Morgunblaðið - 30.12.2022, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.12.2022, Qupperneq 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022 Frásagnir manna og kvenna af ævi sinni verða stundum ómerkilegar, sér í lagi þegar sögumaður hef- ur ekki frá neinu að segja, enda lifað við- burðasnauðri ævi. Það kemur fyrir að ég fletti upp atriðum þar sem ég var við- staddur eða átti hlut að máli, og kanna frásögnina. Því mið- ur er algengt að frásögnin komi alls ekki heim og saman við það sem ég sá og heyrði. Eitt sinn las ég frá- sögn af ferðalagi, sem ég fór með öðru fólki. Gististaður, sem nefndur er í frásögninni, er ekki til og það var alls ekki gist í þeirri borg, sem nefnd var í ævisögunni! Því hef ég nokkra vantrú á ævi- sögum, sem skrifaðar eru sem frá- sögn, án gagnaöflunar. Lifað með öldinni Nú ber svo við að út hefur komið ævisaga manns og aldar, sem hann hefur lifað. Sjálfur kallar Jóhannes skrif sín endurminningar því sjálfs- ævisögur verða oft „…annaðhvort hégómlegar afrekaskrár eða per- sónulegar afhjúpanir“. Helming þessarar aldar hef ég einnig lifað. Þannig minnist ég þess að fyrir rúmum 60 árum tók ég mína fyrstu rimmu stjórnmála vegna efnahags- aðgerðar Seðlabankans í ágúst 1961. Ég er enn stoltur af minni fram- göngu. Það var gengisfelling krónunnar, sem í raun var miklu sögulegri en ég gerði mér grein fyrir þá. Seðlabanki Íslands hafði nýlega tekið til starfa samkvæmt nýrri löggjöf. Þá hafði Seðlabankinn ekki heim- ild til að ákvarða gengi krónunnar, sú ákvörðun skyldi gerð með lögum. Með því að Alþingi sat ekki bar brýna nauðsyn til að færa Seðla- banka Íslands heimild til geng- isákvörðunar með bráðabirgðalög- um. Það er mjög dýrmætt að fá að lesa frá eigin hendi frásögn dr. Jó- hannesar Nordal af þeirri hálfu öld, sem ég lifði, horfði og hlustaði á. Og einnig hinu, sem ég hef lesið um. „Lifað með öldinni“ er skrifað á skýru og tilgerðarlausu máli, eins og greinar og ræð- ur þess sem lifði með öldinni. Stundum verð- ur sú frásögn drep- fyndin, án þess að höf- undur hafi ætlað sér það. Þannig segir Jó- hannes um vin sinn; „Pétur Benediktsson virtist mér alla tíð þrekmikill og úthalds- góður, þótt hann legði ekki sérstaka stund á heilbrigt líf- erni og líkamsrækt.“ Frásögnin af því þegar Jóhannes hittir Pétur fyrsta sinni, 19 ára stúd- ent en Pétur 36 ára sendiherra og heimsmaður, er ótrúleg. Eitt hand- tak og þeir urðu einlægir vinir, og síðar samstarfsmenn, á meðan báðir lifðu. Í Landsbankann og efnahagsráðgjöf Jóhannes kemur að ónumdu landi í Landsbankanum. Enginn hafði þá gegnt starfi hagfræðings bankans í fjögur ár en Jóhannes hafði samið ársskýrslur bankans í þrjú ár. Jóhannes nær trausti eins af bankastjórum Landsbankans, þess sem telur að lausn á rafmagnsleysi sé að hækka verð á rafmagni, þá noti fólk minna rafmagn. Það varð síðan hlutskipti Jóhannesar að hafa forgöngu um meiri rafmagnsfram- leiðslu en nokkurn hafði órað fyrir. Nú skilar sú rafmagnsframleiðsla drjúgum arði í ríkissjóð. Það er umhugsunarefni hvernig fólk nær áhrifum. Ég tel að áhrif Jó- hannesar á umhverfi sitt liggi í íhygli hans og skýrleika, einnig því hvernig hann setur mál sitt fram á fundum. Á starfstíma hans í banka- kerfinu stóð enginn honum á sporði. Það er einnig mjög eftirtektar- verð frásögn af því þegar Jóhannes er settur bankastjóri en tekur að sér að ræða erfitt skuldamál, sem var sem heit kartafla en það voru skuldamál Kveldúlfs sem virðast hafa legið í dvala og enginn getað tekið á þeim fyrr en Jóhannes fer til fundar við Ólaf Thors á heimili hans. Virðist sem samskipti þeirra hafi ekki verið mikil áður. Innan við ári síðar er Jóhannes orðinn annar tveggja efnahagsráðu- nauta, í óbilandi trausti fyrrverandi forstjóra Kveldúlfs sem orðinn er forsætisráðherra í fimmta sinni. Helmingaskiptaregla Svo virðst sem helminga- skiptaregla Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks hafi verið tekin upp um 1930. Kveldúlfur hafði sinn bankastjóra og Sambandið sinn bankastjóra. Að skuldaskilum beggja kom, þó á mismunandi tíma. Dekrið dugði ekki til eilífs lífs. Hægri krati og vinstri krati Svo virðist sem Jóhannes komi fullskapaður til áhrifa eftir sam- skipti við Gylfa Þ. Gíslason, í bók- færslunámi í menntaskóla. Bók- færslan þótti Jóhannesi ekki flókin fræði. Jóhannes virðist vera hægri krati þegar Gylfi var vinstri krati. Gylfi virðist hafa færst nær nemanda sín- um. Aldrei kemur fram í bókinni hvaða stjórnmálaflokk Jóhannes hefur stutt. Þó sást hann eitt sinn á landsfundi Sjálfstæðisflokksins, í fylgd Ólafar dóttur sinnar, en hún var ótrúlega lík honum. Þegar dómsmálaráðherrann er óánægður með að hans málaflokkur sitji á hakanum vegna forgangs efnahagsmála, þá kemur að því að ráðherrann verður forsætisráð- herra og leggur sig eftir ráðum efnahagsráðunautarins, og aldrei ósáttur. Sýn á efnahagsmál Svo virðist sem sýn Jóhannesar á efnahagsmál hafi verið með öllu ólík því sem framkvæmt var á Íslandi, a.m.k. á tímabilinu um 1930-1960. Sýnin virðist mótast af tvennu: frjálslyndi og víðsýni ungs manns sem hafði kynnt sér ýmis grundvall- arrit frjálslyndra hagfræðinga. Öll nálgun við vandamál hér á landi, allar götu frá 1930, byggðist á að handstýra öllu mannlegu eðli með tollum, gjöldum og hvers kyns hömlum, þegar einföld verðmyndun og frjáls viðskipti við önnur lönd skiluðu mjög skilvirkum árangri. Verkefni Viðreisnarstjórnarinnar var að leggja grunn að frjálsri verð- myndun og frjálsum viðskiptum. Þetta verkefni stóð með hléum allan viðreisnartímann og raunar allt til 1993 þegar Ísland gekk í EES. Áhrif Jóhannesar Í „Lifað með öldinni“ koma fram mjög mikil áhrif manns, sem aldrei var kosinn pólitískri kosningu, en nánast allir stjórnmálamenn treystu. Þessum áhrifum fylgdu af- köst. Afköstin verða aðeins skýrð með því að Jóhannes virðist alltaf hafa haft burði til að afmarka hvert verkefni og lagt fyrir aðra að vinna gögn, sem lögð voru til úrlausnar. Öll gögn bárust síðan Ágústu Johnson, ritara Jóhannesar, en hún vissi hvernig Jóhannes vildi hafa mál, sem voru lögð fyrir til ákvörð- unar. Einn veit ég, sem var nokkuð verkkvíðinn, en vann með Jóhannesi að einu verkefni í 30 ár. Sá var verkkvíðinn við úrlausn annarra verkefna og skrifa, en aldrei kveið hann þeim vikum á ári hverju, sem þeir Jóhannes unnu saman. Sjálfstæði Seðlabankans Það eru atriði, sem ég sakna í „Lifað með öldinni“ að bankastjór- inn fjallar ekki nægjanlega mikið um sjálfstæði seðlabanka. Sér í lagi þegar kom að gengisákvörðunum og vaxtaákvörðunum. Í raun getur einn og sami aðili vart haft á einni hendi vaxtaákvörðun og gengisákvörðun. Við gengisfellingar, sem komu eins og jarðskjálfti inn í þjóðlíf, fylgdi ávallt sami texti: „að höfðu samráði við ríkisstjórnina“. Afstaða bankastjórans til sjálfstæðis seðla- banka kemur alls ekki nægjanlega fram í bókinni. Samferðamenn Jóhannes er spar á að gefa sam- ferðamönnum sínum einkunnir og hallar ekki illu orði til nokkurs manns. Stundum er þó hægt að lesa á milli lína hvað honum finnst um samferðamenn sína. Eins og þegar hann segir „Dugnaður og sveigj- anleiki Steingríms í skoðunum áttu mestan þátt í því, hve vel honum tókst að tryggja gott samstarf inn- an þeirra ríkisstjórna sem hann stýrði.“ Sveigjanleiki = Tækifær- ismennska? Jóhannes og Davíð Dr. Jóhannes Nordal og Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráð- herra, eru tveir ólíkir menn, en falla þó vel saman. Eitt eiga þeir sameig- inlegt og það er að þeir réðu miklu um þjóðarhag í áratugi. Og náðu að vinna saman þó fjórðungur aldar stæði á milli. Um Davíð segir Jó- hannes, eftir að hafa fjallað um samstarf þeirra í Landsvirkjun: „Á þeim vettvangi minnist ég þess hve hreinskiptinn hann ætíð var og mik- ill málafylgjumaður, en um leið lag- inn við að vinna sjónarmiðum sínum fylgi. Þá er ekki minnst um vert hve skemmtilegur hann var í samstarfi og gat líkt og Ólafur Thors breytt stemmingu á fundum á einu and- artaki með hnyttnum tilsvörum.“ Báðir hafa þeir náð áhrifum, ann- ar með alvarleika en hinn með hnyttnina að vopni, auk annarra eiginleika. Svarið við því hvernig fólk verður áhrifafólk liggur ekki í augum uppi. Áhrifasaga Saga Jóhannesar Nordal er áhrifasaga 20. aldarinnar. Ungi maðurinn, sem fór frá Mennta- skólanum í Reykjavík í hlutverki in- spectors árgangsins fyrir lýðveld- isstofnun og kom frá námi í árdaga lýðveldis. Taldi hann margt vera á annan veg en kennslubækur lýstu. Með starfi sínu og meðfram í greinaskrifum kom hann skoðunum sínu á framfæri og vann þeim fylgi. Að lokum stendur Ísland sem nokk- uð frjálslynt land í efnahagsmálum, með frjáls viðskipti við aðrar þjóðir. Ég held, eftir lesturinn, að sögu- maður hafi haft orð skáldsins Tóm- asar Guðmundssonar í ljóði hans „Skólaminni“ að leiðarljósi. Og enginn fær til æðri tignar hafist né öðlast dýrri rétt en þann að geta vænst af sjálfum sér og krafist að saga landsins blessi hann. Vilhjálmur Bjarnason »Ég tel að áhrif Jó- hannesar á umhverfi sitt liggi í íhygli hans og skýrleika, einnig því hvernig hann setur mál sitt fram á fundum. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Ótrúleg öld Ekki er orðum aukið að segja að málefni dómsmála- ráðuneytisins séu um margt flókin og við- kvæm og eigi það öll sammerkt að snerta einstaklinga í okkar samfélagi með beinum hætti. Það er því mikil- vægt að þessi kerfi starfi á forsendum þess að þjóna almenningi og séu eins skilvirk og kostur er. Mál- efnasvið ráðuneytisins hafa á þessu ári verið til gagngerrar endurskoð- unar í ráðuneytinu. Allt í þeim til- gangi að tryggja betur réttindi borg- aranna, bæta málshraða og auka skilvirkni og hagkvæmni þannig að takmarkaðir fjármunir nýtist betur. Sameining 17 stofnana Í þessum efnum hefur verið lagt fram frumvarp um sameiningu níu sýslumannsembætta í eitt embætti með lögbundnar starfsstöðvar á sömu stöðum og nú er. Meginmarkmið sameiningar sýslumannsembættanna er að bæta þjónustuna, þ.e. að efla starfsemi embættanna með því að stuðla að skilvirkari og notendamið- aðri þjónustu, þannig að almenningur geti nýtt hana óháð búsetu og stað- setningu, hvar og hvenær sem er, eft- ir því sem hentar best fólki hverju sinni. Að mínu mati er sameining þessara embætta for- senda þess að hægt sé að innleiða þá stafrænu tækni og þjónustu sem framtíðin ber í skauti sér. Í þessum breyt- ingum er haft að leið- arljósi að styrkja starfsstöðvar á lands- byggðinni með fjölgun verkefna og starfs- manna. Þá er komið í sam- ráðsgátt áformaskjal um sameiningu héraðs- dómstólanna í einn dómstól með sömu starfsstöðvar og nú er. Horft er til þess að efla og styrkja sérstaklega starfsstöðvar á landsbyggðinni með nýjum verkefnum. Haldið verður áfram að byggja á verkefninu um réttarvörslugáttina og því að koma á fót stafrænni meðferð dómsmála. Með breyttu fyrirkomulagi héraðs- dómstólanna má ná fram einfaldari og skilvirkari stjórnsýslu. Þá munu fjárframlög og mannauður dómstól- anna nýtast betur og aukið hagræði nást við meðferð dómsmála borg- urunum til hagsbóta. Bregðast þarf við í útlendingamálum Fyrir tíu árum var fjöldi umsækj- enda um alþjóðlega vernd á Íslandi ekki nema rétt rúmlega hundrað manns en í ár verður fjöldinn um fimm þúsund. Um árabil hefur Ísland nú tekið á móti hlutfallslega fleiri um- sækjendum um vernd en nágrannar okkar annars staðar á Norður- löndum. Samhliða því hefur kostn- aðurinn við kerfið vaxið úr hundr- uðum milljóna í milljarða og þaðan í á annan tug milljarða á ársgrundvelli. Komið hafa fram miklir veikleikar í útlendingalöggjöfinni sem nauðsyn- legt er að bregðast við og fyrir þinginu liggur frumvarp sem ætlað er að bæta löggjöfina, gera hana skil- virkari og hraða málsmeðferðartíma umsókna. Það stendur til að þing- heimur afgreiði frumvarpið þegar þing kemur aftur saman í janúar. Löggæsla á tímamótum Málefni lögreglu hafa verið fyrir- ferðarmikil á árinu. Undirbúningur er hafinn á skipulagsbreytingum til að auka samstarf og nýta mannafla betur þvert á lögregluumdæmi. Í því sambandi er sérstaklega horft til þess að efla fámennari lögregluembættin á landsbyggðinni. Þá hafa farið fram umfangsmiklar aðgerðir til að fjölga menntuðum lögreglumönnum til að efla viðbragðsgetu lögreglunnar og takast á við áskoranir í nokkuð breyttu samfélagi. Tengt því var lagt fram frumvarp um breytingar á lög- reglulögum sem snýr að því að skýra betur heimildir lögreglu til eftirlits þar sem grunur liggur fyrir um skipulagða brotastarfsemi og hryðju- verkaógn. Þá er lagt til í frumvarpinu stóraukið eftirlit með störfum lög- reglu. Fátt er mikilvægara en að borg- ararnir upplifi sig örugga í okkar samfélagi. Lögreglan gegnir þar lykilhlutverki, bæði í að koma í veg fyrir brot og upplýsa um brot. Mikil- vægt er einnig að saksókn og meðferð mála fyrir dómi gangi hratt og örugg- lega fyrir sig og að sakfelldir geti af- plánað dóm innan eðlilegs tíma. Það er til hagsbóta fyrir alla. Átak hefur verið unnið í baráttunni við kynferðisbrot. Réttarstaða brota- þola hefur verið bætt með breyt- ingum á lögum um meðferð saka- mála. Þá var rannsókn kynferðis- brota efld verulega á árinu með fjölgun rannsóknarlögreglumanna sem leitt hefur til þess að málsmeð- ferðartími hefur styst. Á nýju ári verður brotaþolum m.a. boðið upp á sálfræðiaðstoð að loknum skýrslutök- um. Lögregla fær rafvarnarvopn Til að lögregla geti tryggt öryggi borgaranna þarf að efla hana og ör- yggi lögreglumanna. Er þá horft bæði til heimilda hennar til rann- sókna og eftirlits og varnarbúnaðar við störf sín, en öll valdbeiting getur verið skaðleg, ekki síst lögreglu- mönnum. Að vandlega íhuguðu máli hef ég tekið ákvörðun um gera nauð- synlegar reglugerðarbreytingar til að heimila lögreglu að hefja innleið- ingarferli að því er varðar notkun rafvarnarvopna. Áður en lögreglu- mönnum verður leyft að bera raf- varnarvopn munu þeir ljúka tilhlýði- legri þjálfun og þá verða settar ítarlegar verklagsreglur um beitingu rafvarnarvopna. Rafvarnarvopn munu í mörgum tilfellum nýtast við að leysa mál með minni valdbeitingu og meira öryggi fyrir lögreglumennina sjálfa og minni hættu á skaða fyrir þann sem þarf að yfirbuga en ef beitt væri öðr- um valdbeitingarúrræðum. Þá er mjög mikilvægt að lögreglumenn verði vel þjálfaðir í beitingu rafvarn- arvopna og meðvitaðir um löggjöf og reglur um valdbeitingu því alltaf er hætta á skaða samfara valdbeitingu og notkun valdbeitingartækja. Slys á lögreglumönnum og öðrum eru of al- geng, en skýrslur og reynsla er- lendra lögregluembætta sýna að raf- varnarvopn eru árangursríkt tól við að draga úr slysa- og meiðslahættu þegar valdi er beitt. Að liðnu ári Jón Gunnarsson »Málefnasvið ráðu- neytisins hafa verið tekin til gagngerrar endurskoðunar í þeim tilgangi að tryggja bet- ur réttindi borgaranna, bæta málshraða og auka skilvirkni og hag- kvæmni. Jón Gunnarsson Höfundur er dómsmálaráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.