Morgunblaðið - 12.12.2022, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 12.12.2022, Blaðsíða 11
FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022 11 STIGA ST5266 P 40 ár á Íslandi Hágæða snjóblásarar Fjölbreytt úrval Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is VETRARSÓL er umboðsaðili Gulltryggð gæði Glæný verslun Skeifunni 9 Troðfull af vörum fyrir öll gæludýr Kauptúni 3, Garðabæ | Skeifan 9, Reykjavík | Sími 564 3364 | www.fisko.is Opið virka daga 10-19, laugardag 10-18, sunnudag 12-18 kíktu í heimsókn L i f and i v e r s l un fy r i r ö l l gæ ludýr Eitt fræknasta björgunarafrek Íslandssögunnar var unnið á þessum degi fyrir 75 árum. Það var þegar tólf skipverjum af breska togaranum Dhoon var bjargað við Látrabjarg þann 12. desember 1947. Áður en björgunin hófst tók þrjá skipverja út og fórust þeir. Togarinn Dhoon var frá Fleet- wood í Englandi og sigldi á Íslandsmið föstudaginn 5. desem- ber 1947. Skipverjar voru flestir frá Fleetwood en skipstjóri og stýrimaður frá Hull. Eftir viku á miðunum strandaði togarinn undir Látrabjargi, í myrkri og kafaldsbyl, nokkra tugi metra frá landi. Fyrir framan var stórgrýtisurð og 200 metra hátt ísilagt Keflavíkurbjarg- ið. „Fyrstu frjettir er Slysavarnar- fjelaginu bárust um strandið komu um kl. 10. Var það skeyti frá breskum togara, er sá hvar Dhoon var strandað undir bjarginu. Staðarákvörðun var mjög vill- andi,“ segir í frétt Morgunblaðsins 13. desember 1947. Varðbáturinn Finnbjörn fór á vettvang. Harald Björnsson skipherra sagði skip- verja vera á stjórnpalli og nokkra undir hvalbaknum þar sem logaði bál. „Sjóar voru miklir og gengu enn nokkuð yfir skipið en fjara var,“ sagði í Morgunblaðinu. Þetta var talinn vera einn versti strand- staður landsins. Skipherrann taldi að björgun úr landi myndi reynast mjög erfið og björgun af sjó var talin útilokuð. Engan björgunarbát var að sjá á togaranum. Hvallátramenn fóru strax út á Látrabjarg til að undirbúa björg- un. Tólf björgunarmenn fóru á laugardagsmorguninn á handvað niður á svonefnd Flaugarnef í bjarginu. Fjórir sigu svo 80 metra háan hamravegginn niður í fjöruna. Davíð Eggertsson, bóndi að Hval- látrum, stjórnaði björguninni. Þar gengu þeir um hálfan kílómetra í stórgrýttri fjörunni að strandstaðn- um. Björgunarmennirnir fluttu með sér línubyssu, björgunarstól, mat, föt, sjúkragögn o.fl. Þeir skutu línu í togarann um klukkan 12.30 og settu upp björgunarstól. Skipbrots- mennirnir voru komnir í land um klukkan 14.00 og voru mjög þjakað- ir. Björgunarmennirnir bjuggu um þá í fjöruborðinu til að byrja með. Sjö skipbrotsmenn voru fyrst dregnir upp á Flaugarnef og dvöldu þar næturlangt með björgunar- sveitarmönnum. Syllan var svo lítil að þeir gátu ekki lagst og sofnað heldur hvíldu sig með því að halla sér að bjarginu. Veður var vont, rigning og rok. Skipbrotsmönnum var svo hjálpað upp á bjargbrúnina. Hinum fimm var svo bjargað upp á bjargbrúnina á sunnudeginum og voru allir fluttir heim á bæ. Óskar Gíslason gerði heim- ildarmyndina Björgunarafrekið við Látrabjarg ári síðar þegar annar togari strandaði þar. Björgunarafrek- ið við Látrabjarg fyrir 75 árum lTólf skipverjumaf togaranum Dhoon bjargað við erfiðar aðstæður Guðni Einarsson gudni@mbl.is Björgunarafrek Skipbrotsmenn voru dregnir í land í björgunarstóli og síðan bjargað upp þverhnípt og ísilagt bjargið við mjög erfiðar aðstæður. Hafdís Sigurðardóttir, hjólreiðakona Íslands og Íslandsmeistari í hjól- reiðum, hjólaði um helgina alls 1.012 kílómetra í 46 klukkustundir með stuttum hléum inni á milli. Ákvað hún að ögra sjálfri sér og hjóla 22 kílómetra á hverri klukkustund í húsnæði Bjargs líkamsræktar á Akureyri. „Mér leiddist aldrei. Hvort sem það voru vinkonur mínar, mamma eða systkini mín, þá voru alltaf ein- hverjir meðmér,“ sagði Hafdís þegar Morgunblaðið náði tali af henni, stuttu eftir að hún steig af hjólinu. „Síðan voru alveg nokkrir sem komu eftir næturlífið eða jólahlaðborðið og tóku nokkra kílómetra,“ sagði Haf- dís létt en meðal vinkvenna hennar eru sjúkraþjálfarar og nuddarar. Hafdís hóf hjólreiðarnar klukkan þrjú á föstudag og lauk þeim um hádegisbilið í gær. Aðspurð sagði hún aðfaranótt sunnudagsins hafa verið erfiðasta hjallann. „Það var á milli fjögur og sex sem ég upplifði erfiðasta tímann. Ég fann þá alveg að hausinn var aðeins að detta. En síðan náði ég að rífa mig upp úr því og var orðin góð klukkan sjö,“ sagði hún en við tók endurheimt og tími í faðmi fjölskyldunnar áður en haldið var loks í langþráð bólið. lÖgraði sjálfri sér og hjólaði í 46 klukkustundir yfir helgina Hjólaði þúsundkílómetra HjólHafdís var aldrei ein á hjólinu, vinir og fjölskylda sáu til þess.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.