Morgunblaðið - 30.12.2022, Page 6
FRÉTTIR
Innlent6
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022
Tónlist
fyrir sálina
Matur
fyrir líkamann
Aðalstræti 2 | s. 558 0000
Lifandi píanótónlist
öll kvöld
Opnunartími
Mán.–Fös. 11:30–14:30
Öll kvöld 17:00–22:30
Borðapantanir á matarkjallarinn.is
eða í síma 558 0000
Grýla og fjölskylda á ferð í Guðmundarlundi
Grýla, Leppalúði, jólasveinar og tröllasystkini þeirra hafa
verið á ferð í Guðmundarlundi í Kópavogi undanfarin
kvöld og heilsað upp á gesti og gangandi, sagt jólasögur.
Boðið er upp á myndatöku með jólasveini, heitt kakó og
piparkökur. Jólafjölskyldan er á vegum félagsins jolasvein-
ar.is sem hefur staðið fyrir þessum sýningum í lundinum
frá árinu 2020 og flutt þetta jólaleikverk, sem er eftir
Önnu Bergljótu Thorarensen. Leikararnir hafa margir
tengst Leikhópnum Lottu.
Morgunblaðið/Hákon Pálsson
Verulegar breytingar verða á álagn-
ingu úrvinnslugjalds um áramótin.
Fjárhæðir gjaldsins hækka umtals-
vert í nokkrum tilvikum og einnig
verður gjaldið lagt á fleiri vöru-
flokka en áður. Dæmi er um allt að
200% eða þrefalda hækkun gjaldsins.
Breytingarnar eru hluti af innleiðingu
hringrásarhagkerfisins.
Gjaldið er almennt lagt á ákveðn-
ar vörur við innflutning og innlenda
framleiðslu og á ökutæki til að
fjármagna úrvinnslu úrgangs. Sér
Skatturinn um innheimtu þess. Úr-
vinnslusjóður hefur birt yfirlit yfir
breytingarnar sem taka gildi á næsta
ári og kemur þar m.a. fram að úr-
vinnslugjald á olíuvörur hækkar úr
60 kr./kg í 70 kr./kg 1. janúar, gjald á
umbúðir úr plasti hækkar úr 30 kr./
kg í 82 kr./kg og gjald á umbúðir úr
pappír og pappa fer úr 22 kr./kg í 42
kr./kg svo dæmi séu tekin (sjá með-
fylgjandi töflu).
Bent er á að frá og með áramótum
verði lagt úrvinnslugjald á ökutæki
við nýskráningu að upphæð 15.000
kr. á hvert ökutæki, óháð orkugjafa.
Útgreitt skilagjald sem eigendur öku-
tækja fá þegar þau eru afskráð og
send til úrvinnslu hækkar úr 20.000
kr. í 30.000 kr. þann 1. janúar.
Ákveðið var á Alþingi skömmu
fyrir jól að fresta nýrri álagningu
gjaldsins á umbúðir úr gleri, málmi
og timbri til 1. mars næstkomandi,
þar sem í ljós kom að hugbúnaðarhús
og Skatturinn þurftu meira svigrúm
til að laga tölvukerfi sín að flóknum
breytingum á tollafgreiðslu varanna.
Um áramót verður úrvinnslugjaldið
lagt á drifrafhlöður sem knýja raf-
bíla og önnur rafknúin ökutæki og
lagt verður 27 kr./kg úrvinnslugjald
á blautþurrkur, tóbaksvörur með
filterum, blöðrur og fleiri einnota
plastvörur sem falla undir svonefnda
framlengda framleiðendaábyrgð.
Í umfjöllun Úrvinnslusjóðs er bent
á að hækkun á úrvinnslugjaldi á
umbúðir úr pappa, pappír og gleri
megi að stórum hluta rekja til aukins
kostnaðar vegna sérstakrar söfnunar
þeirra. „Á móti hækkun álagðra úr-
vinnslugjalda lækkar kostnaður íbúa
vegna sérstakrar söfnunar á pappa,
pappír og plasti við íbúðarhús þar
sem Úrvinnslusjóður mun greiða
sveitarfélögunum fyrir það sem safn-
ast af umbúðum úr þessum efnum.“
Samtök verslunar og þjónustu hafa
fylgst vel með undirbúningi fyrir
breytingarnar sem verða um ára-
mótin. Að sögn Benedikts S. Bene-
diktssonar, lögfræðings SVÞ, er um
að ræða innleiðingu á Evrópureglu-
verki sem hefur ekki enn tekið gildi
í Evrópu. Ísland er í reynd tveimur
árum á undan öðrum Evrópuþjóðum
að innleiða breytingarnar og getur
því ekki leitað fyrirmynda erlendis.
Spurður hvort fólk finni fljótt fyrir
hækkunum segir hann erfitt að al-
hæfa um það. Þegar um óbeina skatta
er að ræða komi þeir á endanum fram
í verðlagi en áhrifin verði þó mismikil.
Á hann t.a.m. ekki von á að þreföldun
gjalds, sem lagt er á léttar plast-
umbúðir utan um vörur, hafi stór-
vægileg áhrif á útsöluverð vörunnar.
Atvinnulífið hefur almennt verið mjög
áfram um að innleiða hringrásarhag-
kerfið „þó menn hafi auðvitað áhyggj-
ur af kostnaðarhækkunum og auknu
flækjustigi í einhverjum tilvikum þá
hefur atvinnulífið ekki lagst á neinn
hátt gegn þessu verkefni, heldur þvert
á móti,“ segir hann. omfr@mbl.is
lBreytingar verða gerðar á álagningu úrvinnslugjalds um áramótinlGjaldið verður lagt á fleiri
vöruflokka en áðurlEr ætlað að mæta auknum kostnaði við innleiðingu hringrásarhagkerfisins
Dæmi um allt að þrefalda hækkun
Breytingar á álagningu úrvinnslugjalds
Hækkun úrvinnslugjalds
1. janúar 2023, kr./kg
Ný úrvinnslugjöld árið 2023
H
ei
m
ild
:
Ú
rv
in
ns
lu
sj
óð
ur
Vöruflokkur Gjald nú Frá 1. jan.
Olíuvörur 60 70
Svartolía 1,1 1,3
Umbúðir úr plasti 30 82
Umbúðir úr pappír
og pappa 22 42
Plöntuverndarvörur
og sæfivörur* 18 25
Frá 1. janúar 2023
Vöruflokkur Úrvinnslugjald
Ökutæki við
nýskráningu 15.000 kr./ökutæki
Drifrafhlöður** 500 kr./tæki eða 20 kr./kg
Plastvörur 27 kr./kg
Frá 1. mars 2023
Vöruflokkur Úrvinnslugjald
Umbúðir úr gleri 25 kr./kg
Umbúðir úr málmi (ál og stál) 25 kr./kg
Umbúðir úr við 10 kr./kg
*Fúavarnarefni, skordýra- og illgresis-eyðandi
efni, hét áður varnarefni. **Rafhlöður til að knýja
áfram rafknúin farartæki, bæði skráningarskyld og
ekki skráningarskyld. Á minni faratæki eru lagðar
500 kr. á hvert tæki.