Fréttablaðið - 17.01.2023, Page 16
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Sigríður, oftast kölluð Sigga Ásgeirs,
er danskennari og Halla er jóga-
kennari, en undanfarin fimm ár
hafa þær blandað saman dansinum
og jóganu og haldið viðburði í
Kramhúsinu saman. Það var svo í
janúar árið 2020, rétt áður en fyrsta
Covid-bylgjan fór eins og eldur í
sinu um heiminn, að þær skelltu
sér til Tenerife í jógaathvarf þar á
eynni, sem rekið er af hollenskum
hjónum. Það átti eftir að hafa áhrif
á líf þeirra.
„Staðurinn heitir Mandala de
Masca og er staðsettur ofarlega í
fjöllunum í Masca-dalnum sem er
þekktur fyrir sína einstöku ró og
náttúrufegurð. Hollensku hjónin
opnuðu staðinn fyrir níu árum eftir
að konan greindist með brjósta-
krabbamein,“ segir Sigga.
„Hún greindist tvisvar og í
kjölfarið varð hún þunglynd. Þau
hjónin ákváðu þá að breyta um
lífsstíl og fóru að stunda jóga. Hún
fór í jógakennaranám og byrjaði að
bjóða upp á jógabúðir fyrir konur
sem eru í eftirmeðferð eftir brjósta-
krabbamein,“ heldur hún áfram.
„Pabbi mannsins átti veitinga-
stað á Tenerife sem þau breyttu
í þetta jógaathvarf. Áður bjuggu
hjónin í Amsterdam, hann vann
í fjármálageiranum en ég man
ekki alveg hvað hún vann við. Þau
voru vel stæð en óhamingjusöm
og breyttu alveg um stefnu í lífinu
og byggðu upp þennan ótrúlega
fallega stað.“
Sigga lýsir staðnum á þann hátt
að hann hljómar eins og Paradís
á jörðu. Hann er í 700 metra hæð
yfir sjávarmáli, á milli avókadó- og
sítrónutrjáa. Á staðnum er kokkur
sem eldar vegan mat ofan í gestina
sem er allur búinn til úr hráefnum
af eynni. Mest úr garði jógaat-
hvarfsins.
„Það eru fimmtíu avókadótré í
garðinum. Þegar þú situr í jóga-
salnum horfir þú í gegnum avó-
kadótrén yfir í dalinn. Þetta er
alveg ótrúleg upplifun. Þú nærð að
kjarnast svo vel þarna. Staðurinn er
allur svo látlaus og fallegur en samt
er þetta algjör lúxus,“ segir Sigga.
Halda námskeið í Paradís
Þær Halla og Sigga kynntust hol-
lensku hjónunum í fyrstu heim-
sókn sinni í jógaathvarfið og það
fór svo að þau buðu þeim að halda
jóga- og dansnámskeið fyrir konur
í athvarfinu. En stuttu seinna
lokaðist allt vegna Covid. Það leið
því ár áður en þær náðu að fara út
með hóp frá Íslandi í fyrsta sinn
en það var í janúar árið 2021. Núna
eru þær að fara að halda námskeið
á staðnum í fjórða sinn, en þær ætla
að halda tvö vikulöng námskeið í
febrúar.
„Við rétt náðum að komast
með hóp út í janúar 2021 áður en
það kom útgöngubann. Stundum
hugsa ég bara: Hver var eigin-
lega að vernda okkur. En síðan þá
höfum við náð að halda tvö önnur
námskeið. Ef öll rúm á staðnum
eru full er pláss fyrir 19 konur, en
yfirleitt erum við um 11-17. Við
erum með morguntíma og svo
eftirmiðdagstíma en við Halla
skiptumst á að vera með tímana.
Ef það er dans á morgnana þá er
jóga seinnipartinn og svo öfugt.
Svo erum við oftast með einhverja
dagskrá á kvöldin, til dæmis jóga
nidra, sem er liggjandi jóga og
slökun,“ segir Sigga.
„En við erum ekki með stífa dag-
skrá, á milli morgun- og síðdegis-
tímanna er frjáls tími. Þá er hægt
að slaka á við sundlaugarbakkann,
en sundlaugin er upphituð, fara í
göngu um dalinn eða fara niður í
bæ og fá sér kaffi. Þú þarft ekki að
hugsa um neitt, það er bara hringt
á bjöllu þegar maturinn er tilbúin
og þá er kokkurinn búinn að elda
fyrir þig ótrúlega flotta máltíð og
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun
@frettabladid.is
Halla og Sigga
hafa unnið
saman í fimm ár
og kennt jóga og
dans. Þær eru á
leið til Tenerife
í febrúar og
ætla að halda
þar jógabúðir.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Hægt er að fara
í dans- eða jóga-
tíma utandyra
og horfa yfir
Masca-dalinn.
Halla og Sigga fundu Paradís uppi í fjöllunum á Tenerife. Hópur kvenna dansar í sólinni. MYNDIR/AÐSENDAR
Hollensku hjónin breyttu gömlu veitingahúsi í jógaat-
hvarf. Fyrir utan gluggann vex avókadó á trjánum.
það er blóm ofan á. Þetta er eins
og að borða alltaf á fimm stjörnu
veitingastað. Svo er fólk yfirleitt
sofnað á milli 9 og 10 á kvöldin,
þetta er svo mikil slökun.“
Sigga segist yfirleitt kenna
seinnipartstímana úti, þá standa
þátttakendur uppi á palli með
dalinn fyrir framan sig.
„Þá horfum við bara yfir allan
dalinn. Þetta er alveg geðveikt.
En svo á milli tíma er líka hægt
að fara í nudd og ýmislegt fleira á
staðnum. Það er á vegum hol-
lensku hjónanna en þau eru ekki
að reka þetta með gróða í huga.
Þetta snýst allt um að láta fólki líða
vel. Allt sem þú greiðir fyrir auka-
lega, eins og nudd, rennur í sjóð
sem hjónin nota til að bjóða upp á
batameðferð fyrir konur sem hafa
fengið brjóstakrabbamein.“
Sigga segir að þær Halla hlakki
mikið til að fara aftur til Tenerife í
febrúar og dvelja á þessum dásam-
lega stað.
„Okkur langar að halda nám-
skeið þarna úti svona einu sinni til
tvisvar ári. En við höfum líka verið
með mini-útgáfur af því í Kram-
húsinu fyrir þær sem komast ekki
til Tene. Bara til að gefa smjör-
þefinn af þessu fyrir þær sem ekki
hafa tök á því að fara út.“ n
Það eru fimmtíu
avókadótré í garð-
inum. Þegar þú situr í
jógasalnum horfir þú í
gegnum avókadótrén
yfir í dalinn. Þetta er
alveg ótrúleg upplifun.
Sigga Ásgeirs
2 kynningarblað A L LT 17. janúar 2023 ÞRIÐJUDAGUR