Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.2022, Síða 4

Víkurfréttir - 02.11.2022, Síða 4
Árshátíð Félags eldri borgara á Suðurnesjum verður haldin á Nesvöllum Laugardaginn 12. nóvember. Borðhald hefst kl. 19.00. Bubbi og Vignir Bergmann leika fyrir dansi. Miðasala verður á Nesvöllum 3., 4. og 11. nóvember kl. 13.00–14.00 Miðaverð er kr. 6.500 Skemmtinefndin Brynjar Emil Friðriksson situr í stjórn Málbjargar, félags um stam, þar sem hann hefur verið félagi frá árinu 2016. Að hans frumkvæði réðst félagið í útgáfu barnabókar þar sem stam er meginþemað og var markmiðið að gefa hana í alla grunnskóla landsins. Það er orðið að veruleika en um 250 bækur eru á leiðinni út um allt land. Brynjar hefur sjálfur stamað alla tíð þótt að það sé varla greinanlegt. „Það kemur þegar það kemur og hefur lítið eða ekkert með stress að gera. Ég þekki stamið mitt og veit af því þarna á bak við en ég hef lært inn á það og nota ákveðin ráð til að halda aftur af því,“ segir hann og bætir við að það skjóti alltaf upp kollinum við og við. „Þessi klassíska spurning hvort maður stami þegar maður syngur. Nei, maður stamar ekki þegar maður syngur. Það er alveg merkilegt en nær ekkert lengra en það,“ segir Brynjar. „Það nýtist mér ekkert. Ég ætla ekki að fara að syngja fyrir þig, ég syng ekkert vel.“ Stam gengur í erfðir „Ég á eldri albróður og við stömum báðir og höfum gert alla tíð. Hann stamar töluvert meira en ég – eða það heyrist meira vil ég meina. Svo eigum við eldri hálfsystkin en þau stama ekki.“ Þannig að gengur stam í ættir? „Já, það gerir það. Ég á frænda í móð- urættina sem stamar en veit ekki til þess í föðurættina. Svo á ég börn og þau stama ekki.“ Málbjörg er lítið félag en það er talið að um eitt prósent mannkyns stami. „Við vitum ekki af hverju við stömum, það eru einhverjar boð- leiðir sem klikka. Eins og ég segi þá kemur þetta þegar það kemur og maður veit ekkert hvenær það gerist. Að vísu finnst mér alltaf erfitt að kynna mig en það er bara ég. Ég get tekið sem dæmi að ég var í MSS [Miðstöð símenntunar á Suður- nesjum] fyrir nokkrum árum og ég var búinn að vera þar með þessu fólki í nokkurn tíma. Svo var farið í hópverkefni þar sem hóparnir voru að vinna hver í sínu horni og að lokum átti að kynna verkefnið. Við vorum þrjú í hópi og sú sem byrjar að tala byrjar á að kynna sig og ég andvarpa og hugsa: „Af hverju ertu að kynna þig? Við vitum öll hvað þú heitir.“ Þarna vissi ég að þetta yrði eitthvað, ég bara fann það. Þau vissu ekki að ég stamaði, það hafði ekkert borið á því. Svo kom að mér að kynna mig og ég byrja: „Ég heiti ...,“ og svo var bara allt stopp. Það var ekki eins og ég stamaði, það var bara allt stopp. Ég stóð þarna og fólk fer að hugsa hvað sé eiginlega að gerast, það kveikir ekkert endi- lega að þetta sé stam. Ég ætlaði bara ekki að koma þessu út en svo tókst það að lokum og svo gekk kynningin á verkefninu sjálfu bara vel. Núna er ég í námi í Bifröst og fyrsta daginn var svona hópefli og við þurftum að kynna okkur. Þá í fyrsta skipti stóð ég upp og sagði: „Ég vil bara láta ykkur vita að ég stama, ekki láta það koma ykkur á óvart en ég vil bara að þið vitið það.“ Svo kynnti ég mig. Þarna náði ég einhvern veginn að létta álaginu á mér, þá var þetta bara frá.“ Hálfgert tabú Brynjar, sem er rúmlega fertugur að aldri, segir að stamið hafi verið hálf- gert tabú þegar hann var að alast upp. Hlutirnir voru ekkert sérstak- lega hafðir uppi á borði þótt stam hafa ekki verið neitt bannorð. „Ég fór ekki til talmeinafræðings fyrr en ég var unglingur,“ segir hann. „Sem er svolítið seint – en ef þú þekkir einhvern sem stamar þá erum við oft svona eins og gangandi samheitaorðabók, maður skiptir út orðum sem eru erfið. Maður kann orðið leikinn, þetta snýst ekki um að fela neitt heldur vill maður bara tala. Það er mjög leiðinlegt t.d. að vera að segja brandara og svo þegar „punch line“-ið kemur þá stoppar allt, þú ert kannski í hóp og það drepur alla stemmningu. Þetta er óþolandi. Fólk kannski hlær en þetta verður hálf- kjánalegt.“ Brynjar segir aðstæður sem þessar geta orðið óþægilegar fyrir alla aðila, bæði þann sem stamar og einnig þá sem eru að hlusta. Fólk fari jafnvel að reyna að botna setning- arnar sem er ekki skemmtilegt. „Fólk vill vel og það gerir þetta ósjálfrátt. Mér finnst sjálfum erfitt að hlusta á þegar fólk byrjar að stama. Maður vill ekki horfa eitt- hvað annað eða spyrja hvort þetta sé ekkert að koma, það er auðvitað bara dónaskapur.“ Hvernig er það, finnst þér þú hafa liðið fyrir það að stama sem barn? „Nei, ekki þannig. Ég fór bara í skóla og úr skóla. Ég hef aldrei verið vina- margur en ég kenni staminu ekki um, þetta er bara minn persónuleiki. Ég var hins vegar ekkert að rétta upp hönd þegar ég vissi svarið, ekki þannig að ég skammaðist mín heldur bara leiðinlegt að standa upp og koma hlutunum ekki frá sér. Kannski þetta hafi líka bara verið vani.“ En félagið Málbjörg, hvernig félags- skapur er það? „Málbjörg er félag til vitundar- vakningar um stam og til að veita félagsskap. Við erum ekki mörg sem stömum og þetta er svona vettvangur til að hittast og auka fræðslu. Við heyrum undir ÖBÍ [Öryrkjabandalag Íslands] og sem aðildarfélag höfum við tækifæri til ýmissa verka, eins og t.d. að gefa út bókina Þegar Óliver talar! sem við gáfum út á dögunum,“ segir Brynjar en til að auka meðvitund um stam ætlar Málbjörg að gefa öllum grunn- skólum Íslands eintak af bókinni. „Við hefðum ekki getað gefið bókina út án aðkomu ÖBÍ sem styrkir okkur við útgáfu á fræðsluefni.“ Fannst vanta barnabók um stam „Mér fannst vanta barnabók þar sem stam er meginþemað og þessi saga fellur vel að íslensku samfélagi. Hún er um Óliver, sjö ára strák sem stamar. Honum finnst gaman í körfu- bolta, að lesa bækur, horfa á þætti og margt fleira – það eina sem honum finnst ekki gaman er að tala. Sagan snýst um verkefni í skólanum þar sem hann á að koma fram og kynna verkefni um sig en Óliver hefur alltaf komið sér undan svoleiðis. Hann fer svo að gera sér grein fyrir því að stamið sé hluti af honum og sagan endar vel.“ Brynjar segir að næst á dag- skrá hjá Málbjörgu að fara út í að gera hlaðvarpsþætti með stafrænu markaðsstofunni Kiwi. „Í þáttunum munum við fá gesti eins og talmeina- fræðinga, foreldra barna sem stama og slíkt. Mér finnst mikilvægt að hafa þættina í mynd svo fólk sjái því stam er ekki bara það sem það heyrir, við skiptum ekki bara út orðum heldur notum við líka líkamleg trikk til að hjálpa okkur,“ segir Brynjar Emil að lokum en það verður fróðlegt að fylgjast með framvindu þeirra þátta- gerðar. Þegar Óliver talar! Bókin segir frá ungum dreng sem á í erfiðleikum með að vinna bug á staminu á sama tíma og hann finnur kjarkinn til að sætta sig við það. Þegar Ólíver talar! er hjartnæm saga eftir mæðginin Kimberly Garvin og Saadiq Wicks og byggð á persónulegri reynslu Saadiq Wicks sem hefur stamað frá því hann byrjaði að tala. Bókin veitir áhrifamikla innsýn inn í reynsluheim þeirra 4–5% barna sem stama og þær áskoranir sem þau geta mætt. Hægt er að nálgast bókina með því að smella á bókarkápuna (virkar aðeins í rafrænni útgáfur Víkurfrétta). Stóð fyrir útgáfu barnabókar um stam Brynjar afhendir Stefaníu Gunnarsdóttur, forstöðumanni Bókasafns Reykjanesbæjar, eintak af bókinni Þegar Óliver talar! Mynd af Facebook-síðu Bókasafns Reykjanesbæjar VF-mynd: Hilmar Bragi Jóhann Páll Kristbjörnsson johann@vf.is VIÐ ERUM STOLT AF ÞVÍ AÐ VERA Í HÓPI FRAMÚRSKARANDI FYRIRTÆKJA Á SUÐURNESJUM SAMKVÆMT ÚTNEFNINGU CREDITINFO Ljósleiðarinn ehf. áformar að leggja ljósleiðara í vegslóða sem liggur meðfram Suðurnesjalínu 1 og sem lagður var við bygg- ingu línunnar fyrir um 30 árum. Óskað er leyfis hjá skipulagsyfir- völdum í Reykjanesbæ til þess að ljósleiðaralögnin verði lögð um land það sem fram kemur í skjölum með umsókninni og þar m.a. vísað í „Bréf til landeigenda“. Óskað er heimildar Reykja- nesbæjar fyrir lagningu strengs á þeim hluta lagnaleiðar sem til- heyrir bæjarlandi og var erindið samþykkt á síðasta fundi ráðsins. Áform um lagningu ljósleið- ara með Suðurnesjalínu 1 4 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.