Morgunblaðið - 12.12.2022, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 12.12.2022, Qupperneq 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022 Smiðjuvegur 68, Kópavogi | S. 587 1350 | bifkop.is Allar almennar bílaviðgerðir Malbikstöðin ehf • 516 0500 • tilbod@malbikstodin.is • malbikstodin.is Síðasta grein mín sem birtist í Morgun- blaðinu, Skipulag fyr- ir hvern verktaka eða almenning, fékk góð- ar viðtökur. Í beinu framhaldi hef ég sett fókusinn á fjölbýli og sérbýli. Byggt er þétt án þess að tekið sé tillit til þeirra sem þar eiga að búa; litlir gluggar, litlar svalir og nálægð við næsta hús/ blokk mikil. Þannig leiðir af sjálfu sér að dagsbirtu nýtur lítið innan- húss, sem leiðir af sér að þar þarf að loga ljós alla daga, sem er óþarfa eyðsla á orku í þverrandi orkuheimi. Tökum sem dæmi rað- hús með einn glugga á suðurhlið (í minnsta lagi), með hallandi þak- skeggi, 4-4,5 m, sem lokar að mestu á dagsbirtu þegar sól er í hágöngu. Við Íslendingar sem búum á norðlægum slóðum njótum þess á sumarsólstöðum, í seinnihluta júní- mánaðar. Þremur mánuðum seinna, í endaðan september við jafndægur að hausti, nýtur sólar lítið. Frá þeim tíma til vetrarsól- hvarfa, þegar jól eru að ganga í garð, er myrkur meirihluta sólar- hringsins og rafmagnsljós lifa þann tíma sem íbúar eru á fótum. Það er svo ekki fyrr en með vori sem dagsbirtu fer að njóta, en þó að mjög takmörkuðu leyti vegna þétt- ingar byggðar og mikillar (of)nýt- ingar jarðnæðis. Svo eru reglur sem henta einhverjum að ekki má auka mögu- leika á dagsbirtu með ráðstöfunum, þá kemur kerfið með einhverjar reglur misviturra reglugerðaraðila sem lifa í sínum aflokaða kassa og hleypa engum nærri sér. Enda málstaðurinn ekki til þess fallinn að hægt sé að færa fyrir honum skynsamleg rök. Hæð íbúðarhús- næðis (innanhúss) miðast við allt að 4,5 m, sem þarf að hita upp, og þarf sérhannaðar viftur til að ná heita loftinu niður (sem eyðir rafmagni). Er ofangreint í sam- ræmi við orkustefnu og loftslagsmarkmið stjórnvalda? Væri ekki ráð að auka glugga- stærð og veita inn sól- argeislum, sem verma hús og íbúa, bæta heilsu íbúanna og minnka aðkeypta orku, rafmagn og hitaveitu? Það hefur komið upp í hugann, að áður en einhver hann- ar hús, sem menntaður er á suð- rænum slóðum (þar sem sól verm- ir) og hannar miðað við þarlend svæði, þurfi að leggja til sam- þykktar eða synjunar allar skipu- lagsteikningar með tilliti til þess að íbúðarhúsnæði veiti dagsbirtuflæði inn og lofthæð sé eðlileg; miðum við t.d. 2,8-3 m, meiri lofthæð er orkusóun. Stór skyggni sem mynda skugga og takmarka birtuflæði eru sóun og gætu hugsanlega verið heilsuspillandi. Við búum það vel að eiga mjög hæft fólk til að vera ráðgefandi og geta haft um það að segja hversu þrengt sé að ofangreindu. Þar á ég t.d. við Umhverfisstofnun, sem mér sýnist hafa á að skipa mjög hæfu sérfróðu starfsfólki til að hafa áhrif á hvort fyrirhugað húsnæði upp- fylli eðlilegar heilsukröfur. Ein- hvers staðar verður að spyrna við fæti í þeirri þróun sem hefur átt sér stað á höfuðborgarsvæðinu, svo og að hægt sé að leita til viðkom- andi stofnunar um lagfæringar á nýlegum híbýlum sem nálgast það að vera misstórar myrkrakompur. Nútímahíbýli ekki gerð fyrir fólk Eftir Guðjón Jónsson Guðjón Jónsson »Híbýli hafa þróast í að vera ómanneskju- leg, hvort sem um er að ræða fjölbýli eða sér- býli, á meðan stór hluti landsins er í eyði. Höfundur er fyrrverandi skipstjóri. Matur Nýlega gerði norska ríkisstjórnin það kunn- ugt að hún hygðist taka leigu eða afnota- gjald, auðlindagjald, af fiskeldisfyrirtækjum fyrir afnot þeirra af hafinu, fjörðum lands- ins, frá 1. janúar 2023. Ný stefnumörkun Hér er eiginlega um nýja stefnumörkun að ræða þar sem nýtt grunnsjónarmið er lagt til grundvallar, nefnilega það að þau grunnverðmæti sem felast í hafi, landi og lofti hvers lands séu sam- eign þjóðar og að þeir einstaklingar eða þau fyrirtæki sem nýta sér þessi sameiginlegu gæði í rekstrar- og hagnaðarskyni skuli greiða fyrir þau afnot leigu eða afnotagjald; auðlindagjald. Eignarstimpill á umhverfið Þetta er líka spor í þá átt að setja eignarstimpil á umhverfið, opna augu manna fyrir verðmætum þess og eignarrétti almennings á því. Margir hafa til þessa litið svo á að nýta mætti umhverfið sem ekki er í séreign, í þessu tilviki hafið, eins og enginn ætti það eða þá að menn eignuðu sér það sjálfir við notkun. Þessi nýja stefnumörkun kippir auðvitað fótunum undan slíkri skoð- un eða afstöðu. Skýrar línur settar. Hvernig er auðlindagjaldið hugsað og reiknað? Í Noregi stunda 150 fyrirtæki fiskeldi í fjörðum landsins. Eru mörg þeirra lítil en vega samt þungt í atvinnulífi síns byggðarlags. Vill ríkisstjórnin ekki raska því byggðajafnvægi sem greinin skapar og ákvað því að beina auðlinda- gjaldtökunni að stærstu fyrirtækj- unum. Eru þau um fjórðungur allra fyr- irtækjanna og sleppa því þrír fjórðu þeirra við auðlindagjaldið. Auðlindagjaldið verður reiknað á hagnað fiskeldisfyrirtækis eftir greiðslu þess reglulega tekjuskatts sem öllum fyrirtækjum er gert að greiða, á þann hátt að 20% þess hreina hagnaðar sem þá stendur eftir renni til sveitarfélagsins þar sem fyrirtækið hefur aðsetur og 20% til rík- isins, þannig að eig- endur fyrirtækjanna halda 60% af hagn- aðinum. Gert er ráð fyrir að taka þessa auðlinda- gjalds muni skila norskum sveit- arfélögum, þar sem þessi starfsemi fer fram, 25 milljörðum ísl. króna 2023 og norska ríkinu öðrum 25 millj- örðum, alls 50 milljörðum íslenskra króna. Þessar viðbótartekjur sveitarfé- laganna munu vitaskuld stórauka getu þeirra til uppbyggingar innviða og bættrar þjónustu við íbúa, og þá um leið auðvitað þeirra sem að fisk- eldinu standa og við það starfa. Áhrifin hér – brýnt að stjórnvöld bregðist við Mörg norsk fiskeldisfyrirtæki eru nú þegar komin með sinn rekstur til Íslands. Virðast þau geta komið sér fyrir hér án þess að greiða kóngi eða presti mikið! Í Noregi er það hins vegar svo að aðstaða til fiskeldis er boðin út, rekstrarleyfin seld hæstbjóðendum, og fær ríkið stórfé fyrir. Á dögunum voru seld ný fiskeld- isleyfi fyrir 24.644 tonna MTB og fékk norska ríkið um 50 milljarða ísl. króna fyrir. Í hitteðfyrra fékk norska ríkið um 90 milljarða fyrir þau rekstrarleyfi sem þá voru seld. Ef sá skilningur minn er réttur að hér kosti rekstrarleyfi til fisk- eldis lítið eða ekkert er því ekki nema von að Norðmenn flykkist hingað. Þetta er þá um leið vísbending um ótrúlega afdalamennsku ís- lenskra stjórnvalda. Það virðist vanta einn eða tvo kaupahéðna, menn með peninga- og viðskiptavit, í ríkisstjórnina. Þegar það bætist svo við að norsk fiskeldisfyrirtæki þurfa að greiða 40% af eftirskattshagnaði sínum til sveitarfélaga og ríkis í Noregi er sjálfgefið að Norðmenn muni stórauka sókn sína í íslenskt fiskeldi. Það er því bráðbrýnt að íslensk stjórnvöld átti sig á þessari stöðu og bregðist fljótt og rétt við! Það viðbragð getur í raun aðeins verið að samræma íslenskar reglur um greiðslu fyrir rekstrarleyfi á grund- velli útboðs, svo og innleiðingu sama auðlindagjalds fyrir fiskeldi hér og verður í Noregi. Það er verulegt áfall að íslensk stjórnvöld virðast hafa flotið sof- andi að feigðarósi með þessi brýnu og miklu hagsmunamál lands- manna. Auðlindagjaldið á sjávarútveginum Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki hafa haft mikinn hagnað af sínum rekstri. Var hagnaður þeirra 11 stærstu 2021 yfir 60 milljarðar króna og hafa þau byggt upp bók- fært eigið fé upp á nær 400 millj- arða ísl. króna. Mikið hefur verið tekist á um sanngjarnt auðlindagjald sem sjáv- arútvegurinn skuli greiða ríkinu, þjóðinni, en um það hefur engin endanleg sátt náðst. Síðasta auð- lindagjaldið sem undirrituðum er kunnugt um er fyrir árið 2020. Þá nam það 4,8 milljörðum króna. Í heildarsamhenginu enginn sátta- grundvöllur. Gæti norska leiðin leyst hnútinn? Ef sátt næðist um að við fylgdum fordæmi frænda okkar í Noregi, reyndar á sviði fiskeldis, og inn- leiddum sams konar afnotagjald af okkar íslensku fiskimiðum, auðlinda- gjald, sem næmi 20% af árlegum hagnaði fyrir sveitarfélög, 20% fyrir ríkið, og eigendur fyrirtækjanna héldu 60%, myndi það hafa skilað sveitarfélögum landsins 12 millj- örðum og ísl. ríkinu öðrum 12 millj- örðum, alls 24 milljörðum, fyrir síð- asta ár. Hlutur eigenda hefði verið 36 milljarðar. Fyrir árið 2020 hefði auðlinda- gjaldið reyndar ekki verið nema tæpur helmingur af þessu vegna þess að þá var afkoma sjávar- útvegsfyrirtækja mun lakari, en það er einmitt málið; með þessum hætti væru hagsmunir útgerðar og þjóðar þeir sömu, við öll í sama báti. Það væri auðvitað góður punktur, hvað sem skiptingarhlut- falli liði. Auðlindamálin í Noregi og hér Ole Anton Bieltvedt » Þetta er vísbending um ótrúlega afdala- mennsku stjórnvalda. Það virðist vanta einn eða tvo kaupahéðna, menn með peninga- og viðskiptavit, í ríkis- stjórnina. Ole Anton Bieltved Höfundur er samfélagsrýnir og dýraverndarsinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.