Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.2022, Qupperneq 8

Víkurfréttir - 02.11.2022, Qupperneq 8
Átta aðilar á Suðurnesjum fengu veg- lega styrki eftir Góðgerðarfest Blue Car Átta góðgerðarfélög á Suður- nesjum fengu veglega styrki annað árið í röð eftir vel heppnað Góðgerðarfest Blue Car Rental sem haldið var 15. október. Alls söfnuðust rúmar fimmtán milljónir króna frá fyrirtækjum og einstaklingum samhliða Góðgerðarfestinu. Um 600 manns sóttu skemmtunina og nutu glæsilegrar dagskrár og veitinga í boði Blue Car Rental. Þeir aðilar og sjóðir sem fengu styrk eru eftirfarandi: Minningarsjóður Ölla, Minningar- sjóður Ragga Margeirs, Hæfingar- stöðin, Þroskahjálp á Suðurnesjum, Velferðarsjóður Suðurnesja, Öspin, Eikin og Skjólið. Styrkirnir voru að upphæð 1.875.000 krónur og voru afhentir þann 25. október og tóku fulltrúar styrkþeganna á móti þeim í húsakynnum Blue Car Rental í Reykjanesbæ. Voru þeir mjög þakk- látir og þökkuðu kærlega fyrir veg- lega styrki sem hafa mikla þýðingu fyrir starf þeirra. Blaðamaður Vík- urfrétta settist niður með þremur fulltrúum styrkþeganna og heyrði í þeim hljóðið. Snýst allt um börnin í Öspinni Öspin er miðlæg sérdeild á vegum Reykjanesbæjar. Deildin hefur stækkað mikið á síðustu árum en í ár eru tuttugu ár liðin frá því deildin opnaði. Kristín Blöndal, deildarstjóri hennar, segir styrkinn þýða mikið fyrir þeirra starfsemi enda sé þörf á nýjum leikföngum, kennslugögnum og skynörvunar búnaði. „Þetta er frábær gjöf, það skiptir miklu máli að við njótum svo mikillar velvildar, það er í raun það sem starfsemin byggir á. Þetta er heldur betur rausnarlegt og þessir snillingar hjá Blue eiga heldur betur hrós skilið. Innra starfið styrkist svo mikið við það að fá ný kennslugögn og nú getum við aðeins leyft okkur að gera þetta í þágu barnanna, því þetta snýst allt um þau,“ segir Kristín. Styrkurinn hefur heilmikla þýðingu Hæfingarstöðin er dagþjónusta fyrir fatlað fólk á Suðurnesjum. Þjónustan er hæfingamiðuð og hugsuð til þess að efla atvinnu- og félagslega færni. Jón Kristinn Pétursson, forstöðumaður Hæfingarstöðvarinnar, segir styrkinn gefa þeim tækifæri á að gera meira fyrir fólkið í stöðinni. „Þessi styrkur hefur heilmikla þýðingu, hann í rauninni þýðir að við getum styrkt starfsemina talsvert og gert meira fyrir okkar fólk. Með þessu getum við kannski leyft okkur hluti sem við myndum vanalega ekki leyfa okkur eða fara í hluti sem eru ekki partur af heildar fjárhagsáætlun. Sem dæmi héldum við árshátíð fyrir ekki svo löngu síðan og hún var að hluta til fjármögnuð með þessum sama styrk sem við fengum í fyrra. Þetta veitir okkur svigrúm til að gera þetta skemmtilegt og gera eitthvað gott fyrir okkar fólk. Við erum því afar þakklát fyrir stuðninginn,“ segir Jón. Ásókn í sjóðinn er alltaf að aukast Minningarsjóður Ölla styrkir börn til íþróttaiðkunar sem ekki eiga kost á því, yfirleitt vegna bágrar fjár- hagsstöðu forráðamanna. Þá borgar sjóðurinn meðal annars æfingagjöld, æfingabúnað, keppnis- og æf- ingaferðir. María Rut Reynisdóttir, framkvæmdastjóri sjóðsins, segir styrkinn frá Góðgerðarfestinu skipta sjóðinn miklu máli og mun hann renna beint til barnanna í formi styrkja. „Við höfum notið góðvildar ýmissa fyrirtækja og þetta er rosalega veg- legur styrkur sem við fengum frá Blue sem kemur sér vel. Allt sem kemur inn til sjóðsins fer beint út aftur í formi styrkja, beint til barnanna. Við þökkum kærlega fyrir okkur, þetta skiptir gríðarlega miklu máli þar sem ásókn í sjóðinn er alltaf að aukast og við finnum mikið fyrir því,“ segir María. Fulltrúar styrkþega ásamt eigendum Blue Car Rental. VF-mynd: pket Thelma Hrund Hermannsdóttir thelma@vf.is Magnús Sverrir og Kristín Blöndal. Magnús Sverrir og Jón Kristinn. Magnús Sverrir og Kormákur Kristinsson, sonur Maríu Rutar sem tók á móti styrknum. 8 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.