Víkurfréttir - 02.11.2022, Side 16
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast
vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu.
Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann,
tekur saman með góðra manna hjálp.
41. ÞÁTTUR
ERLEND MÁL OG TENGSL VIÐ ÚTLÖND
Erlend tungumál eru lykill að sam-
skiptum fólks milli landa. Með
bættum samgöngum og fjarskiptum
verður æ mikilvægara að sem flestir
læri erlend mál og kynnist um leið
erlendum siðum og menningu.
Þegar skóli var stofnaður á Vatns-
leysuströnd voru Íslendingar enn í
mestum samskiptum við Danmörku
og danskan afar mikilvæg en vægi
ensku jókst með með auknum sam-
skiptum við Bretland og með flótta
margra Íslendinga til Ameríku um
það leyti. Auk þess varð enskan æ
meira að heimsmáli.
Danska og enska urðu hluti af
almenningsfræðslu á Íslandi með
stofnun unglingaskóla upp úr 1930
en þó ekki skyldunámsgreinar fyrr
en líða tók á 20. öld og þjóðin hafði
öðlast fullt sjálfstæði.
Eins og segir í síðasta þætti var
tungumálanám við upphaf okkar
skóla ekki fyrir öll börn en veita
mátti fermdum unglingum „sér-
staka kennslu“, þar á meðal dönsku
og ensku. Veturinn 1903–1904 var
danska námsgrein í eldri deild og
hugsanlega oftar þó ekki séu um
það heimildir. Erlend mál voru ekki
til fullnaðarprófs í okkar skóla 1914–
1932, árin sem prófabók skólans nær
til.
Á fjórða áratugnum voru víða
komnir upp héraðsskólar og nám
fyrir unglinga. Þá gekkst ungmenna-
félagið Þróttur í fáein ár fyrir nokk-
urra vikna námskeiði fyrir unglinga
í nýbyggðu samkomuhúsinu Kirkju-
hvoli og var þar kennd danska og
jafnvel enska. Svo virðast þessi
tungumál ekki hafi verið kennd í
Brunnastaðaskóla þar til 1. og 2.
bekkur miðskóla koma þar til sög-
unnar 1961.
Löngu síðar er einnig farið að
kenna þessi tungumál yngri börnum.
Lengst af byrjaði dönskukennslan
u.þ.b. tveimur árum fyrr en enskan.
Það breyttist svo upp úr alda-
mótunum 2000 þegar farið var að
kenna ensku strax í 1. bekk, fyrst í til-
raunaskyni, en danskan byrjaði eftir
sem áður í 5. bekk.
Vorið 1994 fóru kennarar skólans
í kynnisferð til Danmerkur, segir
nánar frá því síðar. Í skólaráði 12.
mars 1997 lagði Helgi Hólm kennari
til að heimilað yrði að 9. bekkur
efndi til samskipta við danskan
skóla með gagnkvæm nemendaskipti
í huga en fyrir lægi munnlegt sam-
þykki nemenda og flestra foreldra.
Haldinn var danskur dagur 28. maí
það vor fyrir 7. bekki á Suðurnesjum.
Halla Jóna Guðmundsdóttir og
Inger Christensen fóru með nokkra
nemendur úr 5.–7. bekk í vikuferð
til Danmerkur vorið 1999. Foreldrar
reyndust duglegir að safna fyrir ferð-
inni og Snæbjörn skólastjóri greiddi
götu þeirra. Nemendur gistu á
dönskum heimilum og sóttu danskan
skóla þar sem Halla þekkti kennara
og skrifuðu dagbók á dönsku.
Dönsku nemendurnir skrifuðu, undir
leiðsögn kennara sinna, bók á ensku
um Ísland og náttúru þess, sem kom
sér vel þegar þau komu í heimsókn
árið eftir. Þau gistu á heimilum og
fóru ásamt íslenskum nemendum í
þriggja daga ferð um Suðurland og
gróðursettu trjáplöntur á Ströndinni.
Halla telur að þetta verkefni hafi
aukið áhuga barnanna á dönsku og
að þetta sé heppilegri aldur heldur
en 10. bekkur, sem er að yfirgefa
skólann.
Stundum á síðari árum hefur verið
boðið upp á fleiri erlend mál sem val-
grein í efstu bekkjum, ýmist frönsku,
þýsku eða spænsku. Heimild er um
þýsku sem valgrein árið 1985.
Skólinn hefur tekið þátt í
Esasmus+ og eTwinning verk-
efnum Evrópusambandsins í meira
en áratug. Marc Portal kennari er
þar frumkvöðull en annar kennari,
Hannes Birgir Hjálmarsson, kom
þar fljótlega með. Skólastjórnendur
hafa stutt verkefnið frá upphafi.
Kennurum gefst þarna tækifæri til
að sækja nám og samstarfsfundi er-
lendis, að mestu kostað af mennta-
sjóðum Evrópusambandsins. Covid
setti strik í reikninginn en nú er allt
komið á fulla ferð.
Í Erasmus+ vinna skólar og nem-
endur í ólíkum löndum saman að
námsverkefnum, oft eru einnig gagn-
kvæmar heimsóknir. Fyrir ári síðan
náði Stóru-Vogaskóli þar inngildingu
(accreditation) með vinnu nemenda
og kennara og getur þar með án flók-
inna umsókna sent kennara í samtals
tíu ferðir á ári og u.þ.b. tuttugu nem-
endur í eina ferð árlega í sex ár. Vet-
urinn 2020–2021 unnu nemendur í
10. bekk verkefni á netinu með skóla
í Frakklandi og öðrum á Ítalíu. Þeir
unnu að gerð myndasögu á netinu
um sögu Jules Verne um ferðina að
miðju jarðar. Þeirri vinnu lauk með
gagnkvæmum heimsóknum. Nem-
endur fóru í fylgd kennara til þessara
landa þar sem gist var á heimilum
nemenda. Meðfylgjand mynd er
tekin í Pornic í Frakklandi.
Á þessu skólaári vinnur 10. bekkur
með frönskum og ítölskum bekk að
umhverfisborðspili sem hópurinn
hannar, semur og prufukeyrir og
lýkur með gagnkvæmum heim-
sóknum næsta vor. Þarna læra nem-
endur tungumál, landa-, umhverfis-
og samfélagsfræði og kynnast lífi
fólks í fjarlægum löndum. Öll sam-
kiptin eru á ensku og eru allir með
ensku sem annað mál.
eTwinning er skólasamfélag á
netinu þar sem hægt er að komast
í samband við evrópska kennara og
skólafólk, taka þátt í einföldum sam-
starfsverkefnum og sækja sér endur-
menntun á vinnustofum og nám-
skeiðum á netinu. Guðrún Kristín
Ragnarsdóttir, náttúrufræðikennari,
er nú með 5. bekk í eTwinning-verk-
efni þar sem nemendur skóla frá
öðrum löndum læra um eldfjöll og líf
fólks í eldfjallandi, bæði á Íslandi og á
eyjunni Reunion í Indlandshafi. Eld-
fjallaeyja þessi tilheyrir Frakklandi,
Hún er innan við 1% af stærð Íslands
en þar búa þó hátt í milljón manns.
Heimildir m.a.: Reglugerðin frá 1872. Gjörðabók skólanefndar. Prófabók fyrir Suðurkots-
barnaskóla 1914–1932. Upplýsingar á netinu um Erasmus+, accreditation, eTwinning, eyjuna
Reunion o.fl. Almenningsfræðslsa á Íslandi. Viðtöl við Höllu Jónu, Marc Portal, Hannes
Hjálmarsson, Jóhann Sævar, Helga Guðmundsson o.fl.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga
vísaði umsókn um framkvæmda-
leyfi vegna Suðurnesjalínu 2
aftur til skipulagsnefndar sveitar-
félagsins vegna nýrra gagna í
málinu. Nefndinni var falið að yfir-
fara tillögu sína að afgreiðslu með
hliðsjón af þeim upplýsingum sem
nú liggja fyrir.
Afgreiðsla skipulagsnefndar er að
nefndin leggur til við bæjarstjórn
að fenginn verði verkefnastjóri til
að afla upplýsinga og leggja mat á
ný gögn í málinu. Afgreiðsla bæjar-
stjórnar er að bæjarstjórn samþykkir
tillögu skipulagsnefndar. Samþykkt
samhljóða með sjö atkvæðum.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga
hefur samþykkt tillögu skipulags-
nefndar með sex atkvæðum um að
svæðið við Hafnargötu 101 verði
þróunarreitur. Greint var frá af-
greiðslu skipulagsnefndar í síðasta
tölublaði Víkurfrétta.
Lögð voru fram drög að kynn-
ingargögnum vegna uppbyggingar
og þróunar á lóð Hafnargötu 101.
Um þróunarreit er að ræða þar sem
miklir möguleikar eru fyrir hendi.
Áður en málið var tekið til um-
fjöllunar lýsti Birgir Örn Ólafsson,
bæjarfulltrúi, yfir vanhæfi sínu við
afgreiðslu málsins og tók ekki þátt í
afgreiðslu þess.
Dagskrárgerðarfólk
og hugmyndir að þáttum
í Hlaðvarp Víkurfrétta
Hlaðvarp Víkurfrétta
— Leggðu við hlustir
Ertu til í að vinna við dagskrárgerð og taka upp einn þátt
í viku eða kannski bara einn þátt í mánuði?
Ertu til í að ganga til liðs við okkur í vetur og sjá um hlaðvarpsþátt?
Ertu kannski bara með hugmyndir að áhugaverðu efni til umfjöllunar
og ert til í að deila því með hlaðvarpsstjórnendum?
Við erum að leggja lokahönd á nýtt stúdíó þar sem verður aðstaða
til að taka á móti gestum og ræða við þá á bak við hljóðnemann
og/eða framan við myndavélina.
Ef þú hefur áhuga á að taka þátt,
þá máttu endilega senda okkur línu á vf@vf.is
VOGAR
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Samþykkja að fá
verkefnastjóra vegna
Suðurnesjalínu 2
Bæjarstjórn samþykkir áform
um svæðið við Hafnargötu 101
Svæðið við Hafnargötu 101 í Vogum verður þróunarreitur samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar í Vogum. VF-mynd: Hilmar Bragi
Við hjá Víkurfréttum
erum alltaf að reyna að
gera betur og viljum efla
fréttaþjónustu okkar við
samfélagið í Vogum og á
Vatnsleysuströnd. Ábend-
ingar um áhugavert efni
og viðmælendur má senda
á ritstjórn Víkurfrétta á
póstfangið vf@vf.is.
16 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM