Morgunblaðið - 30.12.2022, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 30.12.2022, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. DESEMBER 2022 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU OKKUR ENCANTO KOMIN Í BÍÓ SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI N Ý T T ÆV IN T Ý R I Ú R HE IM INUM 71% REEL VIEWS EMPIRE AV CLUBNEW york post indie wire entertainmentweekly the atlantic chicaco sun-times the playlist Ljunggren og Skúli héldu útgáfutónleika í Mengi Nýverið kom út hljómplatan Floreana með leik sænska tón- listarmannsins Gustafs Ljunggrens og bassaleikarans Skúla Sverris- sonar. Á plötunni eru lög eftir Ljung- gren og var hún hljóðrituð bæði á Seltjarnarnesi og í Kaupmannahöfn. Í fyrrakvöld héldu þeir félagar vel lukkaða útgáfutónleika í Mengi. Lagasmíðarnar eru á plötunni sagð- ar ótrúlega tærar og skýrar, „með sterkri skandinavískri skírskotun“. Morgunblaðið/Hákon Tónlistarmennirnir Gustaf Ljunggren og Skúli Sverrisson léku tónlistina af nýrri plötu sinni, Floreana. Gestir Sóley Stefánsdóttir og Héðinn Finnsson voru meðal gesta sem nutu leiks dúettsins í Mengi. Viðstödd Myndlistarkonan Brynja Baldursdóttir.Mætti Kristín Björk Kristjánsdóttir, Kíra Kíra. Starfsmenn Fornleifastofun- ar Ísraels vinna þessa dagana hörðum höndum við uppgröft í Muraba’at-hellinum í Judea-eyði- mörkinni nærri Dauðahafinu. Fyrir um sjötíu árum fundust þar hin fornu og merku handrit sem kennd eru við Dauðahafið og eru talin hafa verið rituð fyrir um 2.100 til 2.400 árum. Markmið uppgraftarins nú er að sjá hvort finna megi fleiri slík handrit eða gripi frá þeim tíma en þegar hellirinn fannst árið 1951 var hann ekki fullkannaður. Þá fundust í honum um 180 skjöl skrifuð á papýrus en í þeim er til að mynda að finna nafn Shimons Bar Kochba, sem leiddi á sínum tíma uppreisn gegn Rómverjum. Leita fleiri handrita nærri Dauðahafinu AFP/Menahem Kahana Uppgröftur Fornleifafræðingar að störfum í Muraba’at-hellinum. Plata Bjarkar Guðmundsdóttur Fossora var valin plata ársins af tónlistargagnrýnendumMorgun- blaðsins, en hún hefur einnig ratað ofarlega á lista fjölmiðla víða um heim. Til dæmis skipar platan 8. sætið á lista New York Times yfir bestu plötur ársins og 12. sætið á lista Pitchfork yfir 50 bestu plötur ársins. Hún er svo í 3. sæti yfir 10 bestu raftónlistarplötur ársins hjá vef- miðlinum Stereogum, á lista yfir 11 bestu tilraunakenndu plötur ársins að mati NPR útvarpsstöðv- arinnar og skipar 8. sætið af 50 bestu plötum ársins 2022 hjá tón- listartímaritinu virta, TheWire. Platan var einnig í 5. sæti hjá The Line of Best Fit, 46. sæti á lista NME yfir 50 bestu plötur ársins, 32. sæti hjá Clash, 35. sæti hjá dagblaðinu The Guar- dian, 46. hjá Uncut og 94. hjá Mojo og einnig á listum hjá Paste Magazine, Slant Magazine, The Skinny, The Atlantic, Far Out Magazine, Treblezine, Our Cult- ure og Vulture. Lög af plötunni og tónlistar- myndbönd hafa líka víða ratað á lista yfir lög og/eða tónlistar- myndbönd ársins. Plata Bjarkar víða ofarlega á árlistum Uppgjör Plata Bjarkar, Fossora, er á mörgum listum ytra yfir plötur ársins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.