Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.02.2022, Side 4

Víkurfréttir - 02.02.2022, Side 4
Opnar frískápur í Reykjanesbæ? Anna Karen Sigurjónsdóttir, sjálfbærnifulltrúi, mætti á síðasta fund framtíðarnefndar Reykjanesbæjar undir liðnum „Matarsóun – Hringrásarkerfið“ og kynnti svo- kallaðan frískáp en það er hugtak sem sameinar orðin „frítt“ og „ísskápur“. Hugmyndin er að þangað geti fólk farið með matvæli sem það ætlar sér ekki að nýta. Með þessu er verið að stuðla að hringrásarhagkerfi og minnka matarsóun. Nú þegar eru tveir slíkir skápar starfræktir á landinu, einn í Reykjavík og annar á Höfn í Hornafirði, en mörg hundruð frískápar eru starf­ ræktir um allan heim og eru þekktir undir heitinu freedge. Ekki kemur fram í gögnum fundarins hvort ákvörðun hafi verið tekin um að opna frískáp í Reykjanesbæ. Atvinnuleysi 9,9% við árslok 2021 Atvinnuleysi mældist 9,9% við árslok 2021 og hefur verið svipað frá því í ágúst. Þetta kom fram á síðasta fundi menningar- og atvinnuráðs Reykjanesbæjar. Alls voru 1.113 einstaklingar skráðir í atvinnuleit um áramót. Þar af 659 karlar og 464 konur. Hæst fór atvinnuleysi í 24,9% þegar 2.717 einstaklingar voru skráðir í atvinnuleit í janúar fyrir ári síðan en atvinnuleysi dróst mikið saman um mitt ár. „Þegar litið er yfir liðið ár, má sjá að langstærsti hluti atvinnu- lausra komu úr yngri aldurs- hópum og höfðu starfað við greinar tengdar flugi og ferða- þjónustu. Vonir standa því til þess að við göngum nú um árs- tíðarbundna lágtíð og atvinnu- leysi muni á nýjan leik dragast saman á vormánuðum með aukinni umferð um flugvöllinn,“ segir í gögnum fundarins. Rétturinn Ljúengur heimilismatur í hádeginu Opið: 11-13:30 alla virka daga   Bílaviðgerðir Smurþjónusta    Varahlutir Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík sími 421 7979 www.bilarogpartar.is Sandgerðing­ urinn Dr. Aldís Guðný nýr for­ stöðumaður hjá Háskólanum í Reykjavík Dr. Aldís Guðný Sigurðardóttir hefur verið ráðin forstöðu- maður MBA náms og lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík. Aldís er sérfræð- ingur í samningatækni og hefur starfað undanfarin ár við Há- skólann í Twente, Hollandi, þar sem hún hefur rannsakað hegðun samningamanna og kennt þau fræði sem og önnur viðskiptatengd fög. Í Twente hefur hún einnig þróað náms- línu á meistarastigi í samninga- tækni og stýrt því námi. Frá þessu er greint á vef Háskólans í Reykjavík. Aldís Guðný Sigurðardóttir er fædd og uppalin í Sandgerði. Hún er forstöðumaður MBA náms og lektor við viðskiptadeild Há­ skólans í Reykjavík. Aldís hefur kennt viðskipta­ tengd fög víðsvegar um Evrópu um árabil. Rannsóknaráhugi hennar snýr fyrst og fremst að hegðun samningamanna og hvaða hegðun sé vænlegust til ár­ angurs. Að auki hefur Aldís hefur starfað sem aðstoðarsáttasemjari hjá embætti Ríkissáttasemjara frá byrjun árs 2021. Aldís lauk doktorsnámi í við­ skiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík með áherslu á hegðun samningamanna árið 2018 og kennsluréttindum frá Háskól­ anum í Twente árið 2021. Ásmundur staðfestir framboð í Rangárþingi ytra Ásmundur Friðriksson, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi og fyrrverandi bæjarstjóri í Sveitar- félaginu Garði, hefur staðfest að hann hafi tekið áskorun um að gefa kost á sér í oddvitasætið hjá sjálfstæðismönnum í Rangárþingi ytra. „Tæki færið er spenn andi og ég gaf mínu fólki fyr ir aust an lof orð um að bjóða mig fram sem sveit ar stjóra­ efni. Frest ur renn ur út um miðjan fe brú ar og að óbreyttu fer ég í fram­ boð,“ seg ir Ásmund ur í viðtalið við Morgunblaðið. Rangárþing ytra spann ar svæðið milli Eystri­Rangár og Þjórsár; frá fjöru og inn á fjöll. Ásmund ur var á ferð um svæðið um helg ina og ræddi við fólk um lands ins nauðsynj ar og verk efn in framundan, segir í frétt Morgunblaðsins. „Ég kann vel við mig hér í Rangár­ þingi ytra og ég á hér vini á nán ast öðrum hverj um bæ. Kon an mín, Sig­ ríður Magnús dótt ir, er frá Lyngási, skammt frá Hellu og hér í sveit eig um við sum ar hús. Á þess um slóðum á ég trausta stuðnings menn og góða vini,“ seg ir Ásmundur sem hefur flutt lögheimili sitt að Árbæj­ ar hjá leigu í Holt um. Bæjarráð Sveitarfélagsins Voga vísaði á dögunum erindi Birkis Rútssonar varðandi lýsingu göngu- stíga til umhverfis- og skipulags- nefndar sveitarfélagsins. Á fundi Skipulagsnefndar 19. nóvember 2021 lagði nefndin til að lýsing göngustíga yrði sett á fjárhagsá- ætlun næsta árs. Birkir biður um að göngustígar meðfram strand- lengjunni fái að haldast rökkvaðir svo hægt sé að njóta næturhim- insins áfram. „Núna er í skoðun lýsing nokkura göngustíga til að bæta öryggi þeirra. Skoðaðar verða ýmsar lausnir og þar á meðal lýsing með lágum staurum (<1m) sem eiga ekki að vera truflandi fyrir þá sem vilja skoða næturhim­ ininn,“ segir í afgreiðslu skipulags­ nefndar á málinu. Lýsingin á ekki að vera truflandi – fyrir þá sem vilja skoða næturhimininn Þjónustuaðili fyrir: Volvo - Ford - Mazda - Peugeot Citroen - Suzuki Alhliða bílaverkstæði og dekkjaþjónusta þar sem þjónustan er í fyrirrúmi Iðjustíg 1, 260 Reykjanesbæ 421 4620 bilaverk.thoris@gmail.com facebook.com/Bílaverkstæði-Þóris Alhliða bifreiðaverkstæði sem býður einnig upp á dekkjaþjónustu ÞJÓNUSTAN Í FYRIRRÚMI Á BÍLAVERKSTÆÐI ÞÓRIS PÁSKA- OG SUMARÚTHLUTUN Starfsmannafélag Suðurnesja auglýsir orlofshús félagsins laus til umsóknar. Umsóknarfrestur vegna páska er til 14. febrúar 2022 – úthlutað 15. febrúar 2022 Umsóknarfrestur vegna sumars er til 1. mars 2022 – úthlutað 3. mars 2022 Páskaúthlutun er frá 14. til 21. apríl 2022 Sumarúthlutun er frá 6. júní til 12. ágúst 2022 (vikuleiga) Búið er að opna fyrir umsóknir. Hægt er að sækja um orlofshús á vef félagsins stfs.is eða vera í sambandi við starfsfólk á skrifstofu félagsins að Krossmóa 4, 260 Reykjanesbæ. Sími 421 2390. Orlofsnefnd STFS Um er að ræða eftirtalin orlofshús: Munaðarnes Þrjú hús með heitum potti Verð kr: 30.000–35.000 Reykjaskógur Eitt hús með heitum potti Verð kr: 35.000 Akureyri Tvær íbúðir Verð kr: 30.000 Auglýsingin er einnig á vefsíðu okkar www.stfs.is Sameiginleg björgunarmið­ stöð í Grindavík? Bæjarráð Grindavíkur tekur vel í hugmyndir um sameiginlega björg- unarmiðstöð í Grindavík og felur sviðsstjóra skipulags- og umhverf- issviðs að vinna málið áfram. Undir liðnum „Björgunarmiðstöð í Grindavík ­ hugmyndavinna“ á síð­ asta fundi bæjarráðs var lagður fram tölvupóstur frá Björgunarsveitinni Þorbirni varðandi hugmyndir um sameiginlega björgunarmiðstöð í Grindavík. Sviðsstjóri skipulags­ og umhverfissviðs sat fundinn undir þessum dagskrárlið. 4 // vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.