Morgunblaðið - 30.12.2022, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022
DÆGRADVÖL 25
Sími 587 1717
www.sulatravel.is
Stangarhyl 1 , 110 Reykjavík
MIÐJARÐARHAF 12.-26. maí 2023
ALLT INNIFALIÐ
Í ÖLLUM SIGLINGUM
EKKI BORGA MEIRA EN ÞÚ ÞARFT
Free at Sea
YFIR ATLANDSHAF
FRÁ NEW YORK
19. apríl til 9. maí 2023
MIÐJARÐARHAFIÐ
17.-29. nóvember 2022
RÓM OG GRÍSKA EYJAHAFIÐ
11.-23. ágúst 2023
JÓLASIGLING Í KARÍBAHAF
14.-26. desember 2023
MIÐJARÐARHAF
14.-26. maí 2023
GRÍSKA EYJAHAFIÐ
FRÁ FENEYJUM
1.-14. ágúst 2023
LONDON
REYKJAVÍK
3.-15. júní 2023
Gerum tilboð fyrir hópa og einstaklinga
Nánar á www.sulatravel.is
Vísnahorn
Maður þyngist um jólin
Pétur Stefánsson skrifar á Boðn-
armjöð: „Ég sem lofaðimér því
að léttast í vetur. Það fór á annan
veg:“
Klökkri lundu ljóðin vef,
loforðs hrundu skjólin.
Þrettán pundin þyngst ég hef
þessa stund um jólin.
JónAtli Játvarðarson svaraði:
Mikil undurmerkileg,
magans stundargróði.
Flakkar lund um farinn veg,
sem flúr á bundnu ljóði.
GuðmundurArnfinnsson segir að
það sé af sem áður var:
Magnús var góður og glaður
og geðþekkur yngismaður,
svo eltist hann
og er númeð sann
oftast nær bara góðglaður.
„Mesta frost í Víðidal síðan 1918“
segir Jón JensKristjánsson, rúmar
23 gráður ef égman rétt:
Fermeð himinskautum háum
hörkufrost í Víðidal
til að hyggja að tölum bláum
takamælinn upp nú skal
ullarbrækur ekki sparðar
eru af hestafólki þá
þetta heitir hlýnun jarðar
hornskökkmjög við illa spá.
Ingólfur ÓmarÁrmannsson
sendir bestu jóla- og nýársóskir og
þakkar fyrir skemmtilegt vísnaár.
Ylur hlýr um hjartað fer
hress og bljúg er lundin.
Kærleik, frið og birtu ber
blessuð jólastundin.
Kærleiksríku gildin góð
glæða sálarkynni.
Mannúð vex og vonarglóð
vermir hjartans inni.
KristjánH. Theodórsson yrkir:
ÞingbóndannÁleif að austan,
allflestir töldumjög hraustan,
fengi 'hann frí,
ei flíkaði því,
viðÁleif þú kannast, og kaust hann.
Loftur Erlingsson skrifar: „Magn-
úsHalldórsson bauðmér í skötu og
mörflot á Þorláksmessu. Égætlaði
eitthvað að snyrtamig áður en ég
lagði af stað en...:
„ÁÞorláksmessu þramma af stað
þýt ég smá í burtu.
Þó fyrst ég vildi fara í bað
en frúin bannar sturtu!
Hvað er í gangi, hvað er að,
hver er steinn í götu?“
Og frúin svarar:
„Fráleitt er að fara í bað
fyrr en eftir skötu.“
„ÉG ÆTLA AÐ FARA FRÁ ÞÉR. VISSULEGA
HÖFUM VIÐ ÁTT GÓÐAR STUNDIR EN ÞAÐ
BÆTIR EKKI FYRIR SLÆMU TÍMANA.“
„ÉG SÉ ÞAÐ NÚ Á ÞESSU AÐ ÞÚ ÁTT EFTIR
AÐ LEPJA DAUÐANN ÚR SKEL NÆSTU
MÁNUÐINA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að eiga svalasta
pabba í heimi.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG Á TÍMA
KLUKKAN 12.30…
TAKK FYRIR AÐ TAKA FRÁ
FYRIR MIG PLÁSS, PÚKI.
ÉG ER GÚMMÍ OG ÞÚ ERT LÍM – ALLT SEM ÞÚ
SEGIR SKOPPAR AF MÉROG FESTIST VIÐ ÞIG!
ÞAÐ KALLAR MIG ENGINN BARNALEGAN
OG KEMST UPP MEÐ ÞAÐ!
KLUKKUVIÐGERÐIR
BANKASTJÓRI
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
„Ég er enn starfandi með
reiðskólann og hestaleiguna á
Ölvaldsstöðum og er enn að keppa
á hestamannamótum og hvergi
nærri hætt. Mitt mottó í lífinu
er að gera alltaf það sem ég hef
gaman af.“
Guðrún verður í faðmi fjöl-
skyldunnar í dag en ætlar að
halda skemmupartí með hækk-
andi sól í tilefni afmælisins.
Fjölskylda
Maki Guðrúnar var Þorsteinn
Guðlaugsson, f. 20.3. 1952, d. 28.7.
2005, rak hópferðaþjónustu með
búskap. Þau bjuggu á Ölvalds-
stöðum, þar sem Guðrún býr enn.
Unnusti Guðrúnar er Guðmundur
Finnsson, f. 28.7. 1950.
Börn Guðrúnar og Þorsteins eru
1) Sigurður Ingi Þorsteinsson, f.
23.2. 1980, rekur hópferðaþjón-
ustu í Borgarfirði. Hann býr með
Önnu Helgadóttur í Borgarnesi og
stjúpsonur hans er Jóhann Óskar.
2) Guðlaugur Fjeldsted Þorsteins-
son, f. 20.2. 1985, múrarameistari
og flugvélavirkjameistari hjá
Icelandair, búsettur í Mosfellsbæ.
Hann er giftur Örnu Þrándar-
dóttur og börn þeirra eru Ísólfur
Fjeldsted, Karítas Fjeldsted og
Kormákur Fjeldsted. 3) Þórdís
Fjeldsted Þorsteinsdóttir, f. 23.4.
1993, tamningakona og reiðkenn-
ari. Hún býr með Þorgrími Gísla
Kristbjörnssyni á Ölvaldsstöðum
1. Stjúpdóttir Guðrúnar er Ólina
Björg Þorsteinsdóttir, f. 28.5. 1973,
búsett í Kanada.
Bræður Guðrúnar: Sigurður
Fjeldsted, f. 9.4. 1941, laxveiðileið-
sögumaður, búsettur í Taílandi, og
Þorkell Fjeldsted, f. 28.8. 1947, d.
18.11. 2014, bóndi í Ferjukoti.
Foreldrar Guðrúnar voru hjónin
Kristján Fjeldsted, f. 17.12. 1914, d.
30.1. 1991, laxveiðibóndi í Ferju-
koti, og Þórdís Þ. Fjeldsted, f. 5.12.
1917, d. 14.3. 2011, íþróttakennari
og húsmóðir í Ferjukoti.
Guðrún
Fjeldsted
Halldís Guðmundsdóttir
húsfreyja á Brennistöðum
Bergþór Bergþórsson
bóndi á Brennistöðum
í Borgarhreppi
Guðrún S. Bergþórsdóttir
húsmóðir í Borgarnesi
Þorkell Guðmundsson
verslunarmaður í Borgarnesi
Þórdís Þ. Fjeldsted
íþróttakennari og húsmóðir
í Ferjukoti
Guðrún Bjarnadóttir
húsfreyja í Jafnaskarði
Guðmundur Auðunsson
bóndi í Jafnaskarði í Stafholtstungum
Guðfinna Þóra Þórðardóttir
húsfreyja í Eskiholti
Oddur Jónsson
bóndi í Eskiholti í Borgarhreppi
Rósa Oddsdóttir
húsmóðir í Flatey
Sigurður Fjeldsted
laxveiðibóndi í Ferjukoti
Sesselja Kristjánsdóttir
húsfreyja á Hvítárvöllum
Andrés Fjeldsted
bóndi og hreppstjóri á Hvítárvöllum í Andakíl, Borg.
Ætt Guðrúnar Fjeldsted
Kristján Fjeldsted
laxveiðibóndi í Ferjukoti
í Borgarhreppi, Mýr.