Víkurfréttir


Víkurfréttir - 23.05.2022, Side 12

Víkurfréttir - 23.05.2022, Side 12
Skólaslit haustannar og braut- skráning Fjölbrautaskóla Suður- nesja fór fram laugardaginn 21. maí. Bryndís María Kjartansdóttir var dúx vorannar með 9,48 í meðalein- kunn. Alls útskrifuðust 109 nem- endur; 79 stúdentar, 15 luku verk- námi og 8 útskrifuðust af starfs- námsbrautum. Þá brautskráðust nokkrir nemendur af tveimur námsbrautum. Alls komu 78 úr Reykjanesbæ, 13 úr Grindavík, 12 úr Suðurnesjabæ, 4 úr Vogum, einn úr Garðabæ og einn úr Kópavogi. Alls komu 107 nemendur af þeim sem brautskráðust frá Suðurnesjum en þess má geta að einn kom frá Garðabæ og einn úr Kópavogi. Bryndís María Kjartansdóttir, dúx annarinnar, fékk 100.000 kr. náms- styrk úr skólasjóði fyrir hæstu með- aleinkunn við útskrift og 30.000 kr. styrk frá Landsbankanum fyrir hæstu einkunn á stúdentsprófi. Bryndís fékk einnig gjafir frá Lands- bankanum fyrir árangur sinn í sam- félagsgreinum, íslensku og erlendum tungumálum. Skólinn veitti henni að auki viðurkenningar fyrir góðan ár- angur í ensku, félagsfræði, íslensku, sögu, sálfræði og spænsku. Dagskrá útskriftarinnar var með hefðbundnu sniði og afhenti Guðlaug Pálsdóttir, skólameistari, prófskírteini og flutti ávarp. Guð- mundur Grétar Karlsson, aðstoðar- skólameistari, flutti yfirlit yfir störf annarinnar. Þau Eygló Ósk Páls- dóttir, Kristján Karl Bragason og Sara Cvjetkovic fluttu tónlist við athöfnina. Guðmundur Rúnar Júlí- usson, fyrrum formaður nemenda- félags Fjölbrautaskóla Suðurnesja, flutti ávarp fyrir hönd brautskráðra og Ása Einarsdóttir, kennari, flutti útskriftarnemendum kveðjuræðu starfsfólks. Foreldrafélag skólans og Reykja- nesbær veittu verðlaun fyrir já- kvæða framkomu á skemmtunum nemendafélagsins í vetur. Að þessu sinni voru það þau Andri Sævar Arnarsson og Gabríela Þórunn Gísladóttir sem dregin voru úr hópi nemenda og fengu þau spjaldtölvu að gjöf. Styrktarsjóður Fjölbrautaskóla Suðurnesja var stofnaður af Kaup- félagi Suðurnesja og Gunnari Sveins- syni, fyrrverandi kaupfélagsstjóra og fyrsta formanni skólanefndar Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Sjóð- urinn er ætlaður til þess að styðja Bryndís María Kjartans- dóttir dúx vorannar í FS Bryndís María Kjartansdóttir, dúx vorannar 2022. Tónlistarflutningur við útskriftina. Fjölmargar viðurkenningar voru veittar við útskriftina. Nöfn allra sem hlutu verðlaun og viðurkenningar má sjá á vef Víkurfrétta, vf.is. Ljósmyndir: Oddgeir Karlsson. við starfsemi sem eflir og styrkir félagsþroska nemenda og veitir nemendum viðurkenningar fyrir frábæran árangur í námi og starfi. Guðbjörg Ingimundardóttir afhenti við athöfnina styrki frá sjóðnum en þau Georg Viðar Hannah, Eva Mar- grét Falsdóttir, Natalía Sif Stockton og Aswin Manoj fengu 30.000 kr. styrk fyrir góðan árangur í tjáningu og ræðumennsku. Kennararnir Ása Einarsdóttir, Axel Gísli Sigurbjörnsson, Þórunn Svava Róbertsdóttir og Lovísa Larsen voru kvödd við lok at- hafnarinnar en þau láta nú af störfum við skólann. Þau Ása og Axel höfðu starfað við skólann í meira en þrjá áratugi. Að lokum sleit skólameistari vorönn 2022. Fleiri myndir frá útskriftinni má sjá á vef Víkurfrétta, vf.is. 12 // víkurFrÉttir á SuðurNESJuM

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.