Morgunblaðið - 30.12.2022, Blaðsíða 22
Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Útboð vetrarþjónustu
í Súðavík
Súðavíkurhreppur auglýsir útboð á vetrarþjónustu í
Súðavík.
Tilboðsfrestur er til kl. 12:00 þann 5. janúar 2023.
Útboðsfundur verður haldinn 5. janúar 2023
kl. 13:00 í Álftaveri, Grundarstræti 1 í Súðavík.
Útboðum má skila rafrænt á jbh@verkis.is og
bragi@sudavik.is eða til skrifstofu Súðavíkurhrepps.
Nánari upplýsingar um útboð á heimasíðu
Súðavíkurhrepps á sudavik.is en einnig fást frekari
upplýsingar hjá byggingafulltrúa Súðavíkurhrepps,
Jóhanni Birki (jbh@verkis.is s. 898 3772) og sveit-
arstjóra Súðavíkurhrepps (bragi@sudavik.is).
Félagsstarf eldri borgara
Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Hádegismatur
kl. 11.30-12.30. Kaffisala kl. 14:45-15.30. Allir velkomnir. Sími: 411-
2600.
Boðinn Opið fyrir mat, félagsstarf er í jólafríi. Gleðilegt nýtt ár.
Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 10:00-11:00.
Hádegismatur kl. 11:30-12:30. Lokum kl. 14:00.
Gerðuberg Opnunartímar yfir hátíðarnar: kl. 10:00 - 15:00
Gjábakki Opin handavinnustofa kl. 8.30 til 14.
Gullsmári Opið fyrir mat og kaffi, félagsstarf er í jólafríi. Gleðilegt
nýtt ár.
Vantar þig
fagmann?
FINNA.is
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
.Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
.Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
.Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
.Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
.Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Sendibílar
Iveco S35 Ekinn 11900 km sk
11.2021
Mercedes Benz 314 CDi 19500 km
sk 11.2021
Toyota Proace stuttur Ekinn 26900
km 08.2019
Renault Master Ekinn 92 þ km
04.2019
Renault Trafic Ekinn 41 þ. km
04.2019
Ford Transit með kassa og lyftu
3500 kg. Ekinn 106 þ.km 12.2018
Uppl. 8201071
kaldasel@islandia.is
✝
Sæmundur
Jónsson fædd-
ist 25. október
1948 í Reykjavík.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urlands á Selfossi
16. desember 2022.
Foreldrar Sæ-
mundar voru Jón
Árnason, f. 12.8.
1926, d. 10.4. 1998,
bóndi á Bala,
Þykkvabæ, og Svava Þuríður
Árnadóttir, f. 9.6. 1927, d. 17.2.
2021, húsmóðir.
Systkini Sæmundar eru: Guð-
rún, f. 12.4. 1944, d. 28.11.
1997; Árni, f. 9.6. 1950; Mar-
grét, f. 16.2. 1952; Ragnheiður,
f. 26.4. 1954, d. 30.10. 2019; El-
ín, f. 4.6. 1956; Loftur Andri, f.
18.9. 1957; Pálmi,
f. 11.11. 1958.
Hann kvæntist
eftirlifandi eigin-
konu sinni, Þór-
unni Ragnars-
dóttur, f. 17.7.
1945, hinn 8. októ-
ber 1967. Þau eign-
uðust tvær dætur,
Sigríði Þórdísi, f.
12.1. 1968, og Þór-
unni Svövu, f. 7.11.
1970. Barnabörnin eru fimm:
Birna, Þórunn Dís, Oddný
Ragna, Sæmundur Friðrik og
Arndís Fjóla, og tvö langafa-
börn, Aldís Berglind og Loclan
Safír.
Útför hans verður frá Ár-
bæjarkirkju í Holtum í dag, 30.
desember 2022, klukkan 13.
Afi Sæmundur ólst upp á
Bala í Þykkvabæ. Fór ungur til
sjós við Reykjanes og var þar
nokkur misseri. Vann svo við
að leggja raflínur á Norður-
landi. Kom þá aftur suður og
hóf nám í bifvélavirkjun í Iðn-
skólanum á Selfossi og lauk því
sem bifvélavirkjameistari 1975.
Vann hann einnig sem vörubíl-
stjóri með eigin rekstur á
vörubílstjórastöðinni Þrótti í
Reykjavík. Hann stundaði
einnig smá búskap með sauðfé
og undi hag sínum vel þar.
Honum þótti fátt skemmti-
legra en að keyra og flestallt
sem viðkom vélum og tækjum.
Manngæska hans kom til dæm-
is þannig fram að alltaf ef
hann sá bíl bilaðan úti í kanti,
stoppaði hann og vildi hjálpa
til og reyna að laga ef hægt
var. Amma sagði mér oft sög-
una af því þegar fjölskyldan
var á ferðalagi um landið og afi
sér rútu stopp úti í kanti.
Hann fór til að kíkja á hvað
væri að og konurnar í fjöl-
skyldunni voru löngu orðnar
vanar þessum stoppum. En
það sem lét ömmu setja í
brýrnar í þetta skiptið var að
sjá á eftir honum undir rútuna
í glænýja hvíta jakkanum sem
keyptur var fyrir ferðalagið.
Afiiii. Við barnabörnin sögð-
um þetta með ákveðnum syngj-
andi hljómi og með því gáfum
við þessu orði alla okkar ást og
væntumþykju. Hann svaraði
okkur alltaf með ást og enda-
lausri þolinmæði. Hann skipti
ekki skapi við okkur sama hvað
við gerðum af okkur, nema
kannski einu sinni eða tvisvar,
en þá áttum við það sannarlega
skilið.
Við smituðumst fljótt af
veiðidellunni sem átti hug hans
allan á milli þess að keyra eða
laga bíla. Það sem hann var
boðinn og búinn að laga flækt
veiðihjól eða losa fasta spúna
einhvers staðar úti í vatni.
Afi var besta fyrirmynd sem
hægt var að finna. Hann var
ofurhetjan okkar allra og fyrir
okkur gat hann bókstaflega
allt. Nema borða kjúkling, það
fannst okkur agalega fyndið.
Þolinmæðin gagnvart okkur
var með ólíkindum þar sem oft
eltum við hann um allt hús.
Þetta gekk jafnvel svo langt að
þegar Oddný var að taka sín
fyrstu skref lá henni svo á að
elta hann að hún datt og braut
í sér framtennurnar.
Ég minnist þess sérstaklega
að þegar hún datt og fótbrotn-
aði veit hún hreinlega ekki
hvort þeirra fann meira til; ég
í fætinum eða hann afi í afa-
hjartanu sínu.
Afi – heimurinn er tómlegur
án þín hér.
Þórunn Dís
Þórunnardóttir.
Oddný: Já, hann afi kenndi
okkur margt. Bæði í anda og
verki, því hann var svo ein-
stakur maður í alla staði. Þol-
inmæði, góðmennska, dugnað-
ur og kunnátta. Við erum öll
einstaklingarnir sem við erum
í dag, að stórum hluta þökk sé
honum. Ég vildi óska þess að
sonur minn hefði fengið tæki-
færi til þess að kynnast ástinni
sem hann gaf okkur frá okkar
fyrstu augnablikum, og heiti
því að gera mitt besta við að
ala Lochlan upp með sömu lífs-
gildi og hann ól í okkur. Ég
mun sjá til þess að hann fái að
heyra allt um hvað langafi
hans var yndislegur maður og
enn betri afi, því ég get ekki
hugsað mér að einhver fái að
gleyma honum. Stundum var
afi ekki maður margra orða, en
þrátt fyrir það þá leyfði hann
okkur alltaf að tala, þó það
væri stundum svolítið mikið.
Samanber bílferð sem við tók-
um saman frá Reyðarfirði, alla
leið heim á Hellu. Ég held ég
hafi talað af honum eyrað í
þessari ferð, og hann var upp-
gefinn á mér þegar heim var
komið, en hann bað mig ekki
einu sinni um að hætta að tala,
og svaraði öllum fáránlegu
spurningunum sem ultu út úr
mér. Ég mun geyma þig alla
ævi, elsku afi, og hlakka til
þess að minn tími komi, bara
svo ég geti knúsað þig aftur.
Sæmi: Við afi brölluðum
margt saman, enda fylgdi ég
honum eins og hundur, sama
hvað, þó það væri kannski ekki
alltaf hjálplegt. Afi var alltaf
númer eitt hjá mér, og ég vildi
læra allt sem hann kunni.
Þrátt fyrir að húsverkin tækju
mun lengri tíma með mig í eft-
irdragi, þá leyfði hann mér
nánast alltaf að koma með, og
minningarnar eru endalausar.
Ég var stundum erfiður, og
prakkarastrikin stundum
svæsin, en aldrei skammaði
hann mig með illindum. Ég
held ég gleymi seint, ef þá
nokkurntíma, því sem hann
hefur kennt mér og kem ég til
með að minnast hans í hvert
skipti sem ég tek upp veiði-
stöng eða vesenast í bílum.
Elsku afi, takk fyrir allt, ég
gleymi þér aldrei og mun alltaf
sakna þín.
Arndís: Ég fékk því miður
ekki tækifæri til þess að kynn-
ast afa jafn vel og hin barna-
börnin því ég var bara ellefu
ára þegar við fluttum til Kan-
ada, en ég get alveg tekið und-
ir allt sem þau hafa að segja.
Afi var fullur af ást og þol-
inmæði gagnvart okkur og
vildi allt fyrir okkur gera.
Hann gaf okkur til dæmis öll-
um kindur, þó svo hann sæi al-
veg um þær, og við montuðum
okkur öll af því við skólafélaga
okkar, með stolti. Þrátt fyrir
fjarlægðina, þá fann ég alltaf
fyrir ástinni og mun varðveita
hana um alla mína daga. Elsku
afi, hvíldu í friði.
Afi, heimurinn er tómlegur
án þín og við söknum þín sárt.
Þín barnabörn,
Oddný Ragna,
Sæmundur Friðrik,
Arndís Fjóla og
Birna Arnarsbörn.
Sæmundur
Jónsson
✝
Kjartan Blön-
dal fæddist í
Reykjavík 28. sept-
ember 1935. Hann
lést á hjúkrunar-
heimilinu Seltjörn
21. desember 2022.
Foreldrar hans
voru Ilse Luchter-
hand Blöndal, fædd
í Danzig 17. ágúst
1903, d. 17. ágúst
1987 og Ragnar
Halldór Blöndal forstjóri, fædd-
ur í Winnipeg, Kanada 3. maí
1901, d. 29. júní 1943.
Systur Kjartans eru Valdís, f.
17. febrúar 1928, gift Birgi Frí-
mannssyni, f. 14. apríl 1926, d.
24. janúar 2001, og Hanna
Soffía, f. 13. september 1933, d.
31. október 2008, gift Herði Frí-
mannssyni, f. 15. nóvember
1927, d. 6. desember 2015.
Eiginkona Kjartans var Þóra
Blöndal, f. 26. júlí 1936, d. 28.
febrúar 2018. Þau gengu í
hjónaband 29. september 1956.
Börn þeirra eru: 1) Svanhildur,
f. 16. janúar 1957. Maki: Júlíus
dóttur. Unnur Lilja, f. 14. októ-
ber 1981, maki: Elís Már Kjart-
ansson, f. 16. ágúst 1978. Þau
eiga þrjú börn. Þórdís Anna, f.
9. janúar 1992, maki: Aron
Bergsson, f. 3. maí 1988. Hún á
tvö börn. Benedikt Ari, f. 13.
ágúst 1995, maki: Kolfinna
Katla Jóhannesdóttir, f. 24.
mars 1987.
Kjartan lauk prófi frá Versl-
unarskóla Íslands árið 1955. Að
námi loknu hóf hann ásamt
bekkjarbróður sínum útflutning
á ferskum sjávarafurðum til
Hollands. Árið 1961 stofnaði
hann ásamt mági sínum steypu-
stöðina og verktakafyrirtækið
Verk hf. og var fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins til
ársins 1974. Árið 1977 var
Kjartan ráðinn framkvæmda-
stjóri Sauðfjárveikivarna og
sinnti því starfi til ársins 1995.
Samhliða rak hann eigið fast-
eignafélag. Kjartan og Þóra
bjuggu í Efstaleiti 14. Þau áttu
um árabil einnig annað heimili í
Flórída í BNA. Síðustu árin
dvaldi Kjartan á hjúkrunarheim-
ilinu Seltjörn.
Útför Kjartans Blöndals fer
fram frá Seltjarnarneskirkju, í
dag, 30. desember 2022, kl. 13.
Vífill Ingvarsson, f.
18. júní 1951. Börn
þeirra eru Helgi
Vífill, f. 15. maí
1983, maki Elísabet
Jónsdóttir, f. 7.
ágúst 1976, börn
þeirra eru Viktor
Vífill, f. 2015, og
Áslaug Marta, f.
2018. Gunnar, f. 5.
október 1988, maki:
Birna Þorvalds-
dóttir, f. 2. ágúst 1989. Dóttir
þeirra er Droplaug, f. 2022. Íris
Þóra, f. 5. október 1988, maki:
Guðjón Örn Ingólfsson, f. 23.
september 1983. Sonur þeirra er
Júlíus Ingi, f. 2015. Sonur Júl-
íusar Vífils er Halldór Kristinn,
f. 30 júlí 1972, maki: Ólöf Huld
Helgadóttir, f. 26. mars 1974.
Þau eiga fjögur börn. 2) Ragnar
Halldór Blöndal, f. 13. nóvember
1961, maki: Ari Blöndal Egg-
ertsson, f. 17. september 1959.
Börn Ara eru Sigríður Didda, f.
24. janúar 1979, maki: Matthías
Freyr Matthíasson, f. 1. febrúar
1980. Hún á tvö börn og stjúp-
Tengdafaðir minn Kjartan
Blöndal hefur nú lagt í sína
hinstu för. Hann skilur eftir sig
margar ljúfar minningar og
söknuð hjá okkur sem kynnt-
umst honum á langri lífsleið.
Þegar litið er yfir uppvöxt og
ævi Kjartans má sjá að hann tók
mannkosti beggja foreldra sinna
með sér inn í lífið. Áhugann á
ferðalögum og ólíkum menning-
arheimum sótti hann til móður
sinnar, Ilse, sem fædd var í Dan-
zig og uppalin í Cottbus. Hún
var hispurslaus en grandvör og
kurteis og þá góðu eiginleika til-
einkaði Kjartan sér í mannlegum
samskiptum. Kjartan var aðeins
sjö ára þegar faðir hans, Ragnar
Halldór Blöndal, lést óvænt eftir
skammvinn veikindi. Ragnar var
djarfur og útsjónarsamur við-
skiptamaður sem vegnaði vel.
Það orð fór af honum að hann
væri bæði heiðarlegur og orð-
heldinn. Eðliskostir Ragnars
voru syni hans fyrirmynd alla
tíð.
Kjartan lauk prófi frá Verzl-
unarskóla Íslands árið 1955 og
fór að því loknu í framhaldsnám
í Þýskalandi. Í Verslunarskólan-
um kynntist hann lífsförunauti
sínum, Þóru Sigurðardóttur, sem
stundaði nám í sama skóla og
hún lauk prófi þaðan árið 1956.
Þau gengu í hjónaband sama ár
og voru sem eitt, fallega sam-
rýnd alla ævi, eða þar til Þóra
lést árið 2018.
Að námi loknu hóf Kjartan
ásamt skólabróður sínum út-
flutning á ferskum sjávarafurð-
um flugleiðina til Amsterdam.
Þetta var brautryðjandastarf
sem keyrt var áfram af dirfsku
en mætti ýmsum ófyrirséðum
hindrunum. Til Hollands flutti
Kjartan með Þóru og litlu dótt-
urina Svanhildi. Þarna kom sér
vel að Kjartan talaði óaðfinn-
anlega þýsku en að hans sögn
komst hann lítið áfram í við-
skiptum við Hollendinga fyrr en
viðsemjendur fengu að vita að
hann væri íslenskur.
Andstreymið sem útflutningur
sjávarafurða mætti dró ekki úr
einbeittum vilja Kjartans að
koma undir sig fótunum og
verða sjálfstæður í atvinnu-
rekstri. Um leið og heim var
komið stofnaði hann ásamt mági
sínum, verkfræðingnum Birgi
Frímannssyni, verktakafyrirtæk-
ið Verk hf. Þeir mynduðu öflugt
teymi. Fyrirtækið óx og var m.a.
með fyrstu sjálfvirku steypustöð
landsins og framleiddi steyptar
húseiningar, sem var nýjung
hérlendis.
Eftir að þeir Birgir ákváðu að
hætta sameiginlegum rekstri tók
Kjartan að sér starf fram-
kvæmdastjóra Sauðfjárveikiv-
arna og sinnti því í 18 ár. Þegar
Kjartan leit yfir farinn veg sagði
hann gjarnan að skemmtilegast
hefði honum þótt að fara um
sveitir landsins á vegum Sauð-
fjárveikivarna og kynnast fegurð
íslenskrar náttúru og eignast
vini úr bændastétt. Hesta-
mennskan átti hug Kjartans um
þessar mundir en slæm bylta
batt enda á það áhugamál.
Um áratug var Pompano
Beach á Flórída annað heimili
þeirra hjóna. Þau kunnu vel að
meta milt loftslagið en þó ekki
síður vingjarnlegt viðmót þeirra
sem þau kynntust á þessum
slóðum. Á golfvellinum kynntist
Kjartan góðum vinum. Þarna
held ég að þau Þóra og Kjartan
hafi átt sínar bestu stundir.
Við kveðjum Kjartan og þökk-
um gefandi samverustundir með
honum þar sem kímnigáfa hans
og frásagnargleði fengu að njóta
sín. Blessuð sé minning hans.
Júlíus Vífill
Ingvarsson.
Kjartan Blöndal