Morgunblaðið - 12.12.2022, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 12.12.2022, Qupperneq 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022 ✝ Auður Ingvars- dóttir fæddist á Undirvegg í Keldu- hverfi 28. septem- ber 1934. Hún lést í Sóltúni 2 1. desem- ber 2022. Foreldrar henn- ar voru Ingvar Sig- urgeirsson bóndi og Sveinbjörg Valdimarsdóttir. Systkini Auðar voru Jóhanna, f. 1916; Óskar, f. 1918; Svanhvít, f. 1923; Krist- björg, f. 1919; Ragnheiður, f. 1926; Baldur, f. 1930. Öll eru þau látin og allir makar. Auður var gift Agli Jónssyni brunaverði, f. 1930. Börn þeirra Helga, gift Guðmundi Björns- syni og synir þeirra eru þrír: Björn, kvæntur Ingibjörgu I. Jónsdóttur og eiga þau tvö börn en Ingibjörg átti dóttur fyrir; Egill, kvæntur Maríu I. Þor- steinsdóttur og eiga þau tvö börn en María átti dóttur fyrir; Óskar, í sambúð með Guðrúnu Ösp Sigurmundsdóttur. Auður var heimavinnandi húsmóðir meðan börnin hennar voru ung en fór svo síðar á vinnumarkaðinn, m.a. á sauma- stofum og í mötuneyti. Endaði starfsævina sem ritaði augn- lækna í Mjódd hjá tengdadóttur sinni. Bjuggu þau Egill í Reykjavík nánast allan sinn búskap. Eftir að Auður varð ekkja bjó hún á hjúkrunarheimilinu í Sóltúni 2 í Reykjavík við mjög góðan að- búnað. Útför Auðar verð gerð frá Háteigskirkju í dag, 12. desem- ber 2022, klukkan 13. eru: 1) Sveinbjörg, í sambúð með Rögn- valdi Ólafssyni, dóttir hennar er Auður Margrét C. Mikaelsdóttir, í sambúð með Andr- ési Bragasyni og eiga þau tvo syni. 2) Jón, var kvæntur Ólöfu Kr. Ólafs- dóttur og börn þeirra eru þrjú: Auður Björg, gift Gísla V. Gonzales og eiga þau þrjár dæt- ur en Gísli átti son fyrir; Ólafur Egill, kvæntur Katarinu Trop- pová og eiga þau börn. Egill, kvæntur Olgu I. Hreiðarsdóttur og eiga þau eina dóttur. 3) Engill á jörðu er fallinn frá við andlát Auðar móður minnar. Móðir mín var einstaklega hjartahlý, sérlega skapgóð og glaðlynd manneskja. Tók sjálf aldrei þátt í deilum og sneiddi hjá leiðindum. Var jákvæð allt fram í andlátið og kvartaði aldrei undan sínum aðstæðum. Mamma hafði hins vegar rétt- lætiskennd og er t.d. minnis- stætt að þegar ég var í barna- skóla sagði ég mömmu frá því að þekktur skriftarkennari gerði grín að feitlaginni dömu í bekkn- um um að hún ætti ekki að borða allan matinn frá heimilisfólki sínu og hún væri hreyfihömluð vegna fitu. Móðir mín fór í skól- ann og tók skriftarkennarann á beinið. Kennarinn bað nemand- ann síðan afsökunar og hætti stríðni. Skriftarkennarinn hafði hins vegar engin afskipti af mér frekar í tímum og er ljót skrift mín sennilega afleiðingin af því. Þá hafði móðir mín þá skoðun frá unglingsárum það ætti að hætta að hlusta á stjórnmála- menn því þar færu aldrei saman fyrirheit fyrir kosningar og efndir eftir kosningar. Móðir mín fórnaði sínu lífi í að koma börnun sínum til manns og allt snerist hjá henni um fjöl- skylduna og að aðstoða börnin eftir sinni bestu getu. Hún gat verið hreinskilin og sagði mér t.d. mjög ungum að ég ætti aldr- ei að syngja nema í einrúmi. Móðir mín ákvað sjálf að senda atvinnuumsókn fyrir mig innan við tvítugt á bílasölu og rómaði mig sem reynslubolta þar sem hún taldi bílasölu vera starf fyrir mína bíladellu. Eig- andi sölunnar áttaði sig á því eft- ir ráðninguna að ég hafði ekki reynslu eins og skilja mátti af at- vinnuumsókninni. Ég sagði þá eigandanum að það hefði verið móðir mín sem sendi umsóknina með þessum lofsyrðum um mig án samráðs við mig. Eigandinn var svo hrærður við þessa frá- sögn að hann sagði tárvotur að ég ætti greinilega frábæra móð- ur og ég hélt starfinu. Alltaf síð- ar þegar ég hitti eigandann spurði hann um hagi móður og bað um kveðju til hennar. Síðustu fjögur ár dvaldi hún í Sóltúni við frábæra umönnun starfsfólks. Móðir mín hafði oft orð um hversu vel var um hana hugsað á þeim stað. Móður mín var gáfað góð- menni og heimurinn væri para- dís ef allir væru eins og hún. Jón Egilsson. Elsku mamma mín. Þá er okkar samleið á enda í bili en töluvert búnar að brasa saman um ævina. Það eru ákveð- in forréttindi að hafa foreldri/ foreldra svona lengi hjá sér. Er ég hugsa til mömmu eru orðin sem koma upp í huga minn: sönn íslensk alþýðukona af bestu tegund. Heiðarleg, áreiðanleg, nægjusöm, reglu- söm, glaðleg, hraust og með blaðbeittan húmor. Þar eð pabbi var vaktavinnumaður allan sinn starfsaldur var hún mikið ein með okkur systkinin. Þá var nú mikið spilað, púslað, hlustað á útvarpsleikritin og á hljómplöt- ur. Það þurfti einnig að næra okkur og klæða en mamma var afar flink saumakona og saumaði allt sem hún gat á okkur. Einnig handprjónaði hún allt á okkur og lagði hún metnað sinn í að hafa okkur alltaf hrein, snyrtileg og aldrei með saumsprettur á föt- um okkar eða tölulaus. Seinna nutu svo barnabörnin hennar góðs af. Við erum þrjú systkinin, Lilla, Nonni og Didda, sem þau komu til manns og erum við hraust, hress og vel heppnuð. Barnabörnin eru sjö og lang- ömmubörnin orðin 14. Hún var mjög hreykin og stolt af börnum sínum og barnabörnum. Þau eru öll jafn flott. Er við vorum upp- komin gátu þau ferðast til út- landa og nutu þess að vera í sól- inni og komu alltaf færandi hendi til baka. Eftir að hún varð ekkja og heilsan tekið að bila bjó hún á hjúkrunarheimlinu Sóltúni 2 í Reykjavík. Þar leið henni vel og aldrei var kvartað, enda ekki hennar stíll. Eins og hún sagði við okkur „hver heldurðu að nenni að hlusta á svoleiðis“? Ég var heppin með mömmu og kveð hana með söknuði. Starfsfólki á 3- B í Sóltúni fær- um við alúðarþakkir fyrir frá- bæra, ástúðlega og fagmannlega þjónustu. Þið gerðuð svo sann- arlega vel. Vertu kært kvödd mína kæra móðir með þökkum fyrir allt og allt. Þótt móðir mín sé nú aðeins minningin ein mun ég ávallt minnast hennar með glöðu geði og dýpstu virðingu, hugheilu þakklæti og hjartans hlýju, fyrir allt og allt. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þín Sveinbjörg. Amma yfirgaf jarðvistina á fullveldisdaginn 1. desember, þá 88 ára að aldri. Hin íslenska al- þýðukona, heiðarleg, iðin og stolt. Hún átti langt og gjöfult líf að baki. Fædd í torfbæ norður í Þingeyjarsýslu þar sem hún ólst upp við fátæklegar aðstæður, yngst sjö systkina. Ung hleypti hún heimdraganum og hélt til Reykjavíkur og fór að vinna fyr- ir sér en hana langaði til út- landa. Tækifæri ungra kvenna voru heldur takmörkuð á þess- um tíma og lífið vísaði henni ekki menntaveginn en hún var alla tíð fróðleiksfús og forvitin. Hún kynntist afa, kaup- mannssyni frá Seyðisfirði, og þau hófu búskap. Á brúðkaups- daginn 1955 tóku þau strætó nið- ur í bæ og giftu sig hjá fógeta og fóru svo í strætó aftur heim. Kannski er dagurinn lýsandi fyr- ir ömmu og hjónabandið en það var traust, heiðarlegt og laust við prjál. Afi og amma voru gjör- ólíkar manneskjur en samstiga og óaðskiljanleg hjón. Fráfall afa reyndist ömmu þungbært enda voru þau samhent og tilvera þeirra svo samofin að varla er hægt að hugsa eða minnast ann- ars án hins. Flestar mínar æskuminningar snúa að afa og ömmu. Ófáar minningar fullorðinsáranna einnig. Ég elskaði þau og þau elskuðu mig. Mig hefur grunað að lífið hafi á tíðum farið óblíðum höndum um ömmu en hún kvart- aði aldrei. Hún var ævinlega lít- illát og hógvær, góð, glaðlynd og nægjusöm. Mesta hamingju virt- ist færa henni að sjá fjölskyldu sína vaxa en hún var ákaflega stolt af börnum sínum, tengda- börnum og barnabörnum. Hún naut þess að sjá okkur komast á legg, vaxa úr grasi og finna okk- ar ólíka farveg í lífinu. Hún hafði dálæti á barnabarnabörnum og gladdist yfir stórum sigrum og smáum. Það var alltaf stutt í brosið og hún hafði dillandi hlátur en amma var orðvör og raunar vildi hún ekki tala mikið um sig sjálfa. En þó hún væri hófstillt í tali var hún dugleg til verka og ævinlega með eitthvað á prjón- unum. Hún vann úti alla tíð, lagði stund á hannyrðir og sauma og studdi afa með ráðum og dáðum. Þau ferðuðust mikið bæði innanlands og utan, tóku mikið af ljósmyndum og áttu margar skemmtisögur í hand- raðanum. Amma var félagslynd og hún var góður gestgjafi sem lumaði iðulega á kræsingum og var ómöguleg ef það sást til botns í kistunni. Samt var hún alla tíð grönn og lekker, það var varalit- ur á kaffibollunum hennar og hún var með naglalakk fram á síðasta dag. Hláturmild og hlý viðmóts, óeigingjörn, stálminnug og snögg í tilsvörum. Mér þykir sárt að sjá á eftir ömmu en ég finn huggun í tilhugsun um líkn og um endurfundi hennar og afa. Að leiðarlokum fer ég með bæn- ina sem amma kenndi mér og við sögðum upphátt saman fyrir svefninn: Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Þó augun sofni aftur hér í þér mín sálin vaki. Guðs son, Jesús, haf gát á mér, geym mín svo ekkert saki. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Prestshólum) Ég elska þig amma mín og bið að heilsa afa. Þín Auður. Auður Ingvarsdóttir ✝ Hrefna Guð- mundsdóttir fæddist í Reykjavík 19. júlí 1950. Hún lést á Landspítal- anum við Hring- braut 28. nóvember 2022. Foreldrar Hrefnu voru hjónin Guðrún Sigurðardóttir, f. 6. febrúar 1916, d. 26. febrúar 2010, og Guðmundur Kristmundsson, f. 8. mars 1914, d. 7. febrúar 1981. Systkini Hrefnu eru: Guðrún Guðmundsdóttir f. 1940 d. 2017, maki Þorvaldur Thoroddsen, f. 1937 d. 2011. Börn tvö. Krist- mundur Guðmundsson, f. 1942, maki Margrét Kristjánsdóttir, f. 1944. Börn tvö. Bryndís Guð- mundsdóttir, f. 1944, maki Otto David Tynes, f. 1937, d. 2019. Börn tvö. Hálfsystir Hrefnu, samfeðra: Ester Guðmundsdóttir, látin. Barn eitt. Hrefna átti heima á Flóka- götunni í Reykjavík fyrstu mán- eigandi. Eftir að hún var búin að vera heima í fjögur ár hjá ungri dóttur sinni fór hún að vinna hjá Skífunni. Síðar byrjar hún sem gjaldkeri í Korpus hf. og síðar Samútgáfunni Korpus hf. í fullu starfi. Árið 1994 byrjar hún að vinna hjá Odda hf. skrifstofu- deild og hefst þá hennar sölu- og ráðgjafastarf í skrifstofuvörum fyrir fyrirtæki og skóla, störf sem hún fann sig svo vel í. Fyrir- tækið breyttist síðar í A4 þar sem Hrefna vann síðan til starfs- loka. Hrefna giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Helga Agn- arssyni, 10. júlí 1971. Þau byrj- uðu sinn búskap á Kópavogs- braut og fluttu síðan í Heiðar- gerði í Reykjavík, þar sem þau eignuðust dóttur sína, Lísu Dögg, f. 27. desember 1979. Þau þrjú fluttu síðan í Keilu- fell í Breiðholti 1981 Fjöl- skyldan flutti síðar í Torfufell og Unufell. Þaðan var síðan flutt í Þrastarhóla. Þau áttu sinn sælureit í sumarhúsi í Miðdal í Laugardal sem þau kölluðu Undraland. Hrefna átti við veik- indi að stríða síðustu árin svo að þau fundu sér íbúð sem hentaði betur nýjum aðstæðum á Prestastíg 9 í Grafarholti. Útför Hrefnu fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 12. desember 2022, kl. 15. uði lífs síns en fluttist síðan með foreldrum og systkinum inn í Bústaðahverfi, nánar tiltekið í Hólmgarð 2, þar sem hún ólst upp yngst í hópi fjögurra systkina. Hún gekk í Breiðagerðisskóla, svo í Réttarholts- skóla og þaðan í Verknámið í Braut- arholtinu. Hún byrjaði snemma að vinna, m.a. í fiskvinnu, við verslunar- störf o.fl. Hrefna fór til Somer- set í Englandi sem au-pair og dvaldi þar um tíu mánaða skeið. Eftir að hún kemur heim 1969 kynnist hún verðandi eigin- manni sínum og fer að vinna við skrifstofustörf hjá Ásbirni Ólafs- syni hf. og jafnframt kennir hún á saumavélar sem fyrirtækið hafði umboð fyrir. Hún vann síðar við skrifstofu- störf og bókhaldsstörf hjá ýms- um fyrirtækjum, m.a. F.A.J. hf., og sá jafnframt um bókhald hjá Korpus hf. þar sem hún var með- Elsku stóra litla systir: Það er erfitt að kveðja þig eins nánar og við vorum og eins mikið og ég elskaði þig. Það komu að sjálf- sögðu tímar þar sem við vorum ekki eins nánar enda sex ár á milli okkar. Og hvað ég gat verið dugleg að svæfa þig í kerrunni þinni þegar ég átti að passa þig og hlaupa með þig til mömmu svo að ég gæti farið að leika mér. En svo stækkaðir þú og við færð- umst nær með hverjum senti- metra sem þú bættir við þig og þeir voru sko margir. Þvílík gæfa að hafa fengið að eiga þig fyrir systur, eins blíð, góð og sterk og þú varst. Þú varst með faðminn opinn fyrir alla, hélst utan um alla og alltaf tilbúin að hlusta og hjálpa. Svo kom að því að þú hittir hann Helga, þinn lífsförunaut og sálufélaga í lífinu. Þvílíkt sam- band, alltaf unnið úr álitamálum ef þau komu upp í gegnum ykkar rúmlega 50 ár, ég held að það finnist ekki annað eins hjóna- band. Þegar þið eignuðust Lísu Dögg gerðir þú að sjálfsögðu eins og hjartað þitt stóra bauð, hættir að vinna og varst heima með Lísu fyrstu fjögur árin. Líkt þér enda varstu góð mamma. En það komu líka erfiðir tímar þegar þú varðst veik, elsku syst- ir, og hvað þú gast verið dugleg í gegnum öll veikindin þín. Alltaf í góðu skapi og barðist eins og hetja við hvert áfallið af öðru, alltaf björt og alltaf kát. Elsku Hrefna, ég verð að koma því að hvað drengirnir mínir elskuðu þig mikið og ykkur hjónin. Það var ekki til betri kona í öllum heiminum en þú. Ottó Davíð og Gunnar Örn dáðu þig og elskuðu og kveðja þig með miklum söknuði. Það geri ég líka. Ég veit að ég á ekki eftir að kynnast öðrum eins karakter í lífinu. Þú munt alltaf alltaf vera með mér í hjarta mínu. Þín litla stóra systir, Bryndís. Hrefna var sönn vinkona og nú er hún farin á vit feðra sinna. Þungur söknuður ríkir í vin- kvennahópnum. Við vorum 15 ára þegar við kynntumst og urð- um vinkonur. Saumaklúbbur var stofnaður utan um þessar sex sálir sem náðu svona vel saman. Í klúbbnum drukkum við mjólk og borðuðum kökur en handa- vinna, önnur en handsnyrting, var látin eiga sig til að byrja með. Í 57 ár höfum við haldið hópinn, átt gæðastundir og fylgst að í gegnum storma og blíðviðri lífsins. Fyrstu viðverustaðir okkar vinkvennanna voru skemmti- staðir á borð við Lídó og Glaumbæ. Þegar við svo stofn- uðum heimili drógust inn í fé- lagsskapinn eiginmenn og börn og við gátum hjálpast að í gegn- um hvað sem að höndum bar. Hrefna bar af og var tignarleg, traust, smekkleg og skemmtileg kona. Þegar hún og Helgi voru orðin hjón fannst okkur vinkon- unum þau bæði stórglæsileg og við samglöddumst þeim að hafa fundið hvort annað. Fjölskyldan óx þegar Lísa Dögg kom inn í líf þeirra og það var alla tíð gaman og gefandi að heimsækja þessa fallegu fjölskyldu, hvort sem var á heimili þeirra eða í sumarbú- staðinn. Það er dapurlegt þegar fólk hættir að vinna og ætlar að fara að njóta lífsins eftir gott ævistarf en er hrifið á braut úr jarðlífinu allt of snemma. Heilsa Hrefnu byrjaði illu heilli að gefa sig eftir að hún hætti að vinna en alltaf trúði hún að hún ætti bata vísan handan við hornið og trúði hún því allt til hinsta dags. Bjartsýna og fallega vinkona okkar skilur eftir sig skarð í saumaklúbbnum. Við sendum Helga og Lísu og fjölskyldunni allri einlægar samúðarkveðjur við fráfall Hrefnu. Guðbjörg, Guðrún Júlía, Lára, Sigríður Jóna og Sigrún. Á einum af þessum fallegu haustmorgnum sem við höfum fengið að njóta undanfarið hvarf Hrefna vinkona okkar yfir í sum- arlandið. Síðasta brekkan var brött. Við kynntumst Hrefnu þegar hún var nýgift Helga, þau voru falleg og samstiga í öllu sem þau tóku sér fyrir hendur. Vinirnir Helgi og Siggi unnu fyrst saman í Myndamótum en árið 1973 stofnuðum við fjögur saman prentþjónustuna Korpus. Sá tími var okkur öllum bæði krefjandi og lærdómsríkur en einnig ómet- anlegur í reynslubankann. Minn- ingarnar eru margar og skemmtilegar úr leik og starfi með góðu og skemmtilegu starfsfólki. Það sem stendur upp úr frá þessum tíma er einstök sönn vinátta og samvinna. Hrefna og Helgi eignuðust einkadóttur sína, Lísu Dögg, 1979, þá skein sólin skært og lífið fékk nýjan lit. Um árabil bjuggu við í sömu götu og enn styrktust vinaböndin. Ég held að við höf- um öll verið sammála um að blómatími okkar var þegar við bjuggum í Keilufellinu. Þar var gott að búa, við vorum ung, börnin léku sér saman, við áttum frábæra og skemmtilega ná- granna og samheldnin í götunni var mikil. Hrefnu fylgdi alltaf bros og hressilegur andblær hvar sem hún kom. Hún sýndi líka alltaf einlægan áhuga á því sem efst var á baugi hjá þeim sem hún var að tala við. Nú þegar Hrefna er farin ger- um við að okkar orð Hannesar Péturssonar í bókinni Fyrir kvölddyrum: Þegar hugfólgnir vinir bárust fyrr en varði burt úr glaðaljósi samvistanna. Söknuður situr okkur í brjósti alla daga. Það var mikið lán fyrir okkur og okkar fjölskyldur að leiðir okkar skyldu liggja saman um lífsins veg. Við þökkum almætt- inu fyrir þá forsjá. Við og börn okkar þökkum Hrefnu innilega fyrir samfylgdina. Helga og Sigurður (Siggi). Hrefna Guðmundsdóttir HINSTA KVEÐJA Elsku Hrefna: Við Kiddi þökkum þér fyrir allar ynd- islegu stundirnar sem við áttum saman í gegnum tíð- ina og fyrir allan stuðning- inn sem þú veittir okkur í gegnum lífið. Þú varst allt- af með faðminn opinn og bros á vör. Þín minning gleymist aldrei. Kristmundur og Margrét (Kiddi og Maggý). Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstand- endur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráðlegt að senda myndina á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.