Víkurfréttir - 09.03.2022, Page 5
VILT ÞÚ VINNA
Á SKEMMTILEGUM
VINNUSTAÐ
Vegna aukinna verkefna leitum við að liðsauka í okkar frábæra tækniteymi á
Reykjanesinu. Lögð er rík áhersla á jákvætt hugarfar, framúrskarandi þjónustu,
sjálfstæð vinnubrögð og góðan liðsanda.
Starfið felur í sér fjölbreytta tækni- og eftirlitsþjónustu á öryggis- og
brunaviðvörunarkerfum, ásamt uppsetningum og forritun á aðgangstýrikerfum,
myndavélum og eftirlitsbúnaði.
Ef þú...
• ert með menntun í rafvirkjun eða rafeindavirkjun
• hefur brennandi áhuga á tækninýjungum og góða
almenna tækniþekkingu
• býrð yfir þjónustulund og hæfni í mannlegum
samskiptum
• ert með þekkingu á myndavélum er það kostur
• hefur gott vald á talaðri og skrifaðri íslensku
...þá gætum við verið að leita af þér
Í boði er fullt starf og er vinnutíminn frá kl. 08:00-16:00 mánudaga - fimmtudags
og frá kl. 08:00-14:55 á föstudögum. Starfið hentar öllum kynjum sem eru með
hreint sakavottorð og gilt ökuskírteini.
Umsóknarfrestur er til og með 23. mars nk. og skulu umsóknir sendar inn á www.
securitas.is.
Nánari upplýsingar veitir Inga Lára Jónsdóttir, útibússtjóri, ingalj@securitas.is.
Securitas er leiðandi fyrirtæki á öryggismarkaði sem kappkostar við að
veita framúrskarandi þjónustu með það að markmiði að auka öryggi okkar
viðskiptavina. Securitas hefur verið starfrækt í yfir 40 ár og hefur á þeim tíma
ávallt haft það að leiðarljósi að vinna eftir gildunum árvekni, heiðarleiki og
hjálpsemi.