Víkurfréttir - 23.05.2022, Blaðsíða 8
Hundruð manna sækja eldstöðvarnar í Fagradalsfjalli heim á hverjum
degi þó svo eldgosinu sé lokið fyrir mörgum mánuðum. „Þetta er
ótrúlega tilkomumikið ennþá,“ segir Eyþór Sæmundsson, verkefna-
stjóri miðla og markaðssetningar, hjá Markaðsstofu Reykjaness.
„Ég fór þarna á dögunum með bandarískum blaðamönnum og þeir
voru yfir sig hrifnir að sjá litina og reykinn sem leggur ennþá frá
þessu og útsýnið sem er þarna uppi. Þetta er frábær göngustaður
og gönguleið. Það voru miklar framkvæmdir við bílastæði og göngu-
leiðirnar sem gera þetta að fullkomnum áningarstað. Frá áramótum
hafa yfir 30.000 manns mætt að Fagradalsfjalli og ég hlakka til að
sjá hver traffíkin verður þarna í sumar. Ég á von á því að það verði
margir sem vilji skoða svæðið.“
Hvað gerði eldgosið fyrir Reykja-
nesskagann og ferðaþjónustuna á
svæðinu?
„Þetta er stór spurning. Ef við
miðum út frá okkur hjá Markaðs-
stofu Reykjaness, þá jókst aðsókn
að visitreykjanes.is um 400%.
Við höfum verið að viðhalda upp-
lýsingum um eldgosið, sem er
okkar langvinsælasta efni, ennþá.
Við sóttum einnig fjölda fylgjenda
á okkar samfélagsmiðla. Við erum
með spjall á heimasíðunni okkar og
þar eru daglega tugir fyrirspurna frá
fólki sem vill vita um aðstæður og
hvernig það kemst á staðinn. Það
er ennþá mikil spenna úti í heimi
fyrir eldgosinu. Verðmætið sem
umfjöllun um eldgosið skapaði fyrir
Reykjanes er metið á tugi milljarða
og við höfum tekið stökk áratug
fram í tímann í markaðssetningu á
svæðinu, bara með þessu. Í kjölfarið
á þessu byggjum við vonandi upp
sterkari ferðaþjónustu. Það er mikið
af tækifærum í ferðaþjónustunni.“
Víkurfréttir hittu Eyþór að máli
við brú milli heimsálfa, sem staðsett
er upp af Sandvík á Reykjanesi þar
sem Reykjaneshryggurinn verður
fólki sýnilegur en brúin liggur á
milli Ameríkuflekans og Evrasíuf-
lekans. Síðustu tvo mánuði hefur
gestafjöldinn við brúnna verið um
250 manns á dag og fer vaxandi.
Ferðamálastofa setti upp teljara á
gönguleiðinni að brúnni sem stað-
festir gestafjöldann. Bílastæðin eru
oft þétt skipuð og þarna eru tæki-
færi. Brú milli heimsálfa verður 20
ára í sumar og er dæmi um hvernig
áningarstaður er búinn til en engin
aðstað var þarna áður og fáir sem
veittu gjánni milli flekanna athygli.
Háhitasvæðin Seltún
og Gunnuhver
Önnur perla í náttúru Reykjanesk-
agans er Seltún við Kleifarvatn.
„Seltún er eins og Gunnuhver,
fallegt háhitasvæði sem fólk sækir
í upp á hálendið og leitar oft langt
yfir skammt. Seltún og Gunnuhver
eru bara hálftíma frá höfuðborginni
og hálftíma frá flugstöðinni. Það
voru 90.000 manns sem heim-
sóttu Seltún á síðasta ári. Það eru
miklir möguleikar í ferðaþjónust-
unni við Seltún og Kleifarvatn.
Þetta er falin perla og ég bendi alltaf
ferðamönnum og erlendum blaða-
mönnum á að taka Krýsuvíkur-
leiðina.“
Ferðaleiðir um Reykjanesskagann
„Það er á áætlun hjá okkur að útbúa
ferðaleiðir hér um svæðið, í ætt við
Gullna hringinn eða Norðurstrandar-
leið, sem er þá söluafurð fyrir ferða-
þjónustuaðila, rútufyrirtæki, ferða-
skrifstofur eða annað. Þá má benda
fólki á staði sem gott er að heim-
sækja og útbúa þjónustu í tengslum
við það.“
Hvernig er með afþreyingu á
Reykjanesskaganum?
„Hér er lúmskt mikið af afþrey-
ingu. Ég fór nýlega með hóp af er-
lendum blaðamönnum um svæðið.
Þar var meðal annars farið í reiðtúr
um Hópsnesið með Arctic Horses
í Grindavík. Það er fjölskyldufyrir-
tæki með væna hesta og skemmti-
legar reiðleiðir framhjá skipsflökum
og gömlum húsatóftum. Það er hægt
að fara á fjórhjól í Grindavík, í kajak-
ferðir frá Vatnsleysuströnd, hvala-
skoðun og sjóstöng frá Reykjanesbæ.
Það eru hellaferðir í boði við Kleifar-
vatn. Það er endalaust af göngu-
leiðum og við sjáum mikil tækifæri
í þeim og að kynna Reykjanes sem
útivistarsvæði og þá sérstaklega
fyrir heimafólk á Íslandi. Í nágrenni
höfuðborgarinnar erum við algjör
útivistarparadís. Það er pláss fyrir
meiri afþreyingu á svæðinu og þar
eru tækifæri.“
Matarkistan Reykjanes
Flóra veitingastaða hefur vaxið á
síðustu misserum.
„Heldur betur. Við höfum verið með
verkefni hjá okkur sem kallast Mat-
arkista Reykjaness og Reykjanes er
orðin algjör matarkista. Það er alltaf
að bætast við flóru veitingahúsa og
nýjasta dæmið er El Faro á Garð-
skaga, sem er að fá glimrandi start.
Heimamenn eru margir að prufa
staðinn og mæla með honum í há-
stert. Staðsetningin er skemmtileg
og Garðskagi er í mikilli uppbyggingu
núna og verið að taka byggðasafnið í
spennandi andlitslyftingu.
Ég fór á dögunum með hóp af út-
lendingum í matarferð um Reykja-
nesskagann og þá kom ýmislegt
skemmtilegt í ljós. Þeir voru t.d.
mjög hrifnir af íslensku pulsunni og
hamborgaranum hjá Villa. Við hér
á svæðinu tölum um pulsurnar hjá
Villa sem þær bestu og þær gerðu
stormandi lukku hjá blaðamönn-
unum og einnig þorskréttur hjá
Höllu í Grindavík, sem heimamenn
þekkja orðið ansi vel.“
Norðurljósaferðir eru vinsælar hér
yfir vetrartímann. Hér eru margir
staðir þar sem hægt er að komast
úr ljósmengun og njóta norðurljósa.
„Já, þar erum við eitt besta svæðið á
landinu. Þeir segja það samstarfsað-
ilar okkar í Aurora Besecamp að þeir
hafi valið Reykjanesið bæði vegna
nálægðar við höfuðborgina og flug-
völlin en líka vegna þess að rokið er
að hjálpa til við að blása skýjum í
burtu, sem hjálpar í norðurljósunum.
Það er auðvelt að búa til norðurljósa-
hring um Reykjanesskagann.“
Reykjanesskaginn er tilvalinn án-
ingarstaður fyrir Íslendinga sem
fara í ferðalög innanlands í sumar
á húsbílum eða með ferðavagna.
„Það eru tjaldstæði hérna í hæsta
klassa. Tjaldstæðið í Grindavík er
t.d. stórglæsilegt og kjörið að hafa
það sem valkost inni í sumarferða-
laginu. Það er alveg hægt að kíkja í
helgarferð með ferðavagninn Suður
með sjó og gista í eina eða tvær
nætur. Ég var á ferðinni með erlenda
blaðamenn í fimm daga hér á Reykja-
nesskaganum og við komumst ekki
yfir alla þá afþreyingu sem er í boði,
þannig að fólk þarf ekki að óttast það
að hér sé ekkert við að vera.“
Og hér eru frábærar sundlaugar.
„Já, þar er enn einn fjársjóðurinn.
Við erum með frábærar sundlaugar
í öllum byggðarlögunum á Suður-
nesjum og þær eru á pari við það
besta sem býðst í öllum þessum bað-
lónum. Svo erum við með Bláa lónið
sem er þetta eina sanna.“
Reykjanesskaginn
útivistarparadís
Eyþór Sæmundsson, verkefnastjóri hjá Markaðsstofu Reykjaness:
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Smelltu á myndina til að horfa og hlusta
MYNDSKEIÐIÐ ER AÐEINS AÐGENGILEGT Í RAFRÆNNI
ÚTGÁFU VÍKURFRÉTTA FRÁ OG MEÐ FÖSTUDEGINUM 27. MAÍ
Við höfum verið með verk-
efni hjá okkur sem kallast
Matarkista Reykjaness
og Reykjanes er orðin al-
gjör matarkista. Það er
alltaf að bætast við flóru
veitingahúsa og nýjasta
dæmið er El Faro á
Garðskaga, sem er að fá
glimrandi start ...
Daníel Einarsson,
verkefnastjóri hjá
Reykjanes Geopark,
og Eyþór Sæmundsson,
verkefnastjóri hjá
Markaðsstofu Reykjaness.
Hverasvæði við Gunnuhver.
8 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM