Morgunblaðið - 12.12.2022, Síða 24
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL24
vv.is honnunarlausnir.is
LAMPADAGAR
10% AFSLÁTTUR
11.-17. DESEMBER
DCW MANTIS
borðlampi
Til hamingju með daginn
Stjörnuspá
30 ÁRA Helena er Norðfirðingur en
býr á Akureyri. Hún er grunnskóla-
kennari í Lundarskóla en er í fæðingar-
orlofi. Helena æfir blak með KA og
áhugamálin eru íþróttir, hannyrðir og
bakstur.
FJÖLSKYLDA Maki Helenu er Andri
Fannar Gíslason, f. 1990, sjávarútvegs-
fræðingur og vinnur hjá Vélfagi. Sonur
þeirra er Emil Atli, f. 2022. Foreldrar
Helenu eru Guðrún Sólveig Sigurðar-
dóttir, f. 1963, vinnur hjá Sparisjóði
Austurlands í Neskaupstað, og Gunn-
ar Ásgeir Karlsson, f. 1960, bakari í
Neskaupstað.
Helena Kristín Gunnarsdóttir
Nýr borgari
Akureyri Emil Atli Andrason
fæddist 4. febrúar 2022 kl. 7.56
á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Hann
vó 4.150 gr og var 53 cm langur.
Foreldrar hans eru Helena Kristín
Gunnarsdóttir og Andri Fannar
Gíslason.
21. mars - 19. apríl A
Hrútur Ef þið spyrjið réttu spurning-
anna getið þið leyst ráðgátu í dag. Ef
þið ýtið of mikið á aðra er líklegast að
þeir ýti á móti.
20. apríl - 20. maí B
Naut Lífið líkist kappleik í dag og þú
nýtur þín engan veginn á varamanna-
bekknum. Einhver reynir að knýja fram
svör hjá þér í dag.
21. maí - 20. júní C
Tvíburar Þótt þér lítist ekkert á að
fá aðstoð við ákveðið verkefni skaltu
hugsa málið. Ekki taka lán fyrir hlutun-
um, kauptu það sem þú hefur efni á.
21. júní - 22. júlí D
Krabbi Láttu ekki fara í taugarnar á þér
þótt félagi þinn vilji fá að vera einn um
tíma. Ertu að sinna heilsunni þessar
vikurnar? Ef ekki, er ekki kominn tími
á það?
23. júlí - 22. ágúst E
Ljón Þú færð óvænt tækifæri til að
sanna hæfileika þína. Það leynist upp-
reisnarseggur í þér, láttu skína í hann.
23. ágúst - 22. september F
Meyja Það eru miklar breytingar í gangi
í kring um þig. Staldraðu við og hug-
leiddu hvort þú sért á réttri leið í lífinu.
23. september - 22. október G
Vog Allt samstarf byggist á samkomu-
lagi og málamiðlunum. Þig hefur lengi
langað til að taka þér frí og fara ein/n í
ferðalag. Nú er lag.
23. október - 21. nóvember H
Sporðdreki Það er til lítils að hafa
mörg orð um hlutina ef þeim fylgja
engar athafnir. Hugsaðu þig því vel um
áður en þú kaupir eitthvað.
22. nóvember - 21. desember I
Bogmaður Þú stendur á krossgötum
og það skiptir óvenju miklu máli að þú
veljir rétta leið fyrir þig. Það er í lagi að
gera ekki neitt.
22. desember - 19. janúar J
Steingeit Þú hefur afkastað ákaflega
miklu að undanförnu og átt því skilið að
taka þér smá frí. Smá flensa er líkleg á
heimilinu næstu daga.
20. janúar - 18. febrúar K
Vatnsberi Þetta er góður tími til að
bæta fyrir gamlar syndir. Ekki láta segja
þér fyrir verkum, þú ert stjórnandinn í
þínu lífi.
19. febrúar - 20. mars L
Fiskar Gærdagurinn var ekki sá besti
en horfurnar eru mun betri í dag. Taktu
eftir hvað allt verður auðveldara þegar
þú ert jákvæð/ur gagnvart hlutunum.
Ingibjörg Björnsdóttir listdanskennari – 80 ára
Dansar enn í sýningum
I
ngibjörg Björnsdóttir er fædd
12. desember 1942 á Reyni-
melnum í Reykjavík og ólst
upp í miðbænum og síðan í
Stórholtinu.
„Frá unga aldri var ég mörg
sumur á Flateyri við Önundarfjörð
í umsjá föðursystur minnar, Maríu
Jóhannsdóttir. Þar bjuggu börn
hennar tvö og líka amma mín,
Guðrún Torfadóttir. Þetta var eftir-
minnilegur og skemmtilegur tími í
hlýjum faðmi föðurfjölskyldunnar
og ég hef alltaf sterkar taugar til
Flateyrar.“
Haustið 1953 fór Ingibjörg í
Listdansskóla Þjóðleikhússins og
þar var hún við nám og dans í sjö ár.
Eftir barnaskóla lá leiðin í Kvenna-
skólann í Reykjavík og útskrifaðist
hún þaðan árið 1959. „Þótt ég væri
mjög ánægð í Kvennó snerust þessi
ár fyrst og síðast um dansinn.
Fljótlega fór ég að taka þátt í sýn-
ingum, bæði sérstökum listdans-
sýningum og sýningum leikhússins
þar sem dans var hluti af verkinu.
Erik Bidsted var ballettmeistari
Þjóðleikhússins og Lisa Kæregaard
dansari, kona hans, varð fyrirmynd
okkar stúlknanna í skólanum. Piltar
voru ekki margir en þó nokkrir og
þar bar af Helgi Tómasson. Þessi
ár í Þjóðleikhúsinu voru einstök og
ómetanlegt að fá tækifæri til að taka
þátt í þessu ævintýri.“
Haustið 1960 fór Ingibjörg til
Edinborgar og ætlunin var að vera í
enskutímum, ná viðunandi tökum á
því tungumáli. „Mamma mín var að
hluta af skoskum ættum og því varð
þessi borg valin. Við leituðum einnig
að ballettskóla svo að ég gæti haldið
mér í æfingu á meðan. Útkoman
var sú að ég sótti líklega fimm eða
sex enskutíma en var í fullu námi
í ballettskólanum og í stað þriggja
mánaða var ég þar í þrjú frábær ár
og tók próf bæði í klassískum list-
dansi og nútímadansi auk kennara-
þjálfunar.“
Eftir heimkomuna kenndi Ingi-
björg ballett nokkra eftirmiðdaga í
viku auk þess að vinna skrifstofu-
störf. Ári síðar var hún beðin um
að aðstoða enskan ballettmeist-
ara leikhússins við kennsluna í
Listdansskóla Þjóðleikhússins og
kenndi þar, mismikið, í mörg ár.
„Ballettmeistarar komu og fóru
og ég hélt áfram kennslunni en
árið 1973 urðu þau stórtíðindi að
stofnaður var atvinnudansflokkur,
Íslenski dansflokkurinn. Stefnt
hafði verið að þessu marki í mörg
ár, en ef ekki hefði komið til áhugi
og eldmóður Sveins Einarssonar
þjóðleikhússtjóra hefði flokkurinn
líklega ekki orðið til að minnsta
kosti ekki á þessum tíma. Dans-
flokkurinn efldist að styrk og færni
með aukinni þjálfun og erfiðum
verkefnum. Ég hélt mér við með því
að sækja þjálfunartíma dansarana
og dansaði með í mörgum sýningum
á fyrstu árum flokksins, auk þess
að semja hreyfingar og dansa fyrir
leiksýningar öðru hverju.“
Fyrsta dansverk Ingibjargar,
Frostrósir, samdi hún árið 1968,
við tónlist eftir Magnús Blöndal
Jóhannsson. Hún samdi líka nokkur
verk fyrir Íslenska dansflokkinn
á fyrstu áratugum hans, m.a.
Sæmund Klemensson við tónlist og
undirleik Þursaflokksins sem var
líka sýnt í Svíþjóð og Noregi.
„Fyrstu stjórnendur flokksins,
listdansstjórarnir, voru erlendir. Eitt
árið var það rússnesk kona Natalia
Conjus, sem sviðsetti tvær glæsi-
legar listdanssýningar og það var
hún sem kom því til leiðar að greina
flokkinn og skólann að og skipa
sérstakan skólastjóra.“ Ingibjörg
var ráðin skólastjóri Listdansskóla
Þjóðleikhússins frá 1. janúar 1977.
Skólinn varð síðar að sjálfstæðum
skóla, Listdansskóla Íslands. Þá
flutti hann og raunar líka dansflokk-
urinn úr Þjóðleikhúsinu að Engja-
teigi 1 í Reykjavík. „Eftir sex ár við
þessar nýju aðstæður þótti mér
eiginlega nóg komið enda búin að
vera skólastjóri og kenna alltaf fulla
kennslu í næstum 20 ár. En ég er
óendanlega þakklát fyrir öll þessi ár
og að fá tækifæri til að kynnast öllu
þessu unga fólki sem sótti skólann.“
Síðan fór Ingibjörg í sagnfræði í
Háskóla Íslands og lauk BA og MA
prófum með skrifum um dans hér á
landi. „Ég naut þess að vera komin á
skólabekk. Eftir sagnfræðina var ég
stundakennnari í Listdansskólanum
í nokkur ár og er enn í dag kölluð
inn stöku sinnum í forfallakennslu
og var svo heppin að fá að taka þátt
í sýningu Íslenska dansflokksins,
Ball, og hef því undanfarið verið að
dansa á sviði.
Áhugamál, sem sat algerlega á
hakanum um langt skeið, varðaði
dansa fyrri tíma. Nú var komið
tækifæri til að afla mér meiri þekk-
ingar á eldri dönsum og eiginlega
sameina sagnfræðina og dansinn.
Á seinni árum hef ég kennt dansa
frá ýmsum tímabilum meðal annars
í Listaháskóla Íslands og einnig til
sýninga til dæmis á tónleikum.“
Ingibjörg sat í stjórn Íslenska
dansflokksins um árabil og hefur í
tvígang verið formaður Félags ís-
lenskra listdansara og verið í stjórn
Bandalags íslenskra listamanna og í
fulltrúaráði Listahátíðar í Reykjavík
um skeið. Í átta ár var hún í stjórn
Norrænu leiklistar- og dansnefndar-
innar og á þeim tíma sótti hún
fjöldann allan af námskeiðum og
ráðstefnum á Norðurlöndunum.
Einnig var hún einn af stofnendum
og um tíma formaður Íslenska dans-
fræðafélagsins sem er þátttakandi
í Nofod, Nordisk forum for dansfor-
skning.
Ingibjörg er heiðursfélagi í Félagi
íslenskra listdansara og fékk Fálka-
orðuna árið 2012 og heiðursverðlaun
Grímunnar árið 2020.
„Nú í dag sinni ég ýmsum áhuga-
málum, til dæmis útivist og jóga. Við
Árni ferðuðumst mikið og enn er ég
alltaf tilbúin ef dætur mínar stinga
upp á spennandi ferðalagi.“
Jól í París Ingibjörg, ásamt dætrum sínum, tengdasyni og barnabörnum
árið 2014. Ámyndina vantar Árna, elsta barnabarnið.
Dansarinn Ingibjörg Björnsdóttir.