Morgunblaðið - 12.12.2022, Qupperneq 26
ÍÞRÓTTIR26
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
Garðabær: Stjarnan – FH...................... 19.30
Skógarsel: ÍR – Grótta............................ 19.30
KÖRFUKNATTLEIKUR
Bikar karla, VÍS-bikarinn, 8-liða úrslit:
Hlíðarendi: Valur – Grindavík................ 18.15
Keflavík: Keflavík – Njarðvík ................. 19.15
Meistaravellir: KR – Höttur .................. 20.15
HM í Katar
8-LIÐAÚRSLIT:
Marokkó – Portúgal.................................. 1:0
Youssef En-Nesyri 42.
England – Frakkland................................ 1:2
Harry Kane 54. (v.) – Aurelién Tchouaméni
17., Olivier Giroud 78.
Harry Kane skaut yfir mark Frakklands úr
vítaspyrnu á 84. mínútu.
UNDANÚRSLIT:
13.12. Argentína – Króatía...................... 19.00
14.12. Frakkland – Marokkó................... 19.00
MARKAHÆSTIRÁHM:
Kylian Mbappé, Frakklandi.......................... 5
Lionel Messi, Argentínu................................ 4
Olivier Giroud, Frakklandi ........................... 4
Goncalo Ramos, Portúgal ............................. 3
Álvaro Morata, Spáni .................................... 3
Marcus Rashford, Englandi ......................... 3
Enner Valencia, Ekvador .............................. 3
Bukayo Saka, Englandi ................................. 3
Richarlison, Brasilíu ...................................... 3
Cody Gakpo, Hollandi.................................... 3
England
C-deild:
Shrewsbury – Bolton................................ 3:2
Jón Daði Böðvarsson kom inn á sem
varamaður á 82. mínútu hjá Bolton.
Þýskaland
BayernMünchen – Leverkusen ........... 2:0
Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leik-
inn fyrir Bayern München. Karólína Lea
Vilhjálmsdóttir lék ekki vegna meiðsla og
Cecilía Rán Rúnarsdóttir var ekki í leik-
mannahópnum.
Wolfsburg –Meppen................................ 3:0
Sveindís Jane Jónsdóttir kom inn á sem
varamaður á 61. mínútu hjá Wolfsburg.
Staða efstu liða:
Wolfsburg 10 10 0 0 35:5 30
B. München 10 8 1 1 26:3 25
Frankfurt 10 7 2 1 23:13 23
Freiburg 10 6 1 3 25:17 19
Hoffenheim 10 5 2 3 20:19 17
Leverkusen 10 4 0 6 15:16 12
Ítalía
Roma – Juventus ....................................... 2:4
Sara Björk Gunnarsdóttir lagði upp mark
fyrir Juventus og fór meidd af velli á 33.
mínútu.
Sassuolo – ACMilan 0:1
Guðný Árnadóttir lék allan leikinn fyrir
AC Milan.
Pomigliano – InterMílanó...................... 1:2
Anna Björk Kristjánsdóttir lék allan leikinn
fyrir Inter Mílanó.
B-deild:
Ascoli – Genoa ........................................... 0:0
Albert Guðmundsson lék fyrri hálfleikinn
fyrir Genoa.
Frosinone – Pisa ....................................... 0:0
Hjörtur Hermannsson lék allan leikinn
með Pisa.
C-deild:
Virtus Verona - Renate ........................... 3:0
Emil Hallfreðsson lék fyrstu 85 mínúturnar
fyrir Virtus Verona.
Frakkland
Lyon – París SG .......................................... 0:1
Berglind Björg Þorvaldsdóttir var ekki í
leikmannahópi París SG.
Holland
Twente – Fortuna Sittard ...................... 6:0
Hildur Antonsdóttir lék allan leikinn fyrir
Fortuna Sittard.
B-deild:
Jong Ajax – Jong Utrecht........................ 1:2
Kristian Nökkvi Hlynsson lék allan leikinn
fyrir Jong Ajax og skoraði mark liðsins.
Belgía
B-deild:
Beerschot – Standard Liege U23 .......... 1:0
Nökkvi Þeyr Þórisson lék fyrstu 84 mín-
úturnar fyrir Beerschot.
Lommel – Deinze ....................................... 1:0
Kolbeinn Þórðarson lék allan leikinn með
Lommel og lagði upp sigurmarkið.
Marokkóska liðið
á spjöld sögunnar
lKane klúðraði víti og England úr leik
Karlalið Marokkó í knattspyrnu
skráði sig á spjöld sögunnar á laugar-
dag þegar liðið varð fyrsta Afríku-
þjóðin til þess að tryggja sér sæti í
undanúrslitum heimsmeistaramóts.
Það gerði liðið með því að leggja
Portúgal að velli, 1:0, í átta liða úrslit-
um HM í Katar. Youssef En-Nesyri
skoraði sigurmarkið undir lok fyrri
hálfleiks.
Afrek marokkóska liðsins er
eftirtektarvert fyrir margra hluta
sakir. Liðið hefur aðeins fengið á
sig eitt mark í allri keppninni, sem
var sjálfsmark í 2:1-sigri á Kanada í
riðlakeppninni. Inni í þessum tölum
er líka vítaspyrnukeppni gegn Spáni
í 16-liða úrslitum þar sem Marokkó
fékk ekki eitt einasta mark á sig og
vann 3:0 í henni.
Hetjur Marokkó á mótinu eru
margar en hæst ber að nefna hinn
magnaða markvörð Yassine Bounou,
sem kallar sig Bono eins og nokk-
uð frægur írskur söngvari. Hann
hefur átt stórkostlegt mót. Varnar-
tengiliðurinn Sofyan Amrabat,
leikmaður Fiorentina, hefur þá leikið
óaðfinnanlega á miðjunni og sér
varnarlínu Marokkó fyrir ómetan-
legri vernd.
Skakkaföll í vörninni
Loks má geta þess að varnarlínan
sem lauk leiknum gegn Portúgal á
laugardag samanstóð af þremur leik-
mönnum sem eru ekki fyrstu kostir í
stöðurnar, auk hins frábæra Achraf
Hakimi. Nayef Aguerd og Noussair
Mazraoui hjá Bayern München voru
meiddir og gátu ekki tekið þátt í
leiknum og þá meiddist Romain Saiss
fyrirliði snemma í síðari hálfleik.
Marokkóska liðið lét það að leika
með nokkurs konar hallærisvörn
ekkert á sig fá, hélt mögnuðu
skipulagi sínu fullkomlega og marki
sínu hreinu í enn eitt skiptið.
Draumar Portúgals og stór-
stjörnunnar Cristiano Ronaldo um
heimsmeistaratitil eru þar með úr
sögunni. Að öllum líkindum var um
síðasta tækifæri hins 37 ára gamla
Ronaldo til þess að vinna HM að
ræða.
Dýrkeypt vítaklúður
Ríkjandi heimsmeistarar Frakk-
lands stigu annað skref í átt að því að
verja titil sinn með því að hafa betur
gegn Englandi, 2:1, í frábærum leik
í átta liða úrslitunum á laugardags-
kvöld.
Aurelién Tchouaméni kom Frökk-
um yfir á 17. mínútu áður en Harry
Kane jafnaði metin úr vítaspyrnu
snemma í síðari hálfleik. Olivier
Giroud, markahæsti leikmaður í sögu
franska karlalandsliðsins, skoraði
svo sigurmarkið 12 mínútum fyrir
leikslok.
Sex mínútum fyrir leikslok fékk
Kane tækifæri til þess að jafna metin
öðru sinni, úr annarri vítaspyrnu,
en þrumaði þá yfir markið og
Englendingar úr leik.
England var síst lakari aðilinn í
leiknum og skapaði sér fjölda góðra
tækifæra en seigla Frakklands fleytti
liðinu að lokum áfram.
Fram undan er einkar athyglisverð
viðureign Marokkós og Frakklands
í undanúrslitum HM næstkomandi
miðvikudagskvöld.
Marokkóska liðinu þykir það
væntanlega sérlega freistandi að slá
Frakkland, sem þjóðin fékk sjálfstæði
frá árið 1956, út og verða um leið
fyrsta Afríkuþjóðin til þess að komast
í úrslitaleik HM.
HM Í KATAR
Gunnar Egill Daníelsson
gunnaregill@mbl.is
AFP/Patricia de Melo Moreira
Ómetanlegur Sofyan Amrabat, akkerið á miðju Marokkó, fagnar mögnuð-
um 1:0-sigri liðsins á Portúgal í 8-liða úrslitumHM á laugardag.
Haukar unnu sinn
þriðja sigur í röð
Haukar héldu sér á beinu brautinni,
gerðu góða ferð til Akureyrar og
lögðu KA með minnsta mun, 29:28,
í Olísdeild karla í handknattleik á
laugardag.
Haukar hafa nú unnið þrjá leiki
í röð í deildinni og fjóra af sex
leikjum sínum undir stjórn Ásgeirs
Arnar Hallgrímssonar, sem tók við
liðinu fyrir rúmum mánuði síðan.
Hafnarfjarðarliðið er komið upp í 7.
sæti deildarinnar eftir erfiða byrjun
á tímabilinu.
Markahæstir hjá Haukum voru
Heimir Ó. Heimisson og Guðmund-
ur B. Ástþórsson, báðir með sjö
mörk. Markahæstir hjá KA voru
Einar R. Eiðsson og Dagur Gauta-
son, báðir einnig með sjö mörk.
Á laugardagskvöld vann Selfoss
svo góðan 32:30-sigur á Fram á
Selfossi. Markahæstir hjá Selfossi
voru Guðmundur H. Helgason og
Ísak Gústafsson, báðir með sjö
mörk. Vilius Rasimas varði 15 skot
í marki liðsins. Markahæstur hjá
Fram var Luka Vukicevic með
fimm mörk.
Ljósmynd/Þórir Tryggvason
SjöHeimir Óli Heimisson hjá Haukum og Einar Rafn Eiðsson hjá KA skor-
uðu báðir sjö mörk fyrir lið sín í naumum sigri Hauka á laugardag.
Viktor efnilegasti
markvörður heims
Handboltamaðurinn Viktor Gísli
Hallgrímsson, landsliðsmark-
vörður og leikmaður Nantes
í Frakklandi, er efnilegasti
markvörður heims samkvæmt
vefsíðunni handball-planet.
Kosið var um efnilegustu leik-
menn heims í hverri stöðu fyrir
sig og greiddu um það bil 15.000
manns atkvæði í vali á efnilegasta
markverðinum. Atkvæði almenn-
ings vógu á móti niðurstöðu dóm-
nefndar síðunnar sem skipuð var
af fyrrverandi handboltamönnum
sem og fjölmiðlamönnum sem
sérhæfa sig í handknattleik.
Viktor Gísli, sem er 22 ára gam-
all, varð annar í netkosningunni
á eftir jafnaldra sínum, Egyptan-
umAbdelrahmanMohamed hjá
Wisla Plock, en hlaut afgerandi
stuðning dómnefndar sem varð
til þess að hann vann kosninguna.
Auk þess að vera valinn efni-
legasti markvörður heims var
hann einnig í þriðja sæti yfir
efnilegustu handknattleiksmenn
heims. Sænski leikmaðurinn Eric
Johansson, leikmaður Kiel sem er
einnig 22 ára, var valinn efnileg-
astur. Í öðru sæti var svo portú-
galska undrabarnið Kiko Costa,
leikmaður Sporting frá Lissabon,
sem er aðeins 17 ára gamall.
Viktor Gísli hefur farið á
kostummeð Nantes í frönsku
1. deildinni og Meistaradeild
Evrópu á tímabilinu og má vænta
þess að hann verði lykilmaður
í liði Íslands sem hefur leik á
heimsmeistaramótinu í hand-
knattleik í Svíþjóð og Póllandi í
næsta mánuði.
Hann glímir nú við smávægi-
leg meiðsli og lék því ekki með
Nantes í 32:29-sigri liðsins á
Dunkerque í deildinni í gær.
Ljósmynd/Szilvia Micheller
EfnilegasturViktor Gísli er besti
ungi markvörður heims.
Knattspyrnumaðurinn Óskar
Örn Hauksson er genginn til liðs
við 1. deildarlið Grindavíkur í annað
sinn á ferlinum eftir eitt tímabil
hjá Stjörnunni. Hann skrifaði undir
samning sem gildir út keppnistímabil-
ið 2023. Óskar Örn, sem er 38 ára
gamall, kveður nú efstu deild á Íslandi
í bili þar sem hann lék 19 tímabil í röð
og skoraði á hverju einasta þeirra.
Hann er langleikjahæsti leikmaðurinn
í sögu efstu deildar með 373 leiki fyrir
Grindavík, KR og nú síðast Stjörnuna
og hefur hann skorað í þeim 88 mörk.
Alexandra Jóhannsdóttir, lands-
liðskona í knattspyrnu, átti stórleik
í liði Fiorentina þegar hún skoraði
tvívegis í 4:0-sigri á Parma í ítölsku
A-deildinni á laugardag. Alexandra
kom Fiorentina á bragðið á 38. mínútu
og innsiglaði svo öruggan sigur með
fjórða markinu stundarfjórðungi fyrir
leikslok. Hún lék allan leikinn fyrir
Fiorentina, sem er í 3. sæti ítölsku
A-deildarinnar með 25 stig, fimm stig-
um á eftir toppliði Roma.
Oddur Gretarsson lék frábærlega
fyrir Balingen þegar liðið vann þægi-
legan 35:29-sigur á Coburg í þýsku
B-deildinni í handknattleik karla á
laugardagskvöld. Oddur skoraði 11
mörk fyrir Balingen. Daníel Þór Inga-
son bætti þá við tveimur mörkum
fyrir liðið. Um Íslendingaslag var að
ræða þar sem Tumi Steinn Rúnarsson
leikur með Coburg, en hann skor-
aði fimm mörk. Balingen er á toppi
B-deildarinnar með 28 stig eftir 15
leiki, sex stigum
fyrir ofan næsta
lið, N-Lübbecke.
Coburg er hins
vegar í 10. sæti
með 15 stig eftir
15 leiki.
Bjarki Már
Elísson, lands-
liðsmaður í hand-
knattleik, fór á kostum með liði sínu
Veszprém þegar það vann öruggan
42:28-sigur á Budákálász í ungversku
úrvalsdeildinni á laugardagskvöld.
Bjarki Már var markahæstur í leiknum
með tíu mörk fyrir Veszprém. Liðið
er því enn með fullt hús stiga, 24 að
loknum 12 leikjum, á toppi deildar-
innar.
Danmörk
Aalborg – Skjern .............................. 32:24
Aron Pálmarsson skoraði 2 mörk fyrir
Aalborg. Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari
liðsins.
Sveinn Jóhannsson skoraði 1 mark fyrir
Skjern.
Ribe-Esbjerg – Skanderborg........... 29:28
Ágúst Elí Björgvinsson varði 7 skot í marki
Ribe-Esbjerg en Elvar Ásgeirsson og Arnar
Birkir Hálfdánsson komust ekki á blað.
B-deild:
Hellerup – EHAalborg ...................... 17:21
Andrea Jacobsen skoraði 3 mörk fyrir Aal-
borg.