Morgunblaðið - 30.12.2022, Síða 26

Morgunblaðið - 30.12.2022, Síða 26
ÍÞRÓTTIR26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022 KÖRFUKNATTLEIKUR Úrvalsdeild karla, Subway-deildin: Grindavík: Grindavík – Þór Þ................. 18.15 Smárinn: Breiðablik – Haukar.............. 20.15 Subway-deild karla Tindastóll – Valur.......................... (frl.) 78:84 Stjarnan – KR ......................................... 99:88 ÍR – Höttur ............................................... 65:75 Njarðvík – Keflavík .............................. 114:103 Staðan: Valur 11 9 2 957:901 18 Keflavík 11 8 3 1033:964 16 Breiðablik 10 7 3 997:973 14 Njarðvík 11 7 4 1005:908 14 Haukar 10 6 4 856:832 12 Tindastóll 11 6 5 949:890 12 Stjarnan 11 5 6 973:982 10 Grindavík 10 5 5 824:881 10 Höttur 11 5 6 908:889 10 ÍR 11 3 8 876:963 6 Þór Þ. 10 2 8 979:1010 4 KR 11 1 10 975:1139 2 Subway-deild kvenna Valur – Njarðvík ...................................... 83:61 Staðan: Keflavík 14 13 1 1159:943 26 Haukar 14 12 2 1109:895 24 Valur 14 11 3 1131:952 22 Njarðvík 14 8 6 1121:1082 16 Grindavík 14 5 9 1058:1053 10 Fjölnir 14 4 10 1012:1150 8 Breiðablik 14 3 11 898:1127 6 ÍR 14 0 14 864:1150 0 Spánn B-deild: Alicante – Ourense .............................. 84:80 Ægir Már Steinarsson tók 2 fráköst og átti 2 stoðsendingar á 10mínútummeðAlicante. Andorra – Oviedo ................................. 79:60 Þórir Guðmundur Þorbjarnarson skoraði 2 stig á 12 mínútum með Oviedo. Þýskaland B-deild: Dresden – Münster ................ (frl.) 103:102 Hilmar Pétursson skoraði 21 stig fyrir Mün- ster, átti 6 stoðsendingar og tók 6 fráköst á 34 mínútum. NBA-deildin Detroit – Orlando .................................. 121:101 Washington – Phoenix......................... 127:102 Atlanta – Brooklyn.............................. 107:108 Miami – LA Lakers ................................ 112:98 Chicago – Milwaukee................... (frl.) 119:113 New Orleans – Minnesota.................... 119:118 Golden State – Utah ............................ 112:107 Sacramento – Denver.......................... 127:126 Svíþjóð Hallby – Skövde..................................... 29:29 Bjarni Ófeigur Valdimarsson skoraði 5 mörk fyrir Skövde. Lugi – Sävehof ....................................... 29:30 Tryggvi Þórisson skoraði 2 mörk fyrir Sävehof. Västerås – Skara ................................... 26:21 Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði 3 mörk fyr- ir Skara, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 1 en Ásdís Guðmundsdóttir ekkert. Vináttulandsleikir karla Túnis – Brasilía........................................ 29:24 Alsír – Rúmenía....................................... 25:33 Lettland – Tékkland ............................... 24:34 Póllland – Suður-Kórea.......................... 31:27 Egyptaland – Slóvakía............................ 33:29 Króatía – Ítalía........................................ 40:26 Tyrkland Besiktas – Adana Demirspor ................. 1:0 Birkir Bjarnason var allan tímann á vara- mannabekk Adana Demirspor. Alanyaspor – Kayserispor ...................... 3:1 Rúnar Alex Rúnarsson varði mark Alanya- spor og lagði upp annað mark liðsins. England B-deild: QPR – Luton................................................. 0:3 Blackburn – Middlesbrough....................... 1:2 Coventry – Cardiff...................................... 0:0 Huddersfield – Rotherham........................ 2:0 Millwall – Bristol City................................ 0:0 Wigan – Sunderland .................................... 1:4 WBA – Preston............................................ 2:0 Blackpool – Sheffield United...................... 1:2 Staða efstu liða: Burnley 24 14 8 2 49:24 50 Sheffield Utd 25 15 5 5 43:22 50 Blackburn 25 13 0 12 29:30 39 Sunderland 25 10 7 8 37:28 37 Watford 24 10 7 7 30:24 37 Grikkland Panathinaikos – OFI Krít......................... 1:1 Hörður Björgvin Magnússon lék allan leik- inn með Panathinaikos sem er með fjögurra stiga forystu á toppnum. Guðmundur Þórarinsson var ekki í leik- mannahópi OFI. Njarðvíkingar skutu granna sína í Keflavík af toppi úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í gærkvöld með sannfærandi sigri á þeim í Ljónagryfjunni, 114:103. Njarðvíkingar eru nú tveimur stigum á eftir Keflvíkingum sem hins vegar urðu að gefa eftir toppsæti deildarinnar með þessum ósigri. Þeir sitja þó áfram í fjórða sætinu, á eftir Breiðabliki. Njarðvík var með yfirhöndina allan leikinn eftir að hafa náð ótrúlegri forystu í fyrsta leikhluta, 40:18. Keflvíkingar náðu að minnka muninn í sjö stig undir lokin. Dedrick Deon Basile átti stórleik en hann skoraði 29 stig fyrir Njarðvíkinga og átti 16 stoðsendingar. Logi Gunnarsson skoraði 23 stig og Jose Nacho Martin 22. Hjá Keflavík var Dom- inykas Milka með 23 stig og Valur Orri Valsson skoraði 17. Valsmenn eru einir á toppnum, tveimur stigum á undan Keflvík- ingum, en þeir sigruðu Tindastól í hörkuspennandi og framlengdum leik á Sauðárkróki, 84:78. Þessi lið léku einmitt til úrslita um meistaratitilinn þar sem Valsmenn höfðu betur. Pablo Cesar Bertone skoraði 21 stig fyrir Val, Kári Jónsson 13 og Ozren Pavlovic 12. Antonio Woods skoraði 23 stig fyrir Tindastól og Pétur Rúnar Birgisson 14. Staða KR-inga á botni deildar- innar versnar með hverjum leik. Þeir töpuðu sínum sjöunda leik í röð í gærkvöld, 99:88 gegn Stjörnunni í Garðabæ, og hafa tapað tíu af ellefu leikjum sínum í fyrri umferð deildarinnar. KR situr því eitt og yfirgefið á botni deildarinnar með aðeins 2 stig og á því fyrir höndum erfiða fallbaráttu í seinni umferðinni eftir áramótin. Þeim til happs töpuðu ÍR-ingar líka í gærkvöld en þeir eru tveimur sætum fyrir ofan Vest- urbæinga í tíunda sætinu. Stjarnan lagaði hins vegar stöðu sína í baráttunni um áttunda sætið og keppnisréttinn í úrslitakeppn- inni. Robert Turner skoraði 34 stig fyrir Stjörnuna og Arnþór Freyr Guðmundsson 21. Elbert Matthews skoraði 31 stig fyrir KR og Aapeli Alanen skoraði 17. Nýliðar Hattar gerðu góða ferð til Reykjavíkur en þeir spyrntu sér vel frá fallsvæði deildarinnar með því að sigra ÍR-inga í Skógarseli, 75:65. ÍR var með sex stiga forystu eftir þriðja leikhluta en skoraði aðeins sex stig í þeim fjórða og austan- menn sigldu örugglega fram úr þeim á lokakaflanum. Hattarmenn geta því horft fram á veginn og eru í góðri stöðu til að berjast um að komast í fyrsta skipti í átta liða úrslitakeppnina. Timothy Guers skoraði 13 stig fyrir Hött og Nemanja Knezevic 12. Taylor Johns skoraði 14 stig fyrir ÍR og Sigvaldi Eggertsson 12. Sannfærandi Njarðvíkingar lValsmenn efstir í úrvalsdeildinni eftir sigur á SauðárkrókilEnn tapa KR-ingar KÖRFUBOLTINN Víðir Sigurðsson vs@mbl.is ATKVÆÐATÖLURNAR Í KJÖRINU Á ÍÞRÓTTAMANNI ÁRSINS 1. Ómar Ingi Magnússon, handknattleikur, Magdeburg (Þýskalandi)............................... 615 2. Glódís Perla Viggósdóttir, knattspyrna, Bayern München (Þýskalandi) ..................... 276 3. Gísli Þorgeir Kristjánsson, handknattleikur, Magdeburg (Þýskalandi) ....................... 273 4. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar ............... 172 5. Anton Sveinn McKee, sund, Sundfélagi Hafnarfjarðar ................................................. 164 6. Sandra Sigurðardóttir, knattspyrna, Val........................................................................ 136 7. Elvar Már Friðriksson, körfuknattleikur, Rytas (Litháen)................................................ 85 8. Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingar, ÍA ........................................................................... 73 9. Tryggvi Snær Hlinason, körfuknattleikur, Zaragoza (Spáni) ......................................... 65 10.-11. Hilmar Örn Jónsson, frjálsíþróttir, FH ..................................................................... 62 10.-11. Viktor Gísli Hallgrímsson, handknattleikur, Nantes (Frakklandi)........................... 62 12. Sveindís Jane Jónsdóttir, knattspyrna,Wolfsburg (Þýskalandi).................................. 50 13-14. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, golf, Golfklúbbi Reykjavíkur ...................................... 43 13-14. Snorri Einarsson, skíðaganga, Skíðafélaginu Ulli .................................................... 43 15. Bjarki Már Elísson, handknattleikur, Veszprém (Ungverjalandi) .................................. 30 16. Hákon Arnar Haraldsson, knattspyrna, FC Köbenhavn (Danmörku) ........................... 26 17. Dagný Brynjarsdóttir, knattspyrna,West Ham (Englandi)............................................ 24 18. Guðni Valur Guðnason, frjálsíþróttir, ÍR ......................................................................... 19 19.-20. Sóley Margrét Jónsdóttir, kraftlyftingar, Breiðabliki ................................................ 9 19.-20. Thelma Aðalsteinsdóttir, fimleikar, Gerplu ............................................................... 9 21. Thelma Björg Björnsdóttir, sund fatlaðra, ÍFR................................................................. 6 22.-24. Eygló Fanndal Sturludóttir, ólympískar lyftingar, Lyftingafélagi Reykjavíkur.......... 5 22.-24. Guðlaug Edda Hannesdóttir, þríþraut, Fjölni ........................................................... 5 22.-24. Hilmar Snær Örvarsson, skíði fatlaðra, Víkingi Reykjavík ........................................ 5 25. Jóhann Berg Guðmundsson, knattspyrna, Burnley (Englandi) ...................................... 3 26. Valgarð Reinhardsson, fimleikar, Gerplu ......................................................................... 2 27. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, golf, Golfklúbbnum Keili ..................................................... 1 ATKVÆÐATÖLURNAR Í KJÖRINU Á ÞJÁLFARA ÁRSINS 1. Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handknattleik ........................ 138 2. Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Vals í handknattleik.................................. 82 3.-4. Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í knattspyrnu ..................... 23 3-4. Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í handknattleik.......... 23 5. Pétur Pétursson, þjálfari kvennaliðs Vals í knattspyrnu .................................................... 7 6. Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur í körfuknattleik............................. 4 7.-8. Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari karlaliðs Vals í körfuknattleik.................................... 1 7.-8. Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í knattspyrnu ........................ 1 ATKVÆÐATÖLURNAR Í KJÖRINU Á LIÐI ÁRSINS 1. Valur, meistaraflokkur karla í handknattleik ................................................................. 111 2. Íslenska karlalandsliðið í handknattleik........................................................................ 85 3. Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu........................................................................ 19 4.-5. Breiðablik, meistaraflokkur karla í knattspyrnu ....................................................... 16 4.-5. Valur, meistaraflokkur kvenna í knattspyrnu ............................................................ 16 6. Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik ........................................................................ 14 7. Íslenska kvennalandsliðið í hópfimleikum ..................................................................... 11 8. Njarðvík, meistaraflokkur kvenna í körfuknattleik .......................................................... 7 kom fram. Mesti munur áður var 244 stig sem skildu að Söru Björk og Martin Hermannsson árið 2020. Þá er þetta aðeins í þriðja sinn í sögu kjörsins sem íþróttamaður ársins fær meira en helmingi fleiri at- kvæði en sá sem hafnaði í öðru sæti. Ólafur Stefánsson átti í hlut í fyrri tvö skiptin. Ólafur fékk 410 stig gegn 183 hjá Erni Arnarsyni árið 2002 og hann fékk 380 stig gegn 187 stigum Eiðs Smára Guðjohnsens árið 2009. Stigatala í kjörinu er breytileg frá ári til árs en hún ræðst af fjölda félagsmanna í Samtökum íþrótta- fréttamanna. Þeir voru 31 talsins í ár og greiddu allir atkvæði. Einstaklega gott ár Ómar Ingi, sem er 25 ára gamall, átti einstaklega gott ár, bæði með Magdeburg í Þýskalandi og íslenska landsliðinu. Hann varð þýskur meistari með Magdeburg og var kjörinn besti leikmaðurinn í Þýskalandi tímabilið 2021-22 ásamt því að hann varð næstmarkahæstur í þýsku 1. deildinni og þriðji hæstur í stoðsendingum. Ómar vann jafn- framt heimsmeistaramót félagsliða með Magdeburg í haust. Á yfirstandandi tímabili hefur Ómar farið á kostum í fjölmörg- um leikjumMagdeburg og er sem stendur sjötti markahæstur í þýsku deildinni og níundi í stoðsendingum þrátt fyrir að hafa leikið tveimur til þremur leikjumminna en keppi- nautarnir á þeim listum. Þá er Ómar í fjórða sæti yfir markahæstu leikmenn Meistara- deildar Evrópu á þessu tímabili og missti þó af tveimur leikja Mag- deburg fyrir jól. Ómar var í lykilhlutverki í íslenska landsliðinu sem kom nokkuð á óvart á Evrópumótinu í Ungverjalandi í janúar og hafnaði í sjötta sæti. Ómar varð markakóngur mótsins með 59 mörk og er annar Íslendingurinn í sögunni, á eftir Ólafi Stefánssyni, til að verða markakóngur EM. Fjórtándi titill handboltans Með þessu kjöri hefur handbolta- fólk fjórtán sinnum hreppt þennan eftirsótta titil, íþróttamaður ársins, frá því kjörið fór fyrst fram árið 1956. Aðeins frjálsíþróttafólk hefur oftar fengið hann, eða í 21 skipti. Ómar er þó aðeins annar hand- knattleiksmaðurinn sem er kjörinn íþróttamaður ársins oftar en einu sinni. Ólafur Stefánsson var kjörinn fjórum sinnum, 2002, 2003, 2008 og 2009. Hin eru Sigríður Sigurðardótt- ir (1964), Geir Hallsteinsson (1968), Hjalti Einarsson (1971), Alfreð Gísla- son (1989), Geir Sveinsson (1997), Guðjón Valur Sigurðsson (2006), Alexander Petersson (2010) og Aron Pálmarsson (2012). Þórir sigraði aftur Þórir Hergeirsson handknattleiks- þjálfari var útnefndur þjálfari ársins 2022 í kjöri Samtaka íþróttafrétta- manna en kjör þjálfara ársins fór nú fram í ellefta skipti samhliða kjörinu á íþróttamanni ársins. Ómar Ingi vann stærsta sigurinn í sögu kjörsins á íþróttamanni ársins lFékk 615 stig af 620mögulegumog 339meira enGlódís semvarð önnur Handknattleiksmaðurinn Ómar Ingi Magnússon frá Selfossi varð í gærkvöld sjöundi íþróttamaðurinn í sögunni til að vera kjörinn íþrótta- maður ársins af Samtökum íþrótta- fréttamanna tvö ár í röð. Vilhjálmur Einarsson var kjörinn íþróttamaður ársins bæði þrisvar og tvisvar í röð á árunum 1956 til 1961. Hreinn Halldórsson, Jón Arnar Magnússon, Örn Arnarson, Ólafur Stefánsson (tvisvar) og Eiður Smári Guðjohnsen eru þeir sem áður hafa verið kjörnir tvö ár í röð. Ómar vann yfirburðasigur í kjör- inu, hlaut 615 atkvæði af 620 mögu- legum en hann var í efsta sæti hjá 30 íþróttafréttamönnum og í öðru sæti hjá einum í kosningunni, en gefin eru 20, 15 og 10 stig fyrir þrjú efstu sætin og síðan frá sjö stigum niður í eitt fyrir hin sætin á atkvæðaseðlinum. Glódís og Gísli í sérflokki Glódís Perla Viggósdóttir, knatt- spyrnukona hjá Bayern München, varð önnur í kjörinu, 339 stigum á eftir Ómari, en þremur stigum á undan handknattleiksmanninum Gísla Þorgeiri Kristjánssyni, sam- herja Ómars hjá Magdeburg, sem hafnaði í þriðja sæti. Þau Glódís og Gísli voru í nokkrum sérflokki í öðru og þriðja sætinu en heildarstigatölu kjörins má sjá hér til hliðar. Gísli Þorgeir fetar nú í fótspor föð- ur síns, Kristjáns Arasonar, sem var níu sinnum í hópi tíu efstu í kjörinu og hafnaði tvisvar í öðru sæti og einu sinni í þriðja sæti. Langmesti munurinn Sigur Ómars Inga er sá stærsti í sögu kjörsins. Hann setur nýtt stigamet, fékk 615 stig, en áður fékk Sara Björk Gunnarsdóttir 600 stig árið 2020. Enginn hefur áður unnið með jafn- miklummun, Ómar var 339 stigum á undan Glódísi Perlu eins og áður ÍÞRÓTTAMAÐUR ÁRSINS Víðir Sigurðsson vs@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.