Morgunblaðið - 30.12.2022, Qupperneq 1
INNRÁSIN
MISTEKIST
HERFILEGA
STRÍÐ Í ÚKRAÍNU 14
ELJA Í HÖRPU Í KVÖLD
GRÆSKULAUS GLEÐI 28
ÞURFTI AÐ
SETJA BLÝ Í
HNAKKINN
GUÐRÚN SJÖTUG 24
• Stofnað 1913 • 306. tölublað • 110. árgangur •
FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022
Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is
Óskum viðskiptavinum og landsmönnum öllum
gleðilegs árs með þökk fyrir viðskiptin.
Gleðilegt nýtt ár!
Lögregla fær að
nota rafvarnarvopn
Jón Gunnars-
son dóms-
málaráðherra
hefur ákveðið
að heimila
lögreglu að
hefja undirbún-
ing að því að
taka í notkun
rafvarnarvopn.
Þetta kemur
fram í aðsendri
grein ráðherra í Morgunblaðinu í
dag. Þar segir að áður en lög-
reglumönnum verði leyft að bera
rafvarnarvopn muni þeir ljúka
tilhlýðilegri þjálfun. Þá verði
settar ítarlegar verklagsreglur
um beitingu vopnanna. Jón telur
að vopnin verði árangursríkt
tól við að draga úr slysa- og
meiðslahættu.
Ólafur Örn Bragason, for-
stöðumaður Menntaseturs
lögreglunnar og fulltrúi í fram-
kvæmdastjórn Embættis ríkis-
lögreglustjóra, segir að miðað við
að reglunum verði breytt núna
og allt gangi að óskum gæti liðið
allt að hálft ár áður en íslenskir
lögreglumenn fara að nota raf-
varnarvopn, gangi útboð um kaup
á vopnunum greiðlega. Því getur
verið að fyrstu rafvarnarvopnin
verði tekin í notkun eftir næstu
páska.» 10 & 15
Jón Gunnarsson
Stærsti sigurinn í 67 ára sögu kjörsins á íþróttamanni ársins
Ómar vannmeð yfirburðum
Handknattleiksmaðurinn Ómar Ingi Magnús-
son var í gærkvöld kjörinn íþróttamaður ársins
2022 af Samtökum íþróttafréttamanna og hlaut
þar með þennan eftirsótta titil annað árið í
röð. Ómar vann kjörið með mestu yfirburðum
í 67 ára sögu þess en hann hlaut 615 stig af
620 mögulegum og fékk 339 stigum meira en
knattspyrnukonan Glódís Perla Viggósdóttir
sem hafnaði í öðru sæti. Í þriðja sæti varð síðan
Gísli Þorgeir Kristjánsson handknattleiks-
maður, samherji Ómars Inga hjá Magdeburg í
Þýskalandi.
Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvenna-
landsliðsins í handknattleik, var kjörinn þjálf-
ari ársins og karlalið Vals í handknattleik var
kjörið lið ársins 2022.» 26-27
Morgunblaðið/Hákon
Úrvinnslugjald
hækkar um áramót
Hækkanir verða um áramótin á
úrvinnslugjaldi sem lagt er á inn-
fluttar vörur við tollafgreiðslu og
á innlenda framleiðslu og auk þess
verður gjaldið lagt á fleiri vöru-
flokka en áður. Breytingarnar eru
liður í innleiðingu hringrásarhag-
kerfis. Í sumum tilvikum tekur
breytingin gildi 1. mars nk. Gjald á
umbúðir úr plasti hækkar úr 30 kr./
kg í 82 kr./kg og úr pappír og pappa
úr 22 kr./kg í 42 kr./kg. Þá verður frá
og með áramótum lagt 15 þúsund
króna úrvinnslugjald á ökutæki
við nýskráningu hvers ökutækis
óháð orkugjafa og lagt verður
úrvinnslugjald, alls 27 krónur, á kíló
af blautþurrkum, tóbaksvörum með
filterum, blöðrur og fleiri einnota
plastvörur svo dæmi séu tekin.
Benedikt S. Benediktsson,
lögfræðingur SVÞ, segir í samtali
við Morgunblaðið að verið sé að
innleiða Evrópuregluverk, sem
hafi ekki enn tekið gildi, og sé Ís-
land í raun tveimur árum á undan
öðrum Evrópuþjóðum að innleiða
breytingarnar. » 6
Pelé er látinn
Brasilíumaðurinn
Pelé, sem jafnan er
talinn einn af fræknustu
knattspyrnumönnum
sögunnar, lést í gær, 82
ára að aldri.
Pelé varð þrisvar
heimsmeistari með
brasilíska landsliðinu,
1958, 1962 og 1970. Hann
skoraði 1.281 mark í
alls 1.363 leikjum á glæstum ferli. Hann
heimsótti Ísland árið 1991 og hitti unga
knattspyrnuiðkendur víða um land.
Pelé
Stjórnir Ísfélags Vestmannaeyja hf. og
Ramma hf. í Fjallabyggð hafa skrifað undir
samkomulag um samruna félaganna undir
nafninu Ísfélagið hf.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins má
ætla að núverandi eigendur Ísfélagsins muni
eiga um 2/3 hluta í sameiginlegu félagi á móti
núverandi eigendum Ramma.
Heildaraflahlutdeild sameinaðs félags
verður tæplega 8% af úthlutuðu aflamarki.
Samanlögð velta félaganna var um 28 millj-
arðar króna á árinu 2021.
Aðspurður segir Einar Sigurðsson, stjórn-
armaður í Ísfélaginu, að óformlegar þreifingar
hafi átt sér stað á undanförnum mánuðum.
Hann segir að niðurstaðan hafi verið sú að
farsælt væri að sameina félögin. Þá segir Ein-
ar að skrá eigi félagið á hlutabréfamarkað.
Farsælt að
sameina
félögin
lSamruni Ísfélagsins
og Ramma ákveðinn
Gísli Freyr Valdórsson
Þóroddur Bjarnason
Ísfélagið og Rammi sameinast » 12
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Handtak Ólafur Marteinsson og Einar Sig-
urðsson handsala sameininguna.