Víkurfréttir - 02.11.2022, Side 6
Fiskvinnslan Miðnes er komin aftur
Þegar þessi pistill kemur fyrir sjónir
ykkar lesendur góðir þá er nóv-
ember genginn í garð – og þá er rétt
að líta á hvernig október var.
Afli bátanna var góður og miklir
fiskflutningar voru í gangi allan
mánuðinn, mest frá Norðurlandi,
t.d. lönduðu allir Vísisbátarnir á
Skagaströnd og Sighvatur GK var
með 518 tonn í fjórum róðrum,
Páll Jónsson GK 449 tonn í fjórum
róðrum og mest 130 tonn, Fjölnir
GK 510 tonn í fimm og Valdimar GK
393 tonn í fjórum en hann landaði
líka í heimahöfn sinni Grindavík.
Hjá minni bátunum var t.d.
Auður Vésteins SU með 179 tonn
í fimmtán, Margrét GK 159 tonn í
nítján, Gísli Súrsson GK 154 tonn
í fjórtán, Óli á Stað GK 119 tonn í
nítján, Daðey GK 100 tonn í sextán
og Sævík GK 113 tonn í sautján.
Í síðasta pistli var talað nokkuð
mikið um Katrínu GK en hún var
þá eini báturinn sem hafði hafið
línuveiðar frá Suðurnesjum eða
Sandgerði. Síðan það var skrifað
hefur bátunum fjölgað um þrjá, því
á svipuðum tíma og Katrín GK var
við veiðar þá kom Jón Ásbjörnsson
RE frá Þorlákshöfn til Sandgerðis
og hóf veiðar þaðan.
Fyrsti róður bátsins gekk mjög
vel og landaði Jón Ásbjörnsson RE
9,4 tonnum, síðan hafa þrír aðrir
róðrar bæst við en aflatölur voru
ekki komnar inn þegar þessi pistill
er skrifaður.
Skömmu síðar kom Hópsnes GK
frá Skagaströnd en hann hefur ekki
hafið veiðar og frá Neskaupstað
kom Margrét GK og fyrsti róður
bátsins frá Sandgerði var góður,
eða rúm níu tonn. Svo það er óhætt
að segja að veiðar línubátanna frá
Sandgerði byrji ansi vel.
Kannski stærsta og kannski já-
kvæðasta fréttin er sú að Miðnes
er komið aftur. Í Sandgerði var í vel
yfir 50 ár rekið fyrirtæki sem hét
Miðnes hf., það fyrirtæki rak mjög
fjölbreytta fiskvinnslu í Sandgerði
og gerði út stóran flota bæði af
bátum og togurum.
Nefna má t.d. Sæunni GK, Geir
Goða GK, Munin GK, Þorgeir GK,
Jón Gunnlaugs GK, Reyni GK, Elliða
GK og togarana Svein Jónsson GK
og Ólaf Jónsson GK. Segja má að
svo til allir Sandgerðingar og margir
Suðurnesjamenn hafi unnið í Mið-
nesi, enda var fyrirtækið stórt og
oft var unnið á vöktum þarna allan
sólarhringinn, t.d. þegar loðnu-
frysting var í gangi.
Ég sjálfur vann í Miðnesi hf. og
á mjög góðar minningar frá vinnu
minni þar. Upp úr 1996 sameinaðist
Miðnes hf. Haraldi Böðvarssyni
hf. á Akranesi og þrátt fyrir fögur
orð HB manna um að halda áfram
vinnslu í Sandgerði þá á endanum
var öllu lokað þar. Allur kvótinn
fór í burtu, allir bátar og togarar
hurfu og hátt í 300 manns misstu
vinnuna.
Var þetta gríðarlegt högg fyrir
bæjarfélagið og marga aðra á Suður-
nesjum – og reyndar urðu örlög HB
á Akranesi ennþá verri, því að það
fyrirtæki sameinaðist síðan Granda
og á Akranesi var öllu lokað og svo
til enginn fiskvinnsla hefur verið í
húsnæði HB á Akranesi.
Sandgerðingar eru nú ekki
þannig fólk að það láti svona hluti
stoppa sig og fiskverkunin Ásberg
ehf. var stofnuð í húsnæði Miðness
og er það fyrirtæki að fullu í eigu
Nesfisks. Síðan árið 2003 hefur Ás-
berg ehf. verið rekið þar og gengið
vel en núna var nafni fyrirtækisins
breytt úr fiskverkuninni Ásbergi
yfir í Miðnes hf.
Sannarlega gleðileg tíðindi enda
er saga hússins og allt þar í kringum
mikil og fólk í Sandgerði, sem og
víðar, hugsar mjög hlýlega og margir
eiga jákvæðar minningar frá veru
sinni einmitt í þessum húsum.
Reyndar mun Miðnes hf. ekki
verða það stórveldi sem gamla
Miðnes hf. var en stefnt er að því
að auka fiskvinnslu í þessum sögu-
frægu húsum.
Og talandi um bátana sem
Miðnes hf. átti að í Grindavík hefur
eikarbáturinn Dúa RE legið ansi
lengi við bryggju. Þegar sá bátur var
smíðaður hét hann Jón Gunnlaugs
GK og var gerður út til ársins 1972
þegar hann var seldur til Tómasar
Sæmundssonar og þar fékk þá
nafnið Hafnarberg RE.
Báturinn réri frá Sandgerði alla
sína tíð undir nafninu, Hafnarberg
RE, og var það þannig að yfir ver-
tíðina fór fiskurinn til vinnslu hjá
Baldvin Njálssyni í Garðinum en
yfir sumarið fór báturinn á humar.
Lagði Tommi humrinum og öllum
aukaafla í Miðnes hf. og hann hélt
þessum viðskiptum sínum við
Miðnes hf. í hátt í 30 ár.
aFlaFrÉttir á SuðurneSJuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson, Thelma Hrund Hermannsdóttir og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson.
Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Ökuskóli allra landsmanna
Finndu næsta
námskeið inn á
www.aktu.is
Allir
réttindaflokkar
Verkleg kennsla í
boði víða um land
Bókleg kennsla á netinu
MEIRAPRÓF
Fjarkennsla
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
Heyrðu umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
HEYRN.IS
w
Áratuga reynsla Sjónmælingar
Góð þjónusta Linsumælingar
Falleg vara Sjónþjálfun
Nýjungar í sjónglerjum og tækjum
Tímapantanir í síma 420-0077 og á heimasíðu www.reykjanesoptikk.is
Fylgdu okkur á Instagram og Facebook @reykjanesoptikk.is
Verið velkomin í nýja og glæsilega
gleraugnaverslun
Menningarfulltrúi Reykjanesbæjar kynnti fyrirhugað fyrirkomulag við
Aðventugarðinn og Aðventusvellið sem starfrækt verða í desember, fyrir
menningar- og atvinnuráði Reykjanesbæjar á síðasta fundi ráðsins.
Nú er auglýst eftir rekstraraðila fyrir Aðventusvellið og opið er fyrir um-
sóknir um jólakofa fyrir söluaðila og fyrir þá sem vilja gleðja gesti og gangandi
með viðburðum og skemmtidagskrá. Ráðið hvetur íbúa, félög og fyrirtæki til
virkrar þátttöku í verkefninu.
Drög að aðgerðaáætlun Reykjanes-
bæjar vegna innleiðingar Barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna
voru lögð fram á síðasta fundi
barnaverndarnefndar Reykjanes-
bæjar. Óskað er eftir umsögnum um
áætlunina.
Barnavernd Reykjanesbæjar
fagnar aðgerðaáætlun Reykjanes-
bæjar vegna innleiðingar Barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna. Barna-
vernd leggur til að bætt verði við
aðgerðaáætlunina eftirfarandi:
Settur verði á fót verkefnishópur
sem hafi það hlutverk að setja fram
tillögur um vistheimili barna í sveit-
arfélaginu.
Í málum barnaverndar þarf
stundum að vista börn og ungmenni
utan heimilis með tilheyrandi álagi
fyrir börnin. Barnavernd hefur í
starfsáætlun í mörg ár lagt áherslu á
mikilvægi þess að komið verði upp
vistheimili fyrir börn innan sveitar-
félagsins. Börn hafa í mörgum til-
fellum verið vistuð langt utan sveit-
arfélagsins. Í þeim tilvikum eru börn
tekin úr skóla og frá vinum, langt frá
þeim sem eru í umgengni við þau.
Slíkt getur haft áhrif á tengslarof við
þá sem barnið tengist.
Stofnaður verði starfshópur sem
hafi það að markmiði að skoða ein-
kenni geðlægðar hjá börnum þannig
að hægt sé að bregðast við sem fyrst.
Vísað er til rannsóknar Eiríks Arnar
Arnarssonar, sérfræðings í klínískri
sálfræði.
Stofnaður verði starfshópur sem
hafi það að markmiði að styðja betur
við börn og foreldra sem tala ekki ís-
lensku og geta ekki tjáð sig í skóla og
samfélaginu. Það að geta ekki tjáð sig
og lært takmarkar möguleika barna
til þess að tjá sig um líðan sína í
skólum og annars staðar og einnig
við að læra.
Barnavernd tekur undir bókun
velferðarráðs þann 19. október síð-
astliðinn og telur mikilvægt að verk-
efninu sé vel fylgt eftir. Barnavernd
hefur áhyggjur af því að staða verk-
efnisstjóra Barnvæns sveitarfélags
verði lögð niður um næstu áramót.
– og stutt verði við börn og foreldra sem tala ekki íslensku
Vistheimili fyrir börn í Reykjanesbæ
Næsti Súluhafi
er fundinn
Menningar- og at-
vinnuráð Reykja-
nesbæjar ræddi til-
nefningar til menn-
ingarverðlauna
Reykjanesbæjar
og ákvað verðugan
fulltrúa til að hljóta Súluna,
menningarverðlaun Reykjanes-
bæjar 2022.
Nafn verðlaunahafa verður
afhjúpað um miðjan nóvember
með sérstökum atburði.
Leita að rekstraraðila
fyrir Aðventusvellið
6 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM