Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 20
komið í fullan gang aftur. Áætluð
verklok eru í apríl 2023.
- - -
Tvö öflug byggingarfyrir-
tæki eru starfandi í Hólminum.
Annars vegar er það Skipavík þar
sem 60 manns starfa. Í smíðadeild-
inni starfa um 20 manns, um 25
manns á Grundartanga. Auk þess er
viðhald á bátum í slipp og verslun-
arrekstur. Hins vegar er Þ.B. Borg
þar sem vinna 14 manns. Fram-
kvæmdastjórar fyrirtækjanna, Sæv-
ar Harðarson og Páll Þorbergsson,
líta björtum augum fram á veginn
og segjast hafa verkefni langt fram
á næsta ár.
- - -
Kosið var í vor um sameiningu
sveitarfélaganna Stykkishólms og
Helgafellssveitar. Var sameinigin
samþykkt með miklum meirihluta
atkvæða. Sameiningin tók gildi hinn
15. júní sl. Vel hefur tekist til við að
koma nýju sveitarfélagi af stað. Eitt
er þó eftir og það er að gefa sveitar-
félaginu nafn. Leitað var til
örnefnanefndar um álit á nöfnum
sem komu til greina. Nefndin hefur
skilað áliti og valið stendur um
nöfnin Stykkishólmsbær, Sveitarfé-
lagið Stykkishólmur og Þórs-
nesþing. Næsta skref er að boða til
kynningarfunda fyrir íbúa. Íbúar í
hinu nýja sveitarfélagi eru um
1.300.
- - -
Asco Harvester ehf. hefur
verið úthlutað lóð til atvinnurekstr-
ar í útjaðri bæjarins nálægt
skipasmíðastöðinni Skipavík. Þar
mun á næstu mánuðum rísa um 900
fermetra bygging sem m.a. mun
hýsa þörungavinnsluna. Áætlað er
að vinna um 4.000 tonn af þangi ár-
lega sem þykir ekki stórt í þessum
geira. Lögð verður áhersla á sjálf-
bæra nýtingu þörunga og fram-
leiðslu umhverfisvænna matmæla
og þróunarstarf með það að mark-
miði að auka verðmæti þangsins.
Eigendur, sem allir eru íslensk-
ir, hafa lagt mikla vinnu í að hanna,
í samstarfi við erlenda aðila, vinnslu
sem byggist á lokaðri hringrás og
engin lífræn föst efni munu fara frá
í formi útblásturs. Til skoðunar er
m.a. að vinna líförvandi efni fyrir
gróðurrækt. Áætlað er að starfsemi
Asco Harvester skapi um 15-20 ný
störf í upphafi.
- - -
Menningarhátíðin Norður-
ljósin verður haldin í sjötta sinn í
Stykkishólmi dagana 20.-23. októ-
ber. Hátíðin var fyrst haldin árið
2010 og hefur verið haldin annað
hvert ár síðan.
Það verður líf og fjör í bænum
þessa daga. Dagskráin í ár verður
þétt skipuð og fjölbreytt en lagt er
upp úr því að flestir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi. Opnunarhátíð
verður í Stykkishólmskirkju á
fimmtudagskvöld.
Um helgina verða m.a. tón-
leikar í gömlu kirkjunni og á Foss-
hóteli, sýningar á ýmsum stöðum og
stofutónleikar víðsvegar um bæinn.
Í Norska húsinu – byggðasafni
Snæfellinga og Hnappdæla verða
viðburðir í tilefni 190 ára afmælis
hússins. Jafnframt á Amtsbóka-
safnið í Stykkishólmi 175 ára af-
mæli og verða viðburðir tengdir því.
- - -
Landsmót Samfés fer fram í
Stykkishólmi dagana 7.-.9 október.
Á mótinu koma saman ungmenni á
aldrinum 13-16 ára frá félagsmið-
stöðvum um allt land. Hver félags-
miðstöð getur skráð fjóra þátttak-
endur til leiks og er búist við að um
300-350 ungmenni sæki mótið í
Stykkishólmi. Mótshaldara hverju
sinni gefst tækifæri til að kynna sitt
sveitarfélag fyrir ungmennunum og
þá þjónustu og afþreyingu sem þar
er í boði.
Morgunblaðið/Gunnlaugur A. Árnason
Stykkishólmur Framkvæmdir eru fyrirhugaðar í Stykkishólmi, bæði við breytingar á St. Fransiskusspítala og byggingu nýrrar þörungavinnslu.
Leit hafin að nýrri Breiðafjarðarferju
ÚR BÆJARLÍFNU
Gunnlaugur Árnason
Stykkishólmi
Ferjan Baldur sem nú sinnir sigl-
ingum yfir Breiðafjörð er komin til
ára sinna. Tvisvar hafa komið upp
alvarlegar bilanir í vél sem olli því
að skipið varð vélarvana. Aðeins ein
aðalvél er í skipinu, sem hefur sýnt
sig að er alls ekki nægilegt öryggi.
Vegagerðin, sem hefur siglingar
Baldurs á sinni könnu, hefur nú
brugðist við. Leit að nýrri ferju er
hafin. Verið er að ganga frá útboðs-
gögnum að leigu eða kaupum á nýju
skip til að þjóna á Breiðafirði. Ekki
er vitað hvenær útboðsgögn verða
tilbúin, en vinna er í fullum gangi.
Þar til nýr Baldur kemur er ráðgert
að leigja dráttarbát með aðsetur í
Hólminum. Niðurstaða mun liggja
fyrir í lok næstu viku.
- - -
Aftanskin er félag eldri borg-
ara í Stykkishólmi. Það var stofnað
30. janúar 1983. Í félaginu eru 130
manns eða yfir 20% bæjarbúa og er
mikill kraftur í starfsemi þess. Í síð-
ustu viku fóru 46 félagar í fjögurra
daga skemmtiferð til Vestmanna-
eyja. Frábær ferð og rosalega gam-
an sem skilur eftir góðar minningar
er haft eftir ferðalöngum. Vetrar-
starfið er hafið og fjölbreytt dag-
skrá í boði alla virka daga vikunnar.
Á dagskrá er m.a. leikfimi, handa-
vinna, félagsvist, smíðar og mynd-
list. Formaður félagsins er Her-
mann Bragason.
- - -
Starfsemi St. Fransiskus-
spítala er að breytast. Þar mun
verða starfrækt bak- og endurhæf-
ingardeild eins og verið hefur og
svo hjúkrunarrými og sex
sjúkraherbergi. Miklar breytingar
þarf að gera á húsnæði spítalans.
Framkvæmdir voru boðnar út fyrri
hluta árs 2021 og var samið við
Skipavík hf. Miklar tafir hafa orðið
á framkvæmdum. Eftir að verk var
hafið kom í ljós að skipta varð um
alla glugga, 110 talsins, klæðingu og
einangrun á þeim hluta sem til-
heyrði gamla spítalanum. Það hefur
tekið sinn tíma að smíða gluggana
erlendis. Nú eru þeir komnir og far-
ið að skipta þeim gömlu út og allt
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Undanfarna mánuði hefur verið
unnið að því að leggja malbikaðan
göngu- og hjólastíg frá Strandvegi í
Grafarvogi, til móts við Rimahverfi,
niður í Gufunes. Þarna hefur opnast
skemmtileg upplýst leið við högg-
myndagarðinn Hallsteinsgarð.
Tólf tilboð bárust í verkið þegar
Reykjavíkurborg bauð það út. Var
samið við lægstbjóðanda, D. Ing-
verk ehf., um að vinna verkið fyrir
46,6 milljónir króna. Kostnaðar-
áætlun hljóðaði upp á 53,7 milljónir.
Stígurinn kemur niður í Gufunes á
móts við nýtt íbúðarhverfi sem þar
er að rísa. Nákvæmlega á þessu
svæði verður vegstæði Sundabraut-
arinnar. Þegar framkvæmdir hefjast
við þá langþráðu braut þarf væntan-
lega að byggja göngu- og hjólabrú
yfir Sundabraut svo tenging Grafar-
vogs og Gufuness rofni ekki.
Árið 2013 tók Listasafn Reykja-
víkur við gjöf Hallsteins Sigurðs-
sonar myndlistarmanns til Reykvík-
inga, að því er fram kemur á heima-
síðu safnsins. Um var að ræða 16
höggmyndir úr áli sem Hallsteinn
kom fyrir í landi Gufuness á árunum
1989 til 2012. Þær standa á hæð
austan við gömlu áburðarverksmiðj-
una í Gufunesi.
„Í dag er þar skemmtilegur gró-
inn höggmyndagarður, þar sem
skúlptúrarnir hafa notið sín og veitt
gestum og gangandi ánægju eftir að
byggð þéttist og eitt stærsta út-
hverfi í Reykjavík, Grafarvogur,
byggðist upp. Verk Hallsteins Sig-
urðssonar eru víða á söfnum, í einka-
eign og í almenningsrými. Hann hef-
ur haldið á annan tug einkasýninga
og tekið þátt í fjölmörgum samsýn-
ingum.“
Þá segir ennfremur að Hallsteins-
garður sé tilvalinn vettvangur fyrir
skóla í Grafarvogi til að nýta í námi
og leik og hafa þeir gert það óspart.
Nýr göngustígur í Gufunesið
- Tengir hverfið
við byggðina í
Grafarvogi
Morgunblaðið/sisi
Gufunes Stígurinn kemur niður í hverfið framan við nýtt fjölbýlishús. Þarna mun Sundabraut liggja í framtíðinni.
Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri
utanríkisráðuneytisins, afhjúpaði á
miðvikudag minnisvarða um sam-
skipti Íslands og Eistlands í eist-
neska utanríkisráðuneytinu í Tall-
inn.
Minnisvarðinn var settur upp í
tilefni af því að þrír áratugir eru
liðnir frá því að Ísland varð fyrst
allra ríkja til að viðurkenna endur-
reisn sjálfstæðis Eistlands. Minn-
isvarðinn, sem ætlað er að standa í
ráðuneytinu til frambúðar, sýnir
ýmis skjöl, ljósmyndir og gögn sem
tengjast viðurkenningunni. Þess
má geta að eistneska utanríkis-
ráðuneytið stendur við torg sem
nefnt er eftir Íslandi vegna hlut-
verks Íslands við endurreisn sjálf-
stæðis Eistlands.
Minnisvarði Martin Eyjólfsson (t.h.)
við minnisvarðann í Tallinn.
Afhjúpaði
minnisvarða