Víkurfréttir - 09.03.2022, Blaðsíða 13
Orlofshús
Stjórnendafélags Suðurnesja
Sumarúthlutun 2022
Orlofshús félagsins eru á eftirtöldum stöðum:
• Öldubyggð við Svínavatn í Grímsnesi
• Furulundur á Akureyri
• Álfasteinssund í Hraunborgum í Grímsnesi
Sumarútleiga er frá 27. maí til 3. september.
Sótt er um orlofshús á orlofsvefnum: www.orlof.is/vssi.
Innskráning á vefinn er með Íslykli eða með Rafrænum skilríkjum.
Umsóknafrestur er frá til 15. mars til 28. mars 2022.
Úthlutað verður, samkvæmt punktakerfi.
Umsækjendum verður tilkynnt um úthlutun með tölvupósti.
Ari Arnljóts
Sigurðsson
– minningarorð
Góður félagi og mannvinur, Ari
Arnljóts Sigurðsson, féll frá 19.
febrúar á nítugasta aldursári. Ari
átti djúpar rætur í Framsóknar-
flokknum og starfaði innan vé-
banda hans um áratuga skeið
ásamt Halldóru konunni sinni.
Ari var duglegur að sækja fé-
lagsfundi Framsóknar á meðan
heilsan leyfði.
Ari og Halldóra voru mjög
áhugasöm um framgang Fram-
sóknarfélaganna í Reykjanesbæ,
ávallt hvetjandi og gefandi góð
ráð í baráttunni.
Fyrir síðustu bæjarstjórnar-
kosningar var Ari gjarn á að
gefa okkur unga fólkinu góð
ráð. Hann fagnaði mjög vaxandi
starfi innan Framsóknarfélags
Reykjanesbæjar og hvatti okkur
til dáða. Minnistætt var þegar
Ari tók til máls á á félagsfundi
vorið 2018 þegar listi flokksins
fyrir kosningarnar var sam-
þykktur. Stutt var í kímnina
hjá Ara og lagði hann upp með
þá staðreynd að enginn stefna
stæðist eins vel tímans tönn
eins og Framsóknarstefnan.
Það sæist best á þeim öfluga
hópi sem nú færi fram fyrir
Framsókn í Reykjanesbæ. Unga
fólkið skildi mikilvægi sam-
vinnunnar og jafnvel hann, sem
væri orðinn hálf heyrnalaus og
gamall, yngdist um mörg ár við
að sjá svo glæsilegan hóp! Ari
ann flokknum og starfinu af
heilum hug. Þau hjónin færðu
Framsóknarfélaginu gjafir og
sýndu í verki hversu dýrmætt
það er fyrir Framsókn að eiga
hugsjónafólk sem lætur gott af
sér leiða fyrir samfélagið sitt.
Ara verður sárt saknað.
Halldóru og fjölskyldunni allri
sendum við innilegar samúðar-
kveðjur.
Jóhann Friðrik Friðriksson,
alþingismaður
Díana Hilmarsdóttir,
bæjarfulltrúi
Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir,
varaalþingismaður
Kristinn Jakobsson,
fyrrverandi bæjarfulltrúi
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR EYJÓLFSDÓTTIR
Mávabraut 10c , Reykjanesbæ
lést á Hrafnistu Nesvöllum laugardaginn 26. febrúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 10. mars klukkan 13.
Athöfninni verður streymt
https://www.facebook.com/groups/sigridureyjolfsdottir
Ísleifur Gíslason
Pálmar Axel Gíslason Hermina Rós Jamora
Áki Pétur Gíslason
barnabörn og barnabarnabörn.
Vandi HSS og umræðan
Guðmundur Björnsson.
Nýverið sendi framkvæmdastjórn
HSS frá sér yfirlýsingu þar sem m.a.
segir að í áratugi hafi HSS þurft að
starfa í eitruðu umhverfi ómálefna-
legrar umræðu sem sé ein af helstu
orsökum mönnunarvandans. Þá
segir að ef þessum árásum linni ekki
verði vandinn sem við reynum sam-
hent að leysa einfaldlega verri. Þessi
viðbrögð bjóða ekki upp á samhenta
lausn. Það hefur margoft komið fram
að framlag ríkisins til heilbrigðismála
á Suðurnesjum er mjög lágt og hefur
ekki fengist leiðrétt. Er það ekki
meginorsökin fyrir mönnunarvand-
anum og svo e.t.v. stjórnunar- og/eða
skipulagsvandi á stofnuninni? Um-
ræður um HSS hafa vissulega verið
neikvæðar, stundum um of. Um-
ræðuhefðin hér hefur lengi verið á
neikvæðu nótunum og nauðsynlegt
að hún verði málefnalegri.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja tók
til starfa 1976. Í upphafi var um-
ræða um hann í þessum neikvæða
farvegi, hann naut lítils trausts, var
talaður niður og margir foreldrar
sendu börn sín í framhaldsnám í
Reykjavík. Honum var í raun ekki
gefið andrúm til að koma á stöðug-
leika í rekstri og mönnun. Með mark-
vissu starfi starfsfólks skólans náði
hann vopnum sínum, meginhluti
starfsfólks býr nú á svæðinu og
hefur starfað við skólann í áratugi.
Skólinn nýtur nú trausts og mikillar
aðsóknar.
Í fjölda ára var hér mikið og nei-
kvætt umtal um grunnskóla. Vinur
minn sem bjó úti á landi fékk vinnu
hér fyrir um tuttugu árum og vinnur
hér enn. Þau hjónin settu stefnu á
að setjast hér að með sín börn en sú
neikvæða mynd af grunnskólum sem
við þeim blasti varð til þess að þau
settust að í Hafnarfirði. Ég held að
ég muni það rétt að Árni Sigfússon,
sem varð bæjarstjóri í Reykjanesbæ
2002, hafi tekið málefni skólanna í
fangið og átt drjúgan þátt í því að
þeir njóta nú almenns trausts. Ég
rifja þetta upp til að benda á að
unnt er með markvissum aðgerðum
að komast út úr storminum og ná
sáttum og gagnkvæmu trausti.
Kvartanir og neikvæð umræða um
HSS hafa verið viðvarandi í langan
tíma og farið vaxandi. Þetta beinist
ekki að starfsfólkinu, þó einhverjir
læknar hafi fengið falleinkunn,
heldur að skipulagi og aðgengi.
Sjálfur hef ég ekki kynnst öðru en
góðu viðmóti og þjónustu alls starfs-
fólks og þakka fyrir það. Ég get hins
vegar ekki sætt mig við að þurfa
að bíða í vikur eftir tíma hjá lækni
eða að mæta á læknavaktina í fimm
mínútna viðtal eða fá stuttan síma-
tíma og hitta aldrei á sama lækninn.
Ég hef því skráð mig hjá heilsugæslu-
stöð á höfuðborgarsvæðinu þar sem
ég hef fastan heimilislækni sem ég
get leitað til með stuttum fyrirvara.
Mér skilst að fjöldi fólks hafi gert hið
sama. Talað er um einhver þúsund.
Þetta ætti vissulega að létta á rekstr-
inum hér en virðist ekki gera það.
Það er bráðnauðsynlegt að koma
umræðunni upp úr þessum hjól-
förum. Valgerður Björk Pálsdóttir
segir í góðri grein í Víkurfréttum 23.
febrúar að varnarviðbrögð stjórn-
enda HSS séu hrokafull sem ég tek
undir. Slíkt eykur ekki traust og
býður ekki upp á vitræna umræðu.
Hún leggur til að komið verði á al-
vöru almennings samráði sem heil-
brigðisráðuneytið stæði fyrir með
þátttöku fulltrúa íbúa og HSS. Hún
útskýrir þetta nánar í greininni sem
ég bendi fólki á að lesa. Ég tek heils-
hugar undir hugmyndir hennar og tel
að fulltrúar sveitarfélaganna (SSS)
þurfi einnig að koma að þessu. Ég
hvet sveitarstjórnir og fulltrúa HSS
að stuðla að því að koma málum í
slíkan farveg í samvinnu við heil-
brigðisyfirvöld.
Undirbúningur að byggingu ann-
arrar heilsugæslustöðvar mun vera
á byrjunarreit. Nýlega var auglýst
eftir bráðabirgðahúsnæði fyrir þá
starfsemi ef ég man rétt. Kæmi e.t.v.
til greina að skoða hvort ekki væri
unnt að fá heimild til að stofna hér
einkarekna heilsugæslustöð? Mörg
dæmi eru um slíkar stöðvar á höfuð-
borgarsvæðinu sem ánægja er með.
Hugsanlega tæki styttri tíma að
byggja upp slíka stöð en ef um opin-
bera framkvæmd er að ræða. HSS
fengi þá samkeppni sem er af hinu
góða.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts
og útfarar okkar ástkæru foreldra,
GYÐU EIRÍKSDÓTTUR
OG MEINERTS JÓHANNESAR NILSSEN
áður Borgarvegi 11, Ytri-Njarðvík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
og starfsfólks Nesvalla fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót.
Erna Nilssen Unnar Már Magnússon
Júlíanna María Nilssen
Gyða Minný Nilssen Sigfús K. Magnússon
Eiríkur Arnar Nilssen
vÍkurFrÉttir á suðurNEsJuM // 13