Morgunblaðið - 12.12.2022, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 12.12.2022, Blaðsíða 14
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022 14 STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Pistill Fjórirmilljarðaráári fyrirkirkjujarðir? Á rið 1997 var gerður samningur milli ríkisins og íslensku þjóð- kirkjunnar um yfirtöku ríkisins á kirkjujörðum í staðinn fyrir að greiða laun presta. Tvennt er mjög ámælisvert við samninginn. Í fyrsta lagi er hann ótímabundinn og í öðru lagi er ríkið skuldbundið til þess að greiða laun um 90 presta og 14 annarra starfsmanna biskups- embættisins, jafnvel þótt allir skráðu sig úr kirkjunni. Frá því að samningurinn var gerður hefur skráðummeðlimum í þjóðkirkjunni fækkað um 15 þúsund en Íslendingum fjölgað um rúmlega 100 þúsund. Miðað við kirkjujarðasamkomu- lagið hefði það átt að þýða að þeim stöðu- gildum sem ríkið greiðir fyrir fækki en þegar viðbótarsamkomulag var gert við kirkjuna, í desember 2019, kom fram að þessar greiðslur hefðu í rauninni ekkert breyst þrátt fyrir fækkun félagsmanna í þjóðkirkjunni. Núverandi samkomulag gerir ráð fyrir launa- og verðtryggðri upphæð. Árið 2015 voru samþykkt ný lög um opinber fjármál sem flækja þetta mál mjög mikið. En í þessum nýju lögum segir að ekki sé heimilt að gera samninga um fram- kvæmdir, rekstur eða önnur afmörkuð verkefni til lengri tíma en fimm ára. Sérstaka undanþágu má veita frá því skilyrði ef það þarf að ráðast í stórar og kostnaðarsamar framkvæmdir og þarf slík undanþága að vera rökstudd. Þetta þýðir að nýja viðbótarsamkomulagið, sem á að gilda í 15 ár, stenst ekki lög um opinber fjármál. Gamla kirkjujarðasamkomulagið, sem er ótímabund- ið, gerir það ekki heldur. Miðað við gildandi lög hlýtur það þá að vera skylda ríkisins að fella þessa samninga úr gildi og gera nýja samninga ef þarf. Enginn áhugi virðist vera fyrir því hins vegar, enda eru stjórnvöld tiltölulega nýbúin að gera þetta viðbótarsamkomulag sem stríðir gegn lögum um opinber fjármál. Það er því ágætt að hafa það í huga þegar fólk hugsar nú til jóla og þeirrar hátíðar sem nokkurn veginn öll trúarbrögð hafa eignað sér á einn eða annan hátt, hversu vel það samræm- ist lífsskoðunum þjóðkirkjunnar að gera svona samkomulag. Þó að það sé vissulega stjórn- valda að fara eftir lögum um opinber fjármál, hefði það ekki verið heiðarlegt af þjóðkirkjunni að benda á að það er ólöglegt að gera samning til lengri tíma en fimm ára? Hefði kirkjan ekki átt að benda einnig á að það þurfi að skilgreina umfang og gæði þeirrar starfsemi sem samningurinn tekur til? Um hátíðirnar, þegar farið verður að predika um fórnir fyrir syndir manna, um kærleikann og ljósið sem fjár- magnað er með ólöglegum samningi um óskilgreind störf þjóðkirkjunnar, er gott að muna að siðferðisboðskapurinn kostar fjóra milljarða á ári ofan á hefðbundin sóknargjöld. Er í lagi að nota skattfé svona, bara af því að málefnið er gott, eða er málefnið í alvörunni gott þegar það er styrkt svona? Björn Leví Gunnarsson Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is Kvikmyndageirinn Evrópski kvik- myndageirinn sýndi sig í Hörpu um helgina og var talsvert um dýrðir þó að vissulega hafi verið færri heimsþekkt andlit á hátíðinni en á sambærileg- um samkomum vestanhafs. Mögulega var þessi samkoma hér á landi þó til marks um að kvikmyndageirinn hér sé að sækja í sig veðrið. Mögulega var hún líka ástæða þess að fyrir helgi var kynnt ákvörðun um að bæta 250 milljónum króna í Kvikmyndasjóð á næsta ári og að til þess fundust 150 milljónir í menningar- og viðskiptaráðu- neytinu, en slíkt fé liggur yfir- leitt ekki á lausu í ráðuneytum. Jákvætt er að sjá vöxtinn í kvikmyndageiranum en í því sambandi verður ekki fram hjá því horft að geirinn fær mikinn beinan og óbeinan ríkisstuðning. Endurgreiddur rekstrarkostnaður í ár var til dæmis 1,5 milljarðar króna og má búast við að sú fjárhæð margfaldist vegna nýlegrar hækkunar á endurgreiðsluhlut- falli úr 25% í 35% fyrir stærri kvikmyndaverkefni. Fjármálaráðherra vék að því í viðtali á dögunum að hann teldi að þessar endurgreiðslur til kvikmyndageirans skiluðu miklu inn í þjóðarbúið, en velti því fyrir sér um leið hvort að slíkt myndi ekki eiga við um aðra geira einnig, fengju þeir sams konar fyrirgreiðslu. Hann nefndi að röksemdin fyrir þessu væri sú að ella kæmu peningarnir ekki til landsins, en að það gæti „líka átt við um alls konar öðruvísi starfsemi.“ Hann bætti því við að það hefði verið mjög stórt skref að fara upp í 35% endurgreiðslu og hafði bersýnlega efasemdir um þá ráðstöfun, meðal annars vegna tímasetningarinnar og mikilla umsvifa nú í efnahagslíf- inu, og sagði fyrirhugað að meta áhrifin næstu tvö árin. Þetta eru skiljanlegar efasemdir. Áhugavert er ef kvikmyndageirinn getur orðið myndarleg atvinnugrein hér á landi, með framleiðslu erlendra bíómynda og þáttaraða, en það getur tæplega byggst á því til lengdar að um þriðjungur starfseminnar sé niðurgreiddur af ríkinu. Aukin starfsemi, en verður hún sjálfbær?} Mikill og vaxandi jöfnuður L ogi Einars- son alþingis- maður spurði fjármálaráðherra um skiptingu eigna og tekna lands- manna, eða öllu heldur þeirra landsmanna sem mest eiga og afla. Þetta er vinsælt umfjöllun- arefni vinstri manna sem telja þjóðarkökuna óbreytanlega stærð og að það eina sem máli skipti sé hvernig henni er skipt. Og þeir sjá hvarvetna merki mikillar og vaxandi misskipt- ingar auðs og eigna. Breytir þá engu þó að allar mælingar og samanburður á milli landa sýni að Ísland sé í hópi þeirra ríkja þar sem skipting er jöfnust og velferð allra mest. En Logi spurði sem sagt um hlutdeild þeirra sem mest eiga í eignum og tekjum hér á landi og nýbirt svör fjármálaráð- herra eru athyglisverð. Þau ná aftur til ársins 1998 og byggjast á upplýsingum frá embætti ríkisskattstjóra. Fyrst var spurt um eigið fé og svarið leiðir í ljós að hlutfall efstu 5% landsmanna er nú nán- ast það sama og fyrir rúmum tveimur áratugum, en töluvert lægra en fyrir áratug. Hið sama gildir um efsta 1% og efsta 0,1%, sem fyrirspyrjandi hafði einnig áhuga á. Um heildareignir er svipaða sögu að segja, ójöfn- uðurinn hefur farið minnkandi síðastliðinn áratug og jöfnuðurinn er svipaður og fyrir rúmum tveimur áratugum. Þegar þessi hlutföll eru borin saman við það sem mælist í öðrum löndum, til dæmis í Bandaríkjunum, þá er munurinn þar margfaldur á við það sem hér er, sem sýnir óvenjulega mikinn jöfnuð hér á landi. Skipting heildartekna með fjármagnstekjum hefur þróast með svipuðum hætti og skipting eigna. Jöfnuðurinn var talsvert minni en nú á næstu árum fyrir fall bankanna en hefur jafnast síðan, þó sveiflur séu nokkrar. Þegar horft er á tekjurnar án fjármagnstekna er þróunin í stórum dráttum svipuð en sveiflurnar minni og jöfnuður meiri, eðli máls samkvæmt. Samfylkingin – jafnaðarflokk- ur Íslands, ætti að fagna mjög þessum tölum sem nú liggja fyrir um jöfnuð eigna og tekna. Núverandi formaður, sem þekkir vel umræðu um eignir og tekjur eftir störf sín í banka- kerfinu, ætti að fagna, ekki síður en fyrrverandi formaður, fyrirspyrjandinn. En spyrjum að leikslokum í því. Það er aldrei að vita nema forysta jafn- aðarflokksins finni eitthvað til að fárast yfir í tölum um mikinn og vaxandi jöfnuð hér á landi. Jafnaðarflokkurinn ætti að geta glaðst yfir þróuninni} lög á verkföll mikilvægra stétta, en ríkisstjórnin hefur sagt að kröfur verkalýðsfélaganna gangi ekki upp á sama tíma og breska hagkerfið glímir við alvarlegan samdrátt. Er óttinn sá að miklar launahækkanir gætu leitt til þess að verðbólgan festist í sessi frekar en að hún hjaðni á ný, líkt og vonir standa til að hún geri á næstu misserum. Minnir á áttunda áratuginn Ástandið hefur boðið upp á samlíkingar í breskum fjölmiðlum við verkfallsveturinn mikla 1978-1979, sem fékk heitið „vetur vansældar- innar“ (e. Winter of discontent) eftir frægri setningu úr leikriti Williams Shakespeare umRíkharð þriðja. Sá vetur einkenndist af umfangs- miklum verkfallsaðgerðum, þar sem m.a. líkgrafarar og sorphirðumenn fóru í verkfall og búðarhillur urðu tómar. Er verkfallsveturinn talinn hafa átt stóran þátt í að Verka- mannaflokkurinn, undir forystu Jims Callaghans, tapaði kosningunum 1979, þannig aðMargaret Thatcher og Íhaldsflokkur hennar gátu tekið við stjórnartaumunum. Í greininguWall Street Journal er bent á að sú samlíking sé enn sem komið er fremur langsótt, þar sem áætlað sé að um 11 milljónir vinnu- daga hafi farið forgörðum í verk- föllunum 1979, en að nú sé gert ráð fyrir að sambærileg tala verði um ein milljón vinnudaga. Engu að síður sé ljóst að fyrirhuguð verkföll verði þau mestu í að minnsta kosti tvo áratugi ef ekki lengur. Víkmilli vina? Það vakti svo athygli um helgina aðWes Streeting, skuggaheilbrigðis- ráðherra Verkamannaflokksins, lýsti því yfir í viðtali við sunnudagsútgáfu breska dagblaðsins Daily Telegraph, að gera þyrfti umbætur á breska heil- brigðiskerfinu, NHS, og að verkalýðs- félögin ættu að setja sjúklinga í fyrsta sætið í komandi átökum. Þóttu ummælin ekki síst athyglis- verð þar semVerkamannaflokk- urinn hefur sótt mikinn stuðning til verkalýðsfélaganna að undanförnu. Sagði Streeting t.d. að ljóst væri að félag breskra lækna, BMA, virtist búa á annarri plánetu. Hann nefndi sem dæmi tillögu sem félagið samþykkti nýlega um að stytta afgreiðslutíma læknastofa þannig að hann yrði bara á milli níu og fimm á daginn. Streeting gagnrýndi Íhaldsflokkinn fyrir að hafa neitað að hefja kjaravið- ræður við heilbrigðisstéttirnar, en sagði á sama tíma að hann skildi ekki hvers vegna BMA liti á sig sem einhvern „villutrúarmann“ fyrir að krefjast þess að með fjölgun á lækn- um, sem væri stefna Verkamanna- flokksins, yrði aðgengi sjúklinga bætt og gæði þjónustunnar aukin. Emma Runswick, læknir og varaformaður stjórnar BMA, sagði í gær að það ylli sér vonbrigðum að Streeting beindi spjótum sínum að þeim, frekar en ríkisstjórninni. Útlit er fyrir að komandi vikur verði einhver mestu átök á breskum vinnumarkaði sem sést hafa í áratugi. Boðuð hafa verið skæruverkföll hjá lestarfélög- um, sem og í heilbrigðisgeiranum. Krefjast þessar stéttir hærri launa, enda mælist næsthæsta verðbólga í Evrópu í Bretlandi, en hún hefur lagst ofan á mikinn samdrátt í bresku hagkerfi. Um 115.000 starfsmenn breska póstsins hófu skæruverkfall á föstu- daginn, hið fyrsta af sex sem þeir ætla í á aðventunni og þykir hætta á því að ekki komist allar sendingar á leiðar- enda í tæka tíð fyrir jól. Á morgun, þriðjudag, hefja starfsmenn lestarfé- laganna skæruverkföll, þar sem stór hluti lestarferða fellur niður í fjóra daga í þessari viku, og svo aftur í fjóra daga fljótlega eftir áramót. Járn- brautarfélögin hafa brugðist við með að fjölga ferðum, en engu að síður er gert ráð fyrir heilmiklum töfum. Af öðrum aðgerðummá nefna að þeir sem sinna vegabréfaeftirliti á nokkrum af helstu flugvöllum Bretlands stefna að verkfalli á Þorláksmessu og fram yfir jól, en þá daga eru vanalega fjölmargir Bretar á ferðinni. Farþegar umHeathrow-flug- völl þurfa væntanlega að gera ráð fyr- ir miklum töfum vegna verkfallanna. Fyrsta verkfallið í sögunni Ástandið þykir þó einna alvar- legast í heilbrigðisgeiranum, þar sem stéttarfélög lækna, hjúkrunar- fræðinga og sjúkraflutningamanna hafa öll lýst þeirri ætlun sinni að hefja vinnustöðvanir á næstu dögum. Þannig ætla hjúkrunarfræðingar að leggja niður störf á fimmtudaginn, og yrði það í fyrsta sinn í rúmlega hundrað ára sögu samtaka breskra hjúkrunarfræðinga sem þeir fara í verkfall ef af verður. Um 10.000 breskir sjúkraflutninga- menn stefna að verkfalli dagana 21. og 28. desember, en þrjátíu ár eru liðin frá síðasta verkfalli þeirra. Hafa þeir lýst því yfir að þeir ætli þá bara að taka að sér algjör neyðartilfelli, líkt og hjartaáföll eða heilablóðföll. Rishi Sunak, forsætisráðherra Bretlands, sagði á miðvikudaginn að til greina kæmi að setja neyðar- Er „vetur vansældar vorrar“ fram undan? SVIÐSLJÓS Stefán Gunnar Sveinsso sgs@mbl.is n AFP Vetur vansældarHér má sjá sorppoka í kringum brjóstmyndina af Isaac Newton, á Leicester Square í Lundúnaborg, þar sem víðtækar verkfalls- aðgerðir 1979 leiddu meðal annars til þess að rusl var ekki sótt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.