Morgunblaðið - 30.12.2022, Page 11
FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022
11
Fáðu meira út úr
eigninni árið 2023
Greenkey sjálfvirknivæðir og hagræðir
alla þætti í rekstri gististaða
• Hótel og gistiheimili
• Íbúðaklasar
• Íbúðir
• Sumarhús
• Síma- þjónustuver
og bakvakt
• Þrif og þvottur
Ármúli 21, Reykjavik • Sími 519 8989 • greenkey.is
Alhliða rekstrarþjónusta fyrir gististaði
Það hefur sýnt sig að á erfiðum tímum stendur
íslenska þjóðin saman og sýnir stuðning,
hver og einn eftir bestu getu.
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin
JÓLASÖFNUN
Hægt er að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119
Einnig er opið fyrir síma á skrifstofutíma
S. 551 4349, netfang:maedur@maedur.is
Endurmenntun atvinnu-
bílstjóra á íslensku
Nánari upplýsingar: www.okuland.is
Alltaf
í boði
Símaapp eða millifærsla
lBreytt greiðslufyrirkomulag hjáEndurvinnslunni
Sameiginlegri greiðslulausn í gegn-
um Reiknistofu bankanna verður
lokað um áramótin og viðskipta-
vinirnir Endurvinnslunnar á höfuð-
borgarsvæðinu munu þá fá greitt
fyrir flöskur og dósir með öðrum
hætti en áður.
„Við höfðum þessa frábæru lausn
á stærstu stöðvunum á Íslandi að þú
gast komið í endurvinnsluna, skilað
flöskum og fengið greitt samstundis
með því að nota segulrönd debet-
kortsins. Um áramótin verður klippt
á þessa þjónustu og því verður
ómögulegt fyrir okkur að veita þessa
þjónustu áfram,“ segir Helgi og
því þurfti Endurvinnslan að finna
aðrar lausnir til að koma til móts
við viðskiptavinina. „Í kerfum hjá
greiðsluhirðum er ekki gert ráð fyrir
endurgreiðslu. Við ákváðum því
að búa til app sem hægt er að nota
í snjallsímum enda eigum við að
borga viðskiptavinum skilagjaldið.
Við erum mjög sáttir við símaappið,“
segir Helgi en Endurvinnslan próf-
aði að taka appið í notkun fyrir jól.
Hvað gera þeir sem ekki eiga
snjallsíma eða lenda í því að raf-
hlaðan tæmist í símanum eins og
stundum vill verða? „Fyrir þá sem
nota ekki snjallsíma erum við með
tölvu á staðnum þar sem hægt er að
millifæra á bankareikning við-
skiptavinarins. Þá þarf fólk að vera
með bankaupplýsingarnar sínar á
hreinu.“
Að sögn Helga er óalgengt að
fólk fái greitt jafn fljótt í endur-
vinnslu erlendis eins og Íslendingar
hafa vanist. „Með færsluhirði hjá
Reiknistofu bankanna var hægt að
greiða um leið. Á Norðurlöndunum
fékk fólk inneign í matvöruverslun-
um.“ kris@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
EndurvinnslanHelgi Lárusson, framkvæmdastjóri Endurvinnslunnar,
segir nýja greiðslukerfið taka alfarið við á stærstu stöðvunum 2. janúar.
Skráð voru 707 hegningarlaga-
brot á höfuðborgarsvæðinu í
nóvember og fækkaði þessum
brotum töluvert á milli mánaða.
Þetta kemur fram í mánaðar-
skýrslu lögreglustjórans á
höfuðborgarsvæðinu fyrir nóv-
ember 2022.
Tilkynningum um þjófnaði
fækkaði töluvert á milli mánaða.
Alls bárust 83 tilkynningar um
innbrot í nóvember miðað við
107 tilkynningar í október.
Alls bárust 116 tilkynningar
um ofbeldisbrot í nóvember og
fækkaði þessum tilkynningum
á milli mánaða. Þá bárust 44
tilkynningar um heimilisofbeldi
í mánuðinum og 13 tilkynningar
bárust um kynferðisbrot sem
áttu sér stað í nóvember.
Lögreglan fékk 16 beiðnir um
leit að börnum og ungmennum.
Í nóvember voru skráðar 114 til-
kynningar um eignaspjöll og 16
tilkynningar um nytjastuld á vél-
knúnum ökutækjum. Skráðum
fíkniefnabrotum fækkaði á milli
mánaða og voru fjögur stórfelld
fíkniefnabrot skráð í nóvember,
segir í tilkynningu lögreglu.
Afbrotum fækkaði
í flestum flokkum
í nóvembermánuði
l707 hegningarlagabrot á borð lögreglu
Morgunblaðið/Ari Páll Karlsson
Afbrot Lögreglan hafði nóg að gera
þó afbrotum fækkaði í nóvember.
Fallegar vörur
fyrir heimilið
Sendum
um
land allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Tokyo línan
Fáanlegt í svörtu, hnotu og eik