Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.02.2022, Page 7

Víkurfréttir - 02.02.2022, Page 7
Í Reykjanesbæ er starfrækt athvarf fyrir villiketti og ketti sem fara á ver- gang. Nú eru þar á annan tug katta sem bíða þess að eignast varanlegt heimili eða komast á fósturheimili. Athvarf Villikatta er rekið í sjálfboða- vinnu og þar eru staðnar vaktir alla daga í umönnun dýranna. Flest höfum við heyrt talað um villiketti en þeir eru komnir til að vera á Íslandi. Þeim hefur lítið verið sinnt fyrir utan einstaka dýravini. Viðhorf yfirvalda til þeirra hefur yfirleitt verið neikvætt og leitt til ómannúðlegra útrýmingar- herferða. Flestir villikettir eru félagsdýr og hópa sig saman á svæðum þar sem einhverja fæðu er að finna. Markmið sjálfboðaliðanna á Suðurnesjum er að stuðla að því að koma þessum dýrum til hjálpar með skipulegum aðgerðum. Þar vegur þyngst að ná dýrunum, gelda og framkvæma ófrjó- semisaðgerðir. Að Fanga-Gelda-Skila skilar mestum árangri í að fækka villiköttum og bæta velferð þeirra. Bjarga kisum og reyna að finna eigendur „Við erum í því að bjarga inn kisum og reynum að finna hvort þær eigi eiganda. Ef ekkert kemur út úr því þá komum við þeim á heimili. Þær fara í geldingu og örmerkingu fyrst,“ segir Silja Ýr Markúsdóttir sem fer fyrir félagsskap Villikatta í Reykja­ nesbæ og nágrenni. Deild Villikatta í Reykjanesbæ og nágrenni var stofnuð árið 2015 en árið áður var félagsskapurinn Villikettir stofnaður á landsvísu. Fjölmargir kettir eru á Suðurnesjum. Ekki er vitað hversu margir þeir eru en Silja Ýr hefur þá tilfinningu að það hafi aukist að fólk fái sér ketti. Silja Ýr byrjaði hjá Villiköttum árið 2017 og þá fyrst í veiðum en sett er út búr til að fanga villta ketti. Hún segir að fljótlega hafi starfið undið upp á sig og nú sé hún af fullum krafti í starfsemi Villikatta í Reykja­ nesbæ og nágrenni. Félagsskapurinn rekur aðstöðu í Innri­Njarðvík sem sé kisukot. Þar fá kettirnir afdrep þar til þeim hefur verið fundið fram­ tíðarheimili. Meira um ketti á vergangi en villta Kisurnar sem koma til Villikatta hér suður með sjó eru í misjöfnu ástandi. Í dag er þó meira um ketti sem hafa farið á vergang heldur en villiketti, ketti sem fæðast villtir í náttúrunni. Ástæður þess að kettir fara á ver­ gang eru svo mismunandi. Kettir geta farið að heiman og ekki ratað aftur heim en það eru líka dæmi um að fólk kasti dýrunum sínum út á guð og gaddinn. Því miður er líka mikið um ómerkta ketti og því erfitt að finna eigendur þeirra. Silja Ýr segir að það sé að aukast að fólk láti örmerkja dýrin sín en það mætti þó vera meira um það. „Við erum að fá rosalega mikið af gæfum köttum sem eru ekki merktir og þurfum þá að treysta á samfélagsmiðla til að koma þeim til síns heima,“ en þegar köttur kemur til Villikatta er tekin af honum mynd og hann aug­ lýstur á samfélagsmiðlum eins og Facebook og Instagram. Þá reyna þau að deila myndunum áfram inn á kattasíður, sem eru þónokkrar á veraldarvefnum. Villikettir reyna að auglýsa eftir réttmætum eiganda kattar í tvær vikur áður en farið er í að gelda og örmerkja og finna nýtt heimili fyrir dýrið. „Ef eigandi dýrsins finnst ekki, þá fara þau í heimilisleit. Það er engum kisum lógað hjá okkur,“ segir Silja Ýr. Hún segir allan gang á því hversu lengi kisurnar eru í kotinu hjá Villi­ köttum. Ef að kettirnir eru frekar villtir þegar þeir koma þá eru þeir lengi í kotinu eða þar til þeir eru til­ búnir á heimili. Köttur telst tilbúinn þegar hann vill vera í kringum mann­ fólk og þiggja klapp. Tók sex ár að fanga læðu sem eignaðist yfir 100 kettlinga Hjá Villiköttum í Reykjanesbæ og nágrenni þarf mismikið að hafa fyrir því að ná villiköttum. Um þessar mundir er í kisukotinu læða sem tók heil sex ár að fanga. Á þessum sex árum var læðan með tvö til þrjú got á ári og eignaðist sex til átta kettlinga í hvert sinn, þannig að af­ komendur hennar eru margir, vel á annað hundrað. Þeir voru fangaðir jafnóðum en mamman lét ekki ná í skottið á sér fyrr en af öllum þessum árum liðnum. Silja Ýr segir að nú búi læðan við gott atlæti í kisukotinu hjá Villiköttum. Hún sé orðin gömul og muni eflaust verja ævikvöldinu hjá félaginu. Hún sé vör um sig og slái til þeirra sem reyna að gefa henni klapp. „Það er svona einn og einn sem nær að lauma hendinni á hana. Henni líður ekki illa hjá okkur og við viljum því ekki setja hana út,“ segir Silja Ýr. Kettlingar sem fæðast úti í nátt­ úrunni eru hinir raunverulegu villi­ kettir. Áður fyrr voru þeir veiddir, geldir og eyrnaklipptir og sleppt aftur út í náttúruna. „Í dag reynum við að manna þessa ketti og erum með ótrúlega góða sjálfboðaliða sem eru snillingar í því,“ segir Silja Ýr. Þá eru kattavinir duglegir að leggja Villi­ köttum lið með því að leggja til fóður fyrir kettina eða styrkja félagið með fjárframlögum. Undanfarið hafa heyrst fréttir af höfuðborgarsvæðinu um að það sé skortur á köttum í landinu og eftir­ spurn sé meiri en framboðið. Þau hjá Villiköttum kannast þó ekki við þennan skort og þar er hægt að fá kisur á öllum aldri sem eru í heim­ ilisleit. Í dag eru Villikettir í Reykja­ nesbæ og nágrenni t.a.m. með vel á annan tug katta sem eru að leita sér að nýju heimili. Nokkuð rennsli er í gegnum kisukotið. Nýverið fóru nokkrir kettir á heimili og þá komu fjórir í staðinn. Starfið unnið í sjálfboðavinnu Starfsemi Villikatta í Reykjanesbæ og nágrenni er rekin í sjálfboðavinnu með með styrkjum frá kattavinum. Þá standa sjálfboðaliðar vaktir í kisukotinu alla daga en þrjár vaktir eru á sólarhring, morgun­, dag­ og kvöldvakt, þar sem verið að sinna dýrunum. „Við höfum verið heppin með sjálfboðaliða og erum með góðan hóp núna,“ segir Silja Ýr. Villikettir í Reykjanesbæ og ná­ grenni eru með samninga bæði við Reykjanesbæ og Suðurnesjabæ um að kettir þar sem fara á vergang eða eru villikettir verði í umsjón fé­ lagsins. Þá hefur Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja nokkrum sinnum leitað til félagsins um að það taki við köttum sem komið er með þangað. Hvað drífur fólk áfram í að hafa kött á heimilinu? „Þetta er svo gefandi og kettir veita manni félagsskap.“ Það er sagt að fólk verði einmana þegar það missir maka sinn og að það hjálpi að fá sér kött. „Já, algjörlega. Mér finnst að það ættu að vera kettir inni á öllum öldrunarheimilum líka. Þetta gefur fólki rosalega mikið,“ segir Silja Ýr Markúsdóttir að endingu. Kettir svo gefandi og veita góðan félagsskap – segir Silja Ýr Markúsdóttir hjá Villiköttum í Reykjanesbæ og nágrenni Smelltu á myndskeiðið í rafrænum Víkurfréttum til að horfa og hlusta Tímabókanir í síma 568 6880 VANTAR ÞIG HEYRNARTÆKI? Glæsibæ | Reykjavík | Landsbyggðaþjónusta | Heyrnartaekni.is | 568 6880 Nýju MORE heyrnartækin eru þjálfuð til að þekkja hljóð. Innbyggt djúptauganet skilar einstaklega nákvæmri hljóðvinnslu og skýrum hljómgæðum. Árni Hafstað heyrnarfræðingur hjá Heyrnartækni verður í Reykjanesbæ 10. febrúar við heyrnarmælingar, ráðgjöf og sölu heyrnartækja. Silja Ýr hugar að kisunum hjá Villiköttum í Reykjanesbæ. vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 7

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.