Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 2022 veg frá barnæsku. Hann var af- burða músíkalskur og spilaði á mörg hljóðfæri svo fallega og næmt. Hann byrjaði ungur að spila í hljómsveitum á böllum og var lengi með Baldri Geirmunds og félögum. Hann var í lúðrasveit Ísafjarðar og síðan lúðrasveit tón- listarskólans allt fram á þennan dag. Sammi var félagi í Sunnukórn- um í fjölda ára og einnig í kirkju- kór Ísafjarðar til þessa dags. Hann samdi töluvert af tónlist og gaf út geisladisk með tónlist sinni þar sem hann fékk marga ísfirska tólistarmenn til liðs við sig. Svo skrifaði hann líka, hann Sammi, og gaf út bækur með gamansög- um úr samfélaginu. Hann las mik- ið og var hafsjór af fróðleik. Við erum viss um að ef hann hefði fengið meiri tíma þá hefði hann gefið meira út á prenti. Endalausar minningar koma upp í hugann og fylgja söknuðin- um við að missa góðan vin. Mestur er missir elsku Guðríð- ar, Sigga og Guðnýjar, Bubbu og Atla og allra stelpnanna sem voru svo nánar afa sínum og hann gaf þeim svo mikið. Ykkur öllum vott- um við okkar dýpstu samúð og biðjum ljós Guðs að styrkja ykkur í sorginni og lýsa veginn áfram með góðum minningum. Hermann og Sigurveig. Í marga vetur á ofanverðum 8. áratug síðustu aldar kom Samúel reglulega í Ísafjarðarkirkju gömlu, þar sem kannaðir voru möguleikar knéfiðlunnar. Voru æfðir skalar í ýmsum tóntegund- um. Og þótt það sé að vísu umdeilt meðal tónlistarmanna, hvort tón- stigar séu eins þýðingarmikið undirstöðuatriði og einatt er af látið, og þar af leiðandi vægast sagt alveg bráðnauðsynlegir, – því að sumir gera lítið úr því, – þá ganga aðrir svo langt að staðhæfa, að öll músík sé ekkert annað en mismunandi afbrugðningar af skölum; jafnvel eru þeir, sem halda því fram, að hinum stór- kostlega Beethoven hafi verið með öllu fyrirmunað að semja lag- línu og því sé dásamleg og óvið- jafnanleg tónlist hans ekkert ann- að en sífelld og margendurtekin hlaup upp og ofan tónstiga. Sam- úel var að nálgast þrítugsaldur- inn, þegar hann hóf rannsóknir sínar á sellóleik, og þótt ýmsir telji, að þá sé fullsteint af stað far- ið, þá skal á móti spurt, hvort hljóðfæraleikur sé langsótt eða vitlaust viðfangsefni jafnvel göml- um manni? Segir ekki hinn spaki Cíceró á einum stað, að þegar hann frétti, að Sókrates hefði lagt stund á hörpuslátt í ellinni, hafi vaknað hjá honum áhugi á að gera slíkt hið sama? Eða hélt ekki hinn katalónski stórmeistari knéfiðl- unnar, Casals, áfram að spila langt fram á tíræðisaldur? Og hafði aldrei verið leiknari en þá, að því er kunnugir sögðu. Og hvað um píanósnillinginn Hóróvitsj? Það er sest varfærnislega á borðstofustól, nær alveg fremst á setuna, hárbeittum pinnanum stungið af fullkominni, grímu- lausri forherðingu á kaf ofan í rán- dýran og stífbónaðan línóleum- gólfdúkinn, og svo gáð að því vandlega, hvort C-skrúfan í snigl- inum nemi ekki svona nokkurn veginn við snepilinn á vinstra eyra. Sumir kennarar hafa stað- hæft, að við hljóðfærið skuli setið eins og maður, sem tekur utan um konu, sem snýr í hann bakinu. Síð- an er boginn spenntur; gljáfægð silfurskrúfan hert um nokkra snúninga, svo að stríkkar á myrru-bornu hrosshárinu. Marg- ir hafa lagt ríkt á við nemendur sína að gleyma ekki að slaka á boganum í hvert sinn sem þeir leggja frá sér hljóðfærið, en herða svo ekki að nýju fyrr en farið er aftur að spila, og þá mátulega. Ekki er í raun haldið á boganum, heldur er hann látinn hvíla á þum- alfingrinum. Aldrei að horfa á vinstri hönd- ina! Hendurnar séu alveg óháðar hvor annarri! Taka ofboðslega áhættu við spilamennskuna; þora að hætta öllu til! Ekki vera hræddur við hljóðfærið! Þú ert ekki læknir; það er engin hætta þótt þú spilir vitlausa nótu ellegar falskan tón! Stundum er sagt, að í tóni knéfiðlunnar sé jafnan heil- mikið groms. Í skáldsögunni Homo Faber eftir Max Frisch segir stúlkan Sabeth, þegar hún heyrir asna hrína, að það minni sig á selló. Samúel Einarsson var drengur góður, prúðmenni, mjög músík- alskur, svo sem og Kristín, systir hans, og trygglyndur vinur. Guð blessi minningu hans og huggi og styrki ástvinina. Guð varðveiti Ísafjörð, byggðina í faðmi hinna bláu fjalla, og Vestfirðinga alla, bæði nær og fjær. Gunnar Björnsson, pastor emeritus. „Þetta voru alveg dýrleg ár,“ sagði Samúel Einarsson rakari og tónlistarmaður í blaðaviðtali fyrir rúmum áratug, um árin þegar hann lék með BG, hljómsveit Baldurs Geirmundssonar. Það eru orð að sönnu. Hópurinn var eins og ein stór fjölskylda og mak- ar „strákanna“ komu stundum með í hljómsveitarferðirnar. Við vorum Ísfirðingar, og stolt af því. Hljómsveitin fór víða, einkum um Vestfirði og Vesturland, en líka suður á land, norður og austur. Sammi var fjölhæfur og ekki mikið fyrir að trana sér fram, hvort heldur var á sviði eða utan þess. Hann var hógværðin upp- máluð. Tónlist var honum í blóð borin. Ungur samdi hann lög og hljóðfæri voru ávallt innan seil- ingar. Til marks um það var hljóð- færi til staðar á rakarastofu hans og Villa Valla í Silfurgötunni, en hjá Villa Valla lærði Sammi hár- skeraiðn. Ef stund gafst var gjarnan gripið í hljóðfærið. Sammi tók alla tíð mikinn þátt í tónlistarlífinu á Ísafirði og söng meðal annars í kirkjukórnum. Hann var mikill sögumaður, sagði vel frá og gaf út bækur með skemmtisögum af samtímamönn- um. Frásagnir hans meiða engan og orðheppinn var hann með ein- dæmum. Fjölskylda Samma og Guðríðar dvaldi í Kaupmannahöfn um eins árs skeið og hafði bílinn sinn með sér. Eitt sinn þegar þau voru að aka var gerð athugasemd við aksturslag bílstjórans og þá sagði Sammi að bragði: „Alveg rétt, það má ekki koma óorði á Í- númerin.“ Í hljómsveitarferðalögum okk- ar um landið nutum við þess að vera til og gerðum margt okkur til skemmtunar. Vinsældir hljóm- sveitarinnar voru miklar og oftast spilað fyrir fullu húsi. Síðast þeg- ar við félagarnir komum saman fengum við til liðs við okkur yngri tónlistarmenn og héldum tónleika í Edinborgarhúsinu á Ísafirði til minningar um látinn félaga, Ólaf Guðmundsson. Þar var Sammi að sjálfsögðu í sínu hlutverki og skil- aði því að vanda með sóma. Sum okkar úr BG lögðum Samma lið þegar hann fyrir ekki svo löngu tók upp plötu með eigin tónsmíð- um og voru það ánægjulegar stundir. Minningar um yndisleg- an félaga og góðan dreng munu lifa. Einlægar samúðarkveðjur til ástvina og fjölskyldu Samúels Einarssonar. Ingibjörg G. Guðmundsdóttir, Snorri Sigurjónsson. Þriðjudagur 20. september 2022. Síminn hringir. „Sæll pabbi, þetta er Rúnar. Sammi er dáinn.“ Helvíti! Fyrirgefið orðbragðið. Þetta er eitt af því sem ég hef átt erfitt með að venja mig af. Ég fraus, varð dofinn líkt og ég hefði orðið fyrir þungu, óverðskulduðu höggi. Mér varð hugsað til Guð- ríðar og barnanna þeirra. Afa- barnanna. Ég varð reiður en gerði mér þó grein fyrir því að reiðina varð ég að sefa. Ég gekk um gólf og hugsaði um hvað ég gæti gert til að róa mig. Jú, ég settist niður og skrifaði um Samma. Hugur minn hvarflaði ósjálfrátt til þess tíma sem ég man svo vel frá fyrstu kynnum okkar. Ætli Sammi hafi ekki verið rúmlega þriggja ára þegar hann kom til að láta klippa sig á Rakarastofu Árna Matthías- sonar. Ég var þá nýbyrjaður að læra hjá Árna. Ég lagði fjölina yf- ir arma stólsins og bauð guttanum sæti. Ef ég man rétt þá var það Lilla systir hans sem kom með hann í klippinguna. Lilla sagðist svo koma aftur eftir smástund. Hún var rétt farin út þegar ég spurði: „Hvernig viltu að ég klippi þig?“ Það stóð ekki á svarinu: „Ég vil láta snoða mig!“ Ég spurði hvort hann vildi virkilega láta klippa allt hárið af sér og vinurinn svaraði játandi. Viss í sinni sök. Ég var rétt að ljúka klippingunni þegar systir hans kom að sækja hann og var henni greinilega brugðið. „Viltu vera svona klippt- ur?“ spurði hún. Vinurinn brosti sælubrosi og svaraði hátt og skýrt: JÁ! Svo liðu árin. Í júní 1959 tók ég við Rakarastofunni við Hafnarstræti 11 og fimm árum síðar var orðið svo mikið að gera að ég ákvað að taka nema. Mér leist vel á 16 ára pilt sem var kom- inn af góðu fólki en áður en ég byði honum í nám fannst mér rétt að vita hvort hann hefði auga fyrir hlutföllum. Ég spurði þann sem hafði kennt honum fríhendis teikningu og svaraði sá til að Sammi hefði staðið sig vel í þeirri grein. Þann 20. maí 1964 hóf Sammi svo námið. Mér líkaði strax svo vel við Samma. Hann var fljótur að ná tökum á starfinu, kímnigáfa hans var einstök og ekki síður geðprýðin. Alla áratug- ina sem við störfuðum saman man ég ekki til þess að okkur yrði nokkru sinni sundurorða. Já, betri vinnufélaga get ég ekki hugsað mér. Bæjarbúar munu syrgja Samúel J. Einarsson og geta þakkað honum gott framlag til menningar og upplyftingar hér í bænum. Hann spilaði fyrir okkur á dansleikjum, í lúðrasveitum, söng fyrir okkur í Sunnukórnum og kirkjukórnum, spilaði fyrir matargesti á Hótel Ísafirði og víð- ar, sá til þess að við værum snyrti- leg til höfuðsins, samdi lofsöngva um Ísafjörð og gaf út. Að ógleymdum gamansögunum sem hann safnaði og gaf út í nokkrum bókum. Ég sakna míns góða vinar, Samúels J. Einarssonar, og mun ekki gleyma honum á meðan ég dreg andann. Elsku Guðríður. Ég votta þér og afkomendum ykkar mína innilegustu samúð. Vilberg Valdal Vilbergsson. Samúel Jón Einarsson Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts ástkærrar eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, LILJU GÍSLADÓTTUR. Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildar Landspítala sem og starfsfólk krabbameinsdeildar Landspítala, 11-E, fyrir alla aðstoð og aðhlynningu. Tómas G. Guðjónsson Hjalti Gíslason Kristín Maggý Erlingsdóttir Sólrún Edda Tómasdóttir Daníel Vincent Antonsson Kristjana A. Tómasdóttir ömmu- og langömmubörn Innilegar þakkir fyrir auðsýndan hlýhug og samúð við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður og ömmu, MARGRÉTAR KRISTÍNAR SIGURÐARDÓTTUR viðskiptafræðings, sem lést 21. ágúst síðastliðinn. Kristín Vala Ragnarsdóttir Halldór Páll Ragnarsson Jóhanna Hulda Jónsdóttir Sigurður R. Ragnarsson Þórdís Kjartansdóttir Margrét Dóra Ragnarsdóttir Hjálmar Gíslason og barnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, GUNNAR JENS MAGNÚSSON, Njarðarvöllum 6, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 17. september. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þuríður Hólmgrímsdóttir Magnús Jens Gunnarsson Sigríður Sveinsdóttir Ketill Erlendur Gunnarsson Rakel Steinþórsdóttir Katla Björk Ketilsdóttir og Steina Björg Ketilsdóttir Ástkær eiginmaður minn, faðir og tengdafaðir, JÓHANNES KONRÁÐ GUÐRÚNAR JÓHANNESSON, Konni lést á Sólvangi miðvikudaginn 21. september. Útför hans fer fram frá Garðakirkju í Garðabæ fimmtudaginn 6. október klukkan 13. Innilegar þakkir til starfsfólks Akurgerðis og Sólvangs fyrir þeirra yndislega starf og hjartahlýju. Arney Huld Ólafíu Guðmundsdóttir Sædís Hrönn Haveland Hafliði Þorkell Rúnarsson Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, JÓHANNES B. HELGASON, Lundi 3, Kópavogi, áður Hamri, Þverárhlíð, sem lést á hjartadeild Landspítala sunnudaginn 25. september, verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 5. október klukkan 13. Anna J. Hallgrímsdóttir Hrefna Björk, Harpa Dís og Anna Sara Hallgrímur, Ásdís Elva, Ísabella Ýrr og Kormákur Logi Líney, Hafþór og Anna Karólína Elskuleg unnusta mín, systir, mágkona, föðursystir og frænka, LILJA PÉTURSDÓTTIR, Ofanleiti 29, Reykjavík, lést á Landspítalanum miðvikudaginn 14. september. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 6. október klukkan 15. Kári Vilhjálmsson Jakob Þór Pétursson Anna Laufey Sigurðardóttir Viðar Pétursson Lovísa Árnadóttir og frændsystkini Innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGVARS GÍSLASONAR, fyrrverandi alþingismanns og ráðherra. Fanny Ingvarsdóttir Erlingur Páll Ingvarsson Alda Sigmundsdóttir Gísli Ingvarsson Ásthildur Magnúsdóttir Sigríður Ingvarsdóttir Auður Inga Ingvarsdóttir Ingólfur Björnsson barnabörn og barnabarnabörn Elsku hjartans eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HAFSTEINN HANNESSON, Hásæti 4a, Sauðárkróki, andaðist á heimili sínu mánudaginn 26. september. Útförin fer fram í kyrrþey að ósk hins látna. Elsa María Valdimarsdóttir Hildur Hafsteinsdóttir Gísli Eymarsson Hafdís Hafsteinsdóttir Þórhallur Dan Þorgeirsson barnabörn og fjölskyldur þeirra Elsku pabbi okkar, sonur, bróðir, afi, frændi og vinur, GÍSLI HJALTASON, Hjältevad, Svíþjóð, lést mánudaginn 19. september. Útförin fer fram í Gautaborg föstudaginn 21. október. Þeim sem vilja minnast Gísla er bent á minningarkort MND á Íslandi. Þórunn Kristín Gísladóttir Einar Torfi Gíslason Kristín Guðbjartsdóttir Torfi Hjaltason Bryndís Guðbjartsdóttir Rakel Hrönn Pétursdóttir barnabörn og fjölskyldur Þau leiðu mistök urðu við birtingu æviágrips Péturs Stefánssonar, sem birtist í gær, að klausa í upptalningu á ættingjum misfórst. Þar átti að standa: Bróðir Péturs er Júlíus Stefánsson, fv. útgerð- armaður, f. 17. nóvember 1939. Börn Júlíusar og fv. eig- inkonu, Gerðar Lúðvíksdótt- ur, eru: 1) Katrín, gift Bjarna M. Bjarnasyni, synir þeirra eru Kristófer Áki og Pétur Logi, fyrir átti Katrín Júlíus. 2) Lúðvík, sambýliskona Haf- dís Sveinbjarnardóttir, börn þeirra eru Sveinbjörn Egill og Ingibjörg Iðunn, fyrir átti Lúðvík Vilhjálm Ottó. 3) Stef- án, kvæntur Justinu Júlíus- son. Morgunblaðið biður alla hlut- aðeigandi velvirðingar á mis- tökunum. LEIÐRÉTT

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.