Víkurfréttir - 02.11.2022, Page 4
Árshátíð
Félags eldri borgara á Suðurnesjum
verður haldin á Nesvöllum
Laugardaginn 12. nóvember.
Borðhald hefst kl. 19.00.
Bubbi og Vignir Bergmann leika fyrir dansi.
Miðasala verður á Nesvöllum
3., 4. og 11. nóvember kl. 13.00–14.00
Miðaverð er kr. 6.500
Skemmtinefndin
Brynjar Emil Friðriksson situr í stjórn Málbjargar, félags um stam, þar sem hann hefur
verið félagi frá árinu 2016. Að hans frumkvæði réðst félagið í útgáfu barnabókar
þar sem stam er meginþemað og var markmiðið að gefa hana í alla grunnskóla
landsins. Það er orðið að veruleika en um 250 bækur eru á leiðinni út um allt land.
Brynjar hefur sjálfur stamað alla tíð
þótt að það sé varla greinanlegt. „Það
kemur þegar það kemur og hefur
lítið eða ekkert með stress að gera.
Ég þekki stamið mitt og veit af því
þarna á bak við en ég hef lært inn á
það og nota ákveðin ráð til að halda
aftur af því,“ segir hann og bætir við
að það skjóti alltaf upp kollinum við
og við.
„Þessi klassíska spurning hvort
maður stami þegar maður syngur.
Nei, maður stamar ekki þegar maður
syngur. Það er alveg merkilegt en
nær ekkert lengra en það,“ segir
Brynjar. „Það nýtist mér ekkert. Ég
ætla ekki að fara að syngja fyrir þig,
ég syng ekkert vel.“
Stam gengur í erfðir
„Ég á eldri albróður og við stömum
báðir og höfum gert alla tíð. Hann
stamar töluvert meira en ég – eða
það heyrist meira vil ég meina. Svo
eigum við eldri hálfsystkin en þau
stama ekki.“
Þannig að gengur stam í ættir?
„Já, það gerir það. Ég á frænda í móð-
urættina sem stamar en veit ekki til
þess í föðurættina. Svo á ég börn og
þau stama ekki.“
Málbjörg er lítið félag en það er
talið að um eitt prósent mannkyns
stami. „Við vitum ekki af hverju við
stömum, það eru einhverjar boð-
leiðir sem klikka. Eins og ég segi þá
kemur þetta þegar það kemur og
maður veit ekkert hvenær það gerist.
Að vísu finnst mér alltaf erfitt að
kynna mig en það er bara ég.
Ég get tekið sem dæmi að ég var í
MSS [Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum] fyrir nokkrum árum og ég
var búinn að vera þar með þessu
fólki í nokkurn tíma. Svo var farið í
hópverkefni þar sem hóparnir voru
að vinna hver í sínu horni og að
lokum átti að kynna verkefnið. Við
vorum þrjú í hópi og sú sem byrjar
að tala byrjar á að kynna sig og ég
andvarpa og hugsa: „Af hverju ertu
að kynna þig? Við vitum öll hvað þú
heitir.“ Þarna vissi ég að þetta yrði
eitthvað, ég bara fann það.
Þau vissu ekki að ég stamaði, það
hafði ekkert borið á því. Svo kom að
mér að kynna mig og ég byrja: „Ég
heiti ...,“ og svo var bara allt stopp.
Það var ekki eins og ég stamaði, það
var bara allt stopp. Ég stóð þarna og
fólk fer að hugsa hvað sé eiginlega
að gerast, það kveikir ekkert endi-
lega að þetta sé stam. Ég ætlaði bara
ekki að koma þessu út en svo tókst
það að lokum og svo gekk kynningin
á verkefninu sjálfu bara vel.
Núna er ég í námi í Bifröst og
fyrsta daginn var svona hópefli og
við þurftum að kynna okkur. Þá í
fyrsta skipti stóð ég upp og sagði:
„Ég vil bara láta ykkur vita að ég
stama, ekki láta það koma ykkur
á óvart en ég vil bara að þið vitið
það.“ Svo kynnti ég mig. Þarna náði
ég einhvern veginn að létta álaginu
á mér, þá var þetta bara frá.“
Hálfgert tabú
Brynjar, sem er rúmlega fertugur að
aldri, segir að stamið hafi verið hálf-
gert tabú þegar hann var að alast
upp. Hlutirnir voru ekkert sérstak-
lega hafðir uppi á borði þótt stam
hafa ekki verið neitt bannorð.
„Ég fór ekki til talmeinafræðings
fyrr en ég var unglingur,“ segir
hann. „Sem er svolítið seint – en ef
þú þekkir einhvern sem stamar þá
erum við oft svona eins og gangandi
samheitaorðabók, maður skiptir út
orðum sem eru erfið. Maður kann
orðið leikinn, þetta snýst ekki um að
fela neitt heldur vill maður bara tala.
Það er mjög leiðinlegt t.d. að vera að
segja brandara og svo þegar „punch
line“-ið kemur þá stoppar allt, þú
ert kannski í hóp og það drepur alla
stemmningu. Þetta er óþolandi. Fólk
kannski hlær en þetta verður hálf-
kjánalegt.“
Brynjar segir aðstæður sem
þessar geta orðið óþægilegar fyrir
alla aðila, bæði þann sem stamar og
einnig þá sem eru að hlusta. Fólk fari
jafnvel að reyna að botna setning-
arnar sem er ekki skemmtilegt.
„Fólk vill vel og það gerir þetta
ósjálfrátt. Mér finnst sjálfum erfitt
að hlusta á þegar fólk byrjar að
stama. Maður vill ekki horfa eitt-
hvað annað eða spyrja hvort þetta
sé ekkert að koma, það er auðvitað
bara dónaskapur.“
Hvernig er það, finnst þér þú hafa
liðið fyrir það að stama sem barn?
„Nei, ekki þannig. Ég fór bara í skóla
og úr skóla. Ég hef aldrei verið vina-
margur en ég kenni staminu ekki um,
þetta er bara minn persónuleiki. Ég
var hins vegar ekkert að rétta upp
hönd þegar ég vissi svarið, ekki
þannig að ég skammaðist mín heldur
bara leiðinlegt að standa upp og
koma hlutunum ekki frá sér. Kannski
þetta hafi líka bara verið vani.“
En félagið Málbjörg, hvernig félags-
skapur er það?
„Málbjörg er félag til vitundar-
vakningar um stam og til að veita
félagsskap. Við erum ekki mörg
sem stömum og þetta er svona
vettvangur til að hittast og auka
fræðslu. Við heyrum undir ÖBÍ
[Öryrkjabandalag Íslands] og sem
aðildarfélag höfum við tækifæri til
ýmissa verka, eins og t.d. að gefa út
bókina Þegar Óliver talar! sem við
gáfum út á dögunum,“ segir Brynjar
en til að auka meðvitund um stam
ætlar Málbjörg að gefa öllum grunn-
skólum Íslands eintak af bókinni.
„Við hefðum ekki getað gefið bókina
út án aðkomu ÖBÍ sem styrkir okkur
við útgáfu á fræðsluefni.“
Fannst vanta barnabók um stam
„Mér fannst vanta barnabók þar
sem stam er meginþemað og þessi
saga fellur vel að íslensku samfélagi.
Hún er um Óliver, sjö ára strák sem
stamar. Honum finnst gaman í körfu-
bolta, að lesa bækur, horfa á þætti og
margt fleira – það eina sem honum
finnst ekki gaman er að tala. Sagan
snýst um verkefni í skólanum þar
sem hann á að koma fram og kynna
verkefni um sig en Óliver hefur alltaf
komið sér undan svoleiðis. Hann
fer svo að gera sér grein fyrir því að
stamið sé hluti af honum og sagan
endar vel.“
Brynjar segir að næst á dag-
skrá hjá Málbjörgu að fara út í að
gera hlaðvarpsþætti með stafrænu
markaðsstofunni Kiwi. „Í þáttunum
munum við fá gesti eins og talmeina-
fræðinga, foreldra barna sem stama
og slíkt. Mér finnst mikilvægt að hafa
þættina í mynd svo fólk sjái því stam
er ekki bara það sem það heyrir, við
skiptum ekki bara út orðum heldur
notum við líka líkamleg trikk til að
hjálpa okkur,“ segir Brynjar Emil
að lokum en það verður fróðlegt að
fylgjast með framvindu þeirra þátta-
gerðar.
Þegar
Óliver
talar!
Bókin segir frá ungum dreng
sem á í erfiðleikum með að
vinna bug á staminu á sama
tíma og hann finnur kjarkinn
til að sætta sig við það. Þegar Ólíver talar! er hjartnæm saga eftir
mæðginin Kimberly Garvin og Saadiq Wicks og byggð á persónulegri
reynslu Saadiq Wicks sem hefur stamað frá því hann byrjaði að tala.
Bókin veitir áhrifamikla innsýn inn í reynsluheim þeirra 4–5% barna
sem stama og þær áskoranir sem þau geta mætt.
Hægt er að nálgast bókina með því að smella á bókarkápuna
(virkar aðeins í rafrænni útgáfur Víkurfrétta).
Stóð fyrir útgáfu
barnabókar
um stam
Brynjar afhendir Stefaníu
Gunnarsdóttur, forstöðumanni
Bókasafns Reykjanesbæjar, eintak
af bókinni Þegar Óliver talar!
Mynd af Facebook-síðu Bókasafns Reykjanesbæjar
VF-mynd: Hilmar Bragi
Jóhann Páll Kristbjörnsson
johann@vf.is
VIÐ ERUM STOLT AF ÞVÍ AÐ VERA Í HÓPI
FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKJA
Á SUÐURNESJUM
SAMKVÆMT ÚTNEFNINGU CREDITINFO
Ljósleiðarinn ehf. áformar að
leggja ljósleiðara í vegslóða sem
liggur meðfram Suðurnesjalínu
1 og sem lagður var við bygg-
ingu línunnar fyrir um 30 árum.
Óskað er leyfis hjá skipulagsyfir-
völdum í Reykjanesbæ til þess
að ljósleiðaralögnin verði lögð
um land það sem fram kemur í
skjölum með umsókninni og þar
m.a. vísað í „Bréf til landeigenda“.
Óskað er heimildar Reykja-
nesbæjar fyrir lagningu strengs
á þeim hluta lagnaleiðar sem til-
heyrir bæjarlandi og var erindið
samþykkt á síðasta fundi ráðsins.
Áform um lagningu ljósleið-
ara með Suðurnesjalínu 1
4 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM