Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022
Byggingargallar, raki og mygla
• Greiningar á umfangi, orsökum og afleiðingum byggingargalla á Íslandi.
• Verkefni sem stuðla sérstaklega að aukinni þekkingu á raka- og
mygluskemmdum í íslenskummannvirkjum, samanburði og þróun
aðferða við mælingar og mati á umfangi slíkra skemmda. Jafnframt
hvernig unnt sé að fyrirbyggja þær og bregðast við þeim með
árangursríkum hætti.
Byggingarefni
• Rannsóknir og þróun á byggingarefnum, á endingu þeirra og eiginleikum
ásamt efnisvali og notkun í samræmi við lög um byggingarvörur.
• Verkefni sem stuðla að minna kolefnisspori byggingarefna og draga úr
notkun óumhverfisvænna byggingarefna t.d. með hönnun og eflingu
hringrásarhagkerfisins.
Orkunýting og losun
• Verkefni sem fjalla um orkunýtingu mannvirkja og/eða losun
gróðurhúsalofttegunda vegna mannvirkjagerðar.
Tækninýjungar
• Þróun tæknilegra lausna sem hafa einkum það markmið að draga úr
óæskilegum umhverfisáhrifummannvirkja og auka verðmætasköpun,
hagræðingu, framleiðni og/eða samræmingu meðal hagaðila í
byggingariðnaði.
Gæði
• Rannsóknir á gæðum, endingu, hagkvæmni og hönnun íbúðahúsnæðis.
• Greiningar á hvers konar form íbúðarhúsnæðis þurfi að byggja,
meðal annars með tilliti til þróunar á félagslegum, menningarlegum,
tæknilegum og sjálfbærum þáttum.
Umsóknarfrestur er
til og með 31. október 2022
Nánari upplýsingar og umsóknarform
má nálgast á hms.is/askur.
Askur – mannvirkjarannsóknarsjóður
Opið fyrir umsóknir um styrki
Sjóðurinn veitir styrki til mannvirkjarannsókna með áherslu á aukna
þekkingu, umbætur og nýsköpun til að mæta samfélagslegum
áskorunum á sviði mannvirkjagerðar.
Áhersluflokkar við úthlutun 2022:
Stjörnuskoðun, greining á kon-
unglegu drama í sögu Bretlands,
mannfræðirannsókn á menningu
ólíkra námshópa og smásjárskoðun
á lífríki Læksins í Hafnarfirði. Upp
á þessu og fleiru var bryddað í
Flensborgarskóla í Hafnarfirði nú í
vikunni í tilefni af 140 ára afmæli
skólans um þessar mundir. Langri
sögu skólans voru af þessu tilefni
gerð skil á sýningu í anddyri hans
þar sem litið var inn í kennslustund
fyrri tíma. Kennslustofur stóðu
fólki opnar og hefðbundin stunda-
skrá vék um stund.
Flensborgarskólinn veitti verk-
efni á vegum sorgarmiðstöðvar á
St. Jósefs styrk í tilefni afmælisins,
en Flensborgarar hlupu til góðs
fyrr í mánuðinum. Á afmælishátíð-
inni komu Steinar Stephensen og
Helga Guðrún Ásgeirsdóttir fram
fyrir hönd foreldraráðs skólans og
gáfu nemendum pool-borð. Skól-
anum bárust og óskir frá Ásmundi
Einari Daðasyni menntamálaráð-
herra, Rósu Guðbjartsdóttur bæjar-
stjóra í Hafnarfirði og fleirum.
Í vegferð frá árinu 1882 hefur
margt gerst í Flensborg, sem er
með elstu starfandi skólum á Ís-
landi. Fyrst var þetta barnaskóli,
síðan alþýðu- og gagnfræðaskóli og
starfræktur sem slíkur langt fram
eftir 20. öldinni. Í upphafi 20. aldar
var kennaradeild við skólann og
þar var fyrsta skipulagða námið
fyrir kennara á Íslandi. Gagn-
fræðapróf var síðast þreytt við
skólann 1977 enda hafði honum
verið formlega breytt í framhalds-
skóla árið 1975 og sama ár voru
fyrstu nýstúdentarnir útskrifaðir.
Frá 1981 hefur Flensborg starfað í
þeirri mynd sem nú er, sem skóli
með nám til stúdentsprófs.
Flensborg Bryddað var upp á ýmsu áhugaverðu í tilefni afmælis skólans og
vikið var frá stundaskrá um stund – og annað lærdómsríkt tekið fyrir.
Einn allra elsti
skólinn á Íslandi
- Flensborg í Hafnarfirði 140 ára
Vísindavaka verður sett í Laugardalshöll klukkan 13 í
dag, laugardag, en hún er haldin samtímis í 340 borg-
um og bæjum í 25 löndum víðsvegar um Evrópu undir
heitinu European Researchers‘ Night. Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir, ráðherra háskóla, vísinda, iðnaðar
og nýsköpunar, mun setja Vísindavökuna og
Sprengju-Kata verður í kjölfarið með spennandi atriði
á sviðinu. Vísindavakan er opin öllum og aðgangur er
ókeypis.
Á Vísindavökunni gefst gestum meðal annars tæki-
færi til að kynnast því hvernig eldgos eru vöktuð, þeir
geta prófað að búa til tölvuleik, fylgjast með þrívídd-
arprentun líffæra, hitta lifandi maura og fræðast um
geimbíla og svarthol.
„Gestir fá að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem
notuð eru við rannsóknir, kynnast ýmsum afurðum og
spjalla við vísindafólkið sjálft um hvernig er að starfa
að vísindum, rannsóknum og nýsköpun. Lögð er
áhersla á lifandi vísindamiðlun og virka þátttöku gesta
og eru börn og ungmenni sérstaklega boðin velkomin
á Vísindavöku,“ segir í tilkynningu.
Þar er þess jafnframt getið að öflug miðlun vísinda
til almennings hafi sannað sig rækilega á tímum
heimsfaraldurs og náttúruhamfara, þegar mikilvægt
sé að fólk fái réttar upplýsingar byggðar á rann-
sóknum og vísindalegum aðferðum. „Markmiðið með
Vísindavökunni er einmitt að færa rannsóknir nær al-
menningi, kynna manneskjurnar á bak við vísindin og
vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi rannsókna-
og vísindastarfs í nútímasamfélagi.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Undirbúningur Handagangur var í öskjunni í Laugardalshöll í gær þegar Vísindavakan var undirbúin.
Heillandi heimur í Höllinni
- Vísindavaka Rannís öllum opin í Laugardalshöll í dag
- Þrívíddarprentun líffæra, tölvuleikjagerð og geimbílar