Morgunblaðið - 30.12.2022, Blaðsíða 18
18 MESSUR
um áramót
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022
✝
Magnús Vignir
Pétursson
fæddist í Skerjafirði
31. desember 1932.
Hann lést á Land-
spítalanum við
Hringbraut 9. des-
ember 2022
Foreldrar hans
voru Pétur J. Guð-
mundsson trillukarl
í Skerjafirði, f. 1.1.
1903, d. 8.9. 1992,
og Sigurbjörg Jóna Magn-
úsdóttir húsfreyja, f. 1.9. 1905, d.
7.12. 1977.
Bróðir Magnúsar var Gunnar
C. Pétursson, f. 2.2. 1930, d. 4.2.
2020. Gunnar var kvæntur Þór-
eyju Hannesdóttur, f. 5.4. 1934, d.
13.4. 1994.
Magnús kvæntist 4. júlí 1959
Eyþóru Valdimarsdóttur, f. 3.4.
1936. Foreldrar Eyþóru voru
Valdimar Þorsteinsson húsa-
smíðameistari, f. 8.12. 1905, d.
30.7. 1970, og Ólöf Ingvarsdóttir
verslunarstjóri þar. Hann var síð-
ar sölumaður hjá Verksmiðju
Magnúsar Víglundssonar. Árið
1965 stofnaði hann heildversl-
unina Hoffell sem hann rak alla
tíð. Árið 1999 stofnaði ásamt
Valdimari syni sínum Knatt-
spyrnuverslunina Jóa útherja.
Verslunin keypti síðan Hoffell af
Magnúsi árið 2005. Magnús hætti
svo kaupmennsku þegar Valdi-
mar keypti hlut hans fyrir um
átta árum.
Magnús hóf ungur þátttöku í
íþróttum, var einn af stofnendum
Knattspyrnufélagsins Þróttar ár-
ið 1949, hann tók svo dómarapróf
1950, varð landsdómari 1956 og
alþjóðlegur FIFA-dómari 1965.
Hann starfaði sem dómari í 30 ár
og dæmdi víða um lönd. Magnús
dæmdi einnig handknattleik og
var með alþjóðleg réttindi í þeirri
grein.
Magnús var sæmdur gull-
merki Þróttar, KSÍ, ÍBR og KRR
fyrir störf sín. Hann var útnefnd-
ur heiðursfélagi Þróttar á gaml-
ársdag 2021 og var heiðursfélagi
nr. 1 í Liverpoolklúbbnum á Ís-
landi.
Útförin fer fram í Neskirkju í
dag, 30. desember 2022, klukkan
13.
húsfreyja, f. 5.10.
1912, d. 7.8. 2000.
Börn Magnúsar
og Eyþóru eru:
Kristín Magn-
úsdóttir, f. 31.12.
1955, maki Guð-
mundur Alfreðsson,
f. 10.6. 1954, börn
þeirra: Magnús, f.
1978, og Sigríður, f.
1983, Jóhanna
Björg Magn-
úsdóttir, f. 12.8. 1959, Valdimar
P. Magnússon, f. 20.6. 1964, maki
Bára Guðmundsdóttir, f. 21.3.
1972, börn þeirra: Jón Ágúst, f.
1988, Anton Elí, f. 1993, Eyþór
Tumi, f. 1997, og Inga Lára, f.
2000.
Magnús ólst upp í Skerjafirði,
byrjaði snemma að vinna, eða
átta ára gamall sem sendisveinn
á Kaffi Höll og síðan hjá Lands-
bankanum. Eftir að hafa lokið
landsprófi hóf hann störf hjá
Kron við Fálkagötu og varð síðar
Allt er í heiminum hverfult. Sím-
hringing barst um að þú ættir stutt
eftir ólifað. Við mannanna börn er-
um öll dauðleg og andlátið kom inn-
an skamms. Sólarhring síðar sat á
ég á móti einum magnaðasta dul-
miðli landsins sem kom þrenns
konar skilaboðum til mín. Guð-
mundur vinur minn í Vestmanna-
eyjum hafði heyrt á Bylgjunni um
andlát Magga P. Hann dró íslenska
fánann í hálfa stöng. Kona hans,
Guðný, þurfti í kjölfarið að svara
spurningum ýmissa um hvort móð-
ir hennar hefði nokkuð látist. „Nei,
ég er nú bara að flagga fyrir honum
Magnúsi V. Péturssyni, knatt-
spyrnudómara og pabba vinkonu
minnar.“ Fallegt af þeim. Pabbi er
oftast ekki fyrsta orð sem barn
leggur sér í munn en minn var mjög
sérstakur. Það voru ófáar sögurnar
frá barnæsku hans í Skerjafirðin-
um. Í þeim kynntist ég Bíbí æsku-
vinkonu hans, Bonny, Mansa og
Jens á skautunum og fleirum. Sög-
ur sem voru svo skemmtilegar að
ég vildi heyra þær ítrekað. Svo var
sagt: „Jæja, farðu nú í draumaland-
ið með hund í bandi.“ Lítið fór fyrir
faðirvorinu en oft hugsaði ég hvar
Draumalandið væri. Myndin í hug-
anum var skýr: gulllituð bárujárns-
girðing sem umkringdi Melavöll.
Þar eyddi ég hluta æsku minnar.
Ferðirnar með pabba voru ófáar
þangað. Maggi litli P. stofnaði
barnastúkuna Jólagjöf með krökk-
um úr Skerjafirði og Bíbí sagði mér
að þau pabbi hefðu haldið afmælin
sín saman, hans á gamlársdag og
hennar á nýársdag. Þetta hefur átt
við pabba. Hann nærðist á að vera
innan um fólk og var félagslyndur.
Eftirminnileg saga er af strákum
sem teikuðu strætó frá Grímsstaða-
holtinu. Þegar heim var komið á al-
gjörlega hælalausum skóm spurði
amma: „Hvað kom fyrir skóna þína,
Maggi minn?“ Hann svaraði: „Ég
hljóp svo hratt!“ Hinn drengurinn
var Grétar Norðfjörð. Minningarn-
ar um pabba eru ótal margar. Hann
sagði við mig: „Jóhanna mín, ég
man alltaf þegar ég sá þig fyrst, þú
baðaðir út öllum öngum í kassan-
um, varst alveg eins og hálfétinn
kjúklingur.“ Einu sinni þegar ég
kom heim og var búin að klessa á
þá, stóð pabbi á hlaðinu brosandi:
„Mamma er með fiskibollur.“ Ég
svaraði: „Já, einmitt, en ég var að
klessa á!“ Svarað var um hæl: „Það
er allt í lagi.“ Svona gátu pabba-
brandararnir verið, pínu fáránlegir
en sitja í hjartanu. Það var eftir-
minnileg ferð sem fjölskyldan fór til
London þar sem pabbi átti að
dæma leik. Þar vorum við í góðum
félagsskap manna eins og Einars
Hjartarsonar, Eysteins Guð-
mundssonar, Guðjóns Finnboga-
sonar og Vals Ben. Einar keypti lít-
inn sjúkrabíl sem var gjöf handa
litlum tveggja ára afastrák. Eftir
það kallaði ég hann alltaf „afa í
London“ og það viðurnefni festist
við Einar. Nú hefur sá sem öllu
ræður flautað leikinn af. Ég átti
þann „besta“. Takk fyrir allt, elsku
pabbi minn, sæll að sinni, við hitt-
umst að endingu.
Látið, síviti á lönd
líktárin, í kærleika.
Fór flug englaönd
á ferð þar lík reika.
Drottins þýðan sýn
þagnar spori náðar.
Gefur þér gullin sín
gjöf sól á rós náðar.
í sálhofi englar svífa.
(Jóna Rúna Kvaran)
Blessuð sé minning Magnúsar
Vignis Péturssonar.
Þín alltaf,
Jóhanna Björg.
Hvernig kveður maður pabba
sinn sem hefur fylgt manni allt líf-
ið? Skyndilega verður maður lítill
drengur aftur sem þarf faðmlag.
Í dag kveð ég þig eftir stutt veik-
indi. Þú varst ekki bara pabbi minn
heldur líka vinur og samstarfs-
félagi. Það er skrýtin tilvera að
heyra ekki í þér en við töluðum
saman á hverjum degi, en eftir að
þú hættir að koma niður í vinnu var
síminn mikið notaður. Það er skrýt-
in tilfinning að fá ekki símtalið í lok
dags og heyra „jæja, hvernig gekk í
dag“ en þannig byrjuðu flest okkar
símtöl.
Það væri of langt mál að telja til
allar þær góðu stundir sem við átt-
um saman, veiðitúrana þegar ég
var lítill strákur, allar utanlands-
Magnús V.
Pétursson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi,
ÓLAFUR ÓLAFSSON,
Sólvöllum 9,
Selfossi,
sem lést á sjúkrahúsi Selfoss
18. desember, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju
fimmtudaginn 5. janúar klukkan 13.
Sæunn Þorsteinsdóttir
Ólafur Ólafsson Friðrika Sigurgeirsdóttir
Steinar Þór Ólafsson Þuríður Ósk Gunnarsdóttir
Anna Birna Ólafsdóttir Oddgeir Tveiten
Sveinfríður Ólafsdóttir
afa- og langafabörn
Ástkær sambýlismaður og móðurbróðir,
SIGFÚS HALLGRÍMUR ANDRÉSSON,
Stóru-Breiðuvík 2,
fyrrum Helgustaðahreppi,
lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað
19. desember. Jarðsett verður frá
Eskifjarðarkirkju föstudaginn 6. janúar klukkan 14.
Ásta María Herbjörnsdóttir
og systrabörn
Faðir okkar og afi,
EGGERT BRAGI ÓLAFSSON,
Neðra-Ási 3, Skagafirði,
áður til heimilis á Vallarbraut 6,
Reykjanesbæ,
lést á heimili sínu laugardaginn
26. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey
að ósk hins látna.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ólafur Eggertsson
AKRANESKIRKJA | Nýársdagur. Há-
tíðarguðsþjónusta kl. 14. Sr. Ólöf Mar-
grét Snorradóttir þjónar. Organisti er
Hilmar Örn Agnarsson, Tindatríó syng-
ur, einsöngur Björg Þórhallsdóttir. Með-
hjálpari er Helga Sesselja Ásgeirsdótt-
ir.
AKUREYRARKIRKJA | Gamlársdag-
ur. Aftansöngur kl. 18. Prestur er Svav-
ar Alfreð Jónsson. Félagar úr Kór Ak-
ureyrarkirkju syngja. Organisti er Eyþór
Ingi Jónsson.
Nýársdagur. Hátíðarmessa kl. 14.
Prestur er Hildur Eir Bolladóttir. Félagar
úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti
er Sigrún Magna Þórsteinsdóttir.
ÁRBÆJARKIRKJA | Gamlársdagur.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 17. Kór Ár-
bæjarkirkju syngur. Organisti er Guð-
mundu Ómar Óskarsson, sr. Þór
Hauksson þjónar fyrir altari og prédik-
ar.
Nýársdagur. Guðsþjónusta kl. 14. Kór
Árbæjarkirkju syngur. Organisti er Guð-
mundu Ómar Óskarsson. Sr. Þór
Haukssonar þjónar fyrir altari og pré-
dikar.
ÁSKIRKJA | Gamlársdagur. Sameig-
inlegur aftansöngur fyrir Laugardals-
prestakall í Áskirkju kl. 18. Sr. Sigurður
Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari.
Sungnir Hátíðasöngvar séra Bjarna
Þorsteinssonar. Kór Áskirkju syngur.
Organisti er Bjartur Logi Guðnason.
Nýársdagur. Sameiginleg nýársguðs-
þjónusta Laugardalsprestakalls í Laug-
arneskirkju kl. 14. Séra Sigurður Jóns-
son prédikar og þjónar fyrir altari. Kór
Laugarneskirkju syngur. Organisti er El-
ísabet Þórðardóttir.
ÁSTJARNARKIRKJA | Gamlárskvöld.
Aftansöngur kl. 17. Raust syngur undir
stjórn Hrafnhildar Blomsterberg, Erla
Rut Káradóttir spilar á orgel og sr. Bolli
Pétur Bollason þjónar og flytur prédik-
un.
BESSASTAÐASÓKN | Gamlársdag-
ur. Sameiginlegur aftansöngur Garða-
prestakalls í Bessastaðakirkju kl. 17.
Álftanesskórinn syngur, organisti er
Ástvaldur Traustason, Vilborg Ólöf Sig-
urðardóttir djákni og sr. Hans Guðberg
Alfreðsson.
Nýársdagur. Sameiginleg hátíðarguðs-
þjónusta Garðaprestakalls í Vída-
línskirkju kl. 14. Almar Guðmundsson
bæjarstjóri flytur áramótaávarp. Sæ-
rún Rúnudóttir syngur einsöng og kór
Vídalínskirkju syngur, organisti Jóhann
Baldvinsson, sr. Hans Guðberg Al-
freðsson þjónar fyrir altari.
BORGARNESKIRKJA | Gamlársdag-
ur. Aftansöngur kl. 18.
BÚSTAÐAKIRKJA | Gamlársdagur.
Aftansöngur kl. 18. Kammerkór Bú-
staðakirkju syngur undir stjórn Jónasar
Þóris kantórs. Gréta Hergils Valdimars-
dóttir sópran og Sæberg Sigurðsson
baritónn syngja einsöng, Gunnar Kr.
Óskarsson leikur á trompet. Sr. Eva
Björk Valdimarsdóttir prédikar og þjón-
ar fyrir altari, ásamt messuþjónum.
Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
13. Kammerkór Bústaðakirkju syngur
undir stjórn Jónasar Þóris kantórs.
Séra Þorvaldur Víðisson prédikar og
þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum.
DIGRANESKIRKJA | Gamlársdagur.
Aftansöngur kl. 16, ath. tímann. Sr. Al-
freð Örn Finnsson þjónar. Organisti er
Sólveig Sigríður Einarsdóttir. Kammer-
kór Digraneskirkju leiðir safnaðarsöng-
inn.
DÓMKIRKJAN | Gamlársdagur. Aftan-
söngur, Sveinn Valgeirsson sóknar-
prestur Dómkirkjunnar prédikar og
þjónar fyrir altari. Guðmundur Sigurðs-
son organisti og Dómkórinn.
Nýársdagur. Hátíðarmessa kl. 11.
Biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðar-
dóttir prédikar og séra Sveinn Valgeirs-
son þjónar fyrir altari. Guðmundur Sig-
urðsson organisti og Dómkórinn.
Einnig verður flutt barokktónlist í guðs-
þjónustunni. Flytjendur: Sólveig Stein-
þórsdóttir, Ísak Ríkharðsson, Ásta
Kristín Pjetursdóttir, Geirþrúður Anna
Guðmundsdóttir, Nicky Swett, Halldór
Bjarki Arnarson.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Gamlárs-
dagur. Aftansöngur kl. 16. Sönghópur-
inn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunn-
arssyni, organista, leiða
safnaðarsöng. Dr. Sigurvin Lárus leiðir
stundina.
GRAFARVOGSKIRKJA | Gamlárs-
dagur. Aftansöngur kl. 18. Sr. Sigurður
Grétar Helgason þjónar ásamt Bjarka
Geirdal Guðfinnssyni guðfræðinema.
Kór Grafarvogskirkju leiðir söng. Ein-
söngur: Sigrún Hjálmtýsdóttir. Orga-
insti: Hákon Leifsson.
Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta. Sr.
Guðrún Karls Helgudóttir þjónar. Kór
Grafarvogkirkju leiðir söng. Einsöngur:
Gissur Páll Gissurarson. Organisti:
Lára Bryndís Eggertsdóttir.
GRENSÁSKIRKJA | Gamlársdagur.
Aftansöngur kl. 18. Kirkjukór Grensás-
kirkju syngur undir stjórn Ástu Haralds-
dóttur kantórs. Séra Þorvaldur Víð-
isson prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt messuþjónum.
Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
14. Kirkjukór Grensáskirkju syngur
undir stjórn Ástu Haraldsdóttur kant-
órs. Séra Eva Björk Valdimarsdóttir pré-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt
messuþjónum.
GRINDAVÍKURKIRKJA | Gamlárs-
dagur. Aftansöngur. kl. 17 Kór Grinda-
víkurkirkju syngur hátíðarsöngva. Sr.
Elínborg Gísladóttir þjónar.
GRUND dvalar- og hjúkrunarheim-
ili | Gamlársdagur. Hátíðarguðsþjón-
usta í umsjón Fríkirkjunnar í Reykjavík,
kl. 14 í hátíðarsal Grundar. Prestur er
dr. Sigurvin Lárus Jónsson. Sönghópur
Fríkirkjunnar syngur undir stjórn Gunn-
ars Gunnarssonar söngstjóra.
Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
14 í hátíðasal Grundar. Prestur er Auð-
ur Inga Einarsdóttir heimilisprestur.
Einsöngvari er Björn Ari Örvarsson og
félagar úr Grundarkórnum leiða sam-
söng undir stjórn Kristínar Waage org-
anista.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Gaml-
ársdagur. Hátíðarmessa kl. 17. Sr. Jón-
ína Ólafsdóttir. Kári Þormar og Bar-
börukórinn.
Nýársdagur. Hátíðarmessa kl. 14. Sr.
Sighvatur Karlsson. Ólafur Þ. Þórðar-
son flytur hugvekju. Kári Þormar og
Barbörukórinn.
HALLGRÍMSKIRKJA | Gamlársdag-
ur. Hátíðarhljómar við áramót kl. 16.
Orgel og málmblásarakvartett. Miða-
verð 4000. kr.
Aftansöngur kl. 18. Sr. Sigurður Árni
Þórðarson prédikar. Kór Hallgríms-
kirkju syngur undir stjórn Steinars Loga
Helgasonar. Organisti er Björn Steinar
Sólbergsson. Aftansöngnum verður út-
varpað.
Nýársdagur. Hátíðarmessa kl. 14. Sr.
Irma Sjöfn Óskarsdóttir prédikar. Fé-
lagar í Kór Hallgrímskirkju syngja undir
stjórn Steinars Loga Helgasonar. Org-
anisti er Björn Steinar Sólbergsson.
HÁTEIGSKIRKJA | Gamlársdagur.
Aftansöngur kl. 18. Sr. Helga Soffía
Konráðsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Peter Tompkins leikur á óbó.
Kordía, kór Háteigskirkju syngur og
leiðir almennan safnaðarsöng. Organ-
isti og kórstjóri er Guðný Einarsdóttir.
Nýársdagur. Hátíðarmessa kl. 14. Sr.
Eiríkur Jóhannnsson prédikar og þjónar
fyrir altari. Jón Hafsteinn Guðmunds-
son leikur á trompet. Kordía, kór Há-
teigskirju syngur og leiðir almennan
safnaðarsöng. Organisti og kórstjóri er
Guðný Einarsdóttir.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Gaml-
ársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 17 í
umsjón sr. Sunnu Dóru Möller. Matt-
hías V. Baldursson sér um tónlistina,
með honum eru sönghópurinn Radda-
dadda og Tómas Guðmundsson. Auk
Friðrik Karlsson og kórarnir Vox Gospel
og Rokkkór Íslands.
HVALSNESKIRKJA | Sjá Sandgerðis-
kirkju.
HVERAGERÐISKIRKJA | Gamlárs-
dagur. Aftansöngur kl. 17. Sr. Ninna Sif
Svavarsdóttir þjónar. Organisti er Mikl-
ós Dalmay, Kirkjukór Hveragerðis - og
Kotstrandarsókna.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Gamlársdag-
ur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 16. Kór
Keflavíkurkirkju syngur undir stjórn Arn-
órs Vilbergssonar, organista. Sr. Erla
Guðmundsdóttir þjónar.
Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
14. Kjartan Már Kjartansson, bæjar-
stjóri, flytur hátíðarræðu. Kór Keflavík-
urkirkju syngur undir stjórn Arnórs Vil-
bergssonar, organista. Sr. Fritz Már
Jörgensson þjónar.
KÓPAVOGSKIRKJA | Gamlársdagur.
Aftansöngur kl. 18. Sr. Grétar Halldór
Gunnarsson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari. Kór Kópavogskirkju syngur undir
stjórn Lenku Mátéová, kantors kirkj-
unnar. Hannah ÓConnor leikur á tromp-
et.
Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
14. Sr. Sigurður Arnarson sóknarprest-
ur þjónar fyrir altari. Ferdinand Jónsson
yfirlæknir flytur hátíðarræðu um von-
ina. Kór Kópavogskirkju syngur undir
stjórn Lenku Mátéová, kantors.
LAUGARNESKIRKJA | Nýársdagur.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 16. Prestur er
Sigurður Jónsson. Organisti er Elísabet
Þórðardóttir. Kór Laugarneskirkju syng-
ur.
LINDAKIRKJA í Kópavogi | Gamlárs-
dagur. Hátíðarguðsþjónusta kl. 17. Kór
Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars
Einarssonar. Sr. Guðni Már Harðarson
þjónar.
MÖRK KAPELLA | Nýársdagur. Hátíð-
arguðsþjónusta kl. 16 í kapellunni
Mörk. Prestur er Auður Inga Einarsdótt-
ir heimilisprestur. Einsöngvari er Björn
Ari Örvarsson og félagar úr Markarkórn-
um leiða samsöng undir stjórn Krist-
ínar Waage organista.
NESKIRKJA | Gamlársdagur. Aftan-
söngur kl. 18. Félagar úr kór Neskirkju
syngja undir stjórn Steingríms Þórhalls-
sonar organista. Hátíðartón sr. Bjarna
Þorsteinssonar flutt. Prestur er Stein-
unn Arnþrúður Björnsdóttir.
Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
14. Kór Neskirkju syngur undir stjórn
Steingríms Þórhallssonar organista.
Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar
flutt. Prestur er Skúli S. Ólafsson.
NJARÐVÍKURKIRKJA Innri-Njarð-
vík | Gamlársdagur. Aftansöngur kl.
17. Kór Njarðvíkurprestakalls syngur.
SANDGERÐISKIRKJA | Gamlársdag-
ur. Áramótamessa kl. 14. Kirkjukórinn
syngur undir stjórn Keith Reed. Sam-
eiginleg messa fyrir báðar sóknir.
SAUÐÁRKRÓKSKIRKJA | Gamlárs-
dagur. Aftansöngur kl. 17. Kirkjukórinn
leiðir söng, organisti er Rögnvaldur Val-
bergsson. Prestur er Sigríður Gunnars-
dóttir.
SELJAKIRKJA | Gamlársdagur. Aftan-
söngur kl. 17 (athugið breyttan tíma).
Sr. Sigurður Már Hannesson prédikar
og kór Seljakirkju syngur. Einar Clau-
sen syngur einsöng. Organisti er Dou-
glas A. Brotchie.
Nýársdagur. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Sigurður Már Hannesson prédikar og
kór Seljakirkju syngur. Organisti er
Sveinn Arnar Sæmundsson.
SELTJARNARNESKIRKJA | Gaml-
ársdagur. Opið hús í kirkjunni frá kl. 20
til 22.30. Heitt súkkulaði og tónlist fyrir
þá sem fara á brennu eða koma af
brennu.
Nýársdagur. Hátíðarguðsþjónusta kl.
14. Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar.
Friðrik Vignir Stefánsson er organisti.
Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri, flytur
ræðu. Kammerkór Seltjarnarneskirkju
syngur. Ragnhildur Dóra Þórhallsdóttir
syngur einsöng. Kaffi og konfekt eftir
athöfn í safnaðarheimilinu.
ÚTSKÁLAKIRKJA | Sjá Sandgerðis-
kirkju.
VÍDALÍNSKIRKJA | Gamlársdagur.
Sameiginlegur aftansöngur Garða-
prestakalls í Bessastaðakirkju kl. 17.
Vilborg Ólöf Sigurðardóttir djákni og sr.
Hans Guðberg Alfreðsson þjóna. Álfta-
nesskórinn syngur, organisti er Ást-
valdur Traustason.
Nýársdagur. Sameiginleg hátíðarguðs-
þjónusta Garðaprestakalls í Vídalíns-
kirkju kl. 14. Sr. Hans Guðberg Alfreðs-
son þjónar fyrir altari. Almar
Guðmundsson bæjarstjóri flytur ára-
mótaávarp. Særún Rúnudóttir syngur
einsöng og kór Vídalínskirkju syngur,
organisti Jóhann Baldvinsson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Gamlársdagur. Hátíðarhelgistund kl.
17. Kór Víðistaðasóknar syngur undir
stjórn Sveins Arnars Sæmundssonar
organista og sr. Bragi J. Ingibergsson
sóknarprestur þjónar fyrir altari.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA | Nýárs-
dagur. Hátíðarguðþjónusta kl. 14. Kór
Njarðvíkurprestakalls syngur. Nýár-
stónleikar Alexöndru Chernyshova
sópran og Rúnars Þórs Guðmundsson-
ar tenórs. Sérstakur gestur Yana Prik-
hodko sellóleikari frá Úkraínu. Helgi
Þór Hannesson leikur á píanó. Einnig
kemur fram Stúlknakórinn Drauma-
raddir. Nánar á heimasíðu kirkjunnar
Njardvikurkirkja.is
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Akureyrarkirkja
Minningar