Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.02.2022, Síða 2

Víkurfréttir - 02.02.2022, Síða 2
 FINNDU OKKUR Á FACEBOOK DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K 845 0900 FERÐIR Á DAG ALLTAF PLÁSS Í BÍLNUM HREINSUM RIMLAGARDÍNUR OG MYRKVUNARGARDÍNUR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á ALLTHREINT.IS Línubáturinn Valdimar GK frá Vogum kom til lands í Ólafsvík á sunnudaginn í leiðindaveðri. Að sögn Vigfúsar Markússonar, skipstjóra, var þetta í annað sinn á viku sem Valdimar landar í Ólafsvík. „Við erum með fullfermi, eða 103 tonn. Vorum á veiðum vestarlega á Breiðarfirði og það í skítaveðri, en þrátt fyrir slæma veðráttu allan túrinn náðist þessi afli og er greinilega mikill fiskur á þessum slóðum,“ sagði Vigfús þegar hann kom að landi. Löndun hófst svo úr Valdimar eftir hádegi og sá Fiskmarkaður Snæfells­ ness um löndun og var ekið með fiskinn suður til vinnslu. Loftrýmisgæsla Atlantshafsbanda­ lagsins við Ísland hefst í vikunni með komu flugsveitar portúgalska flughersins hingað til lands. Þetta er í annað sinn sem Portúgalar taka þátt í verkefninu hér á landi en síðast annaðist portúgalski flug­ herinn loftrýmisgæslu á Íslandi fyrir áratug. Flugsveitin kemur til landsins með fjórar F­16 orrustuþotur og um 85 liðsmenn sem hafa aðsetur á ör­ yggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Gert er ráð fyrir að portúgalska flugsveitin geri aðflugsæfingar að varaflugvöllum á Akureyri og Egils­ stöðum á tímabilinu 31. janúar til 7. febrúar en æfingarnar taka mið af veðri. Framkvæmd verkefnisins er með sama hætti og áður og í samræmi við loftrýmisgæsluáætlun Atlants­ hafsbandalagsins fyrir Ísland. Eins og með annan erlendan liðsafla sem hér á landi dvelur tímabundið þá er í gildi viðbúnaður vegna sóttvarna meðan á dvöl portúgölsku flugsveit­ arinnar stendur og er framkvæmdin unnin í samvinnu við Embætti landlæknis og aðra sem koma að sóttvörnum hér á landi. Landhelgis­ gæsla Íslands annast framkvæmd verkefnisins í umboði utanríkisráðu­ neytisins og í samvinnu við Isavia. Ráðgert er að loftrýmisgæslunni ljúki í lok mars. Erindi stjórna körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur var tekið fyrir í bæjarráði Reykjanesbæjar 27. janúar. Þar er beðið um aukið framlag til barna­ og unglingaráða fé­ laganna beggja, upp á þrjár milljónir króna á hvort lið, og aukið framlag til körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur, upp á átta milljónir króna á hvort lið. Bæjarráð samþykkir að styrkja aðalstjórn Keflavíkur um sjö og hálfa milljón króna og aðalstjórn Njarð­ víkur um sömu upphæð vegna Covid sem sérstaklega er ætlað körfuknatt­ leiksdeildum félaganna. Í bréfi sem Kristín Örlygsdóttir, formaður körfuknattleiksdeildar Njarðvíkur, Kristján Helgi Jó­ hannsson, varaformaður körfu­ knattleiksdeildar Keflavíkur, Ólafur Eyjólfsson, formaður aðalstjórnar Njarðvíkur, og Einar Haraldsson, for­ maður aðalstjórnar Keflavíkur, rita til bæjarstjórans í Reykjanesbæ segir: „Á dögunum sátu aðilar úr stjórnum körfuknattleiksdeilda Keflavíkur og Njarðvíkur fund saman. Ástæða fundarins var staðan á rekstri deildanna sem því miður orðin ansi slæm en ástæðuna má að langmestu leyti rekja til þess ástands sem hefur ríkt í okkar samfélagi með tilkomu Covid­19. Við viljum ekki fara í langar útskýringar hér á þessum vettvangi yfir það hversu gríðarlegu tekjutapi deildirnar hafa orðið fyrir en viljum gjarnan fá tæki­ færi til að sýna ykkur svart á hvítu hvernig málin standa. Þess vegna leitum við til ykkar með þá von að þið séuð reiðubúin til að hitta okkur þar sem við förum ítarlega yfir stöðuna. Eins og við nefnum hér að ofan þá er staðan orðin slæm og því má segja að við séum að óska eftir neyðarfundi. Ef deildirnar okkar ynnu eftir við­ búnaðarstigi líkt og Almannavarnir mætti segja við við séum á hættu­ stigi en við það að detta á neyðar­ stig.“ „Undirbúningur að uppbyggingu Suðurnesjalínu 2 hefur staðið yfir á annan áratug og ennþá er ekki komin niðurstaða um hvernig línan verði lögð. Núverandi staða málsins er algerlega óviðunandi. Það er fyrir löngu orðið mjög aðkallandi að auka afhendingaröryggi raforku til Suður­ nesjabæjar, sem og til að mæta eftir­ spurn og þörf fyrir aukna raforku bæði vegna mikillar fjölgunar íbúa og uppbyggingar atvinnulífs í sveitar­ félaginu,“ segir m.a. í afgreiðslu bæj­ arráðs Suðurnesjabæjar um erindi frá Alþingi er varðar umsögn um frumvarp til laga um framkvæmda­ leyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2. Bæjarráð Suðurnesjabæjar leggur áherslu á að það er brýnt og aðkall­ andi að fá niðurstöðu varðandi upp­ byggingu Suðurnesjalínu 2 og að framkvæmdir hefjist sem allra fyrst. Reykjanesbær samþykkti sams­ konar tillögu á fundi sínum á þriðjudag, 1. febrúar. Fylltu bátinn í leiðindaveðri á Breiðafirði Valdimar GK að koma í höfn á sunnudagsmorgun í leiðindaveðri og kafaldsbyl. Texti og mynd: Skessuhorn. Portúgalar í loftrýmisgæslu Aðkallandi að fá niðurstöðu í Suðurnesjalínu 2 Fimmtán milljónir til körfu- boltans vegna Covid-19 Deildir Keflavíkur og Njarðvíkur leituðu til bæjaryfirvalda „Á hættustigi og við það að detta á neyðarstig“ 1.902 börn nýttu sér hvatagreiðslur Alls nýttu 1.902 börn sér hvatagreiðslur í Reykjanesbæ á árinu 2021 sem er 56,7% af heildarfjölda sex til átján ára barna í Reykjanesbæ. Nýtingin hefur aukist um 6% frá 2019. Þetta gera greiðslur upp á 76 milljónir króna. Bæjaryfirvöld hækkuðu greiðslurnar í 45.000 kr. 1. janúar sl. Störf í boði hjá Reykjanesbæ Hjá Reykjanesbæ starfar samhentur hópur fólks sem tekst á degi hverjum við krefjandi verkefni í þágu allra bæjarbúa. Jafnræðis er gætt í ráðningarferlinu og ráðning byggist á hæfni umsækjanda til að sinna starfinu í samræmi við þær kröfur sem settar eru fram í auglýsingu. Við ráðningar er ávallt höfð hliðsjón af jafnréttisáætlun Reykjanesbæjar. Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn Njarðvíkurskóli - Kennari Starf við liðveislu 2 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.