Morgunblaðið - 12.12.2022, Side 10

Morgunblaðið - 12.12.2022, Side 10
FRÉTTIR Innlent10 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022 AquaFinesse hreinsiefnið er milt og einfalt í notkun -Áralöng reynsla af heitum pottum, sauna og sundlaugum Hentar í allar gerðir rafmagnspotta • Kemur í veg fyrir myndun lífhimnu á skel og í lögnum og búnaði, vatnið verður tærara og mýkra. • Árangursríkt umhverfisvænt. Dalvegur 30 www.ithaka.is • Lyngháls 4 • s: 595 7800 Verslunar- skrifstofu- og þjónustuhúsnæði í uppbyggingu Nokkur laus rými grípa megi inn í áður en krísur koma upp. Með aðferðum Mental ráðgjafar aðstoðum við stjórnend- ur og starfsfólk við að móta stefnu í geðheilbrigði og skapa sjálfbæra menningu sem styður við og eflir geðheilbrigði starfsfólks,“ segir Helena og heldur áfram: Innsæi og skynsemi „Með því að setja sér markmið er ætlunin að fyrirtæki tryggi áhrifaríkar leiðir til að styðja við geðheilbrigði með þjálfun fyrir stjórnendur og forvörnum og fræðslu fyrir starfsfólk. Stjórnend- ur á gólfinu þurfa alveg sérstak- lega að bera skynbragð á þetta. Sumir geta unnið saman og aðrir ekki. Setja þarf hvern starfsmann á rétta póstinn svo viðkomandi blómstri, rétt eins og vinnustað- urinn allur. Talið er að fjórðungur fólks þjáist einhvern tímann af andlegum vanda. Af því má ráða hve marga þætti starfsmannamála í fyrirtækjum þetta snertir.“ Fjarvinna hélt atvinnulífinu gang- andi í heimsfaraldri. Þá lærðist líka, segir Helena, að starfshætti má sveigja svo kraftar fólks nýtist sem best. Fjölbreytileiki og það að fólk geti sinnt vinnu sinni með ólíku móti styrki fyrirtækin. Fyrir öllu sé að störfum sé sinnt og framleiðni haldist. Leiðir til þess megi vera sambland af sálfræði, verkhyggju, mannlegu innsæi og almenn skyn- semi. „Hvarvetna í atvinnulífinu eru geðheilsumál á dagskrá og vitund er um mikilvægi þeirra. Sannarlega eru þetta ekki mjúk mál því ef fólki líður vel í vinnunni og skilyrðin eru góð kemur slíkt hvarvetna fram í jákvæðum tölum um rekstur og afkomu. Í fyrirlestrum og nálgun minni byggi ég ávallt á alþjóðlega viðurkenndum, gagnreyndum aðferðum sem reynst geta vel þegar taka þarf á málum sem eru líkleg til að veikja geðheilsu á vinnustað. Þetta eru stórmál sem borgar sig að sinna vel afkomunnar vegna, fyrir utan að fólk mótast af vinnunni sem það sinnir sem getur verið góð fyrir geðheilsuna.“ Mikilvægt er að á hverjum vinnu- stað sé til staðar góð vitund um mikilvægi geðheilbrigðis og þannig sé mögulegt að mæta ólíkum þörfum og aðstæðum starfsmanna. Segja má að fram undan sé bylting í því hvernig í fyrirtækjum og stofnunum þarf að hugsa, tala um og takast á við líðan og geðheilsu starfsfólks. Geðheilbrigði er í raun að verða eitt mikilvægasta viðfangsefnið í viðskiptalífinu í dag. Þetta segir Helena Jónsdótt- ir sálfræðingur sem hefur sett á laggirnar Mental ráðgjöf ehf. í því skyni að leiðbeina stjórnendum um mikilvægan þátt í starfsmannamál- um sem hingað til hefur ekki verið gefin sú athygli sem þarf. Ekki einkamál starfsmanns „Geðheilbrigðismál eru hvarvetna ofarlega á baugi. Hingað til hefur ábyrgðin verið sett á hvern og einn. Fólk sem á á brattann að sækja varðandi andlega líðan er hvatt til að þróa með sér seiglu, fara til sálfræðings, vera í markþjálfun, hreyfa sig og svo framvegis. Allt er þetta gott og blessað en málin eru þó flóknari,“ segir Helena. „Fólk er jafnólíkt eins og það er margt og kemur eins og því er best lagið á vinnustað. Vitað er að í starfsumhverfi innan fyrirtækja eru margir þættir sem geta bæði eflt og veikt geðheilsu. Slíkt er ekki einkamál starfsmannsins. Þegar geðheilsa starfsfólks versnar þarf að skoða hverjir séu orsaka- þættirnir og hverju megi breyta. Þetta skiptir máli fyrir vellíðan starfsfólks og þessara atriða er líka ótrúlega fljótt að sjá stað í afkomu fyrirtækja.“ Lengi var stoðkerfisvandi helsta orsök þess að fólk væri lengi fjarverandi frá vinnumarkaði. Á síðustu árum hafa þunglyndi, kvíði og kulnun hins vegar orðið algeng- asta ástæða þess að fólk heltist úr lestinni og kemur ekki til vinnu sinnar, hvort heldur er um lengri eða skemmri tíma. Samkomutak- markanir og einangrun á tímum heimsfaraldurs fóru sömuleiðis illa með andlega heilsu marga og því hefur þurft að bregðast við. Fimmföld fjárfesting „Í rekstri fyrirtækja þarf að huga að geðheilsu starfsmanna, bæði með tilliti til samfélagslegr- ar ábyrgðar en ekki síður vegna rekstrar og afkomu. Við getum tekið dæmi af 350 manna fyrir- tæki eða sveitarfélagi. Ég hef séð tölur úr slíkri starfsemi þar sem veikindadagar starfsfólks á einu ári eru 6.700 og kostnaður vegna þeirra 270 milljónir króna. And- legir erfiðleikar eru oft þarna að baki og auðvitað hljóta stjórnendur að vilja ná þessum tölum niður, að ekki sé talað um að lina mannlega þjáningu,“ segir Helena. „Rannsóknir hafa sýnt að fjár- festing í geðheilsu, með réttri nálgun og aðferðum, getur skilað sér að meðaltali fimmfalt til baka í formi færri veikindadaga, minni starfsmannaveltu og -kostnaði. Þetta segir sig sjálft. Allir sem stýra rekstri hljóta að vilja fá sitt fólk heilt, óskipt, kátt og glatt til starfa til að sinna þeim verkefnum sem fram undan eru.“ Streita í vinnu reynist mörgum erfið enda er hvarvetna í atvinnu- lífinu reynt að halda álagi í hófi eða gera aðstæðurnar fólki bærilegri. Þá er talið að fólk með hátt kvíða- næmi sé verr til þess fallið en aðrir að fást við óvæntar uppákomur og óhóflegt álag. „Þarna þarf starfsfólkið sjálft að þekkja sín takmörk og velja sér störf við hæfi. Sjálf fer ég inn í fyrirtæki með fyrirlestra og fræðslu um þetta efni og fjalla um þau einkenni andlegrar heilsu sem vitneskja þarf að vera um svo að Geðheilsan er ekki mjúkt mál Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Veitir ráðgjöf í fyrirtækjum um hvernig stuðla megi að góðri andlegri líðan starfsfólks Hver er hún? #Helena Jónsdóttir er fædd árið 1972 og er sálfræðingur að mennt. Hún hefur sinnt fjölbreyttum störfum, svo sem við Lýðháskólann á Flateyri. Hún stofnsetti Mental sem sinnir sálfræðiráðgjöf í atvinnulifinu fyrr á þessu ári. #Áður hefur Helena starfað sem verkefnastjóri og ráðgjafi á vegum samtakanna Lækna án landamæra í Afganistan, Suður-Súdan, Egyptalandi og Líbanon. Var síðast við hjálparstörf í Jemen. Áður var hún m.a. sálfræðingur hjá Kvíða- meðferðarstöðinni og fram- kvæmdastjóri hjá Kaupþingi og síðar Glitni. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sálfræðingur Fólk þarf að þekkja sín takmörk, segir Helena Jónsdóttir. Streita í vinnu reynist mörgum erfið. Hvar er næsta verkstæði? FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.