissa náttúru- hamfara og annarra áfalla. „Eitt af stóru verkefnunum síðari árin er rannsóknin Áfallasaga kvenna, sem við samstarfskona mín og stórvinkona, Unnur Anna Valdi- marsdóttir prófessor, hófum árið 2018 með okkar frábæra samstarfs- fólki. Áfallasaga kvenna er mjög spennandi tækifæri þar sem hægt verður að skilja betur áhrif ýmissa áfalla á heilsu og hvernig hægt er að draga úr neikvæðum áhrifum þeirra. Mér finnst stundum áhugavert að velta því fyrir mér hvaða náms- og starfsleið ég fór, og fyrir utan dásamlegt uppeldi og stuðning frá foreldrum mínum í allt sem mér datt í hug hef ég oft hugsað hvað frábær- ir kennarar geta verið miklir áhrifa- valdar. Ég er handviss um að sumir kennara minna, allt frá barnaskóla til háskóla, eiga stóran þátt í því á hvaða starfsleið ég er.“ Arna Hauksdóttir, prófessor og forstöðum. við Miðstöð í lýðheilsuvísindum HÍ – 50 ára Ljósmynd/Hrafn Jónsson Fjölskyldan Frá vinstri: Hlynur, Einar, Haukur, Arna og Kolbeinn stödd í Toskana á Ítalíu í sumar. Frábærir kennarar áhrifavaldar Laufásborg Arna að fagna útskrift Æsu systurdóttur sinnar úr Laufásborg ásamt foreldrum hennar og foreldrum sínum í ágúst síðastliðnum. Helga Þórarinsdóttir er sjötug í dag. Hún er borinn og barnfæddur Grind- víkingur. Hún hefur búið þar lengst af ævinnar, utan 17 ára í Reykjavík, en er komin heim aftur fyrir nokkrum árum. Helga lauk grunnskóla í Grindavík og framhaldsnámi í Reykjanesi í Ísafjarð- ardjúpi. Hún lauk síðan námi frá Fisk- vinnsluskólanum og öðlaðist kennslu- réttindi á lyftara. Hún vann ýmis störf tengd fiskvinnslu og veiðum í Grinda- vík og og við iðjuþjálfun á Endurhæf- ingarstöðinni að Grensási. Eftir kom- una til Grindavíkur að nýju starfaði hún við umönnun og liðveislu. Börn Helgu eru Þórarinn, Guðveig Sig- urlaug og Þórunn Halldóra. Barna- börnin eru tíu og barnabarnabörnin þrjú. Foreldrar Helgu eru Guðveig Sigurlaug Sigurðardóttir og Þórarinn Ingibergur Ólafsson, en þau eru bæði látin. Eiginmaður Helgu er Hjörtur Gíslason, blaðamaður. 70 ára Til hamingju með daginn 30 ÁRA Silja ólst upp í Grundarfirði en er nú búsett í Reykjavík. Hún vinnur sem saksóknari hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu. Silja Rán var formaður Orator, félags laganema við HÍ, og varð í 2. sæti í kúluvarpi á silfurmóti ÍR. Hún hefur áhuga á bátum, köttum, golfi, félagarétti, Liv- erpool og löngum göngutúrum, helst við strönd. Silja Rán ver afmælisdeginum sínum á Englandi á Liver- pool-leik en ætlar að fagna með góðum vinum seinna. FJÖLSKYLDA Foreldrar Silju eru Eygló Bára Jónsdóttir, f. 1971, kennari í Grandaskóla, og Arnar Guðlaugsson, f. 1968 húsvörður. Systir Silju er Alma Jenný Arnarsdóttir, f. 2000. Köttur Silju er Birta. Silja Rán Arnarsdóttir SKVÍSAÐU ÞIG UPP FYRIR SUMARIÐ STÆRÐIR 1428 Sjáðu úrvalið í netverslun Curvy.is eða kíktu í verslun Curvy við Grensásveg Verslunin CURVY | Fellsmúla 26 við Grensásveg, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.