Víkurfréttir - 02.02.2022, Síða 14
Körfubolti gerir
alla vegi færa
Atli Arason er íþróttafréttamaður og stjórnandi körfubolta-
hlaðvarpsins Undir körfunni. Áhugi hans á körfubolta kviknaði
þegar hann fór á sinn fyrsta körfuboltaleik í Njarðvík. Hann
segir áhugann ekki hafa verið til staðar þegar hann var yngri
vegna þess hve góður vinur hans var í körfubolta. „Þegar ég
spilaði körfubolta með honum sem krakki var ég bara niður-
lægður.“
Æskuvinur Atla, Haukur Pálsson,
er landsliðsmaður í körfubolta og
spilar nú með Njarðvík.
„Við vorum saman í Hamraskóla
í Grafarvoginum. Hann var svo
ógeðslega góður í körfubolta að
hann gat verið einn á móti okkur
þrettán en samt unnið okkur,“
segir Atli og bætir við: „Ég er svo
lítið þrjóskur og myndaði með mér
ákveðinn mótþróa gagnvart körfu
boltanum, vegna þess hve góður
hann var, og fótboltinn varð því
fyrir valinu.“ Þá segir Atli vinskap
þeirra Hauks hafa hjálpað honum
í fjölmiðlaverkefnum sínum er
tengjast körfubolta.
Atli skrifar íþróttafréttir fyrir
Vísi. „Ég var aðallega að sjá um
umfjöllun um fótbolta þar til í
janúar 2021. Þá hefur yfirmaður
minn samband við mig og segir að
það vanti mann á körfuboltaleik í
Njarðvík og spyr hvort ég vilji prófa
það, sem og ég gerði.“ Atli segir
þennan körfuboltaleik hafa verið
þann fyrsta sem hann sá í fullri
lengd. „Ég var voðalega stressaður
yfir þessu öllu, að vera að skrifa
fyrir stóran fréttamiðil og það um
körfubolta.“
Atli segir að með hjálp Hauks,
vinar síns, hafi hann lært ýmis
hugtök og staðreyndir um boltann.
Hann segir sitt helsta markmið
verra að skila frá sér umfjöllun um
körfubolta á skýran hátt. „Ég vil að
þeir sem ekki sjá leikinn geti lesið
umfjöllunina mína og tekið þátt
í samræðum um leikinn á kaffi
stofunni daginn eftir.“ Atla hefur
farið mikið fram í umfjöllun sinni
um körfubolta og segist reglulega
fá hrós frá bæjarbúum Reykjanes
bæjar.
Hlaðvarp Atla, Undir körfunni,
hefur notið mikilla vinsælda en
þættirnir eru klukkustundar viðtöl
þar sem Atli kynnist leikmönnum
og liðum þeirra betur. Atli segir
hugmyndina að hlaðvarpinu hafa
orðið til í fjölmiðlastúkunni á
körfuboltaleik. Var það skoðun
Atla að erfitt væri að kynnast leik
mönnum í stuttum viðtölum eftir
leiki. „Einn daginn er ég að blaðra
við Davíð Eld, ritstjóra karfan.is,
um að öll körfuboltahlaðvörp á Ís
landi séu um það sama. Þau fjalli
öll um leikina frá liðinni umferð.
Ég talaði fyrir vöntun á því að
taka svona eigindleg viðtöl við leik
menn.“ Þá segir hann Davíð hafa
tekið vel í hugmyndina og úr varð
hlaðvarpið Undir körfunni.
Atli leggur mikið upp úr því að
kynjajafnvægi sé í viðmælandahóp
sínum en hann ákvað að taka viðtöl
við einn kvenkyns og einn karl
kyns fulltrúa frá hverju liði í úr
valsdeildinni. „Athyglin er aðeins
meira á karladeildinni en kvenna
en ég ákvað strax að ég vildi taka
kvennadeildina fyrir líka,“ segir
Atli. Þá segir hann liðin frá Suður
nesjum einnig fá meiri athygli en
önnur. „Það er aðeins meiri athygli
á Suðurnesjaliðunum því körfu
boltinn er svo stór hér.“
Atli flutti til Reykjanesbæjar
fyrir nokkrum árum vegna vinnu
sinnar sem flugþjónn og líkar vel.
Hann segir körfuboltann vera það
besta við að búa á svæðinu. „Körfu
boltinn er einhvern veginn svo
mikið lím hérna, allir sem ég þekki
hér tengjast körfubolta á einn eða
annan hátt,“ segir Atli. „Ég fattaði
það um leið og ég kom inn í körfu
boltann að hann gerir einhvern
veginn alla vegi færa í Reykja
nesbæ,“ bætir hann við og hlær.
NAFN: ALDUR:
ROBBI RYAN 24 ÁRA
STAÐA Á VELLINUM:
BAKVÖRÐUR (GUARD)
MOTTÓ:
AÐ VERA GÓÐ MANNESKJA
Vil frekar vera sú sem borðar en sú sem eldar
Robbi Ryan gekk til liðs við nýliða Grindavíkur í Subway-
deild kvenna í byrjun tímabils. Hún hefur reynst liðinu
happafengur og leiðir liðið í stigum, fráköstum og stoð-
sendingum. Robbi svarar nokkrum laufléttum spurningum í
uppleggi vikunnar.
Hefurðu fasta rútínu á leikdegi?
Enga sérstaka – ég borða, legg mig
og hlusta á tónlist.
Hvenær byrjaðir þú í körfu og af
hverju valdirðu körfubolta?
Ég hef spilað körfubolta síðan ég
man eftir mér. Ég á fjögur eldri
systkini og þau voru öll í íþróttum
svo ég hef alltaf verið innan um
íþróttir.
Hver er besti körfuboltamaður
allra tíma? Michael Jordan og
Kobe.
Hver er þín helsta fyrirmynd?
Vinkona mín, Briann January.
Hvert er eftirminnilegasta atvikið á
ferlinum? Ekki viss.
Hver er besti samherjinn? Þeir allir.
Hver er erfiðasti andstæðingurinn?
Öll liðin eru með sína hæfileika og
þau bjóða upp á ólíkar áskoranir í
hverjum leik.
Hver eru markmið þín á þessu
tímabili? Að halda áfram að vaxa
sem leikmaður og bæta mig og
liðið.
Hvert stefnir þú sem íþrótta-
maður? Vonandi í rétta átt og læri
eitthvað nýtt og vaxi á hverjum
degi.
Hvernig væri fimm manna úrvalslið
þitt skipað með þér? Ekki viss.
Fjölskylda/maki: Ég á fjögur eldri
systkini, þrjár systur og bróður.
Hvert er þitt helsta afrek fyrir utan
körfuboltann? Að hafa getað notað
aðstöðu mína í háskóla til að vekja
fólk til vitundar um geðheilbrigði,
jafnvel þótt það hafi bara náð
eyrum fárra.
Áttu þér áhugamál fyrir utan
körfuboltann? Hlusta á og spila
tónlist, gera hvað sem er utan dyra
og drekka kaffi.
Ef þú ætlar að gera vel við þig,
hvað gerirðu? Býð sjálfri mér upp á
kaffi og með því.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Morgunverður.
Ertu öflug í eldhúsinu? Ég get verið
það en ég vil frekar vera sú sem
borðar en sú sem eldar [hlær].
Býrðu yfir leyndum hæfileika?
Ég get spilað á gítar.
Er eitthvað sem fer í taugarnar á
þér? Ekki viss.
TREYJA NÚMER:
21
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma.h.hermannsdottir@gmail.com
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
sport